Póstmannablaðið - 01.10.1942, Qupperneq 9

Póstmannablaðið - 01.10.1942, Qupperneq 9
5. ár Reykjavík, okt. 1942 3. blaö Ný starfsreglugerð. Að undanförnu hefur Póstmannafé- lagið unnið að því, að fá samþykkta nýja starfsreglugerð fyrir starfsmenn póststofunnar í Reykjavík, og er hún eins konar uppsuða úr eldri reglugerð- inni frá árunum 1931, 1937 og 1940. Enda þótt reglugerð þessi hafi ekki enn- þá verið staðfest af ráðherra, þykir hlýða, þar sem fullt samkomulag hefur náðzt um meginatriðin, að geta hennar hér að nokkru. Áður var gert ráð fyrir því, að póst- menn ynnu 10'/2 klukkustund brúttó á virkum dögum, en nú er þetta komið niður í 91/2 stund, svo ekki hefir nú mikið áunnizt að því er snertir stytt- ingu vinnudagsins. Hinn raunverulegi vinnudagur er nú viðurkenndur átta stundir brúttó, en póstmenn eru skyldir til, samkvæmt nýju reglugerðinni, að vinna 39 klst. í mánuði umfram þennan vinnudag, og greiðir póststjórnin þá vinnu með 150 kr. á mánuði. Sé unnið umfram 9^/2 stund á dag, skal greiða fyrir það sér- staklega. í eldri reglugerðinni var hægt að láta starfsmennina vinna allt að 14 stundir á dag á tímabilinu frá kl. 6—24. En í nýju reglugerðinni er skylduvinn- an leyst af hendi á tímabilinu frá kl. 8—20. Starfsmennirnir eru þó skyldir til að vinna fimm tíma á mánuði, ef þörf krefur, umfram 9 '/2 stund á dag, en ekki lengur. Þá er gert ráð fyrir, að póstmenn séu ekki kvaddir til vinnu oftar en einn sunnudag í mánuði. Á tímabilinu 15. maí til 15. septem- ber eiga póstmenn að jafnaði að fá frí annan hvern laugardag frá kl. 13. í stað 4% sölulauna af frímerkjum og innheimtuþóknunar af aðflutnings- gjöldum (sbr. 17. gr. póstlaga frá 12. febr. 1940 og 26. gr. laga frá 31. des. 1939 um tollskrá og fl.), fá skipaðir póstmenn í Reykjavík 125 kr. á mánuði. f starfsreglugerð póstmanna frá 22. febrúar 1940 var samið um fasta greiðslu, 90 kr., í stað sölulaunanna, PÓSTMANNABLAÐIÐ

x

Póstmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.