Póstmannablaðið - 01.10.1942, Blaðsíða 21
?
Hinn 25. sept. 1942 birti Fjármála-
ráðuneytið eftirfarandi auglýsingu um
aukaverðlagsuppbót:
„Samkvæmt ályktun Alþingis 28.
ágúst síðastl. ber að greiða embættis- og
starfsmönnum ríkis og ríkisstofnana
aukaverðlagsuppbót á laun þeirra frá
1. júlí s. 1. að telja. Nemur uppbót þessi
30% af fyrstu 2400 krónum grunn-
launa, ásamt verðlagsuppbót af þeirri
fjárhæð, eins og hún verður á hverjum
tíma, en 25% af grunnlaunum frá
2400 krónum og allt að 10000 krónum,
ásamt verðlagsuppbót, samkv. lögum
nr. 48 1942. Uppbót þessi er nú fallin
í gjalddaga fyrir mánuðina júní—sept.
incl“.
Flugfélag íslands hefir nýlega sent
póststjórninni tilboð um að flytja póst
sér far um að leysa það vel af hendi.
Hann var lipur í öllum viðskiptum og
hjálplegur öllum er til hans leituðu, þótt
mörgu væri að sinna, enda var Garðs-
auki áður fyrr ein af stærri póstaf-
greiðslum hér sunnan lands og er það
raunar enn í dag.
Þau kynni, er póstmenn yfirleitt
höfðu af Sæmundi í Garðsauka, voru
hin beztu bæði hvað snerti persónuleg
kynni og eins er um samstarf innan
póstþjónustunnar var að ræða.
Með Sæmundi Oddssyni er því hnig-
inn ágætur samstarfsmaður, sem við
munum lengi minnast. H.
í vetur til þeirra landshluta, sem lé-
legastar póstsamgöngur hafa.
Blaðinu er ekki kunnugt um kostnað-
arhlið þesas máls, en það telur hins veg-
ar nauðsynlegt, að allt sé gert til þess að
bæta póstsamgöngurnar frá því sem
verið hefir undanfarna vetur, og þá
einkum að því er snertir Austurland
og Vesturland.
Símagjöldin hækka. Hinn 10. október
s.l. hækkuðu öll símagjöld innanlands
um 100%. Hækkun þessi nær þó ekki
til símskeytagjalda til útlanda, þar eð
þau berytast aðeins samkvæmt alþjóða-
samþykktum. Ekkert bendir til þess að
í ráði sé að hækka póstgjöldin og hafa
þó sum þeirra verið óbreytt í nær 20 ár,
en önnur lækkað stórlega. Virðist þó
sízt vanþörf á því að auka tekjur póst-
sjóðs frá því sem nú er.
Hámarki póstávísana hefir verið
breytt þannig, að það hækkar úr kr.
5000.00 í kr. 10.000.00 til kaupstaða,
og úr kr. 1000.00 í kr. 2000.00 til ann-
arra póstafgreiðslustað.
Hámark póskrafna hefir verið hækk-
að úr kr. 1000.00 í 10.000.00, ef póst-
kröfuávísunin á að útborgast í kaup-
stað, annars kr. 2000.00.
Kaupstaðir eru: Reykjavík, Akranes,
fsafjörður, Siglufjörður, Akureyri,
Seyðisfjörður, Neskaupstaður, Vest-
mannaeyjar og Hafnarfjörður.
PÓSTMANNABLAÐIÐ
13