Póstmannablaðið - 01.10.1942, Qupperneq 15

Póstmannablaðið - 01.10.1942, Qupperneq 15
á tveim vikum, eftir að hafa farið fjöldamargar stuttar á fimmtíu vikum o. s. frv. En margir vildu víst gjarna taka Austurstræti með sér út í dreifbýlið. Gott væri að hafa eitt lítið bíó og ef Hótel Borg gæti flotið með, þótt ekki væri nema neðsta hæðin, þá væri hreint ekki svo afleitt að fara í sumarleyfi. En því þá ekki að vera kyrr í borginni ? En það er nú svona, að slíkt þykir lítið til frásagnar. Þá er að sameina sem bezt ólík sjónarmið og reyna að taka sem mest með sér. Eitt laugardagskvöld sá ég pilt, sem sennilega er ekki mjög með á nótunum í samkvæmislífinu, vera að leggja af stað í útilegu eða ferðalag, klyfjaðan útbúnaði sínum, en með útvarpstæki í hendinni. Hann ætl- aði ekki að slíta sambandið við menn- inguna og umheiminn, þótt hann brigði sér bæjarleið, drengurinn sá. Stundum er kalt þessa júlídaga og íbúar sumarnýlendunnar við Hreðavatn skjótast þá milli tjalda sinna og skála Vigfúsar, eins og þeir séu að fara til beitarhúsa á þorranum. En í kvöld er logn og kyrrð. Ofan úr skógarásnum berast glymskrattatónar vítt yfir. I love you my sweethcart, Ekki spyr ég nú að. I nótt verður víst ekki snemma gengið til hvílu. Mér finnst Austur- stræti vera nálægt og ef til vill leynist snefill af Borginni á næstu grösum. Ungir menn ganga fram hjá tjaldi mínu. „Hver býr nú þarna?“ „Það er einhver gamall maður“. Svo halda þeir áfram. Þarna fékkstu sneiðina þína, þér er nær að amast ekki við Austurstræti og nálægum götum. Svo fer ég að velta ýmsu fyrir mér meðan ég bíð eftir kyrrð næturinnar, sem kemur máske ekki fyrr en með nýj- um degi. Ég hefi t. d. aldrei komist að PÓSTMANNABLAÐIÐ niðurstöðu um, hvort póstmenn viti hjá hvaða stofnun þeir vinna. Gáfulega er nú spurt. Danir kalla stofnunina „Post- væsen“, en það orð finnst ekki í okkar dönsku orðabók, sem bendir til þess að íslenzka orðið vanti. Hin ófullgerða saga dr. Guðbrandar gæti gefið fræðslu um upphaf póststarfa á landi hér, ef hún mætti fullgerast og sjá dagsins ljós, en það var á þeim tíma, sem nýyrða- smíðar voru ekki mjög iðkaðar. Síminn kom með nýja tímanum og lagði landið undir sig með brauki og bramli. Slík stofnun varð að fá nýtt og auðvitað íslenzkt nafn. Björn Jónsson sagði að sími skyldi hún heita og þótti ljótt þá, en ágætt er tímar liðu. Nú er byrjað að kalla okkar stofnun póst, stutt og lag- gott, en þá detta mér alltaf ýmsir góðir póstar í hug, eins og þeir framliðnu heiðursmenn Hans og Þóroddur, þeir fóru ólíkar póstleiðir, en gerðu það með prýði. Sömuleiðis Jón í Galtarholti, sem ég afgreiddi oft að næturlagi í Borgar- nesi; hann var alltaf hæglátur og gam- ansamur og átti jafnvel stundum örlít- ið. Þá var oft harðsótt yfir Holtavörðu- heiði. Máske erfir stofnunin póstnafn- ið, þegar gömlu mennirnir, með því nafni, eru gleymdir. Þá vinnum við hjá Landspóstinum eða Ríkispóstinum. Morguninn er fagur, sólskin og logn. Ég geng niður að vatni til að þvo mér. Maður kemur út úr tjaldi á vatnsbakk- anum með útblásna vindsæng undir hendinni, sem hann fleytir sér á út á vatn, rétt eins og hann væri við Miðjarð- arhaf eða Laugarvatn. Þetta gæti ég svo sem líka, ef mín vindsæng hefði ekki gert verkfall. Svo sný ég baki við mann- inum með vindsængina og labba heim að tjaldi. I nágrenni Hreðavatns hafa stórir myndlistamenn og smáir myndgerðar- 7

x

Póstmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.