Siglfirðingur


Siglfirðingur - 01.02.1924, Blaðsíða 3

Siglfirðingur - 01.02.1924, Blaðsíða 3
SÍÖLFIRÖINQUR 30 Lesið þetta. Febrúarvinningurinn verður Kúluborð á 28 krónur, afar spennandi og fásjeð dægradvöl, sem gaman er að eiga. Sá sem það fær, hefir óslitna ánægju framundan. Hver verður hlutskarpastur? Virðingarfylst Friðb. Níelsson. Skrá yfir bækur sem fást í bókaverzlun Friðb. Níelssonar. K. Kveldglæður, sögur eftir Guðm. Friðjónsson, í kápu 5,00 Kveldbænir, veggmynd, 1,00 Kátir piltar, barnabók með myndum, í bandi 2,00 Kross og Hamar, Fornaidarsaga frá Noregi, í kápu 1,00 Kyijur, kvæði eftir Jakob Thorarensen, í kápu 6,00 Do. — — — — í bandi 8,50 SIGLFJRÐLNGUR kemur út fyrst um sinn á hverjum föstu- degi. Fyrsti árgangur, minst 40 blöð, kostar 4 krónur er greiðist fyrirfram. í lausa- sölu 15 aura blaðið. Erlendis kostar blað- ið 5 krónur. Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter dálksbreiddar og greiðast við afhendingu nema öðruvísi sje umsamið. Þeir sem auglýsa mikið geta komist að samningi um lægra verð. — Auglýsingum sje skil- að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr- ir miðvikudagskvöld. Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef. er lægra standa, ekki munað eftir þvi, að þeir eru eins og steinninn sem kastað er i vatnið. Eins og gárarnir myndast þar sem steinn- inn kemur niður og berast langa vegu eftir yfirborðinu, eins fylgjast áhrifin, af þvi dæmi er menn gefa til umhverfis þeirra. Af ávöxtunum skuluð þjer þekkja þá, stendur skrifað. Og er ekki sjálfsagt að ætlast til stærri og fegurri ávaxta af því trje, sem gróðursett er í góðum jarðvegi og bæði er hlúð að, og á við blíða náttúru að búa, en af því trje, sem vex í vondum jarðvegi, og enga eða litla ræktun fær. í hverri stöðu, sem maðurinn er æðri eöa lægri, ber honum að gæta þess, að áhrif þau er hann hefir, og eftirdæmi það er hann gefur sje bætandi og til blessunar. En því hærri stöðu, sem maðurinn hefir, því hærri kröfur má gera til Jhans, og því meiri ábyrgð hefir hann gagnvart þeim, er hann um- gengst, landi sínu og þjóð. H. J. Bannmálið. Svohijóðandi tillaga var lögð fyrir þingmálafundinn hjer 21. f. m.: Fundurinn skorar á alþingi 1924: 1. Að sjá um að gerðar verði allar þær tilraunir, til útvegunar nýrra markaðsstaða fyrir íslenskan saltfisk, með það fyrir auguin að losa landið undan áhrifum Spán- verja á áfengislöggjöf vora og koma á fullkomnu áfengisbanni, sem allra fyrst. Sjerstaka áherslu leggur fundurinn á að þingið hlutist til um, að ransökuð sjeu tilboð þau um fisksölu, er hr. David Östlund hefur skýrt frá að fáanleg væru í Skotlandi. .2 Að styrkja starfsemi I. O. G. T. mun ríflegar en áður og koma á opinberri fræðslu um bindindismál og skaðseini áfengis. 3. Að gera þegar í stað þá breytingu á áfengisverslun ríkisins, að afhendingastaður vínanna verði aðeins einn á landinu, og vínin að- eins afgreidd eftir pöntunum neyt- enda, en engar birgðir hafðar fyrir- liggjandi annarsstaðar, eins og nú er. 4. Að nánari gætur sjeu hafðar á áfengissölu lækna og lyfjabúða en verið hefur og læknum og lyf- sölum tafarlaust refsað með rjett- inda missi ef uppvísir verða að misbrúkun rjettinda sinna. Hert sje á öllu eftirliti og löggæslu, og sektarákvæði fyrir bannlagabrot gerð svo há, að fjárhagsleg áhætta sje að brjóta lögin. 5. Að nema ur gildi heimild er- Dósamjólk kom með »Goðafoss« Friðb. Níelsson. Nýju spilln kornu með ,Goðafoss‘ Friðb. Níelsson. lendra ræðismanna til að flytja inn áfengi, að minsta kosti meðan leyfður er innflutningur á ljettum vínum. Tillagan var borin upp til atkv. lið fyrir lið, og var 1. samþ. ineð 82 atkv. gegn 10 2. — — 75 — — 10 3. — — 69 - — 11 4. — — 75 — — 17 5. — — 67 — — 13

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.