Siglfirðingur - 08.02.1924, Page 3
Líftryggingar eru fræðsluatriði,
en ekki hrossakaup. — Leitaðu
þjer fræðslu! — (»Andvaka.«)
Viðskiftamál.
Frjáls verslun og ríkisverslun
Svohljóðandi tillaga var samþykt
með 144 atkv. móti 39. á þing-
málafundi á Akureyri 31. jan. s 1.
»Par eð fundurinn lítur svo á,
að ríkissjóði sje ofvaxið og það
sje hættulegt fyrir lántraust hans
að binda stórar upphæðir í verzl-
unar fyrirtækjum, en hins vegar að
einkasölutilraunir þær, sem gerðar
hafa verið, eigi hafi gefist vel,
hvorki að þvi er snertir vörugæði,
vöruverð eóa tekjur fyrir ríkissjóð-
inn, skorar hann á alþingi:
a. Að leggja niður ríkiseinka-
sölu á steinolíu svo fljótt sem
verða má og þarafleiðandi að
nema úr gildi einkasölulögin
frá 1917 og fyrirskipa að
samningnum frá 10 ágúst
1922 við British Petroleum
Co. verði sagt upp fyrir lok
þessa árs.
b. Að leggja niður einkasölu á
tóbaki og gefa verzlun á þeirri
vöru frjálsa.«
Er svo að sjá, sem fylgi Lands-
verslunar og einkasölu fari nú óð-
um minkandi, og fer það að
vonum.
Frá þingmálafundinum
21. f. m.
Pess hefur áður verið getið hjer
í blaðinu, að fundurinn feldi tillögu
sem kom fram um að kjósa full-
trúa á sameiginlegan þingmáiafund
á Akureyri í sambandi við þetta
mál kom fram svohljóðandi tillaga,
sem var samþykt með 70 atkv.
gegn 1.
»Fundurinn lýsir yfir því, að
hann skoði Stefán Stefánsson ,í
Fagraskógi rjett kosirin annan
þingmann kjördæmisins og mót-
mælir þeim gerðum yfirkjörstjórn-
SIOLFIRÐINQUR
ar, að hafa gefið hr. Bernharði
Stefánssyni kjörbrjef ti! Alþingis..
Pá var eftirfarandi tillaga samþ.
með 127 samhljóða atkvæðum :
»Fundurinn skorar á alþingis-
menn Eyjafjarðarsýslu að beita
sjer fyrir þvi á Alþingi að Siglu-
fjörður verði gjörður að sjerstöku
þingmannskjördæmi. Til vara
krefst fundurinn þess að Eyja-
fjarðarsýsla nieð Siglufirði verði
setn fyrst skift í tvö einmenn-
ings kjördæmi.«
Magnús Einarsson,
söngstjóri á Akureyri, sendi kunn-
ingja sínum brjef með Esju síðast,
með þessari utanáskrift:
»Storms ber nafnið njótur brands,
niflungs hæsti og auður
fjekk það heiti faðir hans
fyrir löngu dauður.
Fyrir innan öldu sog
uppsett mastur heitir
líka kent við langan vog
landsins þekt um sveitir.«
Brjefið komst til skila.
Lesari góður
getur þú eða veistu af nokkrum
sem vill selja eftirtaldar orðabækur:
Danslc ísl. og ísl. danska
Ensk — - — enska
Pýsk — - — þýska
Upplýsingar teknar með þökkum í
„Hamborg.“
Gólfklútar, Sodi, Krystal-
sápa, Stangasápa, Hand-
sápa fæst í
„Hamborg“
Útgefandi og ábyrgðarmaðtir:
Friðb. Níelsson.
Siglufjarðarprentsmiðja.
43
I. O. G. T.
Stúkan »Framsókn« nr. 187 helduríundi
á hverju miðvikudagskvöldi kl. 8 í húsi
Hjálpræðishersins.
Nýir meðlimir velkomnir.
Unglingastúkan »Eyrarrós« nr. 68 held-
ur fundi á hverjum sunnudegi kl. hálf
þrjú á sáma stað.
Hveiti 2 teg. (í Ijereftspokum)
Matbaunir, grænar og gular
Riis, Sago, Kartöflumjöl,
Melís í 1 |i og !|2 kössum
o. fl. nauðsynjavörur nýkomnar í
„Hamborg.“
Gleraugu hafa tapast. Finnandi
vinsamlega beðinn að skila þeim í
Suðurgötu 12.
Influensa
hefur komið upp í Reykjavík, en
er fremur væg og breiðist hægt út
Botníac
strandaði við Helsingfors en
náðist út aftur lítið skemd »Tjald-
ur« kemur þessa ferð í hennar
stað.
Enskur togari
strandaði í gærmorgun við Vest-
manneyjar. Menn björguðust.
Pýskur togari
sírandaði nýlega við Qrindavík.
Menn björguðust.
Togararnir
sunnlensku selja ágætlega — alt
upp í 2000 sterlingspund.
Katrin Thoroddsen
læknir, hefir verið skipuð læknir
í Flateyarhjeraði á Breiðafirði. Hún
lauk læknaprófi í Rvík árið 1921
og er fyrsta kona, sem hlýtur kon-
unglegt embætti á íslandi.
Úrslit
bæjarstjórnarkosninganna í Rvík
urðu þau að B-listinn fjekk rúm
3200 atkv. og kom að þrem mönn-
um: Guðm. Asbjörnssyni, Jóni
Olafssyni og 'Pórði Sveinssyni.
A-!istinn fjekk um 1700 atkv. og
kom að Agústi Jósefssyni og
Stefáni Jóh. Stefánssyni.