Siglfirðingur - 20.06.1924, Side 1
SIGLFIRÐINGUR
I. árg.
Siglufirði 20. júní 1924.
27. blað
Pað sem eftir er af fyrsta árgangi »Siglfirðings«
íninnst þrettán blöð,
geta nýir kaupendur fengið fyrir aðeins
ein a kr ó n u.
Gerist áskrifendur strax!
I. O. G. T.
Stúkan »Framsókn« nr. 187 heldurfundi
á hverju sunnuudagskvöldi kl. 7,30 í
leikfimishúsinu.
Nýir meðlimir velkomnir.
Unglingastúkan »Eyrarrös« nr. 68 held-
ur fundi á hverjum sunnudegi kl. 3 á
sama stað.
Verslun Siglufjarðar.
Verslun Siglufjarðar er alveg ein-
stök í sinni röð.Alveg eins og bær-
inn sjálfur og bæjarlífið. Öllum Sigl-
firðingum þykir vænt um bæinn
sinn og unna honum og óska allra
gæða; þeir vilja alt feigt sem sett
getur blett á sóma hans, og það
er áreiðanlegt, að fátt er bænum tii
meiri óþrifa og óþurftar en versl-
unarmáti sá, er hjer er látinn við-
gangast í skjóli verslunarlöggjafar-
innar. Jeg vona að innfæddir kaup-
menn hjer firtist ekki við þessi um-
mæli, nje þeir sem hjer eru búsett-
ir; en förufuglarnir, sem stundahjer
kaupmenskuna yfir síldarvertíðina og
hlaupa svo í burtu úr bænum —
kannske útsvarslausir — með þús-
undir króna í vasanum, þeir eiga
að taka þetta að sjer. Fað er að
vísu vori að þessir menn leiti hing-
að til að stunda þessa auðveldu
atvinnu fyrst lögin — líklega —
heimila það, og þeim erekkibönn-
uð hjer bæjarvist sem kaupmönn-
um. Jeg veit ekki til að slík kaup-
menska tíðkist nokkurstaðar annar-
staðar á þessu landi nje heldur
annarstaðar í siðuðunr heimi. Að
íninnsla kosti er hún svo skræl-
ingjaleg, að furðu gegnir, að slikt
skuli ekki varða við lög í menn-
ingarlandi. »&pekúlanta«-verslunin
gamla er nú löngu dauð að lögum.
En hvað er þessi verslnn annaðen
»Spekúlanta«-verslun rekin á þurru
landi? Ekki er jeg lögfróður maður
— því miður — en efasamt þykir
uijer að þessi verslun sje í raun og
veru leyfileg, samkvæmt verslunar-
löggjöfinni, að minsta kosti er það
á móti anda hennar að aðrir reki
verslun en þeir er búsettir eru á
staðnum eða hafi þar fasta umboðs-
menn búsetta fyrir sína hönd. Og
það er alveg áreiðanlegt að ekkert
stjettabrot í voru þjóðfjelagi er öðr-
um eins misrjetti beitt í skjóli lag-
anna en kaupmenn búsetíir í Sigluf.
Eða mundu ekki þessa fáu föstu
kaupmenn hjer muna um þá aura
er renna inn í búðir og í vasa þess-
ara lausakaupmanna? Grunur er mjer
á þvi. Og sjaldan er í þessum búð-
um sá þarfi á boðstólum að bæn-
um sje nein björg í eða nokkur
hagur að og ekki hef jeg orðið var
við að vöruverð hjer lækkaði við
hinn aðkomna »konkurens.« Ekki
er jeg kaupmaður nje verslunarmað-
ur, svo það stæði kannske einhverj-
um nær en mjer, að hreifa þessu
máli. Og það verður að líkindum
gert. Kaupmannastjettin hjer á að
rísa upp gegn þessari aðkomnu
mjólkurdósakaupmennsku’og koma
henni fyrir kattarnef. Jeg er viss
um að það er vel hægt og sjálf-
sagt fyrir búsetta kaupmenn hjer
að varða svo iim rjett sinn sem
auðið er. Þess meira gagn er að
búast við að þeir geti unnið bæj-
arfjelaginu sem auðvitað stendurog
fellur með verslun sinni og við-
skiftum eins og þjóðin í heild sinni.
Það væri að minsta kosti syndlítið
þó niðurjöfnunarnefndin mintist
þessara förufugla eftirminnilega við
niðurjöfnunina næsta haust. Jeg
vona að einhver kaupmaðurinn láti
til sín heyra um þetta mál, og þenna
Ijóta agnúa sem á er Siglfirskri
verslun.
S. B j .
Erl. símfrjettir.
Samveldismenn Bandaríkjanna
hafa ákveðið að hafa Coolidge, nú-
verandi varaforseta, sem forsetaefni
við næstu forsetakosningar.
Doumergue hefur verið kjörinn
forseti Frakklands, og er nú mynd-
uð stjórn þar undir forsæti Harriots,
foringja jafnaðarmanna. í ráðuneyti
hans eru meðal annars þessir: Louis
Renault prófessor dómsmálaráðherra,
E. Clémentel fjármálaráðherra, Noll-
et hershöfðingi hermálaráðherra.
Matteotte, foringi ítalskra jafnað-
armanna og andstæðingur facista,
hefir fundist myrtur, og er álitið að
facistar muni vera þess valdandi.
Morðið hefir vakið óhemju gremju
og æsingar og ganga jafnvel fregn-
ir um að Mussolini muni verða
neyddur til að segja af sjer þess-
vegna,