Siglfirðingur - 20.06.1924, Page 3
SJGLFIRÐINOUR
107
Landnám.
Svo segir í landnámsbók:
j-Rormóðr enn rammi hét maðr;
hann vá Gyrð, móðurföður Skjálgs
á Jaðri, ok varð fyrir þat landflótti
ok fór til íslands; hann kom skipi
sínu í Sigiufjörð og sigldi inn at
Pormóðseyri, og kallaði af því Siglu-
fjörð; hann nam Sigluijörð allan
milli Úlfsdala ok Hvanndala, ok bjó
á Siglunesi; hann deildi um Hvann-
dali við Oláf bekk, og vaið sextán
manna bani, áðr þeir sættust, enn
þá skyldi sitt sumar hvárr hafa.«
Svo er sagt, að sagan endurtaki
sig nú á dögum, þótt með öðrum
hætti kunni að vera.
Æ.
Hvað er barnið.
eru, sem eðlilegt er, nokkuð mis- 3;
jöfn, en öll benda þau til þess, að
barnið sje býsna áhrifaríkt.
Ef ykkur líkar ekki við þessi svör
og þið þykist hafa beíri á reiðum
höndurn, þá er ykkur velkomið að
senda »Siglfirðing« þau, en ekki
megið þið þó búast við verðlaunum.
Frjettir.
SIGLFIRÐINGUR
kemur út fyrst um sinn á hverjum föstu-
degi. Fyrsti árgangur, minst 40 blöð,
kostar 4 krónur er greiðist fyrirfram. í lausa-
sölu 15 aura blaðið. Erlendis kostar blað-
ið 5 króntir.
Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter
dálksbreiddar og greiðast við afhendingu
nema öðruvísi sje umsamið. J’eir sem
auglýsa mikið geta konúst að samningi
um lægra verð. — Auglýsingum sje skil-
að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr-
ir miðvikudagskvöld.
Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef;
Fiskafli á vertíðinni er nú áætlað-
ur um 110 þúsund. skpd.
Jakob Möller hefir látið af rit-
stjórn »Vísis« og við tekið Páll
Steingrímsson póstafgreiðslumaður.
Reikningur Eimskipafjelagsins fyr-
ir síðastliðið ár er kominn út. Sýn-
ir hann 43.820 króna hreinan arð.
G i s t i h ú s i ð
,HóteI Siglufjörður“
|Gisting. — Veitingar,!
Sanngjarnt verð.
Enskt blað eitt hjet verðlaunum
fyrir besta svarið við þessari spurn-
ingu. Svörin streymdu að, og komu
mörg þeirra i blaðinu, þar á meðal
þessi tíu:
1. »Meðbiðill föðursins til ást-
ar móðurinnar«.
2. Mannlegt blóm, sem enn er
ósnert af hendi sorgarinnar*.
3. »Hið besta meðal til að
framkalla hinn fegursta eigin-
legleika konunnar: ósjerplægni*
4. »Lítil vera, sem brosir svo
fagurt, að öllum góðum mönn-
um koma englarnir í hug.«
5. »Sólargeisli heimilisins, sem
rekur allar áhyggjur á flótta«.
6. »Hiðmikilsverðasta fyrir ham-
ingju heimilisins«.
7. »Lásinn að festi ástarinnar.«
8. »Pað, sem eykur móðurinni
erfiðleika. eyðir peningum föð-
ursins, ogersem vekjaraklukka
fyrir alla á heimiliniu.
9. «Lykill, sem opnar hjörtun
hjá öllum mannfjelagsstjettum*.
10. »Nokkuð, sem gerir heimilin
hamingjusamari, ástina sterkari,
þolinmæðina stærri, höndurnar
iðjusamari, næturnar lengri, dag-
ana styttri, budduna Ijettari,
lætur liðna tímann gleymast,
og gjörir framtíðina bjarta.«
Hvernig lýst ykkur ásvörin?Pau
Samningar hafa tekist milli sjó-
manna og útgerðamanna í Rvík um
kaup yfir síldveiðatímann. Lágmark
hásetakaups er 250 kr. um mánuð-
inn og 5 aurar af tunnunni. Kaup
matsveina kr. 330. Kaup kyndara
frá 280 til 324 kr.
Rafveitu, 24 hestafla, hafa Stefán
Jónsson og Jón Júlíusson á Munka-
þverá í Eyjafirði komið upp hjá sjer
nýlega, Straumurinn er yfirfljótan-
legur til ljósa, hitunar og suðu á
bænum.
Tvær sýningar standa nú yfir í
Reykjavík; sýning iðnaðarmanna og
hannyrða sýning kvenna.
Ásmundur Jóhannsson hefur
verið kjörinn fulltrúi Vestur-ís-
lendinga á aðalfundi Eimskipafje-
lagsins.
Sveinn Björnsson og fjölskylda
hans eru kominn til Reykjavíkur,
alflutt þangað.
Guðmundur Finnbogason hefir
verið kosinn forseti Bókmentafje-
lagsins, en Matthías Pórðarson til
vara.
Ösku- og sorpkassar
fást í verzlun
Sig. Kristjánssonar
Sjómenn.
Kaupið bækur og lesið meðan
ekki gefur á sjó.
Mikið úrval!
Friðb. Níelsson
Kartöflur
væntanlegar með »D i ö n u«
Friðb. Níelsson.
Stefán Eiríksson myndskeri í
Reykjavík andaðist í gær.
Útgefandi og ábyrgðarmaður:
Friðb. Níelsson,
Siglufjarðarprentsmiðja.