Siglfirðingur - 29.08.1924, Page 3
SIOLFIRÐiNGUR
127
Kaupendurnir
eru beðnir afsökunar á drætti
þeim sem orðið hefur á útkomu
blaðsins, sem stafar af fjarveru út-
gefandans og því að ekki náðist
samkomulag um prentun blaðsins
á meðan.
enn geti þær öruggar kallast og því
síður fullkomnar, eru víst sára fáir
sem efast um að þær áður langt
líður verði það.
En sem komið er, hefur þó ekki
tekist að koma á loftsiglingum yfir
hin stóru höf atlants- og kyrrahaf-
ið, en þúsundir viturra og hugvit-
samra heila, gefa sig nú alla við
að leysa þá Herkúlesar þraut.
Flug Ameríkumannanna sem nú
gista land vort, er einnig gjört í
þessum tilgangi.
Rrjú af stórveldum heimsíns hafa
stofnað til flugferða í þeim tiigangi
að fljúga umhverfis hnöttinn, og
nota reynsluna sem fæst á þann
hátt til þess, að finna upp flugvjel
sem geti á livaða tíma sem er, flog-
ið yfir hin stóru höf.
England og Frakkland hafa sent
einka t'lugvjelar í þennan leiðangur
en hermálastjórn Ameriku sendir
fjórar ílugvjelar og er þeim stýrt af
fræknustu og bestu flugmönnunum
seni þeir eiga.
Tilgangur með því, að senda
svona margar flugvélar er sá, að
þær geti sem best veitt hverri ann-
ari aðstoð, og ennþá fremur eftir-
tekt á fluginu, svo reynsla þeirra
verði sem víðtækust og ábyggleg-
ust og hugmyndin sem skýrust um
það, hvernig best muni að haga
loftferðum framtíðarinnar,
Rað fór sem kunnugt er, að einni
flugvjelinni hlektist á á leiðinni.
Eins og vængskotin örn sökkhún
í freyðaridi bylgjur hafsins en giftu-
samlega tókst það, að fluggörpun-
um varð bjargað. Einnig þetta ó-
Iiapp getur hjálpað tii að ná tak-
markinu. Pað er oft dýrt að afla
mentunar í skóla reynslunnar. Nú
hendir annað óhappið; lega íssins
við Orænlandsstrendur er svo ó-
hagstæð, að loftfararnir treystast
ekki að svo komnu til að halda ferð-
inni áfram. Vonandi komast þeir
leiðar sinnar og farnast vel. Vjer
íslendingar óskum og vonum góðs
árangurs af ferðinni.
Fyrir oss íslendinga eru allar
framfarir í fluglistinni mjög svo
þýðingarmiklar. Land vort er afskekt
og þótt samgöngur á sjó megi kall-
ast góðar nú móts við það, sem
var fyrir fáumárum, þá geturþó
hafísinn altaf lokað hálfu
landinu um lengri eða
s k e m r i t í m a.
Fannkyngi fyrirbyggir árlega flutn-
inga um landið, og húm og regin-
fjöll og vegleysur hindra samgöng-
ur og útiloka flutning bjargræðis
frá suðurlandi til norðurlands í ísa-
árum. Vjer norðlendingar
g e t u m e n n orðið hungur-
m o r ð a í þ ú s u n d a ta I i þ ó 11
syðra sjeu alsnægtir.
Rað er líklegt, að þess verði ekki
langt að bíða, að járnbraut verði
bygð niilli suður- og norðurlands,
þegar fossaafl landsins hefur verið
beislað. Slíkt mundi að vísu verða
ómetanlegt hjálparmeðal þeim sveit-
um sem næstaryrðu en útkjálkabæirn
ir, eins og t. d. Siglufjörður, yrðu
jafn bjargþrota á ísaárunum. Af
hinum hraðstígu framförum flug-
listarinnar, má hiklaust draga þá á-
lyktun, að það verði aðeins stund-
arbið, að loftferðir takist reglu-
bundnar, milli Evrópu og Ameríku
með ísland sem millistöð.
Hitt er heldur engin fjarsiæða
að ætla, að innan skams verði raf-
magn, unnið úr fossafli, notað sem
hreyfiafl flugvjelanna. Komi svo
málum, stæði ísland jafn fossauð-
ugt og það er,“ flestum löndum
betur áð vígi til að taka fluglistina
í þjónustu samgangnanna, þá munai
þess skamt að býða að flugvjelar
svifu yfir landið þverrt ogendilangt,
og færðu íslenskum bæjum og sveit-
um brauð og björg á þrenginga-
tímunum og yrðu höfuð slagæð
framfara og framkvæmda í góð-
ærinu.
Rá — þegar ísland er orðið höf-
uð tengiliðurinn í samgöngum Ame-
ríku og Evrópu, hefir fengið innan
lands samgöngur sínar í sama horf
og önnur mentalönd heimsins og
tekið fossa aflið í þjónustu iðnað
arins, — þá á landið glæsilega tíma
í vænduni, — ef til vill glæsilegri
en nokkurn dreymir um nú.
J- J-
SIGLFI RÐINGUR
kemur út fyrst unr sinn á hverjum föstu-
degi. Fyrsti árgangur, minst 40 blöð
kostar 4 krónur er greiðist fyrirfranr. í lausa-
sölu 15. aura blaðið. Eriendis kostar blað-
ið 5 krónur.
Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter
dálksbreiddar og greiðast við afhendingu
nema öðruvísi sje umsamið. Þeir sem
auglysa mikið geta komist að sanrningi
unr lægra verð. —- Auglýsingum sje skil-
að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr-
ir miðvikudagskvöld.
Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef:
Erl. símfrjettir.
Samkomulag varð um það á
Lundunafundinum að Frakkarverði
alfarnir með her sinn úr Ruhrhjer-
uðunum í ágúst 1925.
Tollur á þýskum vörum í Eng-
lendi hefur verið hækkaður afturúr
5% uppí 26%, eða eins og hann
var áður.
Alþjóóafundur áformaður í Genf
í næsta mánuði. Búist við að Mac-
donald leggji fram frumvarp um
afvopnun stórveldanna.
Bandaríkjamenn telja engin vand-
kvæði á að útvega Þjóðverjum lán
til skaðabótagreiðslu strax og þeir
geti sett viðunandi tryggingu.
Frj etti r.
íslandssundið fór fram 10. þ. m.
og vann það Erl. Pálsson.
2 menn druknuðu við Vestmann-
eyjar 20. þ. m., annar giftur en
hinn ógiftur. Voru að sækja hey til
lands.
Kristján Linnet hefur fengiðveit-
ingu fyrir Vestmanneyjasýslu, og
fór hann þangað með Esju síðast.
Magnús Guðbrandsson vann Ála-
fosshlaupið.
Sainkv. þingsályktun frá síðasta
þingi hefir nú verið skipuð kælis-
kypsnefnd. í henni eiga sæti: Emil