Siglfirðingur - 03.10.1924, Blaðsíða 3
SIGLFIRÐINGUR
143
móti að fá plássin leigð strax. En
hvað er nú að s tandast stór-
tjón? — Rað er að standa í fullum
skiium og uppfylla allar sínar fjár-
hagslegu skuldbindingar þrátt fyrir
það, þó eigur manns minki að
miklum mun, eða gangi jafnvel al-
veg til þurðar. Retta er að s t a n d-
ast tjónið. Var það máske þetta
sem þeir e k k i g á t u, nema að fá
plássið leigt strax? Var það máske
einhver skuldbinding, sem þeir
annars ekki gátu uppfylt ? — Ekki
þó líklega leigan? Það skildi nú
eiga eftir að koma upp úr kafinu,
að þarna sje lausnin á þessu «öðru
enn stærra svínaríi,« sem haft er
efíir Flóvent að bæjarstjórnin hafi
verið að bjarga, með umræddri ráð-
stöfun.
En að hverju leyti gekk þeim betur
að uppfylla skuldbindingar sínar,
eða borga skuldir sínar, eftir en áð-
ur? — Vitanlega verður að ganga
útfrá því, að þeir kaupi, salti og
selji síldina fyrir eigin rei-kning-
Og ekki getur komið til mála, að
nú þegar sje farið að selja fyrir-
fram síld, sem veiða á og salta
næsta sumar. Hjálpinj ti! þess að
standast stórtjónið, getur því ekki
legið 'njer. — Rað hefði verið öðru
máli að gegna, ef leyfilegt hefði
verió að salta síld fyrir útlendinga.
Rá hefði verið auðskilin hagurinn
og hjálpin, sem fólst í því, að hafa,
nú þegar víst pláss til næsta árs.
F*á hefði verið auðvelt að gera
samninga um söltun á síld næsta
sumar fyrir ákveðna borgun pr.
tunnu, og jafnvel að fá álitlegar
upphæðir greiddar fyrirfram, sem
ve! hefði getað komið þeim, er
fyrir stórtjóni hefir orðið í ár. —
En um þetta mun nú ekki vera að
tala í þessu sambandi, þar eð alt
slíkt er stranglega forboðið á landi
lijer — því ver. '
Hjálpin, eða hagnaður leigend-
anna virðist þá liggja í því einu,
að þeir hafi, með þessari ráðstöfun,
fengið plássin óeðlilega 'ódýr, en
hagnaður þeirra er í þessu sam-
bandi sama og tap hafnarsjóðs. Og
þeir bæjarfulltrúar, sem ráðstafa
þannig arðbærustu eign bæjarins,
einstökum mönnum í vil en bænum
í skaða, þeir eiga ekki rjett á nafn-
bót sinni deginum lengur.
Pess utan er alveg ósannað mál,
að leigjendurnir liafi liðið nokkurt
tjón í ár, hvað þá stórtjón. Að
minsta kosti hefur kunnugur mað-
ur fullyrt, að Sigurjón Olafsson
hafi g r æ 11, og það sennilega ekki
svo lítið. Og um Rorrnóð Eyólfss.
er það vitanlegt, að hann hefir, morg
járn í eldinum auk síldarsöltunar-
innar, svo sem kolasölu, skipaaf-
greiðslu, sjóvátryggingu og bruna-
tryggingu, sem öll gefa tekjur. Auk
þess hefur hann í ár brotið upp á
nýrri atvinnugrein, sem sje útflutn-
ingi á tunnunl og salti, sem telja
verður að gert sje í hagnaðarskini.
— Stórtjóns kenningin verður því,
að svo komnu máli, skoð’uð sem
hver önnur órökstudd staðhæfíng.
Pá er ekki úr vegi að benda
ræðumanninum (S. A. B.) á það,
að hann hefur oft lýst því yfir, að
það væri siðferðisleg skylda bæjar-
fulltrúanna, að breyta eftir
v i l j a borgaranna, j a f n v e I
þ ó s á v i l j i k æ m i í b á g a v i ð
skoðun sjálfra fulltrú-
a n n a. Og hann hefur' lofað að
gjöra þetta, síðan hann varð bæj-
arfulltrúi. En á borgarafundinum
gekk hann frá öllu saman. Pá lýsti
hann því yfir — áður en atkvæði
voru greidd um vautraustsyfirlýs-
inguna — að hann ætlaði nú að virða
að vettugi vilja borgaranna, nú
skyldi hann sitju svo lengi sem
sætt væri, hvað svo sem borgar-
arnir segðu og hvernig sem þeim
líkaði það. — Rarna var »sauð-
svörtum almúganum« laglega skotið
á bak aftur, en völd og upphefð
hengd í hnappagatið. Meira.
Erl. símfrjettir.
25. sept,
Pað er talið víst, að borgin
Shanghai verði unnin af hernum,
sem að henni sækir. Útlendingum
mun þó engin hætta búin.
Stórkostl^g breyting til batnaðar
í verslun Pýskalands, og búist við
mikilli verðlækkun. Rýska stjórnin
hefir tjáð sig reiðubúna að sækja
um upptöku í þjóðbandalagið, ef
Þjóðverjar verði þar jafn rjettháir
stórveldunum.
Tyrkir hafa sótt um upptöku í
Pjóðbandalagið.
Undirnefnd á Alþjóðafundinum
hefur lagt til að afvopnunarráð-
stefna verði haldinn 15. júní n. k.
og þangað sje boðið öllum ríkjum
heimsins, hvort sem þau eru í sam-
bandinu eða ekki.
B'etar undirbúa verslunarsamn-
inga við Rjóðverja, - Breska stjórn-
in hefur látið orð falla um það, að
ef i íki, sem ræðst á annað, vill ekki
fallast á gerðadóm, þá muni floti
breta ætíð veróa reiðubúinn til
vermdar. <>
2. okt.
Útaf ýmsum mikilsvarðandi mál-
um er talið vafasamt að Þjóðverjar
fái inugöngu í Rjóðasambandið.
Frakkar hafa lagt 26°/0 innflutn-
ingstoll á allar þýskar vörur.
Þjóðverjar hafa afhent Bandaríkj-
unum nýtt Zepplins loftfar.
Blóðugar orustur urðu milli Breta
og Tyrkja íMosulhjeraðinu í Meso-
potamiu. Hafa þeir sæst á að láta
alþjóðafund úrskurða deiluefnið.
Frjettir.
Nýlega strönduðu tvö vjelskip
við Húsavík í norðan ofviðri. Voru
þau bæði frá Akureyri, »Báran« og
»Hvítanes«. Rau voru við kolaveiði
á Skjálfanda.
Hús brann nýlega við Hverfis-
götu í Rvík. Komist hefur upp að
bruninn stafi af ikviknun frááfeng-
isbruggunaráhaldi. Einhver Guðm.
Guðmundsson hafði verió að
brugga áfengi og komst eldurinn í
spíritusinn og kveikti í húsinu.
Pýskur vjelbátur hefur sjeðst fyrir
suðurlandi, sem grunaður er um
áfengissmyglun. Er Fylla að leita
hans.
Samið hefur verið um kaup há-
seta á togurum landsins frá l.okt.
Hækkar kaupiðum 12%, og lifrar-
arþóknunin um 20%.
Séra Friðrik Hallgrímsson, prest-
ur í Ameríku, er eini umsækjandinn
um annað prestsembætti dómkirkj-
unnar.
Bankagengi í dag:
Sterlingspund . . . . kr. 29,35
Dollar..............— 6,60
Svenskar kr. (100) . — 175,18
Danskar — (100) . — 114,42
Norskar — (100) . — 92,80