Siglfirðingur - 30.04.1932, Page 4
4
SIGLFIRÐINGUR
Mikið úrval af góðu og ódýru
V eggfóðri
fæ jeg með „Brúarfoss".
Pjetur Björnsson.
Pakpappi
ódýr og góður í
SKIPAV. SIGLUFJARÐAR.
HUSNÆÐI. 3 stofur, eld-
hús og geymsla, til leigu frá
14. maí.
Jón Jóhannesson.
fiskimatsm.
Sjellakk i Pólitur.
Mahoni o£ lbenholts
B Æ S.
SKIPAV. SIGLUFJARÐAR.
F r j e 11 i r.
Bruni.
Mánudagsnóttina 18. þessa mán.
brann tunnuverksmiðja Halldórs
Guðmundssonar hjer til kaldra kola.
Sprenging varð í mótorvjel sem
knúði tunnuvjeiarnar, og kviknaði
út frá því, með svo skjótri svipan,
að smiðimir sem voru þarna við
verk sitt, sluppu nauðuglega út úr
eldinum og án þess, að geta bjarg-
að nokkru, skyldu margir þeirra
eftir jafnvel yfirhafnir sínar og höf-
uðföt, og allir mistu þeir smíðatól
sín. Mikið af ósmíðuðu tunnuefni
og nokkuð af tunnum brann, en
mestur hluti tunnanna, sem búíð
var að smíða, var geymt í rikis-
verksmiðjunni. Pallana og húsin í
kring, tókst með aðstoð brunaliðs-
ins að verja fyrir eldinum. Hús,
vjelar, efni og tunnur var alt vá-
tryggt. Brunatjónið mun vera um
150 þúsund krónur.
Tið
hefir verið stirð og köld undan-
farið. Sifeildar stórhríðar með fann-
komu næst síðustu viku, en þessa
viku sæmileg tíð og sjóveður allgóð.
Afli
hefir veríð ágætur þessa viku.
Hafa bátar aflað um og yfir 10.000
pd. af vænum fiski í róðri.
Jeg nota vandaðara eíni í raflagnir en svo, að
jeg geti selt lampastæðið uppkomið á 11 krónur. Hinsvegar
hafa raflagnir frá mjer þann mikla kost, að þær eru ekki altaf
að bila, og jarðleki kemur nær aldrei fyrir. Engir bakreikningar.
Ásgeír Bjarnason.
HJ^Etmskiþafí^lo^^slands
E.s. „Brúarfoss“ kemur frá Reykja\ík til Siglufjarðar og
Akureyrar kring um 3. maí. Fer héðan beint til Reykjavíkur.
Mjög fljót og góð ferð fyrir þá, sem ætla til Reykjavíkur um
það leyti.
Afgreiðsla Eimskipaf élagsins á Sigíufirði.
BÁRNASKÓLINN
VORPROF byrjaaði við skóiann 28. þ. m., ogeruþau utanskólabörn,
sem ætla sér að taka próf í skólanum, og ekki hafa tilkynt þátttöku sína,
beðin að að gjöra það nú þegar.
HANDAVINNA, TEIKNINGAR og SKRIFT verður til sýnis í
leikfimishúsinu 1. maí n. lc. frá kl. 1—6 síðd.
LESTRARPRÓF fyrir öll börn á aldrinum 7 —10 ára, fer fram
mánudaginn 9. maí, kl. 1 síðd. Samkvæmt fræðslulögunum eru ö!l börn
á þessum aldri skyld að sækja prófið.
SÖNGPRÓF fer fram við skólauppsögn 14, mai n. k. kl. 2 síðd.
i leikfiniishúsinu.
Siglufirði 30. apríl 1931
Guðrn. Skarphéðinsson.
Ný sildannatslöií
eru nú fyrir þinginu, mjög mikið
breytt frá þeim eldri. Verðurþeirra
getið nánar í næsta blaði.
Siglfirðingur
kemur út næsta laugardag.
„ Einherjí"
flutti í síðasta blaði hálfrar aldar
minningu Porm Eyólfssonar, og taldi
upp flestar virðingastöður hans og
nafnbætur. Hann gleymdi þvi þó,
að P. E. var einusinni hjá Tynes
og fór þaðan beinleiðis til Bretans
á stríðsárunum, og hinu, sem oss
fynnst ekki mínna um vert, að
hann er í tengdum við Einkasöl-
una, En öllu hástemdara „Guð-
Ókeypis áburður
Grút og síldarúrgang til á-
burðar (eða undirburðar) geta
menn fengið ókeypis hjá
O. Tynes.
launfyrirmalinn" minnumst vjer
ekki að hafa heyrt en niðurlag
greinarinnar. Vjer segjum fyrir
Pormóðs hönd: Verði ykkur að
góðu!
Útgefandi:
Sjálfstœðismannafjelag Siglufjarðar.
Abyrgðarm. Jón Jóhannesson.
Siglufjarðarprentsmiðja.