Morgunblaðið - 10.03.2011, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011
Brúðkaupsblað
Föstudaginn 18. mars kemur út hið árlega
BrúðkaupsblaðMorgunblaðsins.
–– Meira fyrir lesendur
SÉ
R
B
LA
Ð
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 14. mars
Brúðkaupsblaðið hefur verið eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins
í gegnum árin og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt.
Látið þetta glæsilega Brúðkaupsblað ekki framhjá ykkur fara ...
það verður stútfullt af spennandi efni.
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Brú
ðka
up
MEÐAL EFNIS:
Fatnaður fyrir brúðhjónin.
Förðun og hárgreiðsla
fyrir brúðina.
Veislumatur og
veislusalir.
Brúðkaupsferðin.
Undirbúningur fyrir
brúðkaupið.
Giftingahringir.
Brúðargjafir
Brúðarvöndurinn.
Brúðarvalsinn.
Brúðkaupsmyndir.
Veislusalir.
Veislustjórnun.
Gjafalistar.
Og margt fleira skemmtilegt
og forvitnilegt.efni.
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
„Eftir að ég kynntist Sinfón-
íuhljómsveit Íslands fyrst fyrir
tveimur árum sagði ég að hún væri
ein af bestu hljómsveitum í heimi. Ég
hef ekki skipt um skoðun,“ segir hinn
víðfrægi hljómsveitarstjóri Gennadíj
Rosdestvenskíj sem sveifla mun tón-
sprotanum á tónleikum sveitarinnar í
Háskólabíói í kvöld kl. 19:30.
Tónleikar Rosdestvenskíjs og SÍ á
Listahátíð í Reykjavík fyrir tveimur
árum eru tónelskum enn í fersku
minni enda gengu gagnrýnendur svo
langt að halda því fram að betur hefði
varla verið gert í sögu sveitarinnar. Í
kjölfarið samþykkti Rosdestvenskíj
að taka við starfi aðalgestastjórnanda
SÍ og mun hann stjórna tvennum tón-
leikum nú í vor og öðrum tvennum í
haust.
Efnisskráin er ekki af lakara tag-
inu í kvöld. Fyrsta skal telja hina
kynngimögnuðu 8. sinfóníu Sjostako-
vitsj, sem kom ráðamönnum í Sov-
étríkjunum í opna skjöldu á sínum
tíma og fór beint á svarta listann í
Kreml, en þykir nú eitt helsta sinfón-
íska meistaraverk 20. aldarinnar.
„Sinfóníuhljómsveit Íslands fer
einkar vel með þetta magnaða verk,“
segir Rosdestvenskíj. „Mér skilst að
Rumon Gamba hafi verið mjög dug-
legur að flytja Sjostakovitsj meðan
hann var aðalstjórnandi hér og hann
hefur greinilega unnið gott starf.
Hljómsveitin skilur Sjostakovitsj og
kann að upplifa hann.“
Rosdestvenskíj ber sérstakt lof á
einn liðsmann sveitarinnar. „Ég hef
stjórnað áttundu sinfóníunni á bilinu
sjötíu til áttatíu sinnum út um allan
heim en ég hef hvergi heyrt óbópart-
inn leikinn eins vel og hér. Óbóleik-
arinn er með franskt nafn,“ segir
Rosdestvenskíj og blaðar í skjölum á
borðinu sínu. „Hérna er það, Matt-
hías Nardeau heitir hann.“
Spurður hvort hann hafi greint
Matthíasi frá þessu persónulega
svarar Rosdestvenskíj játandi. „Að
sjálfsögðu. Ég hæli hljóðfæraleik-
urum iðulega ef mér þykir þeir gera
vel. Það er mjög mikilvægt.“
Schnittke var heimagangur
Hitt verkið á efnisskránni er fiðlu-
konsert nr. 4 eftir annað rússneskt
tónskáld, Alfred Schnittke. Stjórn-
andinn veit ágæt deili á einleik-
aranum, það er sonur hans, Alexand-
er Rosdestvenskíj, sem Yehudi
heitinn Menuhin kallaði einn hæfi-
leikaríkasta og fágaðasta fiðluleikara
sinnar kynslóðar.
„Þetta er dásamlegur konsert,“
segir Rosdestvenskíj yngri, „einn sá
merkasti sem saminn var fyrir fiðlu á
tuttugustu öldinni. Ég legg hann að
jöfnu við 2. konsert Bartóks og 1. og
2. konsert Sjostakovitsj.“ Konsertinn
var saminn fyrir Gidon Kremer árið
1984.
Ekki skemmir það fyrir að
Schnittke var persónulegur vinur for-
eldra Alexanders Rosdestvenskíjs.
„Hann var heimagangur á æsku-
heimili mínu enda unnu þeir faðir
minn mikið saman. Þegar ég var barn
kom Schnittke oft færandi hendi með
gjafir handa mér,“ rifjar hann upp
brosandi.
Morgunblaðið/Ómar
Feðgar Gennadíj og Alexander Rosdestvenskíj verða í aðalhlutverkum hjá Sinfóníunni í kvöld.
Skilur Sjostakovitsj
Gennadíj Rosdestvenskíj segir SÍ fara vel með áttundu sin-
fóníuna Sonurinn einleikari í 4. fiðlukonsert Schnittkes
Það var flott að fá að heyraníu útsetningar sjálfs BobsBrookmeyers leiknarglæsilega af Stórsveit
Reykjavíkur í nándinni í Slipp-
salnum.
Brookmeyer sló í gegn sem takka-
básúnuleikari með Gerry Mulligan
kvartettnum en hefur síðustu áratug-
ina verið jafn þekktur sem útsetjari
og tónskáld. Hann blés í frumútgáfu
Thad Jones/Mel Lewis stórsveit-
arinnar og útsetti líka fyrir þá sveit
en hafði áður útsett fyrir nafntogaða
stórsveit Mulligans. Eftir að Mel
Lewis var einn við stjórnvölinn á Vil-
lage Vanguard útsetti Brookmeyer
mikið fyrir það band og þaðan voru
þrjú fyrstu verkin sem Stórsveit
Reykjavíkur lék á tónleikum sínum í
Slippsalnum ættuð. „Hello and good-
bye“, „Ding dong ding“ og „First
love“. Tvö fyrstu verkin dæmi um
hugmyndaríkan og oft dramatískan
sveiflustíl Brookmeyers, en það síð-
astnefnda af ætt Gil Evans, undublítt
þar sem flygilhorn og klarinett voru
áberandi. Kjartan Valdemarsson var
frábær í ljóðrænni sóló sinni í því
verki og ekki var hann síðri í kadens-
unni í „Ding dong ding“ þar sem ný-
klassískur spuni fylgdi í kjölfar im-
pressjónísks tónaregns. Nýr flötur á
þessu verki. Stórsveitin lék afbragðs-
vel og er Sigurður Flosason að ná æ
betri tökum á stjórnandahlutverkinu.
Það er ekki hægt að nefna allt sem
vel var gert í stuttri umfjöllun, en
ýmsa aðra hápunkta en sóló Kjartans
má nefna. „Nasty dance“ er mikið
verk í hermistíl er Brookmeyer skrif-
aði fyrir Joe Lovano, einn fremsta
tenórsaxófónleikara djassins um
þessar mundir og þar var Jóel Páls-
son í aðalhlutverkinu, traustur að
vanda. Haukur Gröndal blés ball-
öðuna „Make me smile“, sem skrifuð
var fyrir altistann Dick Oatts í Mel
Lewis bandinu, en hann stjórnaði
Stórsveit Reykjavíkur á tónleikum
2007. Haukur var næmur á ljóðið í
sóló sinni og tónninn hans verður æ
betri. Þriðji einleiksópusinn var „Wil-
low weep for me“ eftir Ann Ronell og
útsetningin sú elsta á tónleikunum,
frá 1968. Þarna var Kjartan Há-
konarson í aðalhlutverki, flottur og
tilfinningaríkur trompetleikari, sem
alltof langt er síðan maður hefur
heyrt blása boppað með lítilli hljóm-
sveit.
Það væri hægt að nefna mun fleiri
stórfínar sólóir þetta kvöld eins og í
skemmtilegri útsetningu Brook-
meyers á „St. Louis blues“ W. C.
Handys, sem hófst á hinum lýrísku
nótum, klarinett, flautur og demp-
arar á málmblásurunum. Seinna var
vampað a la „Watermelon man“ og
loks blastað með öll Basie-trixin í
bakhöndinni og hrynsveitin svingaði
feitt.
Slippsalurinn
Stórsveit Reykjavíkurbbbbn
Einar Jónsson, Birkir Freyr Matthías-
son, Kjartan Hákonarson, Snorri Sig-
urðarson og Ívar Guðmundsson tromp-
eta; Einar Jónsson, Samúel Jón
Samúelsson og Stefán Ómar Jakobsson
básúnur; David Bobroff bassabásúnu;
Haukur Gröndal, Jóel Pálsson, Ólafur
Jónsson, Ingimar Andersen og Steinar
Sigurðarson saxófóna, klarinettur og
flautur, Kjartan Valdemarsson píanó,
Gunnar Hrafnsson bassa og Pétur Grét-
arsson trommur.
Stjórnandi: Sigurður Flosason.
Mánudagskvöldið 28.2.2011.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
Stórsveit Reykjavíkur „Stórsveitin lék afbragðsvel og er Sigurður Flosa-
son að ná æ betri tökum á stjórnandahlutverkinu,“ segir m.a. í dómnum.
Stórsveitin glansar
í Brookmeyer
Rosdestvenskíj-feðgarnir eru
ekki einir á ferð á Íslandi. Með í
för er eiginkona Gennadís og
móðir Alexanders, konsertpían-
istinn kunni Viktoria Postni-
kova, sem heillaði gesti SÍ upp
úr skónum með flutningi á Moz-
art fyrir tveimur árum.
Hún er ekki bara komin til að
hlusta á soninn og horfa á
bóndann því á tónleikum SÍ eftir
rétta viku sest hún við flygilinn
og leikur einleik í 2. píanó-
konsert Prokofíevs. Nánar verð-
ur rætt við fjölskylduna í
Sunnudagsmogganum.
Frúin leikur
NÆSTA VIKA