Morgunblaðið - 10.03.2011, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2011
Viðræður eru hafnar við leikarann Rob Lowe
um að taka að sér hlutverk í gamanþáttunum
Two And A Half Men og þar með kyndli leik-
arans Charlies Sheens, sem var rekinn úr þátt-
unum á mánudag.
Lowe fer nú með hlutverk í bandarísku sjón-
varpsþáttunum Parks & Recreation en hann er
vel þekktur fyrir leik sinn í Brothers & Sisters
og The West Wing.
Samkvæmt fréttaflutningi TMZ hefur Lowe
þekkt fjölskyldu Sheens frá unga aldri.
Lowe í Two
And A Half
Men?
Reuters
Tveir og hálfur? Rob Lowe.
David Beckham talar fallega um
eiginkonuna Victoriu og segist
spenntur fyrir að verða faðir í
fjórða sinn í viðtali sem hann gaf
í Los Angeles í gær.
Beckham var að heimsækja
barnaspítala í borginni og náðu
fjölmiðlar tali af honum. Hann
sagði Victoriu vera við hesta-
heilsu en hún er komin fimm
mánuði á leið. „Hún er hraust og
henni líður vel,“ sagði knatt-
spyrnustjarnan.
„Við erum mjög spennt. Þetta
eru spennandi tímar hjá fjöl-
skyldunni,“ sagði Beckham einn-
ig, en von er á barninu, sem er
talið vera stúlka, í júlí.
Ríkur Beckham með sonum sínum
þremur. Von er á nýju barni í sumar.
Eintóm ham-
ingja hjá
Beckham
Ástralska söngkonan Kylie
Minogue fagnaði í gær fimm ár-
um án krabbameins sem hún
greindist með árið 2005.
Kylie hélt tónleika í Mílanó í
gærkvöldi og fór svo beint í eftir-
partí hjá Dolce & Gabbana þar
sem hún sletti úr klaufunum
ásamt kærastanum Andres Velen-
coso.
Dolce & Gabbana hönnuðu alla
búninga fyrir tónleikaferðalag
Kylie sem ber nafnið Aphrodite –
Les Folies. Hönnuðirnir og Kylie
hafa verið vinir í áraraðir og
starfað mikið saman í gegnum tíð-
ina.
Drottning Kylie Minouge
Fagnaði
fimm krabba-
meinslausum
árum