Siglfirðingur - 26.03.1935, Qupperneq 1
VIII. árg.
1
Siglufirði, Priðjudaginn 26. marz 1935
6. tbl.
Utgerðar- og málningarvörur
Firma, sem getur tekið að sér (um síldveiðitímann og
í sumar og framvegis) umboðssölu á útgerðar- og
málningarvörum á Siglufirði fyrir *iig— eins og firma
Sören Goos að undanförnu — snúi sér góðfúslega
til mín hið fyrsta.
ATH. Gott búðarpláss við aðalgötu^bæjarins eða sem næst
henni og fagkunnátta nauðsynleg.
O. ELLINGSEN.
Símnefni: Ellingsen, Reykjavík. Reykjavík.
Jón Porláksson
borgarstjóri Reykjavíkur,
andaðist aðfaranótt 22, þ. m.
Banameinið var hjartabilun.
Pessa mikilhæfa manns verð-
ur nánar getið hér í blaðinu
síðar.
Bókasafnsmálið
á Alþingi.
í 4 tbl, Siglfirðings þ. á. birtist
grein um bókasafn Sigtfirðinga, nið-
urlægingu þess og óreiðu þá, sem
það nú er í. Var þar stungið upp
á, að bæjarstjórn hlutaðist til um,
að ílutt yrði á Alþingi breytingar-
till. við prentsmiðjulögin þannig, að
bókasafnið fengi ókeypis eintak af
öllum prentuðum bókum og blöðum
íslenzkum. Var þar gert ráð fyrir,
að þeir islenzkir bæir, er gagn-
fræðaskóla hafa fengið, en hafa ekki
réttindi til ókeypis bóka handa
bókasöfnum sínum, fengi þessi rétt-
indi. Pessir bæir eru Siglufjörður,
Neskaupstaður og Vestmannaeyjar.
Pað var bent á þessa leið vegna
þess, að sýnt þótti, ef eigi væri til-
færð einhver forréttindi til þessarra
hlunninda, mundu þingmenn hrúa
inn í frumvarpið breytingartillögum
hver til hagsmuna „sínu“ bókasafni
þangað til málinu yrði siglt í strand.
Og einmitt vegna þess, að alveg
eins var ástatt um Vestm. og Nes-
kaupstað og Siglnfjörð, var stungið
uppá, að allir þingmenn þessara
staða flytti frumvarpið í sameiningu
eftir undirlagi bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar. Var þá vel séð fyrir fram-
gangi frumvarpsins og sennilegt, að
fiutningsmenn, allir í sameiningu,
hefðu getað komið því til leiðar, að
það hefði fiogið í gegn breytingar-
laust. Rúmri viku síðar en grein
þessi birtist í Siglfirðingi, er máli
þessu dembt inn í þingið af Bern-
harði Stefánssyni einum og einungis
til handa Siglufjarðarkaupstað.
Petta var að vísu dálítið spaugi-
legt, sérstaklega vegna þess, að í
fyrsta lagi er þess hvergi gelið í
greinargerð, að hvers undirlagi frv.
er flutt og mun enda flutt að bæj-
arstjórn hér og bókasafnsnefnd báð-
um fornspurðum. Mál þetta er
með öðrum orðum gert fiokkspóli-
tískt með því að láta sýnast svo,
að það komi frá Kramsóknarflokkn-
um af umhyggju hans fyrir menn-
ingarmálum Siglufjarðar, og svo
mikið kapp lagt á þá hlið málsins,
að hitt láist algjörlega, að leita um-
sagna réttra aðila svo sem bæjar-
stjórnar hér og bókasafnsnefndar.
Pað verður þó aldrei framhjá því
gengið, að bókasafnið, ef réltindin
til ókeypis bóka fást, verður a 11-
verulegur fjárhagsbaggi á bænum,
sem vissutega heyrir undir bæjar*
stjórn að ákveða um, hvort bærinn
vill eða treystist að bera. Verði
frumv. samþ. er hinsvegar harla
óviðkunnanlegt, ef bæjarstjórn kynni
að neita um nauðsynleg fjárframlög
til safnsins og viðfeldnara, að hún
ltefði fengið að ráða um það ráð-
um sínum, áður en frv. var Iagt
fram, hvort hún vildi eða treysti
sér til að standa straum af kostn-
aðinum og hvort hún yfir höfuð
kærði sig nokkuð um slíkan mála-
flutning á Alþingi. Auk þessa er
svo átthaga- eða hreppapólitik
hleypt í málið á Alþingi, sem
beinni afleiðingu af því, að ekki
er leitað samvinnu við þingmenn
hinna tveggja kaupstaðanna er alveg
eins stóð á fyrir.
Nú er svo komið máli þessu á
þingi, að telja verður mjög vafasamt
að frumvarp þetta, um breytingu
prentsmiðjulaganna, verði samþykkt,
vegna þess, að alltaf eru þingmenn
að skjóta inní frumv. fleiri og fleiri
bókasöfnum. Eru bókasöfnin nú
orðin átta og sennilega vonáfleir-
um. Má því búast við, að þetta
frumhlaup með flutning þessa
frumvarps muni draga þann dilk á
eftir sér, að annað tveggja verði
frumv. sjálfdautt eða dagi uppi,
ellegar þá, að það verið fellt.
Hefði hinsvegar þau ráð verið upp-
tekin, er bent var á í fyrnefndri
Siglfirðingsgrein, mundi málinu nú
sennilega borgið, því líklegt má
telja, að bæjarstjórn hefði brugðizt
vel við, ef farið hefði verið að þess-
um ráðum, en hinsvegar óvíst um
það, hversu hún mun nú við þessu
snúast, fyrst farið var á bak við
hana með þetta nauðsynjamál.
Pað má vel vera, að bæjarstjórn
geti enn borgið máli þessu ,ef vitur-