Siglfirðingur


Siglfirðingur - 25.04.1940, Blaðsíða 1

Siglfirðingur - 25.04.1940, Blaðsíða 1
Blað Sjálfstæðismanna í Siglutirði. 13. árgangur Siglufirði, fimmtudaginn 25. april 1940. 2. tölublað Tímamót. Veturirin hefir hvatt með sól- skini og blíðviðri. Sumarið er byrjað. Þegar við lítum um öxl yfir hinn liðna vetur, þá getur margt að líta, sem við hefðum kosið að öðruvísi hefði verið. Ægileg styrj- öld geysar um Evrópu, ný og ný lönd dragast inn í þennan hildar- leik, lönd, sem ekkert hafa þráð heitara, eir að fá að lifa í friði, eru nú undirlagður orustuvöllur, þar sem engum og engu er hlíft. Enn- þá erum við íslendingar svo lán- samir að vera utan við hinn evróp- iska vígvöll og von okkar allra er sú, að til þess komi aldrei, að svipað gangi yfir okkur og nú gengur yfir bræðraþjóðir okkar á Norðurlöndum. Vopn höfum við engin að verjast með, en lega landsins samfara vináttu þeirri, er við höfum átt að fagna af hendi þeirra þjóða, seni nú berast á banaspjótum, verður vonandi skjöldur okkar og skjól í nútíð og framtíð. Tíðarfar má heita að hafi verið mjög sæmilegt þennan vetur. Fisk- afli rír víðast hvar. Það einstaka lán hefir veíið yfir þjóðinni, að ennþá hafa allir okkar hraustu sjómenn, er sigla um hættsvæðin, komist klakklaust áfram og ekkert íslenzkt skip farist af völdum ó- friðarins. Gengur þetta kraftaverki næst og er áreiðanlega heitasta ósk allrar þjóðarinnar, — jafnframt því að fá áfram að lifa og starfa sem sjálfstæð jojóð — að hin sama gæfa fylgi hinum íslenzku sjó- mönnum í sumar og fylgt hefir þeim í vetur. Um sumarið skal litlu spáð. Út- litið er þvi miður ískyggilegt hvað atvinnu og afkomu manna yfirleitt snertir og á það ekki sízt við okkur, sem í Siglufirði búum. Við- skiptaþjóðir okkar, 'sem mest hafa keypt af síldinni, eiga nú við mikla örðugleika að stríða og sem stend- 1 Það hefir verið venja Fram- sóknarmanna, undanfarið, að neita allri samvinnu við kommúnista og flokka þeim skyldum. Einkum hefir verið unnið dyggilega að því að telja landslýð trú um, að þeir, Framsóknarmenn, vilji ekkert sam- neyti við þá hafa, eftir atburðina í Finnlandi í des. s.I. ár. Það er ákaflega auðvelt að býsnast yfir því i blöðum og á öðrum opin- berum vettvangi, hversu þjóðhættu- lega starfsemi kommúnistar reka með kenningum sínum og stjórn- málabaráttu, eins og glögglega hefir komið í Ijós nú undanfarið. Við átök þau, sem urðu í Sósíal- istafl., er Finnlandsstyrjöldin brautzt út, virtist koma í ljós m. a. að flokkurinn væri ekki á einu máli um það, eftir hvaða línu fara skyldi i pólití framtíðarinnar. Báðir hlutar flokksins voru reiðubúnir að beita áhrifum sinum í þágu er- lendra ríkja, annar fyrir Rússa, en hinn fyrir Breía (Héðinn Valdi- ur er ógjörlegt að sigla þaðan eða þangað. Engin ástæða er þó til að örvænta, þetta getur breytzt til batnaðar áður en varir og væri það ekki nema eftir öðru láni okk- ar íslendinga, að svo fari. Vonum það bezta, en búumst við því versta, er ágætur málsháttur, sem vel á við á þessum tímum. Verum bjartsýn á sumarið og framtíðina, en tökum með stillingu og festu þeim örðugleikum, sem á vegi okkar kunna að verða. 3. Þ. marsson). Sem betur fer eru bæði þessi flokksbrot orðin áhrifalaus, þó þau eigi fulltrúa á Alþingi. Menn fóru flestir að trúa því, að Framsókn væri nú einu sinni að mæla heilindi, en hjá þeim, sem þekktu bezt, var þó alltaf efi um að svo væri, enda er það nú komið i ljós. Á aðalfundi Kaupfélags Siglfirð- inga, er haldinn var 13. þ. m. skyldi kjósa tvo menn í stjórn í stað þeirra er úr gengu og einn til vara. Þeir, sem úr áttu að ganga, voru þeir Aðalbjörn Pétursson og Erlendur Þorsteinsson. Fram koma tveir listar. Á öðrum eru þeir Að- albjörn Pétursson og Bergur Guð- mundsson, en um stjórnmálaskoð- un hans er mér ekki kunnugt per- sónulega. Hann mun þó, að því er kunnugir segja, hallást til vinstri. - Á hinum listanum eru þeir Erlend- ur Þorsteinsson og Bergur Guð- mundsson. Allir vita að bæði Er- lendur og Aðalbjörn eru harði? í faðmlöéum.

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.