Siglfirðingur


Siglfirðingur - 25.04.1940, Blaðsíða 3

Siglfirðingur - 25.04.1940, Blaðsíða 3
SIGLFIRÐINGUR 3 Skattskráin. Skrá yfir tekju- og eignaskatt í Siglufjarð- arkaupstað fyrir árið 1939, liggur frammi al- menningi til sýnis á skrifstofu bæjarfógeta frá kl. 12 á hádegi laugardaginn 13. apríl til sama tíma laugardaginn 27. apríl n.k. Á sama stað og tíma liggur frammi skrá yfir iðgjöld til Lífeyrissjóðs Islands skv. lögum nr. 26, 1. febr. 1936. Kærur yfir skattinum og lífeyrissjóðsgjald- inu skulu vera komnar á bæjarskrifstofuna fyrir kl. 12 á hádegi laugardaginn þann 27. apríl. Siglufirði 11. apríl 1940 Skattanefndin. (JjleciiLegs sumars óskar J(appcirœtíiá ölLum uídskipic sínum og joa kk ar vic! síúpiin ci ueirinum. tatunum Skíðafélag Siglufjarðar hélt 20 ára afmæli sitt í gær. Það er stofnað 8. febr. 1920 og mun því vera næst elzta skíðafélag landsins. Það ár flutti O. Tynes mikið af norskum skíðum tiISiglu- fjarðar, er hann seldi með vægu verði. Það má fullyrða, að með komu O. Tynes hafi færst nýtt líf í skíðaíþróttina hér. Það er því raunveruleg afleiðing af komu O. Tynes, að Skíðafélag Siglu- fjarðar var stofnað. Strax á fyrsta ári gekkst félagið fyrir skíðamóti. Var keppt í stökk- um og göngu (7 km.) og hipdrun- arlausri brekku. Sigurvegari var Jóhann Þorfinnsson, núverandi lög- regluþjónn hér. Var stökk hans rúmlega 13 metrar. Þátttakendur í fyrsta skíðamóti félagsins voru 30. U. M. F. Akureyrar gekkst fyrir skiðamóti á Akureyri 20. marz 1921 og sendi Skíðafélag Siglu- fjarðar þá í fyrsta sinni keppend- ur til þátttöku i móti utanbæjar. Vann Skíðafélag Siglufjarðar stökk- keppnina, en Ólafsfirðingar unnu gönguna. Félagið starfaði með svipuðpm hætti til 1926. 1931 færist nýtt fjör í félagið. Aðallega fyrir forgöngu Guðm. sál. Skarphéðinssonar, er fékk hingað norskan skíðakennara, H. Torvö. Kenndi hann aðallega stökk, enda ágætur stökkmaður. Einnig kenndi hann göngu. Tóku skiðamenn vel kennslu Torvö og þó sérstaklega stökkinu. 1932 var byrjað að byggjaskíða- skála. Var hann þá við Siglu- fjarðarskarð, en var síðar fluttur á Saurbæjarás og tekið til notkun- ar þar. 1939 var lokið við bygg- ingu nýs skíðaskála, sem er hinn vandaðasti að öllum frágangi. Stendur skálinn í hæfilegri fjar- lægð frá bænum með ágætum skíðabrekkum á allar hliðar. Skíðafél. hefir kepp áöllum lands- mótum og Thulemótum, sem haldin hafa verið. Thulebikarinn hefir það unnið tvisvar og Skíðabikar íslands einu sinni. Hefir það jafnan staðið með allra fremstu og hæfustu skíðafélögum á landinu. Félagið er í örum vexti og nýtur almennra vinsælda á Siglufirði. Meðlimatala er hátt á þriðja hundrað. Stjórn félagsins skipa: Einar Kristjánsson formaður, Daniel Þór- hallsson varaformaðu, Vilhj. Hjart- arson gjaldkeri. Ó. Vilhjálmsson ritari og Björn Ólafsson meðstj. Siglfirðingur óskar félaginu allra heilla á þessum tímamótum og væntir þess, að það sem hingað til eigi eftir að bera merki Siglu- fjarðar hátt. — Merki íþróttarinnar og drengskaparins. Móvinnsla. Síðan ófriðurinn braust út hafa allar vörur hækkað í verði, einkum þó nauðsynjavörur eins og t. d. matvörur og eldsneyti. Á fundi, er allsherjarnefnd bæj- arstjórnar hélt á dögunum, var samþykkt að hefja móvinnslu og útvega til þess nauðsynlegar vélar. Aðgengilegt tilboð liggur fyrir um vélar frá Rvík. Voru allir nefndar- menn á einu máli um að hrinda þessu í framkvæmd, sem er hin mesta nauðsyn. — Rannsóknir þær, er dr. Sveinn Þórðarson gerði á mólendi hér í Siglufirði s.l. sum- ar leiddu í ljós að mólendi er hér gott.

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.