Morgunblaðið - 14.04.2011, Side 9

Morgunblaðið - 14.04.2011, Side 9
fasteignir Hús Menntaskólans á Akureyri var reist árið1904 og kom hingað til landsins tilsniðið fráNoregi, eins og margar fleiri byggingar áþeim tíma. Það var aðalbygging skólans í ára-tugi, en í dag eru þar kennarastofa, skrif- stofur stjórnenda auk þess sem kennsla í er- lendum tungumálum fer þar fram. Íslensk hús Menntaskólinn á Akureyri Trúarlegar byggingar, byggingarlist, umhverfi, hlutverk og helgi verður efni málþings sem Samráðsvettvangur trúfélaga heldur í dag, 14. apríl, kl. 16.30 í safnaðarheimili Neskirkju í Reykjavík Kirkjur, moskur og musteri eru, auk þess að gegna trúarlegu hlutverki, menningar- miðstöðvar og gegna hlutverki í samfélags- hjálp. Á málþinginu verður þetta rætt með fyrirlestrum um byggingarlist og skipulags- mál með innleggi fulltrúa ýmissa trúfélaga. Byggingarlist í brennidepli í Neskirkju Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ræða hlutverk trúarlegra bygginga Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1% í febrúarog hefur hækkað um 1,9% milli ára. Þetta kemur fram í sam-antekt sem greiningardeild Arion banka birti á dögunum Raunar kemur í ljós að hvort sem horft er til þriggja, sex eða tólf mánaða tímabils er verð fasteigna á einni leið: upp á við. Á sama tíma á sér stað veltuaukning og hefur velta á fyrstu þremur mán- uðum ársins aukist um 50% frá sama tímabili í fyrra. Þó myndi veltan þurfa að aukast um röskan þriðjung í viðbót til að ná sölumagni eins og það var mánuðina janúar til mars 2008. Jákvæð merki í hagkerfinu En hvað þýðir þetta? Er botni náð í fasteignaverði? Þýðir þetta jafn- vel að kreppan sé á enda? „Þessi hækkun helst í hendur við aukin um- svif á fasteignamarkaði og við sjáum fleiri skýr merki þess að hagkerfið sé að þróast í jákvæða átt,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður greining- ardeildar Arion banka, en leggur um leið á það áherslu að velta á fasteignamarkaði sé enn nokkuð lítil og ekki þurfi mikið til að hafa veruleg áhrif á mælingar. „Í raun gæti sem dæmi sala á gæðameiri eign, eins og lúxusíbúð sem staðsett er miðsvæðis þar sem fermetraverð er almennt hærra en á öðrum stöðum höfuðborgarsvæðisins, ýkt verð- mælingar þann mánuðinn. Fast- eignavísitalan sem Fasteignaskrá Íslands metur tekur aðeins mið af vegnu meðaltali fermetraverðs – með öðrum orðum vísitalan leiðréttir ekki fyrir gæðum eigna. Sala á gæðameiri eignum hefur því tilhneigingu til að ofmeta verðþróun á markaði.“ Þróunin sem nú er að eiga sér stað á mark- aðinum spáir Ásdís að tengist m.a. því að leigu- markaðurinn sé að mettast, og eins að fjármagnseigendur séu að binda fé sitt í fasteignum. „Leiga hefur hækkað mikið frá hruni sem end- urspeglar þá miklu eftirspurn sem er á hliðarlínunni eftir því að komast inn á kaupmarkaðinn. Eftir því sem leiguverð hækkar verða fasteigna- kaup áhugaverðari kostur fyrir fleiri, jafnvel þótt aðgengi að lánsfé sé mun verra en var fyrir hrun. Peningamagn í umferð er líka í sögulegu hámarki og sennilegt að eitthvað af þeim fjármunum sem hafa legið á innlánsreikningum sé nú að færast yfir á fasteignamarkaðinn,“ segir hún. Heldur hækkunin áfram? Nýlegar yfirlýsingar stjórnvalda um áframhaldandi gjaldeyrishöft ímyndar Ásdís sér að geti jafnvel orðið til að auka enn frekar á flæði fjármagns inn á aðra eignamarkaði, þ.m.t. fasteignamarkaðinn. „Nú hafa fjárfestar í höndunum yfirlýsingu frá stjórnvöldum um að pen- ingar þeirra komist ekki úr landi á allra næstu árum. Fólk mun því ein- ungis hafa úr innlendum fjárfestingarkostum að spila á næstu árum. Í ljósi þessa er ekki ólíklegt að sumir kunni að líta á það sem góða ávöxt- unarleið að fjárfesta nú í fasteign t.d. til að hafa af henni leigutekjur.“ Það kann líka að örva markaðinn að ekki eru nein afgerandi teikn á lofti um annað verðhrun á fasteignamarkaði. „Ég held að fasteignaverð hrynji ekki eins og það gerði árið 2008, nema þá að hagkerfið í heild sinni verði fyrir áfalli. Eitthvað stórkostlegt myndi þurfa að gerast og ég býst ekki við slíkum áföllum framundan heldur frekar stöðugum – en veikum – efnahagsbata,“ segir Ásdís og bendir jafnframt á að fasteignaverð hafi í raun ekki hrunið eins mikið og hefði mátt vænta þegar fjármálageirinn fór á hliðina. Vandasamar mælingar „Flestir gerðu ráð fyrir mun meiri leiðréttingu á fasteignaverði en raunin hefur orðið. Við höfum ekki séð nema um 12% nafnverðslækkun frá því í oktbóber 2008. Við teljum hins vegar að það hafi verið ákveðinn mælingarvandi í fasteignaverðsvísitölu frá hruni og því líklegt að verðlækkanir hafi verið vanmetnar. Þessi mælingarvandi snýr að gæðum eigna; lægra lánshlutfall gerir það að verkum að kaup- endur þurfa að hafa eigið fé til að kaupa sér fasteign,“ segir Ásdís. „Þetta hefur gert það að verkum að stór hluti kaupenda hefur flokkast ef til vill til þeirra efnameiri sem eðli málsins samkvæmt eru líklegri til að kaupa gæðameiri eignir á markaðnum.“ Er ekki þar með sagt að fasteignir hafi verið keyptar á óeðlilega háu verði. „Hins vegar hefur eftirspurnin ef til vill verið meiri á eftirsókn- arverðari stöðum þar sem meðalfermetraverð er hærra en á öðrum svæðum. Þá hefur makaskiptasamningum verið sleppt við verðmæl- ingar á fasteignaverði en þeir hafa vegið þungt í heildarveltu. Þetta gerir það að verkum að kaupsamningar að baki hverri verðmælingu eru færri en sem nemur heildarveltu. ai@mbl.is Veltan á fasteignamarkaði á fyrstu þremur mánuðum ársins jókst um 50% frá sama tímabili í fyrra Mikil eftirspurn og hag- kerfið þróast nú jákvætt Morgunblaðið/Sigurður Bogi Í dag eru gæðameiri eignir eftirsóttar, segir Arion-banki. Myndin er af Seltjarn- arnesi en fasteignir þar hafa yfirleitt verið frekar hátt verðlagðar. Ég held að fasteignaverð hrynji ekki eins og það gerði árið 2008, nema þá að hagkerfið í heild sinni verði fyrir áfalli. Ásdís Kristjánsdóttir Menntamálaráðherra hefur ákveðið að friða verkamannabústaðina við Hringbraut í Reykjavík. Þetta er gert að tillögu Húsafrið- unarnefndar. Bústaðirnir voru byggðir í þrem- ur áföngum á árunum 1931-1937 í þeim til- gangi að tryggja alþýðufólki sómasamlegt húsnæði. Fyrstu bústaðirnir voru reistir í tveimur áföngum vestan Hofsvallagötu, eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar húsa- meistara ríkisins, og mynda þeir samfellda húsaröð kringum stórt sameiginlegt port. Nokkrum árum síðar voru byggðar húsa- lengjur austan Hofsvallagötu. Húsafrið- unarnefnd segir umræddar byggingar ein- stakar á sína vísu. Einstök hús friðuð Morgunblaðið/G.Rúnar Verkamannabú- staðirnir verndaðir Viltu vita hvers virði eignin þín er í dag? Frítt söluverðmat án skuldbindinga. Hringdu núna 699 5008 Hannes Steindórsson Sölufulltrúi hannes@remax.is Sími: 699 5008 Þórarinn Jónsson hdl. lögg. Fasteignasali Tískuhúsgögn koma og fara. Það sem þykir fallegt í dag getur þótt lummó á morgun. Það má alltaf reyna að fara á svig við sveiflurnar með því að velja antíkhúsgögn, en þau hafa ekki endilega á sér þann stíl sem svo margir vilja. En það er samt eitt húsgagn sem óhætt er að stóla á að þyki jafn- glæsilegt eftir marga áratugi og það þykir í dag. Það er konungur sófanna: Chesterfield-sófinn. Uppruni Chesterfield-sófans virðist eitthvað á reiki. Sagan segir þó að Phillip nokkur Stanhope, jarl af Chesterfield, hafi orðið fyrstur til að láta smíða fyrir sig sófa úr leðri. Jarlinn vantaði sófa sem herra- menn gætu setið í, reistir og glæsi- legir, án þess að kæmi niður á þæg- indunum. Hvort sem eitthvað er til í þeirri skýringu eða ekki þá er ljóst að sófarnir komu líklega fyrst fram á sjónarsviðið á 18. öld og þóttu marka tímamót í húsgagnagerð og þykja enn hæfa vel í húsum. ai@mbl.is Chesterfield-sófi er fjárfesting sem endist Hann er sjálfur konungur sófanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.