Morgunblaðið - 14.04.2011, Síða 10
10 14. apríl 2011fasteignir
Það verður vor í lofti í Saln-um á laugardag þegarhaldnir verða þar tón-leikar undir yfirskriftinni
Vorkoma. Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir söngkona kemur þar fram
ásamt Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur píanóleikara og Bryndísi
Höllu Gylfadóttur sellóleikara.
Sigríður er nýkomin frá Lundúnum
þar sem hún söng í Cadoga Hall
með Dame Emmu Kirkby og
Southbank-sinfóníunni. Sigríður
hefur reynt ýmislegt á lífsleiðinni,
meðal annars unnið
krefjandi sum-
arvinnu á elliheimili.
Draumastarfið? „Ég starfa við mitt
draumastarf sem er að vinna við
tónlist í gegnum sönginn og svo í
gegnum píanókennslu. Mér finnst
tónlistin vera óendanlega spennandi
listform. Tónlist getur tjáð það sem
ekki einu sinni orð eru til yfir, hún
getur fært flytjandann og áheyr-
andann inn í töfraheim. Röddin er
líka spennandi hljóðfæri.“
Versta vinnan? „Ég réð mig sem
unglingur í sumarvinnu á Elliheim-
ilið Grund. Ég sá það starf í ljóma,
þar gæti ég spjallað við gamla fólk-
ið og fært því kaffi og
kökur. Þetta var svo allt öðruvísi og
ég dáist að þeim sem vinna þessi
störf en ég var mest í því að skipta
um þvagpoka, bleiur og á rúmum.“
Draumabíllinn? „Land Rover-jeppi í
gamla stílnum með góðum hljóm-
flutningsgræjum. Mér finnst þetta
flottur bíll og hann væri upplagður
í ferðalög um landið og hægt væri
að koma fullt af fólki og dóti í bíl-
inn.“
Hvað vantar á heimilið? „Stóra te-
bolla, því ég drekk mikið te og
finnst huggulegt að hafa það í
stórum bolla eða glasi. Svo vantar
píanóið mitt, en þetta hljóðfæri er
vinnutækið mitt og það veitir mér
einnig mikla ánægju að glamra á
það. Píanóið er gamalt og hvítt,
amma mín Vilborg fékk það frá föð-
ur sínum þegar hún var átta ára,
svo fengu foreldrar mínir hljóð-
færið og gerðu það upp og nú er
það á leið til mín.“
Hvað langar þig í? „Nýtt og gott
upptökutæki, en ég er að safna fyr-
ir því núna. Það er frábært að geta
tekið upp það sem ég er að æfa,
maður lærir mest á því að hlusta á
sig sjálfur og vera sinn eigin kenn-
ari. Einnig er gaman að geta gert
nokkuð góða upptöku án þess að
þurfa að fara í hljóðver sem kostar
sitt. Mig langar líka í stjörnukíki.
Það væri spennandi að geta séð
betur út í geiminn.“
Hvað er best heima? „Eftirlæt-
isstaðurinn minn í íbúðinni er inni í
stofu við borðstofuborðið, þar vinn
ég oft, borða góðan mat og þaðan
er stórkostlegt útsýni yfir litrík
húsþök á Nesinu út á sjóinn og
fjöllin.“
ai@mbl.is
Óskalistinn Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
Stjörnukíki til að
sjá út í geiminn
Morgunblaðið/Kristinn
„Eftirlætisstaðurinn minn í íbúðinni við borðstofuborðið,“ segir Sigríður Ósk .
Maður lærir mest á því að
hlusta á sig sjálfur og vera
sinn eigin kennari.
Einar Páll Kjærnested,
löggiltur fasteignasali.
Kjarna, Þverholti 2,
Mosfellsbæ
Sími 586 8080,
fax 586 8081
www.fastmos.is
Akurholt 7 - 270 Mosfellsbær
OP
IÐ
HÚ
S
Flott 211,7 m2 einbýlishús með rúmgóðum bílskúr og
gróðurhúsi á sérlega fallegri lóð við Akurholt 7 í Mosfellsbæ. 3
svefnherbergi, baðherbergi m/baðkari, sturtu og sauna,
gestasalerni, stofa, borðstofa, eldhús m/borðkrók, hol og
sólskáli. Stór bakgarður í suður með miklum gróðri.
V. 45,5 m.
Opið hús í dag fimmtudag frá kl. 17:30 til 18:00
F A S T E I G N A S A L A N
fasteign . i s
Ólafur B Blöndal Lögg. fasteigna- fyrirtækja og skipasali.
Suðurlandsbraut 18 • Reykjavík • Fax 5 900 808 5 900 800☎ Ólafur B Blöndal. Lgf.20 ára starfsreynsla
Viltu selja – Viltu kaupa – Viltu leigja
LAUSNIN ER fasteign.is
Starfsfólk Samskipa á Íslandi tek-
ur nú þátt í grænu átaki innan
fyrirtækisins sem felst í því að
flokka allt rusl sem til fellur skv.
viðurkenndum reglum og draga úr
allri notkun á pappír og umbúðum.
„Við fórum af stað með þetta í
aprílbyrjun og undirtektir meðal
starfsfólks hafa verið frábærar.
Það taka allir þátt og það væri
gaman ef þetta getur líka orðið til
þess að hafa áhrif á það hvernig
allt þetta fólk, um 600 manns,
breytir sorpmálum á á sínum
heimilum,“ segir Anna Guðný Ara-
dóttir, markaðsstjóri Samskipa.
Fyrsta skrefið í átakinu var að
fjarlægja allar ruslafötur í fyr-
irtækinu og það eina sem starfs-
menn mega hafa við skrifborðin
sín er safnkassi fyrir pappír. Allt
annað rusl þarf að fara með í
ruslatunnur. Næsta skref er síðan
að taka öll einnota drykkjarmál úr
umferð og einnig sé starfsfólk
hvatt til þess að draga úr allri út-
prentunum á pappír.
sbs@mbl.is
Grænn apríl hjá Samskipum
Breyting hjá 600 manns