Morgunblaðið - 14.04.2011, Side 12

Morgunblaðið - 14.04.2011, Side 12
12 14. apríl 2011fasteignir Fáir vita meira um teppi ogmottur en Sigurður Sig-urðsson, kaupmaður íPersíu í Kópavogi, sem er sérverslun með stök teppi og mottur. Hann segir spennandi nýja strauma að koma inn í teppatískuna. „Hin svo- kölluðu „shaggy“ teppi hafa verið allsráðandi sl. fjögur ár eða svo. Sama gerð af teppum var vinsæl á 7. ára- tugnum en skaust aftur upp á yf- irborðið með miklum látum, nema hvað nú eru þau gerð úr öðrum efn- um sem meðhöndluð eru til að afraf- magna og hrinda frá vætu og óhrein- indum,“ segir hann. „Sjálfur er ég með svona mottu hjá mér, þykka og fína, og afskaplega gott að ganga á henni. Svo er eins og óhreinindin komist hreinlega ekki of- an í teppið.“ Lágar, þéttar og massífar Nú virðast shaggy-teppin smám saman dala í vinsældum. En hvað kemur í staðinn? „Það sást á vörusýningunum í jan- úar að framleiðendur veðja á mottur sem eru eins og snoðklipptar shaggy- mottur. Þessar mottur eru kallaðar „cozy“-mottur, þær eru ekki úfnar og síðhærðar heldur lágar og þéttar, massífar og einlitar. Það má kannski Persnesk teppi eru miklar gersemar Morgunblaðið/Sigurgeir S Vinsælt að hafa mottu fyrir innan útidyrahurðina til að þurrka af skónum, og þá er best að velja t.d. afgangska ullarmottu,“ segir Sigurður. Einlitar mottur eru vinsælar. Hlýlegar og stílhreinar mottur Sandlit og dröppuð teppi eru vinsæl um þessar mundir. Verð fer hækk- andi á persneskum mott- um vegna aðstæðna á heimsmarkaði. Sandlit og dröppuð teppi vinsæl, segir Sigurður Sigurðsson, kaupmaður í Persíu í Kópavogi Hráefnið sem vefararnir nota hefur hækkað í verði sem svo aftur hefur þýtt að framleiðslan hefur hrunið. segja að þetta sé amerískt útlit; hlý- legar og stílhreinar mottur sem af- marka skýrar línur á gólffleti.“ Það er ekki bara áferðin sem tekur breytingum, heldur eru líka mismun- andi litir í tísku. „Hvítur og svartur eru á útleið en við sjáum meiri eft- irspurn eftir sandlit og dröppuðum. Margir eru líka hrifnir af óhreinum litum eða rústuðum, eins og til dæmis antíkbláum.“ Stærðirnar breytast hins vegar lít- ið, en þar má aftur á móti greina meiri mun á milli þjóða. „Bandaríkja- menn eru hrifnir af stórum teppum sem ná nánast frá horni í horn. Ís- lendingar, eins og Skandinavar al- mennt, velja hins vegar minni teppi, kannski 1,4 x 2 metrar eða þar um kring. Motturnar og teppin eru þá í því hlutverki að t.d. ramma inn sófa- borðið,“ segir Sigurður. Vanafastir vefarar Falleg og vönduð motta með hefð- bundnum mystrum, hvort heldur sem er frá Pakistan, Afganistan eða öðru fjarlægu og framandi landi, virðast alltaf eiga við. „Þetta eru engar tísku- sveiflur. Menn framleiða teppi í sömu litum, með sama mynstri, og með sama efni og aðferðum og þeir hafa gert í margar aldir.“ Aðstæður á heimsmarkaði hafa hins vegar orðið til þess að verð á austurlenskum teppum hefur hækk- að verulega. „Hráefnið sem vefararnir nota hef- ur hækkað í verði sem svo aftur hefur þýtt að framleiðslan hefur hrunið. Þetta á bæði við um hjarðmennina sem vefa teppi úr ull af eigin hjörð, og verksmiðjurnar sem margar fóru hreinlega á hausinn eftir fjár- málakreppuna 2008,“ útskýrir Sig- urður. „Það sem við sjáum er í raun afturhvarf til fyrri tíðar þegar pers- nesk teppi og mottur voru meðhöndl- uð sem miklar gersemar og verðlögð sem slík.“ ai@mbl.is Að velja rétta mottu á réttan stað Þegar finna á rétta mottu eða teppi á heimilið er vissara að láta ekki út- litið eitt og sér ráða valinu. Eins og Sigurður Sigurðsson bendir á skipt- ir notagildið miklu máli og velja verður rétta mottu fyrir hvern stað. „Það er vinsælt að hafa mottu fyrir innan útidyrahurðina til að þurrka af skónum og þá er best að velja til dæmis afganska ullarmottu. Þessar mottur eru úr grófri ull og ofnar úr sama efninu út í gegn svo þær þorna jafnt ef þær blotna. Kalt vatn gerir þeim ekki neitt og þær nánast hrinda frá sér óhreinind- unum.“ Í öðrum herbergjum segir Sig- urður fíngerð pakistönsk teppi geta hentað betur. „Þau eru ekki jafn harðger og duga því ekki vel þar sem er mikil umferð, en eru þeim mun mýkri og þægilegri undir ber- um fótum. Ljósir litir láta vitaskuld fyrr á sjá en dökkir, hvað þá ef mik- ið mæðir á mottunni. Síðan þarf að huga að því að setja ekki teppi úr náttúrulegum þráðum í beint sólar- ljós. Teppi úr gerviefnum þola birt- una vel en t.d. rauði liturinn í ull- arteppi getur byrjað að dofna með tímanum ef hann verður fyrir mikilli birtu,“ segir Sigurður. „Þó er sólin sem betur fer ekki það sterk á Íslandi að þetta sé mik- ið vandamál; helst þarf að hafa áhrif sólarinnar í huga í sérlega björtum herbergjum og sól- skálum.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.