Morgunblaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 15
atvinna Fyrsta vinnan mín var í sveit, á bænum Hlíð austur í Hreppum. Þar var mittannað heimili fram að fermingu. Mitt helsta takmark í lífinu var að veratreyst til allra verka. Sérstaklega að keyra traktor. Ég lærði snemma aðmjólka með mjaltavél, moka heyi í blásarann, raka utan með, blandamaurasýru, rýja kindurnar, hleypa til og gegna í fjárhúsunum,leggja hnakk á hest og blanda drukk í kálfa.
Hjálmar Sveinsson, varaborgarfulltrúi.
Fyrsta starfið
Blandaði drukk í kálfa
Mikilvægt er að ná sátt um breyt-
ingar á sviði fræðslumála. Þetta seg-
ir í nýrri skýrslu sem unnin hefur ver-
ið fyrir Kennarasamband Íslands
sem horfir til þess að byggt verði á
reynslu Finna úr kreppunni þar fyrir
tuttugu árum. Þar í landi hafi nið-
urskurði verið svarað með því að
veita sveitarfélögum og skólastjórn-
endum og kennurum aukið sjálfræði
við mótun skólastarfs.
„Margt bendir til að hægt sé að
nýta reynsluna af dreifstýrðu
menntakerfi Finna hér á landi,“ segir
í skýrslunni sem Capacent vann fyrir
KÍ. „Mikilvægt virðist, í ljósi reynslu
Finna, að hagsmunaaðilar leiti mark-
visst og óhikað nýrra og framsæk-
inna leiða til að mæta þessum þörf-
um og tryggja þannig að börn og
ungmenni gjaldi ekki fyrir þá kreppu
sem nú ríkir á Íslandi.“
Kennarasambandið horfir til Finnlands
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sjálfstæði skóla-
fólks verði aukið
Laun á vinnumarkaði hækkuðu um 4,7% milli áranna
2009 og 2010 skv. vísitölu launa sem Hagstofan hefur
reiknað. Þá hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði
um 6,0% að meðaltali en laun opinberra um 1,9%.
Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun versl-
unarfólks mest á milli ára eða um 7,2% en laun stjórn-
enda hækkuðu minnst eða um 5%. Verulega dró úr
launahækkunum á almennum vinnumarkaði í árslok
2008 en umskipti urðu undir lok árs 2009 og síðan þá
hefur hagur launafólks heldur vænkast.
Hagstofan mælir vinnumarkað
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Launin eru aftur
farin að hækka
Þetta er raunhæft fræðslu-efni sem allir geta nýttsér. Þetta meðferðarformer mikið notað hjá okkur
og er rauður þráður í okkar end-
urhæfingarstarfi,“ segir Valgerður
Baldursdóttir, yfirlæknir geðsviðs
Reykjalundar. Í síðustu viku var
þar á bæ kynnt ný handbók um
hugræna atferlismeðferð við þung-
lyndi en sá meðferðarkostur er
einnig notaður í meðferð við til
dæmis kvíða, streituröskun, lang-
vinnum verkjum, offituvanda og
fleira.
Greina styrk og sækja fram
En hvað er hugræn atferl-
ismeðferð? Jú, hún er í stuttu máli
að fólk í vanda statt fær aðstoð við
að greina veikleika sína en þó miklu
frerkar styrkinn – svo það megi
sækja fram til góðrar heilsu og
glaðra daga. Með öðrum orðum má
segja að hugræn atferlismeðferð sé
pensilín til að drepa niður sýkla í
sálinni. Og þetta skiptir miklu við
endurhæfingu, til dæmis þegar fólk
hefur átt við veikindi að stríða en
þarf að komast aftur út á vinnu-
markað. Stundum þarf lyfjameðferð
að fylgja með en í öllu falli gerir
sýklakúrinn mikið gagn.
„Við þurfum að efla andlega end-
urhæfingu, því erfitt efnahags-
ástand reynir á þolrif
fólks. Reynsla þjóða
sýnir að frá því áföll
ríða yfir líða að jafn-
aði þrjú ár þar til
fólk þarf að leita að-
stoðar, t.d. vegna
þunglyndis,“ segir
Valgerður Bald-
ursdóttir.
Pétur Hauksson geðlæknir var
upphafsmaður þess að farið var að
beita hugrænni atferlismeðferð á
Reykjalundi. Fyrsta handbók
Reykjalundarfólks um þetta efni
kom út 1997 en hefur verið endur-
útgefin og endurskoðuð alloft síðan.
Unnið fyrir árangri
Hin nýja útgáfa bókarinnar nú er
áskrifendum aðgengileg á vefsetri
Reykjalundar – meðal annars á
hljóðskrá. Unnið hefur verið að
undirbúningi sl. þrjú ár og hafa
fjölmargir komið að verkinu, til að
mynda þeir tæplega þrjátíu sér-
fræðingar Reykjalundar sem starfa
að hugrænni atferlismeðferð.
„Helstu kostir
þessarar með-
ferðar að mínum
dómi eru að fólk
er virkt í ferlinu,
sem er verkefna-
miðað. Skjólstæð-
ingur vinnur
verkefni, prófar
sig í aðstæðum og
ræðir svo þá upplifun við sinn með-
ferðaraðila,“ segir Þórunn Gunn-
arsdóttir, iðjuþjálfi á geðsviði
Reykjalundar.
„Þessi meðferð gefur fólki því þá
upplifun að það sé að vinna fyrir ár-
angri. Það er mikill kostur fyrir
einstaklinginn og eykur trú hans á
eigin áhrifamætti. Einnig er þetta
aðferð sem reynist vel fyrir ein-
staklinga í að takast á við ýmsar
aðstæður í daglegu lífi án þess að
um þunglyndi eða kvíða sé að
ræða.“
Þórunn segir allar rannsóknir
sýna að góður árangur hafi náðst
við notkun hugrænnar atferlismeð-
ferðar við þunglyndi. Slíkt sé hag-
nýtt fyrir þjóðfélagið.
Enginn sé einn
„Þetta er viðurkennt sem
sjálfshjálparmeðferð og flestallir
geta nýtt sér hana án þess að vera í
tengslum við fagfólk sem kann
þessi fræði. Það er því frábært að
þessi meðferð sé nú orðin aðgengi-
leg á vefnum og fólk óháð búsetu
geti nýtt sér þetta úrræði. Hins
vegar er mikilvægt, nái fólk ekki
tökum á vanlíðan sinni, að leita sér
sérfræðihjálpar. Enginn á að þurfa
að standa einn í baráttunni.“
sbs@mbl.is
Reykjalundarfólk eflir endurhæfingu með nýju fræðsluefni um hugræna atferlismeðferð
Pensilín til þess að drepa
niður sýklana í sálinni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Endurhæfing. Inga Hrefna Jónsdóttir, Valgerður Baldursdóttir og Þórunn Gunnarsdóttir starfa á geðsviði Reykjalundar
þar sem hugræn atferlismeðferð er rauði þráðurinn.
Skiptir miklu við end-
urhæfingu, til dæmis
þegar fólk hefur átt
við veikindi að stríða
en þarf að komast aft-
ur út á vinnumarkað.
Hæfniskröfur:
Framúrskarandi þjónustulund.
Reynsla af erlendum samskiptum er æskileg.
Færni í skrifaðri og talaðri ensku.
Þekking á íslenskum innihurðamarkaði er kostur.
Snyrtimennska og hæfni í mannlegum samskiptum.
Ábyrgðarsvið:
Sala í verslun Egils Árnasonar.
Yfirumsjón með hurðadeild félagsins.
Yfirferð og eftirfylgni á birgðum hurðadeildar.
Umsjón með öllum sérpöntunum deildarinnar.
Umsóknir óskast sendar fyrir 26. apríl á ae@egillarnason.is
eða á Egill Árnason ehf, Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavik.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Einarsson, Framkvæmdastjóri
í síma 821-1414
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál
og öllum umsóknum verður svarað.
Egill Árnason ehf rekur sérhæfða verslun með parket, flísar,
innihurðir og sérverkefna-deild að Suðurlandsbraut 20 í Reykjavík.
Fyrirtækið er leiðandi á sínu sviði og hefur ávallt lagt kapp á að vera
með vandaða vöru og bestu fáanlegu vörumerkin í hverjum flokki
fyrir sig.
Egill Árnason er fjölskyldufyrirtæki sem byggir á áratuga reynslu og
þekkingu á sínum markaði. Hjá fyrirtækinu starfar einvala lið sér-
fræðinga á sínu sviði sem hafa það að markmiði að veita framúrskara-
ndi þjónustu við sölu á hágæða vörum.
Sölusérfræðingur í hurðadeild
™
Suðurlandsbraut 20 108 Reykjavík Sími: 595 0500
www.egillarnason.is