Morgunblaðið - 18.04.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011
Axel Jóhann Axelsson bendir á aðríkisstjórnin hafi öll einkenni
Ragnars Reykáss:
Fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna
um Icesave lýstu ráðherrarnir í ræðu
og riti hvílíkt hörmungarástand
myndi skapast í landinu yrðu lögin
felld, vegna þess að enginn erlendur
fjárfestir eða lánastofnun myndi vilja
koma inn fyrir tvö hundruð mílna
landhelgina og
skuldatrygg-
ingarálag landsins
færi upp úr öllu valdi
og lánshæfismat að
sama skapi á sorp-
haugana.
Eftir þjóð-aratkvæðagreiðsluna kveður
við algerlega annan tón hjá ráðherr-
um ríkisstjórnarinnar, sem nú hafa
lagst í ferðalög til að útskýra fyrir
heiminum hve ótrúlega vel gangi á
öllum sviðum í landinu, ekki síst sé
árangur í efnahagsmálum stórkost-
legur og NEIið í þjóðaratkvæða-
greiðslunni skipti ekki nokkru máli
fyrir þann mikla upp-
gang sem þegar er
orðinn hér um sveit-
ir, sem þó sé aðeins
sýnishorn af þeirri
velmegun sem hér
muni ríkja á næstu
mánuðum.“
Og Axel bendir á að Árni PállÁrnason sem hræddi menn með
einangrun Íslands eftir Nei segi nú:
„Nú síðustu viku höfum við ekki séð
nein slík viðbrögð. Það er ekki að sjá
að nei-ið hafi haft teljandi áhrif á mat
á greiðsluhæfi Íslands í viðskiptum
með skuldatryggingaálag Íslands og
það er ekki heldur að sjá að þetta hafi
áhrif á erlenda fjárfestingu. Þvert á
móti kom bein erlend fjárfesting í ís-
lenskan banka á mánudaginn var.“
Ríkisstjórnin er Ragnari Reykássannarlega til sóma þessa dag-
ana,“ segir Axel og tekur sjálfsagt
eftir að jafnvel Árni Páll sér ekki til
sólar fyrir Ragnari, og er þá langt
gengið.
Ragnar Reykás
Ríkisstjórn Reykáss
STAKSTEINAR
Árni Páll
Árnason
Veður víða um heim 17.4., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 6 skýjað
Egilsstaðir 6 skýjað
Kirkjubæjarkl. 5 alskýjað
Nuuk -12 snjókoma
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 15 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 15 heiðskírt
Lúxemborg 15 heiðskírt
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 17 heiðskírt
París 17 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 15 léttskýjað
Berlín 17 heiðskírt
Vín 17 léttskýjað
Moskva 7 alskýjað
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 21 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 10 skúrir
Winnipeg -1 alskýjað
Montreal 6 skýjað
New York 12 heiðskírt
Chicago 5 skýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:46 21:09
ÍSAFJÖRÐUR 5:41 21:24
SIGLUFJÖRÐUR 5:23 21:08
DJÚPIVOGUR 5:13 20:41
Öflugir High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.
Er bíllinn tilbúinn fyrir ferðalagið?
Fulltrúaráð Sólheima sendi um
helgina frá sér ályktun aðalfundar
þess og kemur í henni fram að Sól-
heimar séu enn án þjónustusamn-
ings og að greiðslur til þeirra séu að-
eins til 30 daga í senn. Fyrir liggi
upplýsingar um að þær greiðslur
sem fatlað fólk búsett á Sólheimum
eigi rétt á hafi um árabil verið van-
metnar og að Sólheimar hafi ítrekað
gert þá kröfu að misræmi verði leið-
rétt, þjónusta ársins 2011 sé greidd
miðað við þjónustuþörf og forsendur
ársins 2002. Enn sé mikil óvissa um
með hvaða hætti rekstur Sólheima
verði tryggður, samningaviðræður
við sveitarfélagið Árborg um nýjan
þjónustusamning hafi staðið yfir í
þrjá mánuði án árangurs. Full-
trúaráðið skorar á velferðar-
ráðherra, Guðbjart Hannesson, að
hafa forgöngu um lausn málsins og á
sveitarfélagið Árborg að vinna að
sameiginilegri lausn þess.
„Alþingi ákvað að Sólheimar færu
undir Suðurland í sambandi við mál-
efni fatlaðra og þess vegna Árborg-
ar, sem fulltrúa þess svæðis, að
semja. Fjárlög skammta þeim
ákveðinn ramma þannig að það er
algerlega í þeirra höndum,“ svarar
Guðbjartur, spurður að því hvort
hann ætli að verða við þessari áskor-
un. „Málið er ekki komið á mitt borð
og er í höndum þessara aðila sem
tóku yfir málaflokkinn, samkvæmt
ákvörðun Alþingis um áramót.“
Guðbjartur segist treysta á að
þeir sem að málinu komi ljúki því.
„Eins og kom fram í viðtali við Ástu
(Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra
Árborgar, innsk. blm.) í fréttunum,
ef þeir fá meira þá verður einhver
annar að fá minna. Þannig er ramm-
inn samkvæmt fjárlögunum,“ segir
Guðbjartur.
Ásta sendi í gær frá sér tilkynn-
ingu og segir m.a. í henni að Sól-
heimum hafi verið boðið að gera
samning vegna ársins 2011 á grund-
velli sömu fjárframlaga og fyrir árið
2010, þjónustusamning upp á 275
milljónir króna.
helgisnaer@mbl.is
Alfarið í höndum samningsaðila
Velferðarráðherra segist ekki koma
að viðræðum Árborgar og Sólheima
Morgunblaðið/ÞÖK
Sólheimar Ósamið um samning.
Ingólfur Margeirs-
son, blaðamaður og
rithöfundur, lést 16.
apríl sl., 62 ára að
aldri. Ingólfur
fæddist 4. maí 1948
í Reykjavík. For-
eldrar hans voru
Kristín Laufey Ing-
ólfsdóttir og Mar-
geir S. Sigur-
jónsson. Ingólfur
lauk stúdentsprófi
frá Mennta-
skólanum í Reykja-
vík árið 1969 og
lauk fyrri hluta fil.
kand.-prófs í kvikmynda- og leik-
húsfræðum frá Stokkhólmsháskóla
1974. Árið 2006 lauk hann meist-
araprófi í sagnfræði við Háskóla Ís-
lands.
Ingólfur starfaði sem blaðamaður
í Noregi á árunum 1975-1977 og var
ritstjóri sunnudagsblaðs Þjóðviljans
á árunum 1978-1980. Hann var
fréttaritari Rúv-Sjónvarps í Ósló
1980-1983 og ritstjóri Helgarpósts-
ins 1983-1986. Árið 1987 tók hann
við starfi ritstjóra Alþýðublaðsins
og gegndi því til ársins 1992. Ing-
ólfur var í aðalstjórn
SÁÁ 1983-1989 og í
framkvæmdastjórn
SÁÁ 1983-1985 og
1987-1988. Hann
gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir
Alþýðuflokkinn, sat
m.a. í flokksstjórn og
þingflokki. Eftir Ing-
ólf liggur fjöldi rit-
verka og má af þeim
nefna Lífsjátningu,
ævisögu Guðmundu
Elíasdóttur frá árinu
1981 sem tilnefnd var
til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs árið 1983,
og Lífróður, ævisögu Árna
Tryggvasonar leikara, sem kom út
árið 1991. Þá skrifaði Ingólfur
greinar í innlend og erlend tímarit
og blöð og annaðist þáttagerð á
RÚV og Stöð 2 og má þar nefna
þættina Í sannleika sagt sem hann
sá um ásamt Valgerði Matthías-
dóttur og samtalsþættina á Elleftu
stundu sem hann vann með Árna
Þórarinssyni. Ingólfur lætur eftir
sig eiginkonu, þrjú uppkomin börn
og tvær uppeldisdætur.
Andlát
Ingólfur Margeirsson