Morgunblaðið - 18.04.2011, Blaðsíða 10
Patti Húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Íslensk
framleiðsla
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
GERÐ (fleiri en 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (fleiri en 2000 tegundir)
Þú velur
og drauma sófinn þinn er klár
Nýtt - vaxtalausar raðgreiðslur í allt að 12 mánuði
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. APRÍL 2011
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Þetta er forvarnarverkefnifyrir foreldra barna í 6. til10. bekk þar sem við ræðumfyrirbrigðið tælingu,“ segir
Guðlaug M. Júlíusdóttir, fé-
lagsráðgjafi á BUGL, en hún og Erla
S. Hallgrímsdóttir, félagsráðgjafi hjá
Þjónustumiðstöðinni í Breiðholti,
standa að verkefninu Tæling á netinu.
„Þetta hófst með því að móðir
kom til mín með útprentun af MSN–
samtali þá nýorðinnar tólf ára gam-
allar dóttur sinnar og 25 ára gamals
karlmanns þar sem hann var að tæla
telpuna. Þessi samskipti stóðu yfir í
aðeins fimm daga en á þeim tíma var
hann búinn að fá frá henni þrjár
myndir þar sem hún var á bikiníi eða
léttklædd, hann var búinn að fá upp-
lýsingar um hvar hún bjó, í hvaða
skóla hún var, í hvaða tómstundum
hún var, nöfnin á foreldrum hennar og
hann var búinn að leggja til að þau
myndu hittast „fyrir tilviljun“ í
Kringlunni. Það var því mjög skýrt
hverju hann var að falast eftir.“ Móð-
irin stöðvaði að sjálfsögðu samskiptin.
„En auðvitað vitum við ekki hvernig
þetta hefði endað ef maðurinn hefði
fengið að vera óáreittur áfram í sam-
skiptum við stúlkuna.“
Guðlaug segist búin að rýna mik-
ið í útprentað samtalið til að reyna að
átta sig á því hvaða aðferðum mað-
urinn beitti. „Þetta er vel uppalin
stúlka sem veit vel að hún á ekki að
tala við eða umgangast ókunnuga.
Þess vegnar er svo áhugavert að sjá
hvað aðferðum hann beitti sem ollu
því að hún lét til leiðast. Maður sér
líka skýrt að hún svarar til að þóknast
honum og segir það sem hún heldur
að hann vilji heyra, s.s. að hún sé búin
að sofa hjá, sem er auðvitað ekki rétt.“
Hundraða ára athæfi
Þótt tæknin sem samskiptin
hverfast um sé tiltölulega ung fer því
fjarri að athæfið sem slíkt sé nýtt af
nálinni. „Það er hundraða ára gamalt
atferli að fullorðnir reyni að tæla börn.
Það var t.a.m. vel þekkt í Grikklandi
og Róm til forna að menn fengu unga
stráka til lags við sig,“ segir Guðlaug.
„Og enn í dag eru tælingaraðferðirnar
þær sömu sem kemur til af því að við
sem manneskjur þroskumst alltaf á
sama hátt. Þessir menn vita að við öl-
um börnin okkar upp í að hlýða og að
þau eigi að treysta fullorðnum. Svo er
það ekki fyrr en börnin eru orðin eldri,
kannski um tíu ára aldur sem við för-
um að draga í land og benda þeim á að
þetta sé ekki alveg svona einfalt, þau
þurfi að hafa varann á og treysta ekki
öllum. Hins vegar geta þau ekki til-
einkað sér slík ráð fyrr en miklu
seinna.“
Hluti af þeim aðferðum sem tæl-
ararnir nota til að ná til barnanna er
að tala við þau á jafningjagrundvelli.
„Börn á þessum aldri eru yfirleitt
fremur óörugg og með það slaka
sjálfsmynd að þau drekka í sig allt
hrós og athygli sem þau fá. Það vita
þessir menn og færa sér það í nyt. Ég
hef heyrt hjá stelpum sem hafa lent í
svona mönnum að þeir tala um hvaða
tónlist þær hlusta á, hvaða söng- og
leikkonur séu sætar og hverjar séu
Frjálsar veiðilendur
á netinu til að tæla
Menn sem vilja tæla börn og ungmenni til fylgilags við sig hafa allt að því frítt spil
á netinu þar sem foreldrar hafa ekki eins mikla yfirsýn, segir Guðlaug M. Júl-
íusdóttir sem stýrir forvarnarverkefni undir heitinu Tæling á netinu.
Skilaboð Hönnun póstkortsins var í höndum Þórdísar Claessen sem hann-
aði allt útlit verkefnisins, en kortið fer til foreldra barna í 6. – 10. bekk.
Það getur valdið nokkrum heilabrot-
um þegar reikna þarf út staðartíma á
öðrum stöðum á hnettinum. Í heimi
alþjóðlegra samskipta getur þetta
verið nokkuð snúið, t.a.m. þegar
hringja þarf til Bandaríkjanna (hvort
voru þeir nú aftur fimm tímum á und-
an eða eftir?) eða þegar ferðalög til
fjarlægra áfangastaða standa fyrir
dyrum.
Þá er gott að nýta sér heimasíðuna
www.greenwichmeantime.com en á
henni má einfaldlega velja úr fletti-
glugga höfuðborgir eða lönd víðs
vegar um heim og voilà: staðartíminn
birtist eins og hendi sé veifað. Fyrir
þá sem klóra sér alltaf í kollinum yfir
pm og am forskeytum við tímasetn-
ingar er hægt að velja 24ra stunda
útlit á klukkunni, sem flestir ættu að
ráða við að ráða í.
Á síðunni má einnig finna fræðslu
um heimsklukkuna, umreikni fyrir
tímabelti og fleira sem áhugamönn-
um um tíma og rúm gæti þótt spenn-
andi.
Vefsíðan www.greenwichmeantime.com
Tími Ekki hafa allir mörgum úrum á að skipa og þá er gott að hafa vefsíðu sem
segir manni hvað klukkan slær á hinum ýmsu stöðum úti í hinum stóra heimi.
Hvað er klukkan í Chongqing?
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ljósmyndir/Áskell Þórisson
Skeifuhafi Ditte Clausen heldur á Morgunblaðsskeifunni sem er eftirsóttur
verðlaunagripur hjá nemendum í hestamennsku á Hvanneyri.