Siglfirðingur


Siglfirðingur - 18.09.1952, Síða 4

Siglfirðingur - 18.09.1952, Síða 4
Aðalfundur sambands íslenzkra rafveitna K E N N S L A I vetur tek ég 6 ára börn til Iestrarkennslu á heimili mínu, Vetrarbraut 10- Kennslan kostar kr. 48,00 á mánuði, eða kr. 2,00 í hvert skipti fyrir barnið, ásamt 15 kr. inntökugjaldi fjTÍr læknisskoðun og fleiru. Sömuleiðis tek ég í vetur unghnga til náms í almennum framhaldsnámsgreinum, einkum tungumálum og íslenzku; fleiri saman, eða í einkatímum. Greiðsluskilmálar mjög Iiagkvæmir. FuIIorðnu fólki er og gefinn kostur á tímum í framan- greindum námsgreinum. Nánari uppl. veiti ég í barnaskólanum, eða Vetrarbraut 10. Tíundi fundur sambands ís- lenzkra rafveitna var haldinn á Isafirði dagana 20.—22. þ.m. — Fundinn sátu 14 fulltrúar frá sambandsmeðlimum, og auk þess 12 aukafulltrúar, m.a. fulltrúar ýmissa hreppsfélaga á Vestfjörð- um. Fundurinn fjallaði aðallega um sameiginleg hagsmunamál rafveitnanna, svo sem gjaldeyris- mál og samræmingu á gjald- skrám fyrir allar rafveitur lands- ins og hæikkun á raforku til sam- ræmis við annað verðlag í land- inu. Ýmsar nefndir skiluðu áliti- — Mælaprófunarnefnd skilaði áliti um prófun rafmagnsmæla og mælaprófunarstöð, sem komið yrði upp til aðstoðar rafveitum úti á landi við prófun og endur- nýjun rafmagnsmæla. Rafmagns- prófun ríkisins skýrði frá starf- seemi sinni, en hún hefur ineð höndum prófun á öllum rafmagns útbúnaði, sem til landsins er fluttur. Á fundinum var lagt fram bráðabirgðaálit um heppilegastar aðferðir í sambandi við súgþurrk- un. Hafði samband rafveitnanna átt mann 1 nefnd, sem starfaði á vegum ríkisstjórnarinnar að lausn á því máli. Fundurinn ræddi aðferðir til þess að útrýma hinum tíðu út- varpstruflunum, og var það álit fundarins að reisa þyrfti endur- varpsstöðvar sem víðast ef ráða ætti bót á því máli. 1 sambandi við umræður um skýrslusöfnun rafveitna var sikýrt frá því, að nú hefðu rúmlega 80% allra landsmanna afnot af rafmagni eða 119 þús. manns af 147 þús. íbúum landsins. Fundurinn samþykkti ályktun í samibandi við aukið eftirlit vegna brunahættu, og að safnað yrði skýrslum um brunatilfelli, sem talin eru stafa út frá rafmagni, og rannsakaðar yrðu orsakir þeirra. Á fundinum var samþyikkt til- laga til stjórnarinnar þess efnis, að næsti aðalfundur verði hald- inn á Þingvöllum, og yrði þá um leið minnzt tíu ára afmælis sam- bandsins. Ennfremur var rætt um það, að þá yrði efnt til samvinnu- fundar rafveitusambands Norður- landa með formönnum og ritur- umallra rafveitusambandanna. Á fundinum voru flutt nokkur erindi. Guðmundur G. Kristjáns- »on flutti erindi um Rafveitu Isafjarðar og Axel Tuliníus um Rafveitu Bolungarvíkur. Ágúst Guðmundsson flutti erindi um hirðingu rafstöðva og Þórður Runólfsson um dieselvélar. Eftir lokasamsætið, sem fulltrúar sátu með raforkumálastjóra, Jakob Gíslasyni, flutti hann erindi um rafveitumál Vestfjarða. Fulltrúum fundarins var boðið að skoða umhverfi ísafjarðar s-1. föstudag. Eftir að þeir höfðu skoðað rafstöðina í Engidal, var haldið til Hnífsdals og Bolungar- . víkur. Á síðasta starfsári bættust þrjár virjanir í sambandið: Sogs- og Andakílsvirkjunin og Raf- magnsveitur ríkisins. Eru félagar sambandsins nú alls 28 og auk þess 12 rafmagnsverkfræðingar, sem aukafulltrúar. Fulltrúar fundarins héldu flestir heimleiðis s.l. laugardag. Stjórn sambandsins skipa nú: Steingr'ímur Jóneson, rafmagns- stjóri, Reykjavík, Jakob Guð- johnsen frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Valgarð Thorodd- sen frá Rafveitu Hafnarfjarðar, Guðjón Guðmundsson frá Héraðs- rafmagnsveitum ríkisins og Jón Gestsson frá Rafveitu Isafjarðar. KJARTAN HJÁLMARSSON, kennari. LÆKNING MEÐ DÁLEIÐSLU: Furdulegur árangur ensks lœknis Fyrir 17 árum ól kona nokkur í London barn, sem virtist hafa óvenju þykka húð. Er drengur- inn óx, varð húðin dökk og hörð. Líkaminn, nema brjóst, háls og andlit varð smám saman alþak- inn þéttum, svörtum, hreistruð- um bólum, en á milli þeirra var skinnið hart eins og fingurnögl og kæmu sprungur í það, vætluðu blólitaðir vessar úr þeim. Eng- inn kunni skil á orsökum þessa hræðilega sjúkdóms, né vissi nokk ur ráð til að lækna hann. Læknis- aðgerðir í sumum fremstu sjúkra- húsum Lundúna komu að engu haldi. Tilraunir í þá átt að græða eðlilegt skinn af brjósti drengs- ins á hreistraða lófana hefðu bet- ur aldrei verið gerðar. Hið heil- brigða skinn varð brátt eins svart og hrjúft og það, sem fyrir var, herptist því næst og gerði fingurna stirða. Ungi pilturinn TILKYHNINB UM LOGTOK Samkvæmt beiðni innheimtumanns opinberra gjalda í Siglu- fjarðarkaupstað og að undangeiignum úrskurði, tilkynnist hér með, að lögtök til lúkningar nokkrum opinberum gjöldum fyrir árið 1952, auk dráttarvaxta, kostnaðar við lögtaksgerðina og eftirfarandi uppboð, ef til kemur, mega án frekari fyrirvara fram fara að 8 dögum liðnum frá birtingu þessara tilkynningar. Gjöldin eru þessi: Tekju- og eignaskattur, fasteignasliattur, tekjuskattsvið- auki, stríðsgróðaskattur, persónuiðgjald til abnanna trygginga, atvinnurekendaiðgjald, námsbókargjald, lesta- og vitagjald, mjólkureftirlitsgjald, vélaeftirlitsgjald og rafmagnsgjald raf- stöðva. Lögtökin fara fram á kostnað gjaldenda, en á ábyrgð ríkissjóðs. Bæjarfógetinn í Siglufjarðarkaupstað, 16. sept. 1952. EINAR INGIMUNDARSON Skólabækur og ritföng, fyrirliggjandi. BÖKAVERZLUN HANNESAR JÓNASSONAR Stúlka óskast í vist í vetur. BRAGI MAGNÚSSON, lögregluþjónn. var sendur í skóla, en bæði kenn- arar og skólafélagar hans höfðu horn í síðu hans. Hann varð auð- vitað uppnefndur og kallaður „litli-fíllinn“. Svo fór, að hann varð einmana og feiminn. Þá var það, að ungur læknir. Dr. Albert Abraham Mason, heyrði um þennan ólæknandi ikrankleika drengsins, sem vakti þegar 'i ©tað áhuga hans, þar eð Dr. Mason hafði í rannsóknum sínum og námi gefið sig allmikið að til- raunum með dáleiðslu. Fyrir um það bil 18 mánuðum síðan sátu 12 vantrúaðir læknar í hvítri sjúkrastofu í East Grin- stead í Sussex og fylgdust, af at- hygli þó, með því er Dr. Mason dáleiddi hinn umrædda sjúkling, sem tók um 10 mínútur. Að því búnu endurtóik dávaldurinn og læknirinn Dr. Mason þrásinnis: „Vinstri handleggur þinn mun verða hreinn.“ 1 fyrstu tók hann fyrir aðeins lítinn hluta líkam- ans til þess að prófunin yrði enn- þá nákvæmari. Nálæg.t fimm dög- um seinna varð hrjúfa hriesturs- lagið á vinstra handlegg drengs- ins mjúkt og molnaði iburtu. — Skinnið undir var rautt, en fékk brátt eðlilegan lit. Eftir 10 daga var handlegg.urinn orðinn hreinn og heilbrigður frá öxl og fram á olnboga. Dr. Mason hélt nú þrot- laust áfram og stytti smám saman dáleiðslutímann. Næst tóik hann fyrir hægri handlegg,- inn, sem heppnaðist fullkomlega, Fætur ög læri sjúklingsins höfðu verið einna verst útl'itindi, en læknuðust að miklu leyti, svo og bakið- Nú er hann orðinn 18 ára og hamingjusamari heldur en hann hafði nokkurn tíma dreymt um að geta orðið. Sér- fræðingar í húðsjúkdómum, sem lásu um þessa læknisaðgerð í Brtisth Medical Journal, standa orðlausir og fá eðlilega ekkert skilið, hvernig þetta sé hægt, og hið sama má reyndar segja um sjálfan Dr. Mason, en hann hafði mörg Vitni að aðferð þeirri, er hann beitti og bata sjúklingsins.

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.