Siglfirðingur


Siglfirðingur - 23.04.1955, Qupperneq 3

Siglfirðingur - 23.04.1955, Qupperneq 3
SIGLFIRÐINGUR 3 LL '- ' Auglýsing nr. 3/1955 frá Innflutnings- skrifstofunni. Samkvæmt heimild í 22. gr. reglugerðar frá 28. desember 1953 um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála, fjárfestingarmála o.fl., hefur verið ákveðið að úthluta skuli nýjum skömmtunarseðlum, er gildi frá 1. apríl 1955 til og með 30. júní 1955. — Néfnist hann „AÍNNAR SKÖMMTUNARSBÐILL 1955“, prentaður á hvítan pappír með fjólu- bláum og brúnum lit. Gildir hann samkvæmt því, sem hér segir: REITIRNIR: Smjörlíki 6—10 (báðir meðtaldir) gildi fyrir 500 grömm- um af smjörlíki, hver reitur. ÞAKKARÁVARP Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eigin- manns míns, föður okkar, sonar og bróður JÓNS KRISTINSSONAR Guðmunda Júlíusdóttir og börn, Jóhanna Jónsdóttir, Svavar Krist- insson og Guðrún Kristinsdóttir. i ■^^■■■■■iMHHM^HHMaHaiiaB ÞAKKARÁVARP Alúðarfyllstu þakkir fyrir auðsýnda samúð og velvildarhug við fráfall og jarðarför eiginkonu minnar, móður, ömmu og tengdamóður, PÁLÍNU jónsdóttur Guð annist ykkur og blessi. | | Eiginmaður, börn, barnabörn og tengdaböra REITIRNIR: SMJÖR gildi fyrir 250 grömmum af smjöri, hver reitur, (einnig bögglasmjöri). Verð á bögglasmjöri er greitt niður jafnt og mjólkur- og rjóma- bússmjör, eins og verið hefur. „ANNAR SKÖMMTUNAIRSEÐILL 1955“ afhendist aðeins gegn því, að úthlutunarstjóra sé samtímis skilað stofni af „FYRSTT SKÖMMTUNARSEÐILL 1955“ með árituðu nafni og heimilisfangi, svo og fæðingardegi og ári, eins og form hans segir til um. Reykjavík, 31. marz 1955. I INNFLUTNINGSSKRIFSTOFAN 0 a r ð I ö n d Þeir sem hafa garðlönd á leigu hjá Siglufjarðarkaupstað, skulu hafa greitt ársleiguna 1955 fyrir 15. maí n.k. Verði leigan ekki greidd fyrir þann tíma verða garðarnir leigðir öðrum. Leigan er sú sama og s.l. ár og skal greiða hana til umsjónar- manns garðlandanna Páls Ásgrímssonar, Mjóstræti 2, eða til bæjar- gjaldkera. Garðleigjendur eru vinsamlega beðnir að hreinsa burtu grjót og þökur úr garðlöndunum sem allra fyrst. Siglufirði, 13. apríl 1955. i BÆJARGJALDKERI Skógræktarferð til Noregs I byrjun júní verður farin skógræktarferð til Noregs á vegum Skógræktarfélags Islands. Skógræktarfélagi Siglufjarðar heimilast að senda einn mann í þessa ferð. Farið verður úr Reykjavík 9 .júní og dvalið í Noregi í 18 daga við skógræktarstörf á ýmsum stöðum, og farið í ferðalög. Hver þátttakandi þarf að greiða 2100,00 kr. íslenzkar í fargjald og uppihald. I Þeir Siglfirðingar, sem vildu taka þátt í þessari för, eru beðnir að itala við Kjartan Bjarnason ,sparisjóðsgjaldkera, eða Jóhann Þorvalds- son, kennara, Hverfisgötu 4, fyrir 1. maí. Stjórn Skógræktarfélags Siglufjarðar Nauðungaruppboð Eftir kröfu Jóns Jóhannssonar, netagerðarmanns, Þormóðsgötu 18, Siglufirði, verður herpinót, eign Baldurs Guðmundssonar, Lauga- vegi 18, Reykjavík, seld á opinberu uppboði, sem haldið verður í hús- inu nr. 17 við Snorragötu (iBein) hér í bænum 7. maí n.k. kl. 10,30, til lúkningar viðgerðar- og geymslukostnaði nótarinnar kr. 1.893,44 auk 6% ársvaxta frá 1 .jan. 1955 til greiðsludags og öllum kastnaði við uppboðið- I,,: ,-,i Siglufirði, 13. apríl 1955. BÆJARFÓGETINN Greiðið fasteignagjöldin Fasteignagjöld til Bæjarsjóðs Siglufjarðar féllu í gjalddaga 1. lapríl s.l. fyrir árið 1955. Húseigendur eru hér með minntir á að greiða sem allra fyrst. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 1—6 nema laugardaga frá kl. 10—12. Siglufirði, 15. apríl 1955. BÆJARGJALDKERI ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< Bólusetning gegn mænusótt. Undanfarið hefur verið frá því skýrt, bæði í blöðum og útvarps- fréttum, að bandarískir vísinda- menn og læknar hafi fundið upp bóluefni gegn mænusótt. Bóluefni þetta hefur þegar verið reynt með góðum árangri og verður bráðlega tekið til notkunar víða um heim. Meðal annarra hefur íslenzka heilbrigðisstjórnin hlutast til um, að bóluefni þetta komi hingað til landsins. Birgðir þær, er til lands- ins koma eru að vísu takmarkað- ar, en þeim verður skipt milli hér- aðslækna. Mun ég bráðlega fá bóluefni þetta handa nokkrum hundruðum barna og unglinga. — Bólusett verða 3ja ára börn og eldri. Byrjað verður á yngstu börnunum og haldið uppeftir, eftir því sem bóluefnið endist. — Bólusetja þarf hvert barn 3var, með 1—3ja vikna millibili. Bólusetningin verður auglýst síðar, þegar séð verður hve mikið bóluefni fæst hingað. H. Kristinsson neðri hæð húseignarinnar nr. 18 við Eyrargötu, ef viðunandi til- boð fæst. Semja ber við undirrit- aða. RÓSA HALLDÓRSDÓTTIR SKÍÐAMÓT ÍSLANDS (Framhald á 3. síðu) mikil og næsta athyglisverð, og yfirleitt má með sanni segja hið sama um allar íþróttir hér í bæ. Það er leiðinlegt að þurfa að viðurkenna það, enda er margur tregur til þess ,og meðan menn vilja ekki viðurkenna það, heldur afturförin áfram. ísambandi við þetta væri rétt, að forvitnast um: — Er engin íþróttamálanefnd starfandi? Hef- ur hún þá haft nokkurt samband t.d. við íþróttafulltrúa ríkisins og leitað styrks í starfi? Hvenær er hugsað til að opna sundlaugina ? Hefur starfið við hana hlotið nokkra viðunanlega skipulagningu Er það ekki íþrótta málanefnd bæjarins, ef til er, sem öll ábyrgð hvílir á um að sund- laugin sé starfrækt eins langan tíma og hægt er? — Svar óskast. Reginn. SEMENT væntanlegt um 10. maí. E I N C O

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.