Morgunblaðið - 02.05.2011, Qupperneq 3
VALLARMÁLIN
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Snjókoman á höfuðborgarsvæðinu
setur strik í reikninginn hvað varð-
ar fyrstu umferðina í Pepsi-deild
karla í knattspyrnu. Opnunarleikur
mótsins átti að vera í gærkvöldi á
Kópavogsvelli þar sem KR-ingar
ætluðu að koma í heimsókn. Af því
varð ekki enda þykkt snjólag yfir
vellinum og var honum frestað þar
til annað kvöld. Sama er að segja
um leik nýliðanna Víkings í Reykja-
vík og Þórs frá Akureyri sem vera
átti í kvöld, honum hefur verið
frestað til morguns. Hinir fjórir
leikir fyrstu umferðarinnar eru sett-
ir á í kvöld en svo gæti farið að
fresta yrði leik Vals og FH.
Frumkvæðið komi
frá félögunum
„Veðurspáin bendir til þess að
þriðjudagurinn sé nokkuð öruggur
og við vonum bara að veðurfræðing-
arnir hafi rétt fyrir sér hvað það
varðar,“ sagði Birkir Sveinsson,
mótastjóri hjá Knattspyrnu-
sambandi Íslands, í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Það er ekkert
að því að spila í Kórunum eða Egils-
höllinni ef út í það er farið, en frum-
kvæðið yrði þá að koma frá félaginu
sem í hlut á, rétt eins og var með
heimaleik Fylkis, Árbæingar ósk-
uðu eftir að fara með þann leik í
Kórinn,“ sagði Birkir.
KSÍ getur ákveðið að
það skuli leikið
Spurður hvort Knattspyrnu-
sambandið gæti ekki ákveðið að ein-
hver leikur skyldi fara fram þrátt
fyrir að heimavöllur viðkomandi fé-
lags væri ekki leikfær, sagði Birkir:
„Jú. Á ákveðnum tímapunkti, þegar
möguleikinn til að fresta leik er ekki
til staðar lengur, getum við gripið til
þess að segja liðinu að leika á vara-
velli sínum.“
En það er möguleiki á að fresta
þessum leikjum þó þétt sé leikið í
fyrstu umferðum deildarinnar. „Við
höfum hins vegar möguleika á að
fresta þessum leikjum til þriðjudags
og í vissum tilfellum gætum við far-
ið yfir á miðvikudag. Það hefði trú-
lega einhverjar frekari tilfærslur á
leikjum í næstu umferð í för með
sér. En það eru engar svona hug-
myndir í gangi núna. Það er miðað
við að leika eins og dagskráin er
núna. Það er allt klárt í Keflavík og
í Vestmannaeyjum og Kórinn er að
sjálfsögðu klár. Þá er Hlíðarendi
eftir, hann er víst hvítur núna þessa
stundina, en vonir standa til að hann
verði í lagi á morgun. Hann er upp-
hitaður þó svo það sé ekki snjó-
bræðslukerfi undir honum, en hitinn
ætti að hjálpa eitthvað til.
Það var leikið á grasi á Hellu og í
Þorlákshöfn í bikarnum í dag, enda
snjóaði ekkert fyrir austan fjall. Það
er bara höfuðborgarsvæðið sem er í
þessum vandræðum vegna snjóa,“
sagði Birkir.
Viljum spila þetta
samkvæmt áætlun
„Við viljum endilega spila þetta
samkvæmt áætlun, en þessi mikla
snjókoma setur strik í reikninginn
hjá okkur,“ sagði Haraldur Har-
aldsson, framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildar Víkings, en Þór frá
Akureyri, sem æfði á grasi í gær
fyrir norðan, á að koma í heimsókn
annað kvöld.
„Við hittumst og tökum stöðuna á
morgun og forsenda til að það sé
einhver glæta að spila hér er að
þetta rigni niður í nótt og síðan
komi 10-12 stiga hiti á morgun og
þriðjudag. Mér finnst líklegt að það
verði skoðað að færa leikinn aftur á
miðvikudag, en ég veit ekki hvernig
KSÍ tæki í það,“ sagði Haraldur.
Hann var ekki á því að leikurinn
yrði færður í Egilshöllina. „Eins og
ég skil þetta þá held ég að ef þetta
gengur ekki eftir verði leiknum
frestað fram í júní og þá er talað um
14. júní. En við reynum í lengstu lög
að spila þennan leik, svo fremi að
völlurinn þoli það,“ sagði Haraldur.
Vonandi duga þessir
tveir aukadagar
„Það liggur snjór yfir vellinum og
við vonumst til að þessir tveir auka-
dagar sem við fengum dugi til að
völlurinn verði tilbúinn,“ sagði
Svavar Jósefsson, framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar Breiða-
bliks, sem átti að taka á móti KR í
gærkvöldi. Leiknum var frestað
fram á þriðjudagskvöld.
„Við vorum bjartsýnir í gær um
að við gætum leikið í dag og erum
bjartsýnir í dag á að geta leikið á
þriðjudaginn. Maður hefur lært það
í gegnum tíðina að það er ekki fyrr
en á leikdag sem það kemur í ljós
hvort hægt er að spila eða ekki,“
sagði Svavar.
Kórinn of lítill og
kemur ekki til greina
Hann telur Kórinn ekki koma til
greina fyrir leik Blika og KR. „Kór-
inn er einfaldlega of lítill fyrir þenn-
an leik. Það er mikill fjöldi áhorf-
enda sem fylgir þessum liðum og
það myndi muna um 1.000 áhorf-
endum og eins er öll aðstaða fyrir
veitingasölu og annað sem þessum
leik fylgir ekki til staðar. Eins gæti
ég trúað að leikmenn og þjálfarar
hafi takmarkaðan áhuga á að fara
með leikinn þangað,“ sagði Svavar.
Hann sagðist hafa fengið stað-
festingu frá KSÍ þess efnis að farið
yrði með þennan leik sem opn-
unarleik eins og til stóð. „Öll dag-
skráin sem átti að vera á leiknum
heldur sér, þannig að þetta verður
opnunarleikurinn,“ sagði Svavar og
sagði menn bara bíða og vona að
veðrið yrði hliðhollt knatt-
spyrnuvöllunum á höfuðborg-
arsvæðinu.
„Jólasnjórinn“ setur strik
í upphaf Íslandsmótsins
Tveimur leikjum hefur þegar verið frestað Einn leikur færður inn í hús
Hugsanlegt að þriðja leiknum verði frestað í dag Frestað fram í júní?
Morgunblaðið/Kristinn
Snjóbolti Svona var umhorfs á Kópavogsvelli í gær en þar átti Íslandsmótið að hefjast með leik Breiðabliks og KR.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2011
Kolbeinn Sig-þórsson
skoraði tvö
marka AZ
Alkmaar þegar
liðið vann 5:1 sig-
ur á De Graafsc-
hap í gær í hol-
lensku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Sigurinn var afar mik-
ilvægur því AZ styrkti með honum
stöðu sína í 4. sæti sem ljóst er að
gefur sjálfkrafa þátttökurétt í for-
keppni Evrópudeildarinnar. AZ er
þremur stigum á undan næsta liði
þegar aðeins lokaumferðin er eftir,
en aðeins með tveimur mörkum
betri markatölu. Kolbeinn hefur nú
skorað 15 mörk í deildinni á tíma-
bilinu en honum var skipt af leikvelli
á 63. mínútu. Jóhann Berg Guð-
mundsson var á varamannabekkn-
um hjá AZ en hann hefur verið
meiddur.
Birkir Bjarna-son skoraði
eitt mark og lagði
upp annað, og
Indriði Sigurðs-
son skoraði eitt
mark þegar lið
þeirra Viking
vann Egersund
4:0 í gær í norsku
bikarkeppninni í knattspyrnu. Mark
Indriða kom úr aukaspyrnu af tæp-
lega 20 metra færi.
Hlynur Bæringsson skoraði 17stig, tók 9 fráköst og gaf 7
stoðsendingar, og Jakob Örn Sig-
urðarson skoraði 16 stig og tók 4
fráköst, þegar lið þeirra Sundsvall
Dragons mátti sætta sig við tap
gegn Norrköping Dolphins, 87:75, í
gær. Norrköping er þar með 3:2 yfir
í einvíginu um sænska meistaratit-
ilinn í körfuknattleik en vinna þarf 4
leiki. Liðin mætast að nýju á
fimmtudaginn.
Arnór Atlasonskoraði tvö
mörk og Snorri
Steinn Guð-
jónsson eitt mark
þegar AG Köben-
havn komst í úr-
slitaleik dönsku
úrvalsdeild-
arinnar í hand-
knattleik með 26:22 sigri á Team
Tvis Holstebro. AG mætir Bjerr-
ingbro-Silkeborg í úrslitaleikjunum
og fer seinni leikurinn fram á knatt-
spyrnuleikvanginum Parken. Áætl-
ar Jesper Nielsen eigandi AGK að
fá 34.000 áhorfendur á leikinn sem
yrði heimsmet hvað varðar hand-
bolta.
Fjölnismað-urinn Aron
Jóhannsson og
félagar hans í
AGF tryggðu sér
sæti í dönsku úr-
valsdeildinni í
knattspyrnu á
næstu leiktíð með
því að leggja
Skive að velli, 1:0, í gær. Enn eru
fimm umferðir eftir af 1. deildinni
en AGF er 20 stigum á undan liðinu
í 3. sæti, og 13 stigum á undan HB
Köge sem er í 2. sæti. Peter Graul-
und skoraði sigurmarkið í gær en
Aron kom inná í hans stað á 86. mín-
útu eftir að hafa skorað í næsta leik
á undan.
Eyjamaðurinn Gauti Þorvarð-arson skoraði fyrsta mark
keppnistímabilsins 2011 í fótbolt-
anum. Eyjaliðið KFS, sem leikur í 3.
deild, vann Álftanes, 2:0, í 1. umferð
bikarkeppninnar í Fífunni í Kópa-
vogi á laugardaginn og Gauti skor-
aði fyrra markið. Hann lék níu leiki
með ÍBV í úrvalsdeildinni í fyrra.
Fólk sport@mbl.is
„Við höfum bara ekki séð snjó
í sumar,“ sagði Þorsteinn
Magnússon, framkvæmdastjóri
knattspyrnudeildar Keflavíkur,
en þangað kemur Stjarnan í
heimsókn í kvöld. „Það rigndi
hjá okkur meðan það kafsnjó-
aði hjá ykkur í bænum. Við er-
um þessa stundina að snyrta
og gera fínt hjá okkur. Völl-
urinn er iðagrænn og tilbúinn
fyrir fyrsta leik,“ sagði Þor-
steinn og bætti við: „Það verð-
ur engu frestað í „sunny Kef“
á morgun.
Völlurinn er þokkalega þurr,
við hefðum alveg viljað fá
smásól til að hann yrði enn
betri. En hann er allt í lagi þó
svo hann taki örugglega aðeins
í á morgun.“
Enginn snjór
í Keflavík
KEFLAVÍK
„Við mokum ekki völlinn, það
gerir illt verra, en við erum hins
vegar að vökva núna,“ sagði
Theódór Hjalti Valsson, vall-
arstjóri á Hlíðarenda, heimavelli
Valsmanna, þar sem þeir stefna
að því að taka á móti FH-ingum í
kvöld.
„Við verðum bara að sjá til
hvernig völlurinn verður á
morgun. Við látum þetta standa
sem leiktíma núna, en sjáum til
hvernig þetta verður í fyrra-
málið og síðan er samráðs-
fundur í hádeginu á morgun þar
sem staðan verður metin. Við
ætlum ekki að taka neina
áhættu varðandi völlinn og
kannski verður leiknum frestað
til þriðjudags,“ sagði vall-
arstjórinn á Hlíðarenda.
Vökvað í
snjónum
HLÍÐARENDI
„Það eru nú kannski smáýkjur
að segja að völlurinn sé iða-
grænn og skraufþurr. En hann
er allt í lagi og við erum tilbúnir
í fyrsta leik,“ sagði Kári Þor-
leifsson, vallarstjóri á Hásteins-
velli í Vestmannaeyjum. Þar á
bæ verður leikið í kvöld þegar
ÍBV fær Fram í heimsókn.
„Það hefur ekkert snjóað hjá
okkur í sumar og ég leyfði
strákunum að taka stutta æf-
ingu á vellinum áðan,“ sagði
vallarstjórinn.
„Við skulum segja að það séu
engin vandamál hjá okkur varð-
andi völlinn, það kemur þá bara
í ljós seinna og við tökum þá á
því þegar að því kemur. Hann er
alveg sæmilegur og nokkkuð
grænn,“ sagði Kári.
Æft á vell-
inum í Eyjum
VESTMANNAEYJAR