Morgunblaðið - 02.05.2011, Page 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2011
Sá fáheyrði atburður varð á Spáni um helgina
að meistarar Barcelona töpuðu leik. Þar með
lauk 32 leikja hrinu Börsunga í deildinni án
taps, en þeir máttu þola 2:1-ósigur gegn Real
Sociedad á laugardaginn. Þetta ætti þó ekki að
koma að sök því Barcelona þarf aðeins fjögur
stig úr síðustu fjórum umferðunum til að
tryggja sér meistaratitilinn.
Real Madrid er eina liðið sem getur komið í
veg fyrir sigur Barcelona í deildinni en liðið tap-
aði óvænt á heimavelli, 3:2, fyrir Real Zaragoza.
Í byrjun apríl tapaði Real á heimavelli gegn
Sporting Gijon og var það fyrsta tap liðs undir
stjórn Joses Mourinhos á heimavelli í níu ár. Nú
liggur við að það megi segja að slík töp séu orðin
daglegt brauð, en það er
kannski fulllangt gengið.
„Við getum eiginlega
kvatt möguleikann á að
vinna deildina núna,“ sagði
Iker Casillas, markvörður
Real, sem einblínir nú á
seinni leikinn við Barcelona í
undanúrslitum Meist-
aradeildarinnar:
„Núna verðum við bara að
fara til Barcelona til þess að
vinna. Við erum tveimur mörkum undir en það
getur allt gerst, og við vonumst til að spila til úr-
slita eftir mánuð.“ sindris@mbl.is
Töpuðu loks eftir 32 leikja hrinu
Jose
Mourinho
Dortmund tryggði sér endanlega þýska
meistaratitilinn í knattspyrnu um helgina en
liðið hefur haft algjöra yfirburði í bundeslig-
unni á þessari leiktíð. Dortmund vann Nürn-
berg 2:0 á heimavelli um helgina frammi fyr-
ir rúmlega 80.000 stuðningsmönnum og er
því átta stigum fyrir ofan næsta lið, Lever-
kusen, þegar tveimur umferðum er ólokið.
Leverkusen hefur jafnframt tryggt sér 2.
sætið og fylgir því Dortmund í Meistaradeild
Evrópu á næstu leiktíð.
Bayern München er sem stendur í 3. sæti
deildarinnar, sem gefur þátttökurétt í 3. um-
ferð forkeppni Meistaradeildarinnar, en liðið
er aðeins tveimur stigum á undan Hannover
sem tapaði óvænt fyrir
næstneðsta liði deild-
arinnar, Borussia Mönch-
engladbach, um helgina.
Meistaralið Dortmund
hefur komið flestum á
óvart í vetur en þar er lítið
um þekktar stjörnur. Með-
alaldur vinsælasta byrj-
unarliðs þjálfarans Jür-
gens Klopps er aðeins 23,3
ár, sem er talsvert yngra
en hjá öðrum toppliðum í stærstu deildum
Evrópu. Þetta var fyrsti meistaratitill Dort-
mund frá árinu 2002. sindris@mbl.is
Þrælungir Þýskalandsmeistarar
Jürgen
Klopp
ENGLAND
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Ekki veit ég hver stuðullinn var í
lok febrúar á það að Chelsea yrði
Englandsmeistari í knattspyrnu
annað árið í röð núna í vor, en hann
hefur eflaust verið nokkuð hár.
Meistararnir voru þá 15 stigum frá
toppnum og með fjögur lið fyrir of-
an sig. Núna er staðan hins vegar
sú að Chelsea-menn þurfa ekki að
treysta á aðra en sjálfa sig til að
landa titlinum.
Chelsea hefur nefnilega frá og
með sigrinum á toppliði Manchester
United hinn 1. mars unnið átta leiki
og gert eitt jafntefli. Áttundi sig-
urinn kom gegn Tottenham um
helgina, og í gær vann Arsenal 1:0-
sigur á United og því munar aðeins
þremur stigum á United og Chelsea
á toppi deildarinnar. Þessi lið mæt-
ast á Old Trafford næstkomandi
sunnudag og má segja að þar sé
meistaratitillinn nánast undir. Þrír
möguleikar eru í stöðunni:
Staðan eftir „úrslitaleikinn“
Vinni United sigur á Chelsea í
þessum leik er nánast öruggt að 19.
meistaratitillinn fer á Old Trafford í
vor. United hefði þá sex stiga for-
skot þegar tvær umferðir væru eft-
ir.
Vinni Chelsea á Old Trafford
eru liðin orðin jöfn að stigum, og
Chelsea þar að auki með betri
markatölu. Fyrir leikinn eru bæði
lið með 38 mörk í plús. Á Englandi
gildir markatala fram yfir innbyrðis
viðureignir liða.
Geri liðin jafntefli munar enn
þremur stigum þegar tvær umferðir
eru eftir, og Chelsea þarf þá að
treysta á að United tapi gegn ann-
aðhvort Blackburn á útivelli eða
Blackpool heima, eða geri jafntefli í
báðum leikjunum. Chelsea þarf svo
að sjálfsögðu að vinna sína leiki,
gegn Newcastle heima og Everton á
útivelli, og vera samanlagt með
hærri markatölu úr sínum tveimur
leikjum en United. Það er vel raun-
hæft í ljósi þess að United hefur
ekki skorað nema eitt mark í síð-
ustu þremur deildarleikjum.
Wenger svekktur en stoltur
Arsenal á enn fræðilega mögu-
leika á titlinum en er sex stigum á
eftir United og líkurnar því litlar.
Liðið leikur gegn Stoke (Ú), Aston
Villa (H) og Fulham (Ú) í síðustu
umferðunum, og stjórinn Arsene
Wenger er að vonum svekktur yfir
því að sigrar í þessum leikjum muni
líklega ekki duga til að landa titl-
inum.
„Já, það er gríðarlega svekkjandi.
En við viljum skoða úrslitin í dag og
ég er stoltur af liðinu í þessum leik.
Við ætlum að vinna síðustu þrjá
leikina og kannski verður lukkan í
liði með okkur í lokin, öfugt við það
sem verið hefur á þessari leiktíð.
Við sjáum ekki eftir neinu,“ sagði
Wenger í gær.
Tveimur vítaspyrnum sleppt
Aaron Ramsey gerði gæfumuninn
fyrir Arsenal í gær en hann skoraði
sigurmarkið í seinni hálfleik í aðeins
sínum öðrum byrjunarliðsleik fyrir
liðið á þessari leiktíð. Walesverjinn
er kominn á skrið eftir að hafa fót-
brotnað illa í febrúar á síðasta ári.
Arsenal hefði raunar átt að fá tæki-
færi til að komast yfir fyrr í leikn-
um þegar Nemanja Vidic slæmdi
hendi í knöttinn innan vítateigs eftir
fyrirgjöf og rændi Robin van Persie
góðu skallafæri. Vidic hefði líklega
fengið rautt spjald hefði dómari
leiksins séð atvikið. Ekkert var þó
dæmt, ekki frekar en þegar Gael
Clichy virtist brjóta á Michael
Owen innan teigs undir lok leiksins.
Chelsea með góðan möguleika
„Þetta er of stór leikur til þess að
menn séu að dæma rangt um svona
atriði,“ sagði sir Alex Ferguson
stjóri Man. Utd um brotið á Owen.
Hann viðurkenndi þó að það að Vi-
dic skyldi einnig sleppa með
skrekkinn jafnaði leikinn. Skotinn
þarf nú að stýra sínum mönnum
gegn Schalke í Meistaradeildinni á
þriðjudag áður en Chelsea kemur í
heimsókn.
„Augljóslega er lið Chelsea núna
komið með mjög góðan möguleika á
titlinum og slíkt getur gerst þegar
dómarinn tekur ákvarðanir eins og í
þessum leik. Chelsea náði í sigur á
Old Trafford síðasta vetur og við
þurfum því að búa okkur vel undir
þennan leik. En leikurinn er á Old
Trafford og stuðningsmenn okkar
verða tilbúnir, sem og leikmennirnir
sjálfir,“ sagði Ferguson.
Sárabót fyrir Lampard
Chelsea-menn geta prísað sig
sæla að hafa landað 2:1-sigri á Tott-
enham á laugardaginn. Tottenham
komst yfir í leiknum með glæsilegu
marki Brasilíumannsins Sandro, en
Chelsea jafnaði rétt fyrir leikhlé
með vafasömu marki frá Frank
Lampard. Lampard átti skot beint á
Heurelho Gomes markvörð sem
missti boltann á milli fóta sér en
rétt náði að stöðva hann áður en
knötturinn fór yfir marklínuna. Að-
stoðardómarinn taldi boltann hins
vegar hafa farið yfir marklínuna og
veifaði flaggi sínu til merkis um það.
Markið er sennilega léttvæg sára-
bót, en sárabót samt, fyrir Lampard
sem skoraði einmitt frægt mark
fyrir England gegn Þýskalandi á
HM síðasta sumar sem ekki var
dæmt gilt þar sem dómarar töldu
boltann ekki hafa komist yfir mark-
línuna.
Tvær ákvarðanir okkur í hag
Varamaðurinn Salomon Kalou
skoraði svo sigurmark undir lokin
en virtist rangstæður í því tilviki.
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, við-
urkenndi að sínir menn hefðu haft
heppnina með sér að þessu sinni.
„Við græddum á tveimur ákvörð-
unum og vorum heppnir að skora
þessi mörk, en svona gerist í fót-
bolta og dómarar geta ekki notið
þess að horfa á atvik í endursýn-
ingu,“ sagði Ancelotti hreinskilinn.
Í höndum meistaranna
Úrslit helgarinnar voru líkt og eftir handriti Chelsea-manna Mæta toppliði
Manchester United næsta sunnudag Umdeild atvik í báðum stórleikjunum
Reuters
Víti? Michael Owen liggur kylliflatur í vítateig Arsenal á lokamínútunum í leiknum á Emirates-leikvanginum í gær.
Gaël Clichy og Dimitar Berbatov fórna höndum. Clichy slapp með skrekkinn og Arsenal vann leikinn 1:0.
Leikirnir sem
liðin eiga eftir
» Man. Utd á eftir heimaleik
við Chelsea, útileik við Black-
burn og heimaleik við Black-
pool.
» Chelsea á eftir útileik við
Man. Utd, heimaleik við New-
castle og útileik við Everton.
» Arsenal á eftir útileik við
Stoke, heimaleik gegn Aston
Villa og útileik við Fulham í síð-
ustu umferðinni.
Eiður SmáriGuðjohn-
sen var í byrj-
unarliði Fulham
þriðja leikinn í
röð þegar liðið
vann 3:0 sigur í
annað skiptið á
fjórum dögum í
ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á laugardag-
inn. Fulham vann Sunderland á úti-
velli og átti Eiður sinn þátt í fyrsta
marki leiksins. Fulham er nú í 9. sæti
deildarinnar og á raunhæfa mögu-
leika á að enda í 7. sæti, en þar er nú
Everton með þriggja stiga forskot á
Eið og félaga.
Stjórinn KennyDalglish hef-
ur blásið nýju lífi í
Liverpool eftir að
hann tók við af
Roy Hodgson í
byrjun árs, og lið-
ið komst upp fyrir
Tottenham í 5.
sæti úrvalsdeild-
arinnar um helgina með 3:0 sigri á
Newcastle. Fimmta sætið gefur
sjálfkrafa þátttökurétt í Evr-
ópudeildinni á næstu leiktíð og því að
miklu að keppa. Hvorugt liðanna á
sérstaklega mikla möguleika á að
komast upp í 4. sæti og ná þannig
Meistaradeildarsæti. Dirk Kuyt
skoraði sitt 12. mark fyrir Liverpool
á leiktíðinni og þeir Luis Suárez og
Maxi Rodriguez sitt markið hvor.
Manchester City er í 4. sæti úr-valsdeildarinnar en liðið fór
langt með að tryggja sér það sæti, og
þar með þátttökurétt í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu á næstu
leiktíð, þegar það vann 2:1 sigur á
West Ham í gær. Sæti í Meist-
aradeildinni hefur verið takmarkið
hjá City eftir að nýir og forríkir eig-
endur tóku við félaginu, en City er
sjö stigum á undan Liverpool og
Tottenham og á leik til góða á Liver-
pool nú þegar flest lið eiga þrjá leiki
eftir. Mörkin gegn West Ham komu
úr óvæntri átt því Pablo Zabaleta og
Nigel de Jong skoruðu að þessu
sinni.
GiampaoloPazzini hélt
lífi í veikri von
Inter um ítalska
meistaratitilinn í
knattspyrnu með
tveimur mörkum
í uppbótartíma
gegn Cesena á
laugardag í 2:1
útisigri. AC Mil-
an er hins vegar á toppi deildarinnar
með 8 stiga forskot þegar þrjár um-
ferðir eru eftir, og getur því orðið
meistari um næstu helgi. Mathieu
Flamini tryggði Milan 1:0 sigur á Bo-
logna í gær. Staðan í deildinni er nú
þannig að útlit er fyrir að Mílanó-
liðin tvö auk Napoli fái þrjú af þeim
fjórum Meistaradeildarsætum sem í
boði eru, en Udinese og Lazio eiga í
harðri baráttu um 4. sætið. Lazio er
þar stigi á undan og með leik til góða.
Fólk sport@mbl.is