Morgunblaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 Skattheimta og hagvöxtur Ragnar Árnason prófessor. Þróun skatta og gjalda 2005–2011 Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte. Fundarstjórn Þorvarður Gunnarsson, forstjóri Deloitte. Samantekt Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Eimskipafélags Íslands. Skattar, gjöld og hagvöxtur 2005 og 2011 Hvað hefur breyst? Skráning á www.deloitte.is, netfanginu skraning@deloitte.is og í síma 580 3000. Léttur morgunverður innifalinn • Verð kr. 2.500. Deloitte heldur morgunverðarfund um skattabreytingar og tengsl skattheimtu og hagvaxtar í Turninum, 20. hæð fimmtudaginn 12. maí kl. 8.15–10.00 PI PA R\ TB W A • SÍ A • 10 33 0 6 Í dag, laugardag, kl. 10:00-13:00 verður opið hús í leikskólanum Regnboganum, Bleikjukvísl 10 í Reykjavík. Foreldraráð setur upp kaffihús í salnum og börnin skemmta fjöl- skyldum sínum með söng. Þá verð- ur haldin listsýning á verkum barnanna. Allir eru velkomnir og þá alveg sérstaklega fyrri árgang- ar barna Regnbogans. Opið hús Styrktarfélagið Göngum saman í samstarfi við Landssamband bak- arameistara stendur fyrir sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land dagana 5.-8. maí í tengslum við mæðradaginn. Styrktafélagið Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjósta- krabbameini og úthlutar til þess myndarlegum styrkjum ár hvert. Félagið leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar og að afla fjár í styrktarsjóð félagsins. Á morgun, sunnudag, stendur svo styrktarfélagið fyrir mæðra- dagsgöngu fyrir alla fjölskylduna í Laugardalnum í Reykjavík. Lagt verður af stað frá Skautahöllinni kl. 11:00 og gengið um dalinn í um það bil klukkustund. Þá er Göngum saman í útrás því einnig verður far- ið í göngu frá Jónshúsi í Kaup- mannahöfn kl. 13. Göngufólki gefst tækifæri til að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini, annaðhvort með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göng- um saman. Brjóstabollur Starfsstúlkur Bernhöftsbakarís með brjóstabollur til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini sem seldar verða um helgina en mæðradagurinn er á sunnudag. Selja brjóstabollur til styrktar grunn- rannsóknum á brjóstakrabbameini Á morgun, sunnudag, verður boðið upp á fuglaskoðun undir leiðsögn í Grasagarðinum í Reykjavík. Mæt- ing er kl. 11:00 við aðalinnganginn gegnt Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum. Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir. Í Grasagarðinum er fjölskrúðugt fuglalíf og mun Steinar Björg- vinsson, skógfræðingur og fugla- áhugamaður, fræða gesti um það. „Við sjáum vonandi glókoll, einn af nýbúunum sem námu land upp úr 1995 og er íslenskur varpfugl, þá munum við sjá skógarþröst, svart- þröst, auðnutittling og maríuerlu,“ segir Steinar. Fleira skemmtilegt verður um að vera í Grasagarðinum á sunnudag- inn því tónlistarfólk úr Skóla- hljómsveit Austurbæjar tekur á móti gestum garðsins með vortón- um íslenskra dægurlaga í tilefni af útgáfu sumardagskrár garðsins. Þá hefur Café Flóra tekið til starfa í garðinum og verður opið í allt sum- ar frá kl. 10 að morgni til kl. 10 að kvöldi. Morgunblaðið/Ómar Fuglaskoðun í Grasagarðinum Í dag, laugardag, verður margt um að vera í miðborg- inni en þá geta Reykvíkingar og aðrir hjólað í bæinn og fengið hjólin sín skoðuð og vottuð, bæði á Lækjar- torgi og Skólavörðustíg frá kl. 13:00. Þeir sem ekki eiga hjól geta þar sömuleiðis skoðað það helsta sem er í boði hjá reiðhjólaverslununum Erninum og GÁP. Þá verður mikil hjólahátíð á Ingólfstorgi þar sem jaðar- sportistar sýna kúnstir sínar og svifgetu á reiðhjólum, mótorhjólum, brettum og öðrum farkostum. Samhliða þessu verður haldinn allsherjar harm- onikkudagur um allt land og þá ekki síst í miðborg Reykjavíkur. Frá kl. 13:00 munu harmonikkuleikarar gleðja vegfarendur frá efsta hluta Laugavegar við Stjörnuport, þá við Kjörgarð, síðan Hljómalindarreit, við Hegningarhúsið á Skólavörðustíg, Sólon í Bankastræti, á Lækjatorgi og loks í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem mikil harmonikkuveisla hefst kl. 15:00. Reiðhjóla- og harmonikkudagur Í dag, laugardag, kl. 11-13 standa samtökin Heilaheill fyrir laugar- dagsfundi í Síðumúla 6 í minningu Ingólfs Margeirssonar. Allir eru velkomnir. Á fundinum mun Þórir Stein- grímsson formaður gefa skýrslu og minnast Ingólfs. Þá mun dr. Hjalti Már Þórisson fara yfir nýjungar í greiningu og meðferð sjúkdóma í miðtaugakerfi s.s. meðferð við æða- gúlum og blóðþurrðarslagi og há- skólanemarnir Þórarinn Björnsson og Mary Björk Sigurðardóttir segja frá rannsóknum sínum um málstol. Þá mun Særún Harðardóttir söng- kona og Lilja Eggertsdóttir undir- leikari skemmta fólki. Að lokum verða önnur mál rædd saman. Heilaheill funda STUTT komu allir þátttakendur heim með verðlaunagripi.    Á þriðjudaginn hittust sveitar- stjórnarmenn á Vestfjörðum og fulltrúar ríkisstjórnarinnar á sam- ráðsvettvangi vegna tillagna frá rík- inu um aðgerðir fyrir Vestfirði. Ein tillagan sneri að eflingu framhalds- menntunar á Vestfjörðum en hvergi var minnst á framhaldsmenntun á Ströndum. Lagði sveitarstjórn Strandabyggðar því fram breytingartillögu um viðbótar- fjármagn sem yrði varið til að undir- búa stofnun framhaldsdeildar fyrir Strandabyggð og nágrannasveitar- félögin. Fjórðungssamband Vest- fjarða studdi þessa tillögu og nú er því beðið með nokkurri eftirvæntingu eftir að ríkisstjórnin taki pólitíska ákvörðun um tillöguna. Að sögn Jóns Jónssonar varaoddvita Stranda- byggðar snúa aðrar tillögur sem þarna komu fram ekki sérstaklega að sveitarfélögum á Ströndum, ef frá er talin yfirlýsing um að framkvæmdum á Strandavegi í botni Steingríms- fjarðar sem áður höfðu verið ákveðnar verði ekki frestað. Aðrar tillögur, s.s. varðandi lækkun húshit- unarkostnaðar, nýtast þó svæðinu í heild.    Sama dag átti Leikfélag Hólmavík- ur 30 ára afmæli. Frá stofnun þess hefur félagið sett upp yfir 30 sýn- ingar og áberandi í sögu þess hve fé- lagar hafa verið ferðaglaðir, því sýnt hefur verið á yfir 50 stöðum á landinu í gegnum tíðina. Nýjasta uppfærslan, Með táning í tölvunni eftir Ray Coon- ey í leikstjórn Arnars Jónssonar, hef- ur slegið í gegn og er áhorfendafjöld- inn kominn yfir 300 eftir þrjár sýningar. Næsta sýning verður á Hólmavík í kvöld og síðasta sýning þar hálfum mánuði síðar. Um sjó- mannadagshelgina verður síðan lagt upp í hringferð um Vestfirði og sýnt á Patreksfirði, Þingeyri og í Bolungarvík. Lokasýningin verður síðan í Árneshreppi, en löng hefð er fyrir sýningarferðum þangað, enda mætingin þar með eindæmum góð miðað við íbúafjölda. Vilja efla framhaldsmenntun Morgunblaðið/Ingibjörg Valgeirsdóttir Leiklist Leikhópurinn í sýningu LH á Með táning í tölvunni. HÓLMAVÍK Kristín Sigurrós Einarsdóttir Almennt má telja að vorið sé kom- ið á Strandir. Veðrið hefur leikið við Strandamenn síðustu daga, eftir nokkuð umhleypingasaman vetur. Í vetur gerði nokkrum sinnum ófært yfir Þröskulda en í þeim tilfellum var fært frá Hólmavík suður Strandir í Hrútafjörð.    Erlendir ferðamenn eru farnir að láta sjá sig og heimsækja m.a. Galdrasýninguna. Önnur ferðaþjón- ustufyrirtæki á svæðinu opna um næstu mánaðamót og opnunartími sundlauga og annarra þjón- ustustaða er að lengjast. Rétt fyrir páskahelgina var opnuð ný veitinga- og salernisaðstaða hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar á Hólmavík og með því fluttist þangað sala á veit- ingum og bensínvörum sem hafði verið í söluskála um langt skeið. Þetta þýðir stóraukna þjónustu við íbúa og ferðamenn, því opnunartím- inn hefur lengst til muna.    Með vorkomunni hafa Stranda- menn lagt gönguskíðin á hilluna eft- ir góða vertíð í vetur. Gönguskíði hafa lengi verið vinsæl afþreying á svæðinu og þátttaka yngstu kyn- slóðarinnar í þeirri íþrótt farið vax- andi. Árangur krakkanna á Andrés- ar andar leikunum í ár var mjög góður og skilaði félaginu fernum gullverðlaunum, þrennum silfur- verðlaunum og þrennum brons- verðlaunum. Þá var árangur Strandamanna í Fossavatnsgöng- unni á Ísafirði ekki síðri því þaðan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.