Morgunblaðið - 07.05.2011, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
✝ Björn Jónssonrafmagnseft-
irlitsmaður fæddist
á Sauðárkróki 28.
ágúst 1923. Hann
andaðist á Heil-
brigðisstofnuninni
á Sauðárkróki 26.
apríl 2011.
Foreldrar Björns
voru Jón Björnsson
búfræðingur og
verslunarstjóri á
Sauðárkróki, f. 17. nóvember
1891, d. 17. september 1982, og
eiginkona hans Unnur Magn-
úsdóttir húsmóðir, f. 29. júní
1894, d. 17. nóvember 1985.
Björn var næstelstur fimm systk-
ina, en þau eru: Auður, f. 1921,
Magnús, f. 1925, d. 1993, Sigríð-
ur, f. 1928, og Kári, f. 1933, d.
1991.
Hinn 6. júlí 1951 gekk Björn
að eiga Guðrúnu Andrésdóttur
(Rúnu) f. 15. september 1929 á
Eskifirði. Foreldrar hennar voru
Andrés Eyjólfsson, verkamaður
á Eskifirði, f. 28. október 1887, d.
19. desember 1961, og kona hans
Guðný Þórdís Stefánsdóttir, f.
18. október 1888, d. 18. ágúst
1967. Börn Björns og Guðrúnar
eru: 1) (Unnur) Guðný hár-
greiðslumeistari á Sauðárkróki,
f. 1951, gift Stefáni Valdimars-
f. 1965. Börn þeirra eru: Víðir
Snær, Áslaug Dóra og Birkir
Máni. b) Birna Guðrún, f. 1974,
gift Sverri Þór Steingrímssyni,
f. 1970. Dóttir þeirra er Elísa
Dimmey. c) Ólöf Lára, f. 1977, en
sonur hennar er Hlynur Ísak Há-
konarson. 4) Rúnar Páll síma-
verkstjóri á Sauðárkróki, f.
1955, kvæntur Eyrúnu Ósk Þor-
valdsdóttur húsmóður, f. 1956.
Börn þeirra eru: a) Ingi Þór, f.
1973, kvæntur Fjólu Bjarnadótt-
ur, f. 1979. Dóttir þeirra er Inga
Lea, en áður átti Ingi Þór Rakel
Hebu og Jóhannes Rúnar. b)
Þórdís Ósk, f. 1978, í sambúð
með Yngva Yngvasyni, f. 1976.
Sonur þeirra er Kristófer Rún-
ar. 5) (Birna) Guðbjörg bókari
hjá Tölvulistanum, f. 1965, gift
Björgvini Þorgeiri Haukssyni, f.
1966. Börn þeirra eru: a) Guðni
Þór, f. 1987. b) Arnar Þór, f.
1994.
Eftir barnaskóla stundaði
Björn nám við Reykjaskóla og
við Reykholtsskóla. Þá tók við
nám við Iðnskólana í Reykjavík
og á Sauðárkróki. Á árunum
1951-1956 starfaði Björn við raf-
virkjun hjá Þórði P. Sighvats-
syni á Sauðárkróki en var sjálf-
stæður rafverktaki 1956-1960.
Björn var eftirlitsmaður hjá RA-
RIK til 1965. Þá varð hann raf-
magnseftirlitsmaður hjá Raf-
veitu Sauðárkróks og sinnti því
starfi til 1994, er hann lét af
störfum.
syni skipstjóra, f.
1948. Börn þeirra
eru: a) Margrét
Ólöf, f. 1971, gift
Víði Sveini Jóns-
syni, f. 1969, og eiga
þau fjögur börn,
Söndru Guðnýju,
Nínu Karen, Stefán
Inga og Jón Loga.
b) Smári Björn, f.
1977, í sambúð með
Jóhönnu Péturs-
dóttur, f. 1977, en börn þeirra
eru Oddný Sara Laxdal og Atli
Björn. Dóttir Stefáns fyrir
hjónaband er Berglind, f. 1969.
2) Jóhanna (Sigrún) húsmóðir á
Sauðárkróki, f. 1952, gift Finni
Þór Friðrikssyni flugstjóra hjá
Atlanta. Börn þeirra eru: a)
Steina Margrét, f. 1978, gift Sor-
in Lazar, f. 1967. Börn þeirra
eru: Victoría, Finnur Alexander
og Haraldur Aron. Baldur Stein-
ar, sonur Steinu fyrir hjónaband,
lést við fæðingu en faðir hans
var Baldur Marteinn Einarsson.
b) Rúna Birna, f. 1979, í sambúð
með Helga Páli Jónssyni, f. 1977.
3) Jón lagerstjóri hjá Jarðbor-
unum, f. 1954, kvæntur Svan-
hildi Benonýju Ólafsdóttur hót-
elstarfsmanni, f. 1948. Börn
þeirra eru: a) Bryndís Ósk, f.
1967, gift Svanbirni Einarssyni,
Er ég hugsa um engla
ég hugsa um þig
og þín ástúð
sem umvafði mig,
en helförin beið
og þann fetaðir stig.
Er ég hugsa um engla
ég hugsa um þig.
Guð veri með þér,
já hvert sem þú ferð.
Þótt horfinn mér sért,
ég trúı́ að ég verð
já, ætíð þér nærri,
ég er þannig gerð.
Við sjáumst svo aftur,
er lýkur hér ferð.
(Kristján Kristjánsson/Davíð Bald-
ursson)
Elsku pabbi minn, nú ertu horf-
inn á braut, þú kvaddir svo frið-
sæll og sáttur og þó sorgin sé sár
er ég glöð að þú skyldir fá að
kveðja og ekki þurfa að kveljast
lengur. Síðustu dagarnir voru erf-
iðir, en ég er líka þakklát fyrir að
hafa getað verið hjá þér, setið og
haldið í hönd þína, reynt að styðja
þig eins og þú gerðir alltaf fyrir
mig. Þú varst hetjan mín, sterkur
maður og vildir alltaf allt fyrir alla
gera. Þú ert mín fyrirmynd og þó
ég komist aldrei með tærnar þar
sem þú hafðir hælana, þá mun ég
reyna eins og ég get að feta fót-
sporin þín. Ég veit þú fylgist með,
brosir í kampinn, styður mig þeg-
ar ég hrasa, eins og þú hefur alltaf
gert – og veistu – ég er svo óend-
anlega stolt af að vera dóttir þín.
Margar minningar hafa skotið
upp kollinum upp á síðkastið – all-
ir labbitúrarnir þegar við systk-
inin vorum yngri, Tindastóll tek-
inn með trompi, Molduxinn var
ekki skilinn eftir, fjöruferðir, rétt-
arferðir og svo bara smátúr á
móana, allt gert með glöðu geði af
þinni hálfu, sama hvað við gátum
verið erfið stundum. Þú tókst líka
eftir ef við gerðum eitthvað vel –
hældir manni – og lést mann vita
að þú vissir. Þú hefur alltaf staðið
við hliðina á mér og mínum, sama
á hverju hefur gengið og fyrir allt
það er ég svo óendanlega þakklát.
Þakka þér fyrir allt sem þú hefur
verið mér, ég mun sakna þín svo
mikið – en nú ert þú kominn á
betri stað, þar ertu búinn að hitta
besta vininn þinn, hann Bæsa, líka
afa og ömmu, Magga og Kára, litla
Baldur Steinar og alla hina sem
farnir voru á undan þér, þú finnur
ekki lengur til og það veitir mér
huggun harmi gegn.
Elsku besti pabbi minn, ég bið
góðan Guð að blessa þig og varð-
veita, þú átt allt það besta skilið í
þessum heimi og hinum …
Ég elska þig, ég sakna þín, ég
græt, en ég veit að við hittumst
aftur hinum megin – þangað til:
Góða nótt, pabbi minn.
Þín dóttir,
Jóhanna Sigrún.
Elsku Bjössi afi minn, hjarta
mitt er brostið og sársaukinn er
ólýsanlegur en ég verð að vera
sterk fyrir þig því ég veit að þú vilt
ekki að mér líði svona eins og mér
líður. Ég veit að þú ert kominn
„heim“ til Bæsa og foreldra þinna,
og við hittumst síðan einhvern
tímann aftur. Þegar ég sit hérna
og skrifa til þín þá kemur svo
margt upp í huga mér. Þú varst
mér svo góður og alltaf til staðar.
Þú passaðir upp á að mér liði vel
og mér fannst ég svo náin þér.
Þegar ég fór t.d. til Reykjavíkur
þá hringdi ég alltaf í þig til að láta
þig vita að ég væri komin á leið-
arenda því þú vildir alltaf fylgjast
með að allir væru komnir í örugga
höfn.
Þú kvartaðir aldrei, varst alltaf
svo jákvæður og góður, hugsaðir
um alla aðra og lést sjálfan þig
sitja á hakanum. Ég á eftir að
sakna þess að geta ekki farið niður
á Hólaveg til ykkar ömmu og
spjallað við þig eða bara verið í ná-
vist þinni. Ef ég hitti ykkur ömmu
ekki í nokkra daga þá var ég farin
að sakna ykkar, ég reyndi alltaf að
hafa tíma fyrir ykkur og er ég
óendanlega þakklát fyrir að hafa
verið dugleg að nota tímann með
þér.
Ég er svo fegin að hafa verið
hjá þér síðustu dagana, haldið í
höndina á þér og getað sagt allt
sem mig langaði að segja við þig.
Fram á síðustu stundu vonaðist ég
eftir lækningu og að þú myndir ná
þér aftur. Ég var farin að sætta
mig við þessa stöðu þegar ég sá
hvað þú varst orðinn mikið veikur
og að þetta stríð var búið.
Ég elska þig, afi minn, og við
hittumst aftur þegar ég kem
„heim“.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið,
þú varst skin á dökkum degi,
dagleið þín var greið.
Þú barst tryggð í traustri hendi,
tárin straukst af kinn.
Þér ég mínar þakkir sendi,
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson)
Þín
Þórdís Ósk.
Okkur langar að minnast
Bjössa afa með nokkrum orðum.
Við förum reglulega norður á
Sauðárkrók og alltaf er eftirvænt-
ing að hitta vini og ættingja og
ekki síst Bjössa afa. Það var alltaf
gaman að koma á efri hæðina á
Hólaveginum og finna hlýjuna og
væntumþykjuna sem þú gafst frá
þér. Sandra, Nína, Stefán og Jón
Logi áttu góðar stundir með þér.
Allir göngutúrarnir með þér og
Bæsa, meðan hann var, og síðan
bara með þér, afi. Þú varst alltaf
glaður, kvartaðir aldrei og baðst
aldrei um neitt. Stutt í gleðina og
grínið og góðu ráðin. Svo stutt var
í húmorinn að meira segja á föstu-
daginn langa þegar hjúkrunar-
konurnar á sjúkrahúsinu buðu þér
upp á rakstur sagðir þú: „Nei, ég
þarf ekkert svoleiðis vesen, læri-
sveinarnir voru hvort eð er allir
skeggjaðir.“ Þetta lýsti þér vel, þú
vildir allt fyrir alla gera, þú settir
sjálfan þig aldrei í forgang, vildir
ekkert umstang fyrir þig sjálfan.
Þú varst frábær afi. Við hjónin
og stelpurnar erum innilega þakk-
lát fyrir þá stund sem við áttum
með þér sl. skírdag, fimm dögum
áður en þú kvaddir veraldlegt líf
og fórst til fundar við skapara
þinn. Við erum þess fullviss að þar
var þér vel tekið. Afi, þú varst ein-
stakur maður, svona maður sem
allir vilja vera, við eigum eftir að
sakna þín sárt.
Um leið og við biðjum góðan
Guð að gefa Rúnu ömmu, börn-
unum þínum og fjölskyldum
þeirra styrk í sorginni, segjum við
að lokum: Takk fyrir allt, afi, takk
fyrir allar góðu minningarnar.
Margrét, Víðir,
Sandra, Nína, Stefán
og Jón Logi.
Mig langar að segja nokkur orð
um elskulegan afa Bjössa sem nú
er fallinn frá. Við Ingi Þór kynnt-
umst í ársbyrjun 2005 og því hef
ég verið svo lánsöm að fá að um-
gangast afa hans og ömmur í báð-
ar ættir í nokkur ár. Ég hef oft
sagt honum hvað hann sé heppinn
að fá að ganga lífsins veg með
þessu fólki.
Bjössi og Rúna buðu okkur allt-
af velkomin og við fundum inni-
lega fyrir því hvað þeim þótti gam-
an að fá okkur í heimsókn þegar
við komum norður í Skagafjörð-
inn. Iðulega settist Ingi niður með
afa sínum og þeir ræddu um
heima og geima á meðan við Rúna
spjölluðum og skoðuðum handa-
vinnu.
Afi Bjössi var stórkostlegur
maður. Hann var ekki bara dreng-
ur góður heldur sá allra besti sem
ég hef um ævi mína kynnst, þvílík
fyrirmynd fyrir aðra. Hann sýndi
mér alltaf kærleika og hlýju, sem
og dóttur minni Rebekku Rós sem
var einungis 4 ára þegar við Ingi
Þór kynntumst. Mér er sérlega
minnisstætt atvik frá árinu 2008
en þá gekk ég með Ingu Leu. Það
var smá hálka úti og afi Bjössi
vildi endilega fylgja mér út í bíl því
hann hafði svo miklar áhyggjur af
því að ég myndi detta í hálkunni.
Ég studdi mig við hann út í bíl en
hafði jafnvel enn meiri áhyggjur
af því að hann myndi detta. Hann
var sannkallaður herramaður.
Afa Bjössa verður sárt saknað,
það er alveg ljóst. En við sem eftir
lifum munum heiðra minningu
hans með því að sýna öðrum kær-
leika og hlýju, vináttu og virðingu.
Fel þú, Guð, í faðminn þinn,
fúslega hann afa minn.
Ljáðu honum ljósið bjarta,
lofaðu hann af öllu hjarta.
Leggðu yfir hann blessun þína,
berðu honum kveðju mína.
(L.E.K.)
Fjóla Bjarnadóttir.
Föðurbróðir minn, Björn Jóns-
son rafmagnseftirlitsmaður, var
ekki aðeins frændi – hann var vin-
ur sem ég gat leitað til. Hann
hafði alltaf tíma til að hjálpa og
kenna litlum frænda á Sauðár-
króki og veita fullorðnum manni
góð ráð og leiðsögn.
Ég kallaði föðurbróður minn
aldrei annað en Bjössa frænda –
aldrei Björn – og stundum aðeins
frænda, líkt og ég ætti aðeins einn
ættbróður. Foreldrar mínir og
bróðir vissu alltaf við hvern var
átt þegar ég talaði um frænda.
Bjössi frændi var hógvær mað-
ur og barst aldrei mikið á. Nægju-
semi var dyggð í hans huga. Hann
hugsaði lítt um sig sjálfan, hafði
meiri áhuga á velferð annarra og
lagði mikið á sig fyrir aðra. Bjössi
var ekki æsingamaður en skap-
laus var hann ekki. Frændi var
tæplega meðalmaður á hæð og
sumum þótti hann stundum frem-
ur brothættur, en þar sannaðist
hið fornkveðna að ekki er allt sem
sýnist. Þegar móðir mín ákvað að
flytjast suður til okkar bræðra,
var Bjössi mættur til að taka þátt
í flutningunum. Bera kassa og
húsgögn. Þá var hann 84 ára og
hljóp með kassa og húsgögn líkt
og unglingur, en við bræður átt-
um erfitt með að fylgja honum
eftir – vorum móðir og másandi
þegar frændi blés vart úr nös.
Bjössi var gæfumaður í einka-
lífinu. Hann gekk að eiga Guð-
rúnu Andrésdóttur, Rúnu, árið
1951. Þau hefðu fagnað 50 ára
brúðkaupsafmæli í júlí næstkom-
andi. Enginn er í hjónabandi í
hálfa öld, án þess að þar ríki gagn-
kvæm virðing, ást og tillitssemi.
Bjössi frændi og Rúna voru sam-
rýmd hjón og eignuðust fimm
börn. Öll, hvert með sínum hætti,
hafa ekki aðeins verið frænd-
systkini mín, heldur vinir.
Guðný tók að sér að passa mig í
æsku og það reyndi oft á hana.
Nonni [Jón] kenndi mér að hjóla –
plataði mig með því sleppa mér án
þess að ég tæki eftir. Hann var sá
sem kom mér til bjargar ef ein-
hver leyfði sér að stríða mér eða
gera eitthvað á minn hlut. Rúnar
barði mig áfram í fólbolta og
reyndi án mikils árangurs að gera
mig að knattspyrnumanni – að
sama baráttumanni á vellinum og
hann var sjálfur. Jóhanna var allt-
af til í að sinna mér og spilla. Guð-
björg naut þeirrar gæfu að vera
yngri en ég og þurfti því ekki að
hafa sömu áhyggjur af frændan-
um og eldri systkini hennar.
Fyrir nokkrum vikum áttum
við Bjössi frændi langt samtal.
Við frændur sátum saman og
ræddum um fyrri tíma. Þá hélt ég
að okkur myndi auðnast að eiga
enn lengri samtöl um söguna sem
ég þekki ekki nægjanlega vel. En
það var dregið af Bjössa. Daginn
áður en hann kvaddi, átti ég nána
stund með honum á sjúkrabeðin-
um. Þó hann væri þrotinn að
kröftum og saddur lífdaga kom
það ekki í veg fyrir að frændi
hvíslaði að mér hollráði sem hann
ætlaðist til að ég færi eftir. Allt
fram í andlátið hugsaði frændi
meira um aðra en eigin hag.
Að leiðarlokum vil ég færa
mínum góða frænda fátæklegar
þakkir. Við Gréta sendum Rúnu,
frændum og frænkum okkar
dýpstu samúðarkveðjur. Björn
Jónsson – Bjössi fændi – skildi
okkur eftir ríkari og fyrir það
verður seint þakkað. Megi guð
blessa minningu einstaks manns.
Óli Björn Kárason.
Ef mér þykir vænt um ein-
hvern get ég ekki skrifað minn-
ingargrein, til þess eru orðin of
Björn Jónsson HINSTA KVEÐJA
Elsku afi minn, ég var
heppin að eiga þig sem afa.
Þú gafst mér oft ís og varst
góður afi. Ég sakna þín.
Þinn
Kristófer Rúnar.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt
á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
INGELLA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Sóleyjargötu 10,
Akranesi,
lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtu-
daginn 5. maí.
Margrét Ármannsdóttir, Þorvaldur Jónasson,
Ármann Ármannsson, Sigurbjörg Ragnarsdóttir,
Þóra Emilía Ármannsdóttir,
Ásmundur Ármannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐMUNDA ÖGMUNDSDÓTTIR
frá Flatey á Breiðafirði,
Tjarnarmýri 39,
Seltjarnarnesi,
andaðist á líknardeild Landspítala Landakoti
fimmtudaginn 5. maí.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir,
Ögmundur Gunnarsson, Rannveig Stefánsdóttir,
Gunnar Freyr Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengda-
móðir, amma, langamma og langalangamma,
MARGRÉT BENEDIKTSDÓTTIR,
áður til heimilis að Árvegi 2,
Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum
laugardaginn 30. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn
10. maí kl. 15.00
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Gigtarfélag Íslands eða Ljósheima,
Selfossi.
Guðrún Halldórsdóttir, Valdimar Valdimarsson,
Guðmundur Eiríksson,
Benedikt Eiríksson, Helga Haraldsdóttir,
Ingvar Daníel Eiríksson, Eygló Gunnarsdóttir,
Óli Jörundsson,
Þorbjörg Henný Eiríksdóttir, Bjarni Einarsson,
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
frá Ísafirði,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 23. apríl.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánu-
daginn 9. maí kl. 13.00.
Sigríður Þórðardóttir, Pétur Konráð Hlöðversson,
Þorbjörg Auður Þórðardóttir,
Viðar Bragi Þórðarson,
Ragnheiður Bára Þórðardóttir, Timó Jensen
og barnabörn.