Morgunblaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.05.2011, Blaðsíða 38
38 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011 Sudoku Frumstig 6 2 1 5 5 3 8 6 8 2 1 9 6 3 1 4 8 2 9 3 4 9 6 2 1 8 3 1 5 9 7 4 4 5 9 8 8 1 7 7 1 2 4 3 5 9 2 9 7 3 6 2 1 5 4 3 6 3 4 8 2 1 7 4 6 8 5 2 2 8 7 6 7 1 8 4 3 7 2 8 1 5 6 4 9 4 9 8 2 7 6 5 3 1 1 5 6 9 4 3 8 7 2 2 8 1 5 3 4 9 6 7 6 3 7 1 9 8 2 5 4 9 4 5 6 2 7 1 8 3 7 6 9 4 5 1 3 2 8 5 1 4 3 8 2 7 9 6 8 2 3 7 6 9 4 1 5 9 4 8 6 3 7 2 1 5 6 2 3 5 4 1 7 8 9 5 7 1 2 9 8 4 3 6 2 9 6 4 5 3 1 7 8 4 8 5 1 7 2 6 9 3 3 1 7 8 6 9 5 4 2 8 3 4 7 2 5 9 6 1 7 5 9 3 1 6 8 2 4 1 6 2 9 8 4 3 5 7 8 4 9 2 5 6 3 7 1 5 7 1 3 8 4 6 2 9 6 2 3 9 7 1 4 5 8 7 3 2 4 9 5 1 8 6 4 9 8 1 6 7 5 3 2 1 6 5 8 3 2 7 9 4 9 8 6 5 4 3 2 1 7 2 5 7 6 1 9 8 4 3 3 1 4 7 2 8 9 6 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 7. maí, 127. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Víkverji var svo heppinn að missaalveg af síðustu snjókomunni um liðna helgi, þar sem hann dvaldi um nokkurra daga skeið í hinni fögru borg Amsterdam. Hollendingar tóku á móti Víkverja með standandi fagn- aðarlátum, íklæddir þjóðarlit sínum appelsínugulum frá toppi til táar. Það var þó ekki af einskærri gestrisni við auman Íslending, heldur vildi svo til að á laugardaginn var þjóðhátíð- ardagur Hollendinga, drottning- ardagurinn svo nefndi. Víkverji hefur aldrei verið mikið fyrir skipulögð hátíðahöld gefinn og heldur sig yfirleitt til hlés á 17. júní. En drottningardagur Hollendinga reyndist stórskemmtilegur, kannski einmitt vegna þess að hátíðahöldin eru hæfilega óskipulögð. Þennan dag leyfist Hollendingum til dæmis að draga allt sitt skran úr geymslum og selja á götum úti og þeir nýta sér það óspart. Eins notar fólk tækifærið til að fíflast aðeins og má víða sjá börn og fullorðna spila á hljóðfæri, dansa og syngja úti á götu í von um að hrífa vegfarendur með svo þeir láti nokkra aura af hendi. Í þessum skemmtiatriðum virðist hispursleysið ráða för og því algjört aukaatriði hvort miklum hæfileikum sé fyrir að fara eða ekki. Þetta gerði götulífið í Amsterdam sérstaklega líflegt þennan dag og ekki skemmdi fyrir að trén voru fulllaufguð og sólin skein á nef Víkverja sem roðnaði hressilega undan, eftir langt hlé. x x x Víkverji hefur nú tvisvar sinnumsótt Holland heim og telur eftir þá reynslu sína að Hollendingar séu með skemmtilegri mönnum. Jafnvel Icesavedeiluna leiðinlegu tækla þeir af húmor. Minnisstætt er þegar stuðningsmenn hollenska fótbolta- liðsins mættu til Íslands í október 2009 og heimtuðu peningana aftur. Slagorðið hefur sögulega vísan. Þeg- ar Þjóðverjar hernámu Holland í síð- ari heimsstyrjöld er sagt að þýskir hermenn hafi stolið fjölda reiðhjóla. Á HM í fótbolta, rúmum 60 árum síð- ar, voru fjöldaframleiddir bolir fyrir leik Hollands móti Þýskalandi sem á stóð „Skiliði reiðhjólunum okkar!“ víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 mjög gáfaður maður, 8 skinn í skó, 9 auð- an, 10 verkfæri, 11 ernina, 13 peningar, 15 skart, 18 prýðilega, 21 guð, 22 bik, 23 gælunafn, 24 hávaða. Lóðrétt | 2 þora, 3 synja, 4 smáa, 5 stór, 6 fjall, 7 vendir, 12 tangi, 14 ótta, 15 veiki, 16 hagnað, 17 stólpi, 18 á hverju ári, 19 áform, 20 sið- ar til. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hníga, 4 hélan, 7 lauga, 8 rykug, 9 lið, 11 afla, 13 hrós, 14 gedda, 15 botn, 17 gull, 20 ull, 22 geðug, 23 jagar, 24 rammi, 25 forni. Lóðrétt: 1 helja, 2 ígull, 3 aðal, 4 hörð, 5 lýkur, 6 naggs, 10 in- dæl, 12 agn, 13 hag, 15 bógur, 16 tíðum, 18 urgur, 19 lerki, 20 uggi, 21 ljúf. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Alvöruþrungin sögn. S-Enginn. Norður ♠D74 ♥K4 ♦ÁKD54 ♣1085 Vestur Austur ♠96 ♠G103 ♥ÁG72 ♥9865 ♦1098 ♦G763 ♣KG72 ♣64 Suður ♠ÁK852 ♥D103 ♦2 ♣ÁD93 Suður spilar 6♠. Magnús Magnússon og Sigurbjörn Haraldsson spiluðu para best í nýliðnu Íslandsmóti. Slemmurnar voru þeim handgengnar, ekki síst á lokadeginum þegar mest á reið. Hér renndu þeir sér í netta spaðaslemmu: Sigurbjörn vakti í suður á 1♠, Magnús krafði í geim með 2♦, Bessi sagði 2G og Maggi setti spaðann sem tromplit með 3♠. Við því sagði Bessi svokölluð „alvöruþrungin þrjú grönd“ til að sýna almennan slemmuvilja. Maggi gaf þá upp tíg- ulfyrirstöðu með 4♦ og Bessi sagðist sjá um laufið með 4♥. Vel gert. Nú var auðvelt að spyrja um lykilspil og segja slemmuna. Út kom ♥Á og hjarta. Bessi tók ♠Á-K, svo ♦Á og stakk tígul. Hann tók síðasta trompið með ♠D og henti þremur laufum í frítígul. Tólf slagir. 7. maí 1197 Lönguhlíðarbrenna (Önund- arbrenna), bæjarbruni að Lönguhlíð (nú Skriðu) í Hörg- árdal. Þar létust sex menn. 7. maí 1940 Ríkisráð Íslands hélt fyrsta fund sinn. Þar voru lagasetn- ingar Alþingis staðfestar af innlendum valdhöfum í fyrsta sinn um aldir. Í upphafi var staðfestur úrskurður um með- ferð konungsvalds. 7. maí 1951 Bandaríska varnarliðið kom til landsins, en varnarsamn- ingur hafði verið gerður tveimur dögum áður. „Algjör eining lýðræðisflokkanna,“ sagði Morgunblaðið. „Land- ráðin framin,“ sagði á forsíðu Þjóðviljans. 7. maí 1957 Helen Keller kom til landsins í nokkurra daga heimsókn til að „hvetja blinda og mállausa og styðja og örva þá,“ eins og sagði í Morgunblaðinu. Sjálf var hún blind og heyrnarlaus frá barnæsku og hlaut heims- frægð fyrir dugnað sinn og baráttu fyrir rétti blindra. 7. maí 1978 Jarðgöngin á Oddsskarði voru vígð. Þau eru 630 metra löng og í 630 metra hæð á veginum milli Eskifjarðar og Neskaup- staðar. 7. maí 1995 Heimsmeistarakeppnin í handknattleik hófst í Laug- ardalshöll. Frakkar urðu heimsmeistarar en Íslend- ingar lentu í 13.-16. sæti. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist… „Mér finnst ég ekkert hafa breyst, en auðvitað hlýtur maður að hafa gert það,“ segir Jóhanna Freyja Björnsdóttir, kirkjuvörður og meðhjálpari, sem fagnar sextugsafmæli sínu í dag. Jóhanna segist ekki gera mikið úr þessum tímamótum og kippir sér lítið upp við það þótt tíminn líði. „Það var mjög alvarlegt þegar ég varð tvítug. Ég hafði áhyggjur af þeim degi, því þá fannst mér að ég yrði að fara að verða mjög virðuleg, yrði að hætta að þvælast og leika mér.“ Annað kom svo auðvitað í ljós og Jóhanna er talsverð flökkukind og hlakk- ar mikið til sumarsins, þegar hún dregur fram tjaldvagnin og leggur land undir fót. „Ég verð alltaf að fara austur á Hérað, það er ekki hægt að halda árið út öðru vísi, en svo er ég bara hér í næsta nágrenni, það er ekkert ákveðið,“ segir Jóhanna sem nýt- ur frelsisins sem tjaldvagninn býður til að elta sólina hverju sinni. Hún segir gott að eiga maíafmæli og njóta vorsins, en það hafi þó ekki alltaf verið svo. „Mér skilst að allt hafi verið á kafi í snjó þegar ég fæddist, það var víst mikill snjóavetur 1951. Mér finnst líka í minning- unni að það hafi oft verið snjór á afmælinu mínu.“ Í tilefni afmælisins býður Jóhanna í opið hús í Fella- og Hólakirkju í dag frá 10.30-13.30. Jóhanna Freyja Björnsdóttir 60 ára Vinir boðnir í opið hús Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 7. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.40 0,7 8.42 3,3 14.47 0,7 21.02 3,6 4.40 22.10 Ísafjörður 4.52 0,3 10.42 1,6 16.56 0,3 23.01 1,9 4.26 22.34 Siglufjörður 0.40 1,2 7.01 0,1 13.29 1,1 19.11 0,4 4.08 22.17 Djúpivogur 5.45 1,8 11.58 0,5 18.16 2,0 4.05 21.44 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það lífgar óneitanlega upp á tilveruna að hafa vini og vandamenn að leita til. Skerðu niður öll óþarfa útgjöld og semdu svo fjár- hagsáætlun. (20. apríl - 20. maí)  Naut Fólk lítur þig jákvæðum augum í dag því það sér góðlegar og umhyggjusamar hlið- ar þínar. Góðir vinir og samstarfsmenn meta umhyggju þína. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ef ástvinir bregðast ekki við þér af nægum áhuga, skaltu vera minna innan handar. Rómantíkin er til staðar. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Krabbanum gæti brugðið í brún ef geðríkið lætur á sér kræla í dag eftir rólyndi síðustu daga. Ekki taka neitt sem sagt er per- sónulega og hugsaðu áður en þú talar. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Einbeittu þér að verkefnum sem krefjast nákvæmni og athygli um þessar mundir. Finndu þér traustar heimildir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Sumir eru ánægðir með hlutina eins og þeir hafa alltaf verið. Veltu hlutunum fyrir þér í einhvern tíma. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Veltu vandlega fyrir þér tilboði, sem þú færð. Léttu vini þínum byrðina og bjóddu fram aðstoð þína. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú átt enn erfitt með að gera þig skiljanlega/n. Mundu hversu fallvölt lukkan er í raun. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Ný tækifæri standa þér opin og það ríður á að þú flýtir þér hægt og kannir alla málavexti til fulls. Gerðu áætlun. Ef þig langar að verða hamingjusamri þá skaltu bara líta upp. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Villtustu draumar þínir geta ræst. Vertu vakandi fyrir því sem gerist í kringum þig. En nú hefur þú breyst, og þú þarft að breyta „sögunni“ líka. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú veist alltaf strax hvernig leysa skal vandamál annarra. Vertu þolinmóð/ur og gefðu af tíma þínum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hefur báða fæturna á jörðinni og vilt framkvæma hlutina að vel hugsuðu máli. Dagurinn í dag er tilvalinn til að biðja um hluti eins og lán, leyfi, eða hvaðeina annað. Stjörnuspá 1. d4 Rf6 2. Rc3 d5 3. g3 Bf5 4. Bg2 e6 5. a3 c5 6. Rf3 Rc6 7. Bg5 h6 8. Bf4 Hc8 9. O-O Be7 10. dxc5 Bxc5 11. b4 Be7 12. Rb5 O-O 13. Hc1 a6 14. Rbd4 Rxd4 15. Rxd4 Hc3 16. Rxf5 exf5 17. Be5 Hxa3 18. c3 Re4 19. Dc2 Dd7 20. f3 Rd6 21. f4 Re4 22. Hfd1 f6 23. Bd4 Hc8 24. Db2 Da4 25. Ha1 Hxa1 26. Hxa1 Db5 27. Ha5 Dc4 28. Bxe4 fxe4 29. b5 Bc5 30. bxa6 Bxd4+ 31. cxd4 bxa6 32. Kf2 Kh7 33. h4 Hc6 34. f5 Hc8 35. Db6 Staðan kom upp á skákmóti öðlinga sem fer senn að ljúka í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Ólafur Gísli Jónsson (1842) hafði svart gegn Jóni Steini Elíassyni (1465). 35… e3+! 36. Kf3 hvítur hefði einnig tapað eftir 36. Kxe3 He8+. 36… Dc1 37. De6 Df1+ 38. Kg4 hvítur hefði orðið mát eftir 38. Kxe3 Hc3+ 39. Kd2 Dc1#. 38… Dxe2+ 39. Kh3 Hc2 40. Dxd5 h5 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.