Morgunblaðið - 07.05.2011, Side 40
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Íslenski hesturinn er viðfangsefni
myndlistarsýningarinnar Jór! sem
opnuð verður í dag í Listasafni
Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum, kl. 16.
Við opnunina mun úrvalshópur ung-
menna í hestamennsku koma ríðandi
í hlað Kjarvalsstaða og standa heið-
ursvörð þegar gesti ber að garði.
Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ing-
ólfsson og valdi hann á sýninguna
verk frá ólíkum tímabilum íslenskr-
ar myndlistarsögu, yfir 60 talsins.
Sýningunni er skipt í þrjú þemu:
„Þarfasta þjóninn“ sem snýr að
hversdagslegum samskiptum manns
og hests; „Holdgaðan storm“ þar
sem hesturinn og náttúran er við-
fangsefni og „Hesta með vængi“
sem snýr að hinum goðsagnalega
hesti. Verkin spanna rúma öld, það
elsta er frá árinu 1900 og það yngsta
frá því í fyrra.
Blaðamaður ræddi við Aðalstein í
gær og spurði hann fyrst af hverju
upphrópunarmerki væri í sýning-
artitlinum. „Þetta er nú eiginlega
svolítill brandari,
það er verið að
leika sér með
þetta gamla orð,
„jór“, og svo
þessa upphrópun
krakkanna,
„jó!“,“ segir Að-
alsteinn og hlær.
– Aðeins verið
að poppa þetta
upp?
„Já, og gera þetta sýnilegt þannig
að fólk muni eftir þessu.“
Frjálsar hendur
Aðalsteinn segir Hafþór Yngva-
son, safnstjóra Listasafns Reykja-
víkur, hafa átt hugmyndina að sýn-
ingunni og hluti af henni hafi verið
að víkka aðdráttarafl sýninga, opna
þær fyrir nýjum hópum. „Ég fékk
alveg frjálsar hendur með það
hvernig ég myndi velja þetta og ég
ákvað að finna verk alveg frá byrjun
íslenskrar málaralistar, Þórarin B.
Þorláksson. Að vísu gefum við út
vandaða bók þar sem ég rek forsög-
una líka og þar er myndefni úr hand-
ritum og gömlum tréskurði o.s.frv.
og kveðskapur sem tengist hest-
inum. En sýningin sjálf er málverk,
höggmyndir og verk unnin með
blandaðri tækni, að mestu leyti frá
20. öld,“ segir Aðalsteinn. Yngsta
verkið sé aðeins nokkurra mánaða
gamalt en það elsta frá árinu 1900,
málverk af manni á hesti eftir Þór-
arin B. Þorláksson.
Aðalsteinn segir að hluti íslenskr-
ar myndlistarsögu endurspeglist
óhjákvæmilega í sýningunni, þar
sem verkin spanni rúma öld. Meðal
verka á sýningunni er málverk eftir
Hallgrím Helgason sem ekki hefur
sést opinberlega áður, „Guð á Sæ-
brautinni“, frá árinu 2006. Á því sést
maður í hestakerru bíða á umferð-
arljósum á Sæbrautinni. Fleiri verk
á sýningunni hafa ekki sést áður op-
inberlega, m.a. verk eftir Gunlaug
Scheving og Jóhannes Kjarval.
– Þetta hlýtur að hafa verið mikið
verk fyrir þig, af nógu að taka?
„Hesturinn er sínálægur í mynd-
listinni framan af en maður veit
nokk hverjir eru aðalmálararnir,
leitar fanga hjá þeim og síðan fækk-
ar þessum myndum þegar nær dreg-
ur, hesturinn er einfaldlega ekki
eins miðlægur í nýrri myndlist eins
og hann var. Ef þú ert vel skipulagð-
ur og hefur aðgang að góðum heim-
ildum þá er þetta kannski ekki svo
ofboðslega mikil vinna.“
Á morgun kl. 15 mun Aðalsteinn
ásamt Gísla B. Björnssyni, hönnuði
og höfundi bókarinnar Íslenski hest-
urinn, veita leiðsögn um sýninguna.
Sýningin stendur til 21. ágúst
Birt með leyfi Listasafns Reykjavíkur
Rauður Málverk eftir Stefán frá Möðrudal, Rauður hestur, f́rá árinu 1977.
Hestar á Kjarvalsstöðum
Túlkun íslenskra listamanna á
tengslum manns og hests í rúma öld
Aðalsteinn
Ingólfsson
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2011
Kór Langholtskirkju frum-
flytur nýtt verk eftir Mist Þor-
kelsdóttur á tónleikum í Lang-
holtskirkju sunnudaginn 8. maí
kl. 20. Verkið er um fimmtán
mínútur í flutningi og samið
með styrk frá Musica Nova.
Ásamt Kór Langholtskirkju
syngur Gradualekór Lang-
holtskirkju í verkinu og tveir
einsöngvarar. Einnig flytur
kórinn Te Deum fyrir kór, ein-
söngvara og kammersveit eftir Marc-Antonie
Charpentier. Einsöngvarar koma úr röðum kór-
félaga. Kammersveit leikur með og konsertmeist-
ari er Júlíana Elín Kjartansdóttir. Stjórnandi er
Jón Stefánsson.
Tónlist
Tónleikar Kórs
Langholtskirkju
Mist
Þorkelsdóttir
Á sunnudag flytja Kristján
„KK“ Kristjánsson, Kór Nes-
kirkju og Stúlknakór Nes-
kirkju nokkur þekkt lög Krist-
jáns á tónleikum í Neskirkju.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00
og miðar verða seldir við inn-
gang.
Steingrímur Þórhallsson,
organisti Neskirkju, stýrir tón-
leikunum, en hann útsetti jafn-
framt um helming laganna.
Á efnisskránni verða m.a. lögin Á æðruleysinu,
Ég fann ást, Álfablokkin, Englar himins og When
I Think of Angels.
Auk KK leika Þorsteinn Einarsson á gítar og
Sölvi Kristjánsson á bassa.
Tónlist
KK og Kórar Nes-
kirkju á tónleikum
Kristján
Kristjánsson
Efnt verður til tónleika í Saln-
um á sunnudag þar sem ýmsir
listamenn flytja lög Jóns Múla
og Jónasar Árnasona. Þetta
eru endurteknir tónleikar sem
haldnir voru í Salnum 31. mars
síðastliðinn, á níræðisafmæl-
isdegi Jóns Múla, en þá komust
mun færri að en vildu.
Söngvararnir eru Ragnar
Bjarnason, Ellen Kristjáns-
dóttir, Sigurður Guðmundsson,
Magga Stína, Ómar Ragnarsson og systurnar Sig-
ríður, Elísabet og Elín Eyþórsdætur ásamt föður
sínum, Eyþóri Gunnarssyni. Hljómsveitina skipa
Eyþór, Óskar Guðjónsson, Scott MacLemore og
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson.
Tónlist
Lög Jóns Múla og
Jónasar í Salnum
Jón Múli
Árnason
Á sunnudag kl. 16:00 heldur Þór-
unn Elfa Stefánsdóttir söngkona
tónleika í Selinu á Stokkalæk.
Guðjón Halldór Óskarsson leikur
undir á píanó.
Á efnisskránni eru bandarísk
sönglög, sum vel þekkt en önnur
tiltölulega ný. Um er að ræða
þjóðlög, djassballöður og swing
ásamt fjölda söngleikjalaga sem
sum hver eru úr nýlegum Broad-
way-söngleikjum.
Þórunn Elfa lauk burtfar-
arprófi frá Söngskólanum í
Reykjavík 2001 og söngkenn-
ararprófi 2005 undir handleiðslu
Dóru Reyndal og Signýjar Sæ-
mundsdóttur. Hún hefur stundað
framhaldsnám í Þýskalandi, Aust-
urríki og Bandaríkjunum og lauk
mastersprófi frá Westminster
Choir College í New Jersey fylki
2008.
Þau Þórunn Elfa og Guðjón
Halldór kenna bæði við Tónlistar-
skóla Rangæinga en hann er að
auki organisti og kórstjóri.
Sönglög Þórunn Elfa Stefánsdóttir
og Guðjón Halldór Óskarsson.
Bandarísk
sönglög á
Stokkalæk
Þórunn Elfa
Stefánsdóttir í Selinu
Og hann þarf ekki að
fara úr að ofan til að
ná athygli áhorfandans 44
»
Ópera Skaga-
fjarðar og
Draumaraddir
norðursins sýna
Óperudrauginn í
Tjarnarbíói í
kvöld kl. 20:00.
Verkið er í nýrri
leikgerð Guð-
rúnar Ásmunds-
dóttur. Margrét
Ákadóttir leikur
konu sem rótar í leikmunum á háa-
lofti í Convent Garden í Lundúnum
þegar henni birtist óperudraugur,
sem Michael Jón Clarke syngur, en
ástkonu hans leikur Alexandra
Chernyshova. Í öðrum hlutverkum
eru Ívar Helgason, Dagrún Ísabella
Leifsdóttir, Snorri Snorrason,
Gunnar Björn Jónsson, Sonja Haf-
steinsdóttir, Inga Margrét Jóns-
dóttir, Helgi Thorarensen og Krist-
ín Lundberg. Einnig syngja
Draumaraddir norðursins og kór
Óperu Skagafjarðar. Hljóðfæraleik
annast Risto Laur, Kaldo Kiis, Ro-
drigo Lopez og Matti Saarinen.
Óperu-
draugur
Alexandra
Chernyshova
ÍSLENSKA ÓPERAN KVEÐUR
GAMLA BÍÓ
OPIÐ HÚS
Í GAMLA BÍÓI
Í DAG KL. 1315
í tilefni flutninga
Íslensku óperunnar í tónlistarhúsið Hörpu
Gestum velkomið að skoða húsið
Kaffi á boðstólum í græna herberginu
Búningamátun
Leikskrár, plaköt og myndbönd úr
sýningum Íslensku óperunnar til sölu á vægu verði
Allir velunnarar óperunnar og aðrir áhugasamir
hjartanlega velkomnir!
STYRKUR TIL
TÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu
ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis
á næsta skólaári 2011-2012.
Veittur er styrkur að upphæð kr. 600.000.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform, sendist fyrir 31. maí nk.
til formanns sjóðsins:
Arnar Jóhannssonar,
pósthólf 8620,
128 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna
verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda.