Siglfirðingur - 20.09.1958, Síða 1
1G. tölublað. (fLy Laugardagurinn 20. sept. 1958. 31. árg.
Bœjarmálafrettir
— I STUTTU M Á LI —
Blaðið getur hér á eftir — í
stuttu máli — nokkurra mála, er
legið hafa fyrir bæjarstjórn og
Theódóra Pálsdóttir Ardaí
Minningarorð
undirnefndum hennar nú undan-
farið.
Sjúkrahúsið.
22. ágúst s.l. hélt byggingar-
nefnd Sjúkrahússins fund um
tillöguuppdrátt eftir Sigurjón
Sveinsson, arkitekt, af fyrirhug-
aðri sjúkrahússbyggingu í Siglu-
firði. Bæjarstjórn ræddi málið á
fundi 5. september. Voru þessir
tillöguuppdrættir samb. og var
bæjarstjóra falið að sækja um
fjárfestingarheimild til byrjunar-
framkvæmda.
Hún lézt á Ldansspítalanum í
Reylcjavík 9. sept. s.l. Hafði hún
kennt nokkurrar vanheilsu hin
síðari ár, en hafði þó fótavist þar
til siðastl. vetur, að hún dvaldi um
tíma í Sjúkrahúsinu hér í bæ. —
Létti þá vanheilsu hennar í bili og
hvarf hún þá af sjúkrahúsinu. En
bráðlega vildi sækja að því sama.
Fór hún þá til Rvíkur og lagðist
inn á Landsspítalann í þeirri von,
að hún fengi bót á vanheilsu sinni.
En sú von brást, og smátt og
smátt jukust þrautir og þungi
sjúkdómsins, þar til 9. sept., að
liún var kvödd héðan yfir á land
lifenda. Þar hvarf af sjónarsviö-
inu merk kona og mætur borgari
Siglufjarðarbæjar um langt skeið.
Frú Theódóra var dóttir hins
þjóðkunna ljóðskálds og söngva-
svans okkar Norðlendinga Páls J.
Árdal og konu hans, Álfheiðar
Eyjólfsdóttur. Var Páll, svo sem
kunnugt er, af ágætum eyfirzkum
ættum. Páll, afi Páls Árdal, var
giftur Rannveigu Davíðsdóttur,
systur Sigríðar ömmu Jóns Magn-
ússonar fyrrv. forsætisráðherra,
en Davíð faðir þeirra systra var
móðurbróðir Jónasar Hallgríms-
sonar. Álfheiður kona Árdals var
ættuð af Fljótsdalsheiði. Bjuggu
foreldrar hennar Þorgerður Jóns-
dóttir og Eyjólfur Magnússon á
Hamborg í Fljótsdal. Voru það
merkishjón af góðum og greind-
um bændaættum þar eystra.
Þó fljótt sé hér yfir sögu farið,
má þó merkja, að frú Theódóra
var af stórmerkum ættum komin,
sem settu sinn svip á íslenzkt
sveitalíf og tóku merkan og
ógleymanlegan þátt í íslenzku
þjóðlífi í sinni tíð.
Frú Theódóra var fædd á Akur-
eyri 15. okt. 1885. Ólst hún upp
hjá foreldrum sínum þar, og naut
ágætrar kennslu föður síns, og
var sú leiðsögn henni gott vega-
nesti út i lífið.
Ung að árum giftist frú Theó-
dóra Magnúsi Franklín verzlunar-
manni og eignuðust þau einn son,
Karl að nafni, er dó í æsku. Eftir
fárra ára sambúð, slitu þau sam-
ivistum.
Árið 1913 fluttist frú Theódóra
til jgigluf jarðar. Hér kynntist hún
ungum og glæsilegum manni,
Guðmundi Hafliðasyni kaupmanni
og síðar hafnarstjóra. Sama ár
gengu þau í hjónaband og stofn-
uðu hér heimili. Heimili ungu
hjónanna varð brátt mjög snot-
urt og híbýlaprýði þar mikil. Bæði
voru þau hjón með afbr. vinsæl
Sótti fjölda gesta þangað, enda
bæði hjónin aðlaðandi, greind og
menntuð og fylgdust vel með á
sviði mennta og menningar. Þá
voru þau og bæði listhneigð, voru
söngvin, o g þegar húsbóndinn
greip í hljóðfærið voru gestirnir
leiddir inn í unaðsheima sönglist-
arinnar. — Höfðingsbragur var
þar á öllu, og veitt af mikilli
rausn.
Munu bæði innlendir og erlendir
menn, sem nutu góðs af gestrisni
þeirra, minnast þeirra ávallt með
hlýjum huga.
Sérstætt fyrir þetta heimili var
það, að jafnhliða því, sem tekið
var á móti virðulegu og hámennt-
uðu fólki, gleymdust ekki þeir,
sem lægra voru settir 1 mannfé-
laginu. Til þeirra, sem í skugga
bjuggu, var fært ljós, olnboga-
barna jarðlífsins var gætt, og
mörg voru þau þannig fósturbörn-
in, sem heimilið rétti hjálparhönd.
Er það enn í fersku minni margra.
Þessi ágætu hjón eignuðust sér-
lega mannvænlegan barnahóp, en
þau eru:
Sigríður, gift Hirti Ármanns-
syni lögregluþjóni, Hafliði, kenn-
ari við gagnfræðaskólann hér,
kvæntur Þuríði Helgadóttur, Álf-
heiður, gift Emil BjÖrnssyni,
presti óháða fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík, Páll Árdal, giftur
Æsu Karlsdóttur sálfræðingi og
Jóhannes, tónlistarmaður, dó ung-
ur í Kaupmannahöfn.
Öll eru þessir niðjar gott fólk,
vel gefið og mjög listhneigð, eins
og þau eiga kyn til í báðar ættir.
Auk þess átti frú Theódóra
einn son, Inga Árdal, heildsala í
Reykjavík.
Frú Theódóra var mjög glæsi-
leg ung stúlka, tæplega meðalhá,
snotur í vexti og bauð af sér
kvenlegan yndisþokka. Hún var
fríð sýnum, augun dökk, stundum
dáJítið hvöss, gáfuleg og að jafn-
aði hýr og góðleg. Skapgerðin var
dálátið ör en hrein. Hún vildi öll-
um til góðs vera og lifa í sátt og
samlyndi við allt og alla. Enda
átti hún fjölda vina.
Þó frú Theódóra væri viðkvæm
og tæki mjög sárt mótlæti sam-
ferðamannanna, var hún, þegar
hún sjálf átti í hlut, andlega
sterk. Hún var gáfuð kona og
glögg í mótstreými x mannlegu
Hafnarbryggjan.
Hafnarnefnd ræddi á fundi sín-
um 20. ágúst sl. framkvæmdir
við stækkun og endurbyggingu
Þorlákur Helgason, verkfræðingur
á fundinum. Nú í sumar hefur
verið unnið að því að keyra fyll-
ingu í bryggjuna, ásamt upp-
mokstri ,,Bjarnarins“. Þá hefur
verið unnið að niðursetningu á
,,festingum“. Hefur verk þetta
eftir atvikum gengið sæmilega.
Byggðasafxiið.
Lokið er nú við að steypa upp
þriðju hæðina á lögreglustöðinni,
Gránugötu 18, en þar er í ráði að
staðsett verði byggðasafn Siglu-
fjarðar, sem bæjarstjórnin sam-
þykkti á 1000. fundi sinum,að hér
skyldi komið upp.
Sundlaugin.
Þegar þessar línur eru ritaðar,
er hafin og miðar vel áfram
vinnu við yfirbyggingu sundlaugar
innar og annast Bjarki Árnason,
byggingameistari, það verk í
ákvæðisvinnu, og samkvæmt
samningi á hann að skila sund-
laugarbyggingunni fokheldri fyrir
októberlok.
Sjííkraílugvöllur.
Bæjarstjórn skoraði á fundi
sínum, 5. september sl. á fjármála
ráðherra, að kr. 100.000,oo yrðu
teknar inn á fjárlög 1959 til
framhaldsbyggingar sjúkraflug-
vallar í Siglufirði, en það verk er
nú komið nokkuð áleiðis
Brunavarnareftirlit.
Á fundi bæjarráðs 3. sept. sl.
mættu fulltrúar frá brunavarnar-
eftirliti ríkisins, þeir Erlendur
Halldórsson og Brynjólfur Brynj-
ólfsson ásamt Agli Stefánssyni
slokkviliðsstjóra, og var þar rætt
um öryggisráðstafanir í bruna-
varnamálum hér.
Reglugerð um barnavernd.
Barnaverndarnefnd, sem sýnt
hefur góðan áhugaí starfi, hefur
samið reglugerð um barnavernd
í Siglufirði, sem lögð var fyrir
bæjarstjórnarfund, 5. september
sl. Er reglugerðin hin gagnlegasta
fyrir margra hluta sakir. Bæjar-
(FramhaW á 3. síðu). ,