Morgunblaðið - 23.05.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2011
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
Jón Hjalti Eiríksson útskrifaðist frá
Menntaskólanum á Laugarvatni
síðastliðinn laugardag með meðal-
einkunnina 9,78 en það er hæsta
meðaleinkunn í 58 ára sögu skól-
ans. Jón Hjalti bætti þar með met
bróður síns, Ögmundar, sem út-
skrifaðist frá skólanum fyrir tveim-
ur árum með meðaleinkunnina
9,75.
„Þetta breytir nú litlu,“ segir Jón
og vill ekki gera mikið úr því að
hafa skákað bróður sínum, „en
þetta er ekkert verra,“ bætir hann
svo við.
Það borgar sig víst að hafa ekki
of hátt um afrekið því hætta er á að
systir þeirra bræðra muni enn bæta
um betur þegar hún útskrifast en
hún var að ljúka fyrsta ári við skól-
ann með meðaleinkunnina 9,9.
En hverju sætir þessi einstaklega
góði námsárangur þeirra systkina?
„Ja, við erum ekki í neinum her-
búðum,“ svarar Jón, „ætli þetta sé
ekki eitthvert samspil erfða og um-
hverfis, eins og allt sem mótar okk-
ur.“
Hann segir bóknámið hafa reynst
þeim systkinunum auðvelt, sér-
staklega raungreinarnar en Ög-
mundur tók m.a. þátt í Ólympíu-
leikunum í stærðfræði og nemur nú
greinina við Háskóla Íslands.
Sjálfur stefnir Jón á nám í búvís-
indum við Landbúnaðarháskóla Ís-
lands, enda orðinn reyndur í að láta
bústörfin og lærdóminn fara sam-
an.
„Á prófatímum er ég ekkert allan
daginn í bókum, alla vegna ekki í
vorprófum. Seinni hluta vorprófa
er sauðburður heima og þá fer ég
milli prófa út í fjárhús og kíki svo
aðeins í bókina fyrir próf,“ segir
dúxinn. holmfridur@mbl.is
„Samspil erfða
og umhverfis“
Dúxaði og bætti met bróður síns
Litla systir með 9,9 í meðaleinkunn
Dúx Jón Hjalti Eiríksson bætti
tveggja ára met bróður síns.
Andri Karl
andri@mbl.is
Íbúar við Háaleitisbraut í Reykjavík
eru undrandi á vinnubrögðum lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins en lög-
reglan samþykkti ekki tillögu borg-
aryfirvalda um að lækka hámarks-
hraða niður í 30 km á klukkustund.
Forsvarsmaður íbúasamtaka Háa-
leitis segir borgina ætla að finna leið
til að mæta óskum íbúanna.
Líkt og fjallað hefur verið um hafa
umferðarskilti sem falin voru með
svörtum plastpokum nú verið tekin
niður. Reykjavíkurborg stóð að upp-
setningu þeirra en lögreglan sam-
þykkti ekki allar tillögur borgaryf-
irvalda um lækkaðan hraða. Til
stendur að setja þau upp aftur þegar
sátt næst við lögreglu.
Ein þeirra gatna þar sem lækk-
aður hraði var ekki samþykktur er
Háaleitisbraut, þ.e. frá húsum núm-
er 11-13 og til 141. Íbúar við götuna
hafa barist fyrir því í um fimm ár að
fá umferðarhraða lækkaðan enda
skólar beggja vegna götunnar auk
íþróttasvæðis Fram.
Meðal röksemda lögreglunnar var
að setja þyrfti upp þrengingar eða
hraðahindranir auk þess að setja
upp skilti. Birgir Björnsson hjá íbúa-
samtökum Háaleitis segir að þegar
hafi verið settar upp hraðahindranir
og því komi ákvörðun lögreglunnar
mjög á óvart. „Þetta er algjörlega
gegn óskum íbúasamtakanna og
þessi málatilbúnaður stenst ekki.“
Birgir bendir á að Háaleitsbraut
frá Miklubraut og niður að Ármúla
sé skilgreind sem íbúagata í skipu-
lagi „og það hefur gengið mjög erf-
iðlega að fá yfirvöld til að viðurkenna
rétt íbúanna og lækka umferðar-
hraðann“.
Lækkun umferðarhraða er krafa
íbúasamtakanna en þau hafa hins
vegar einnig borið upp aðra ósk við
borgaryfirvöld. Þau vilja að gegnum-
streymisumferð hætti á umræddum
kafla. Birgir bendir á að slys hafi
orðið á ýmsum stöðum við Háaleit-
isbrautina í gegnum tíðina, sum al-
varleg.„Hverfi sem þetta yrði aldrei
skipulagt svona í dag. Við áttum
fund með borgaryfirvöldum fyrir um
tveimur mánuðum þar sem fallist
var á að borgin myndi finna leið til að
nálgast óskir okkar,“ segir Birgir.
Hann segir að til standi að sú leið
verði til reynslu í ár og svo yrði kosið
um breytinguna í íbúakosningu.
Hindranir í vegi fyrir minni hraða
Íbúar undrandi á vinnubrögðum lögreglu sem ekki vill lækka umferðarhraða við Háaleitisbraut
Funduðu með borgaryfirvöldum sem hyggjast finna leið og koma til móts við óskir íbúa við götuna
Sk
ip
ho
lt
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
ay
t
Suðurlandsbraut
Miklabraut
Háaleitisbraut
Síðum
úli
Árm
úli
Álfaborg
Álftamýrarskóli
Múlaborg
Gítarskóli
Ólafs Gauks
Árm
úli
Ál
ft
am
ýr
i
Safamýrarskóli
Veg
mú
li
Fjölbrauta-
skólinn
við Ármúla
Gítarskóli
Íslands
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Það má með sanni segja að Sig-
urlaug Linnet, 17 ára framhalds-
skólanemi, hafi komist í heimsfrétt-
irnar í gær, þótt ekki hafi hún sjálf
verið fréttaefnið. Það var hins vegar
mynd sem Sigurlaug tók á hlaðinu
heima hjá sér af gosinu í Gríms-
vötnum og birtist á vef mbl.is um
kvöldmatarleytið á laugardags-
kvöldið, sem fór eins og eldur í sinu
um netheima í gær og var sú mynd
sem margir af stærstu fjölmiðlum
erlendis birtu með fréttum af gosinu.
Sigurlaug býr á bænum Maríu-
bakka skammt frá Kirkjubæjar-
klaustri en hún hefur lengi haft
áhuga á ljósmyndun og smellti af
mynd af gosinu þegar það var að
hefjast. Myndina tók hún á Canon
450D-vél og sendi hana til bróður
síns sem sendi hana áfram til Morg-
unblaðsins. Svo fóru símtölin að ber-
ast.
Sumarfríið byrjar með látum
„Ég fékk fyrst símtal frá Noregi,
þá höfðu þeir séð myndina á mbl.is
og vildu fá að nota hana. Síðan fékk
ég símtal frá strák sem spurði hvort
Sky News mætti nota hana og svo
fylgdu fleiri símtöl í kjölfarið,“ segir
Sigurlaug sem gaf miðlunum fúslega
leyfi til að birta myndina.
„Mér fannst þetta mjög skrýtið,“
segir Sigurlaug um það hvernig var
að sjá myndina í þessum stóru
fjölmiðlum. „En þetta var líka mjög
skemmtilegt, þegar allir voru að
hringja í mig,“ bætir hún við.
Sigurlaug stundar nám við Fjöl-
brautaskólann í Ármúla og segist vel
geta hugsað sér að starfa við ljós-
myndun í framtíðinni. Nú er hún
hins vegar komin heim í sumarfrí,
sem hefur aldeilis farið af stað með
látum en í gærkvöldi hafði loks tek-
ist eftir langan dag að ná öllum
skepnum inn í hús á Maríubakka.
„Það er byrjað að rigna smá og það
er aðeins að létta til. Maður sér að-
eins lengra út á túnið en það er mikil
aska úti um allt,“ sagði Sigurlaug.
Smellti af mynd
og milljónir sáu
17 ára framhaldsskólanemi tók heimsfræga gosmynd
Ljósmynd/Sigurlaug Linnet
Heimsfræg Myndin sem Sigurlaug tók á hlaðinu heima hefur birst í mörgum helstu fjölmiðlum heims.
Mynd Sigurlaugar birtist fyrst á mbl.is rétt fyrir
klukkan hálfátta að kvöldi laugardags. Fréttin sem
myndin fylgdi hefur síðan þá fengið meira en 240
þúsund flettingar enda fór fréttin víða og var með-
al annars dreift manna á milli á samskiptasíðunni
Twitter. Var fréttin enn meðal þeirra mest lesnu á
mbl.is í gærkvöldi.
Myndin hefur síðan birst í mörgum af helstu
fjölmiðlum í heiminum, bæði á vefsíðum, í dag-
blöðum og í sjónvarpi. Birtist hún m.a. í The New
York Times og á Huffington Post í Bandaríkjunum,
Le Monde í Frakklandi, El Pais á Spáni, BBC á Bret-
landi, Die Zeit í Þýskalandi og Aftenposten í Noregi.
Það er því óhætt að segja að mynd Sigurlaugar verði ein þeirra sem
fyrst muni koma upp í hugann þegar gosið í Grímsvötnum árið 2011 verð-
ur rifjað upp í framtíðinni.
Mynd Grímsvatnagossins 2011
UM VÍÐA VERÖLD
Sigurlaug Linnet