Morgunblaðið - 23.05.2011, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2011
Kynning og ráðgjöf
í verslun okkar í Smáralind
dagana 23. til 26. maí
Oakley sérfræðingur/sjónfræðingur
veitir ráðgjöf
20% kynningarafsláttur
Komdu og kynntu þér þessi sérstæðu sjóntæki frá Oakley
Veiðimenn – Skokkarar – Hjólarar – Golfarar – Göngugarpar!
Nú er tíminn til að panta sér Oakley með eða án styrkleika
Fríar sjónmælingar!
Skoðaðu úrvalið á
www.opticalstudio.is
Tækniundur frá Oakley
– Sportgleraugu með styrkleika –
Radar XL Straight Blade
Polished Black
Lens: Light + Red Iridium
Gunnlaugur Árnason
Í kvöld verður efnt til tónleika í
Guðríðarkirkju í Grafarholtinu kl.
20. Tónleikarnir eru haldnir til
styrktar orgelsjóði Stykkis-
hólmskirkju en hafa ekki síður
þann tilgang að vera vettvangur
fyrir Hólmara á höfuðborg-
arsvæðinu til að hittast og rifja
upp gömul kynni. Síðast en ekki
síst er vonast til að tónlistarfólkið
njóti þess líka að fá tækifæri til að
koma
list sinni á framfæri. Allir sem
fram koma á tónleikunum eiga
einhver tengsl eða rætur í
Hólminum. Það er ótrúlegt
hversu margir frá ekki stærri
stað eru að gera góða hluti á tón-
listarsviðinu.
Það er annars að frétta af org-
elmálum að kaupsamningur var
undirritaður við Klais, orgelfram-
leiðanda í Þýskalandi, að smíða
21 raddar sérhannað pípuorgel í
Stykkishólmskirkju. Það er nú
allt komið á fullt hjá orgelsmið-
unum og ekkert bendir til annars
en að áætlanir standist
og pípuorgelið verði komið í
kirkjuna fyrir næstu jól. Hönn-
uðirnir
hafa undanfarnar vikur átt í
samstarfi við orgelvalnefndina og
organistann um ýmis smáatriði
við loka-útlitshönnun hljóðfær-
isins.
Það er vaskur hópur Hólmara
sem á allan veg og vanda af und-
irbúningi tónleikanna og gefa allir
þeir sem þátt taka vinnu sína.
Nýjar orgelpípur þandar
Tónleikar til styrktar nýju orgeli Stykkishólmskirkju
Morgunblaðið/Gunnlaugur
Styrktartónleikar í Guðríðarkirkju Safnað fyrir pípuorgeli í Stykkishólmi.
Ljósið, endurhæfingar- og stuðn-
ingsmiðstöð fyrir krabbameins-
greinda, heldur málþing og hefur
opið hús. Málþingið verður haldið í
Nauthóli miðvikudaginn 25. maí kl.
17:30 og er tileinkað karlmönnum
sem hafa greinst með krabbamein,
aðstandendum og áhugasömum.
Karlmenn sækja ekki eins mikinn
stuðning og endurhæfingu og kon-
ur. Því vill Ljósið fá karlmennina í
lið með sér til að koma með hug-
myndir og leyfa röddum þeirra að
heyrast. Skráning er í síma
5613770 og er þátttakendum að
kostnaðarlausu.
Tveimur dögum síðar eða föstu-
daginn 27. maí gefst gestum og
gangandi kostur á að skoða húsa-
kynni Ljóssins á Langholtsvegi 43,
en þar verður opið hús milli kl.
11:00-20:00.
Morgunblaðið/Eggert
Ljósið Endurhæfing og stuðningur eru
lykilatriðin í starfsemi Ljóssins.
Ljósið vill heyra
raddir karla
Neyðarstjórn Mílu álítur að ljósleið-
arastrengir fyrirtækisins séu ekki í
hættu, þó svo að flóð verði á gos-
svæðunum undir Vatnajökli. Neyð-
arstjórnin hefur metið áhrif gossins
á fjarskiptakerfi Mílu og gripið til
nauðsynlegra aðgerða. Búið er að
tryggja varasambönd vegna örygg-
isfjarskipta og almennra fjar-
skiptakerfa. Verið er að þétta loft-
inntök og hurðaop í tækjahúsum á
svæðinu.
Engar truflanir hafa orðið á fjar-
skiptasamböndum hjá Mílu ennþá.
Fjarskipti í lagi
Heilbrigðis-
stofnun Suður-
lands (HSu) er í
viðbragðsstöðu
vegna eldgossins
í Vatnajökli og
mun fylgjast með
heilsufari íbúa á
svæðinu eins og
kostur er. Fleiri
heilbrigðsstarfsmenn verða fengnir
til starfa eftir því sem á þarf að
halda, segir í frétt frá stofnuninni.
Hægt verður að nálgast hlífðar-
gleraugu og andlitsgrímur á heilsu-
gæslustöðvum HSu og víðar á svæð-
inu. Á heilsugæslustöðvum á
Suðurlandi, s.s. í Vík, á Kirkjubæj-
arklaustri og í Rangárþingi munu
læknar og hjúkrunarfræðingar
sinna allri nauðsynlegri þjónustu í
samstarfi við Almannavarnir.
Heilbrigðisstarfs-
fólk reiðubúið
STUTT