Morgunblaðið - 23.05.2011, Side 14

Morgunblaðið - 23.05.2011, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2011 Sprengigos í Grímsvötnum Fyrstu mælingar á flúorinnihaldi gjósku frá Grímsvötnum benda til þess að það sé töluvert innan þeirra marka sem nautgripir og sauðfé þola og enn fjær eitrunarmörkum. Gunnar Þorkelsson, héraðs- dýralæknir á Kirkjubæjarklaustri, segir mælingar á sýni sem tekið var laust upp úr miðnætti aðfaranótt sunnudags hafa innihaldið á bilinu 5-10 milligrömm á kíló. Þolmörk sauðfjár eru frá 70-100 mg/kg, en eitrunarmörk 250 mg/kg. Bændur lögðu á það kapp í gær að koma fé í hús eða heim undir, og segir Gunnar það hafa gengið vel. „Það sem ég lagði áherslu á við þá var að þeir tækju það frá stöðnum pollum, en þar getur þéttni flúors orðið mikil,“ segir Gunnar. Flestum hafi tekist að koma fénu ann- aðhvort að læk eða rennandi vatni. Morgunblaðið/Ernir Óþægindi Kindur kunna illa við ösku en margar komust ekki á hús. Flúorinni- hald ekki skaðlegt fé Flúormengun SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þegar rofaði til á öskufallssvæðinu eftir hádegið í gær beindist athygli íbúanna að skepnunum. Bjarga fé í hús eða að húsum og gefa hey og hreint vatn. Íbúar í þéttbýlinu á Kirkjubæjar- klaustri héldu sig heimavið, eins og ráðlagt var. Dæmi er um að barnafjölskyldur hafi komið sér í burtu af öskusvæðinu. Mistur lá í loftinu þegar ekið var um Rangár- vallasýslu í gær. Brún gjóskuslikja sást á lofti. Þegar komið var út á Mýrdalssand þykknaði fyrst verulega í lofti. Engin umferð var um sandinn um hádegisbilið enda ferðafólk inni- lokað á Kirkjubæjarklaustri því ekki var fært, hvorki í austur né vestur, vegna þess hversu dimmt var yfir vegna öskufallsins. Þegar hins vegar litið var í baksýnisspegilinn sást mynd- arlegur strókur aftur úr bílnum. Askan jókst eftir því sem austar dró. Þegar birti jókst umferðin á móti, enda vegurinn þá opnaður. Þá fylgdi hverjum bíl mikill ösku- strókur þannig að þeir fáu sem voru á aust- urleið þurftu að hægja verulega á eða stöðva á meðan rykið settist. Fólk flýr öskuna „Svona er staðan, það þýðir ekki að hugsa um annað,“ sagði Kjartan Kjartansson, skóla- stjóri á Kirkjubæjarklaustri. Hann og kona hans, Elín Þóra Guðmundsdóttir, héldu sig heima með þremur börnum sínum. Hann sagð- ist hafa vaknað í myrkri, bölvað því að vera andvaka og snúið sér á hina. Hann hefði svo áttað sig á því að þetta hefði verið um klukkan hálfátta um morguninn þegar venjulega er orð- ið bjart. Þeir sem þurftu að skjótast á milli húsa voru með öryggisgleraugu og grímur enda þykkt öskulag yfir þorpinu, götum, húsþökum og kyrrstæðum bílum og rykið þyrlaðist upp úr sporunum þegar fólk gekk eða bílar óku hjá. Logn var í gær en ekki þarf mikinn vind til að askan fari af stað. Af nógu er að taka. Tíminn var notaður til að spila og horfa á sjónvarpið. Allir höfðu það gott, verra var með hundinn sem þau eru að passa, hann komst ekki út til að gera þarfir sínar, fyrr en leið á daginn. Elín Þóra sagði að þótt reynt hefði verið að líma fyrir rifur við opnanleg fög og útihurðir smygi rykið alls staðar inn. „Þetta er við- bjóður,“ sagði hún. Askan raskaði daglegu lífi fólks. Áhrifin gætu orðið verri í dag og næstu daga. Ljóst er að skólahald fellur niður á Kirkju- bæjarklaustri í dag. Aðeins fjórir dagar eru eft- ir af skólanum og átti að nota tímann til útivist- ar. Ekki lítur vel út með það og ef til vill er skólahaldi lokið í vor. Kjartan sagði að það yrði metið í dag í samráði við viðkomandi yfirvöld. Kjartan vissi til þess að fólk hefði forðað sér í burtu, meðal annars barnafólk. Hann sagði það skiljanlegt, rykið færi illa í marga. Útlendingarnir vildu burt Öskufallið hefur áhrif á störf fleiri stétta en bænda. Allt er undirlagt á öskufallssvæðinu. Þegar er farið að bera á afbókunum hjá ferðaþjónustufyrirtækjum og er óttast að þeim rigni yfir í dag. „Íslendingarnir tóku þessu með ró. Útlendingarnir voru órólegri og vildu kom- ast sem fyrst í bæinn,“ sagði Anna Guðrún Jónsdóttir í Hótel Laka í Efri-Vík í Landbroti. Hún tók raunar fram að nokkrir erlendir ferða- menn sem voru á austurleið hefðu tekið þessu af yfirvegun og fundist spennandi að fylgjast með náttúruhamförunum. Þeir ætluðu að bíða og sjá til hvort fært yrði austur um. Eftir eldgosið í Eyjafjallajökli afbókuðu margir hópar. Anna Guðrún sagði að rólegt hefði verið framan af sumri en tekist hefði að fylla í eyðurnar þegar komið var fram á sumar. Hún kvaðst óttast að það sama gerðist, að af- bókanir færu að berast. Sumir treystu sér ekki til að hugsa til Íslandsferðar, þótt þeir ætluðu að fara í ágúst, eins og gerðist í fyrra. „Það getur enginn stöðvað þetta. Við verðum bara að fylgjast með veðurspá og vona að öfl- ugur vindur verði af réttri átt,“ sagði Anna Guðrún. Keyrðu milli bæja Eftir að birti til gátu björgunarsveitarmenn ekið með andlitshlífar heim á bæina í öskufalls- sveitunum og aðstoðað bændur með skepnurnar og hægt var að hleypa ferðafólkinu vestur yfir Mýrdalssand. 20 til 30 björgunarsveitarmenn voru á ferð- inni, flestir úr björgunarsveitum af Suðurlandi, því heimamenn voru flestir í því að bjarga eigin málum. Adolf Arnar lögregluvarðstjóri vissi ekki ann- að en allt hefði gengið vel fyrir sig og engin al- varleg vandamál komið upp við þetta starf. „Þetta er viðbjóður“  Þykkt ryklag yfir Kirkjubæjarklaustri  Fólk heldur sig innivið  Bændur reyna að koma lambfé á hús  Dæmi um að barnafólk hafi komið sér í burtu Rekið inn Bændur reyndu eftir því sem hægt var að koma skepnum inn eða í þröng hólf með heyi og vatni. Þórarinn Eggertsson í Hraungerði í Álftaveri naut þess að Oddur sonur hans var heima í sauðburði. Hann er annars við önnur störf sem læknir og lögfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.