Morgunblaðið - 23.05.2011, Side 28

Morgunblaðið - 23.05.2011, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2011 Ekki hafði ég þekkt Zóphónías Pálsson lengi þegar mér varð ljóst að hér var einstakur maður á ferð. Ég held þetta hafi verið þegar hann, þá nálægt sextugu, labbaði á höndum eftir ganginum heima hjá sér. Ég gat ekki leikið þetta eftir honum, hvað þá núna á svipuðum aldri og hann þá. Sem betur fer var þetta ekki próf sem gerði út um þátttöku mína í fjöl- skyldu Zópha og Lis þegar ég varð tengdasonur þeirra. Zóp- hónías var á undan sinni samtíð í allskonar útivist. Ungur hjólaði hann um allar trissur, fór í göngutúra og löngu fyrir almenn- an fótaferðartíma var hann búinn að fá sér sundsprett í Vesturbæj- arlauginni. Meðan hann starfaði í Skipulagi ríkisins labbaði hann gjarnan „Red River Path“ í vinn- una á morgnana og heim í hádeg- inu. Sem ungum myndarlegum manni stóðu Zópha allir vegir færir enda góðum gáfum gædd- ur. Valið varð mælingarverk- fræði í Kaupmannahöfn. Eftir út- skrift starfaði Zóphi við landmælingar í Danmörku, þetta var í seinni heimsstyrjöldinni. Líf hans eftir heimkomu til Íslands snerist um landmælingar, korta- gerð, skipulag og stjórn þeirra mála. Vinnudagurinn varð oft langur og krafðist ferðalaga um allt land enda þekkti hann Ísland eins og lófa sinn. Vegna yfirgrips- mikillar þekkingar hans á stað- Zóphónías Pálsson ✝ ZóphóníasPálsson fædd- ist á Hvanneyri í Borgarfirði 17. apríl 1915. Hann lést í Reykjavík 15. maí 2011. Útför Zóphónías- ar fór fram frá Fossvogskirkju 19. maí 2011. háttum og samning- um við hina ýmsu landeigendur starf- aði hann við þennan málaflokk langt yfir áttrætt. Zóphónías var það sem Daninn kallar „klæbe- hjerne“, hann mundi allt sem hann las, heyrði eða sá og rúmlega það. Þegar þess tíma „Út- svars“-spurninga- þáttur var í útvarpinu svaraði hann yfirleitt öllum spurningum rétt og á undan keppendum. Honum féll sjaldnast verk úr hendi og var duglegur að hvetja sitt fólk sem og aðra í kringum sig. Sendibréf frá Zópha voru einstök en í þeim rakti hann hversdaginn sem og stærri frétt- ir. Jólakortin voru fullnýtt, skrif- að á bakhliðina skemmtileg skila- boð og ráðleggingar. Einstaklega falleg rithönd hans gerði það að verkum að ekki fór á milli mála hver sendandinn var. Hann gat verið fastur fyrir, jafnvel þver, en það var ekki oft. Góða skapið var ein af hans mörgu vöggugjöfum sem hann viðhélt alla ævi. Glaður hlátur hans klingir enn í eyrum. Ham- ingjuríkt hjónaband með ein- stakri konu í rúm 70 ár varð einn- ig til þess að viðhalda öllum hans góðu kostum. Lis Pálsson sá um að vökva lífsblóm Zópha af natni og umhyggju eins og henni var einni lagið. Ekki varð langt á milli þeirra hjóna sem nú er sárt sakn- að. Ekkert mun koma í stað heimilishaldsins í Eskihlíðinni þar sem væntumþykjan var allt um kring og að hafa fengið að vera hluti af því um tíma er nú þakkað af öllu hjarta. Ég þakka Zópha fyrir ferða- lögin, hvatninguna, uppeldið og einstakt vinarþel í gegnum árin. Nýleg ferð okkar að Geysi í Haukadal er mér nú dýrmæt minning. Að endingu þakka ég fyrir þann dýrmæta tíma sem Júlía mín fékk með þeim Zópha og Lis, sá tími er ómetanlegur fjársjóður sem skilar sér til kom- andi kynslóða. Við Hrönn, Kristín Þöll og Svava Ljósbrá vottum fjölskyld- unni samúðarkveðjur. Sigurður Skagfjörð Sigurðsson. Það voru mikil forréttindi að fá að kynnast og vinna með þáver- andi skipulagsstjóra ríkisins, Zóphóníasi Pálssyni, fyrir tæp- lega hálfri öld, þegar ég var ennþá ungur nemandi í arkitekt- úr. Zóphónías sá þá um skipulag þéttbýlis á öllu Íslandi fyrir utan Reykjavík við fjórða mann en það var þá það starfslið sem talið var að þyrfti til þessa verks. Þarna kviknaði fyrst áhugi minn á skipulagsfræðum enda hvatti Zóphónías mig óspart til þess að læra eitthvað meira í þessum fræðum en það takmarkaða sem venjulegt arkitektanám hefur uppá að bjóða. Ekki hefur það verið auðvelt verk á þeim tíma að koma ein- hverju viti í skipulagsmál lands- manna frekar en nú, en þó var Zóphónías óþreytandi við að reyna að koma í veg fyrir að minnsta kosti stærstu slysin þótt það væri oft vanþakklátt verk. Ís- lendingar hafa marga kosti en þar ber fyrirhyggju oft ekki hátt eða það að hafa gott skipulag að leiðarljósi, enda villuljósin mörg. Enn þann dag í dag vill heldur enginn taka ábyrgð á jafnvel skelfilegustu skipulagsmistökum og alltaf er almenningi sendur reikningurinn. Eitt af því sem ég lærði líka af Zóphóníasi á þessum tíma var að fólk sem hefur enga skoðun, hvorki faglega eða aðra, heldur gerir bara það sem því er sagt, á lítið erindi í skipulags- störf. Ekki síst á þetta við um fólk sem þiggur laun af al- mannafé. Þegar ég hafði lokið námi í skipulagsfræðum vissi ég það mikið um jarðveginn fyrir faglegt skipulag hér á landi að mér kom ekki til hugar að eyða starfsæv- inni í þann barning og var búinn að ráða mig í vinnu erlendis. Aft- ur var það hins vegar Zóphónías sem taldi mig á að minnsta reyna og sjá til hvort Eyjólfur hresstist ekki. Þannig líða árin og áratugirnir hratt en í skipulagsmálum þarf að hugsa bæði heildstætt og til langs tíma. Þannig hafa Kínverj- ar það að viðkvæði að ef hlutirnir skáni ekki á yfirstandandi öld þá skáni þeir bara hugsanlega á þeirri næstu. Það hefur þó örugg- lega glatt hjarta Zóphóníasar þegar farið var að kenna skipu- lagsfræði til meistaraprófs hér á landi enda aldrei að vita nema hér verði mjór mikils vísir. Ég sendi fjölskyldu Zóphóní- asar mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Gestur Ólafsson. Leiðir okkar Zóphóníusar lágu saman þegar ég settist í Bygg- ingarnefnd Reykjavíkur árið 1974 sem þá var skipuð 7 mönn- um, þar af 4 embættismönnum. Ég var svo heppinn að verða sessunautur Zóphóníusar á nefndarfundum sem varð mér til ómetanlegs gagns því óreyndur var ég þá og alls óvanur að standa í svona nefndastússi. Flokkurinn eini og sanni hafði þá stjórnað borginni í áratugi með þeim ár- angri í skipulagsmálum sem hugnaðist mér lítt. Brá svo við að sessunautur minn studdi mig yf- irleitt í hvívetna, ekki síst þegar kom að tillögum um að sporna gegn ótímabæru niðurrifi, ósmekklegum breytingum húsa eða nýbyggingum sem ekki féllu að hinni gömlu byggð í borginni. Þessi sjónarmið studdi Zóh- ónías með lítillæti hins reynda embættismanns sem alltaf var tilbúinn að hlusta á aðra og meta nýjar hugmyndir og styðja við þær ef hann taldi þær væru til góðs. Við brölluðum síðan aðeins á bak við tjöldin þegar ný bygging- arreglugerð var í smíðum og til undrunar mörgum var allt í einu ekki heimilt að höggva burt göm- ul tré að vild og gera bílastæði þess í stað en það var mjög í tísku á þeim tíma. Þau nýmæli komust líka m.a. inn í sömu reglugerð að við lagfæringar eldri húsa skyldu þau halda upprunalegu útiliti sínu, ekki síst gluggagerð. Allt eru þetta verk Zóphóníusar sem enn standa. Hann endaði ævi sína með reisn. Stutt er síðan ég hitti hann á myndlistarsýningu, reffilegan að vanda, og ekki fór það framhjá neinum að hann fylgdist náið með því sem var að gerast og var líka tilbúinn að ræða það. Ég kveð hér góðan félaga og votta aðstandendum hans mína dýpstu samúð. Magnús Skúlason. Látinn er heiðursmaðurinn Zóphónías Pálsson fyrrverandi skipulagsstjóri ríkisins. Zóphóní- as helgaði starfsævi sína skipu- lags- og byggingarmálum og hafði embætti hans, þann tíma sem hann var við stjórnvölinn, eða í 31 ár, afskipti af eða ann- aðist skipulag nánast allra þétt- býlisstaða í landinu. En á þessum tíma má segja að mestur hluti nú- verandi byggðar hérlendis hafi risið. Eins og kunnugt er var gerð skipulagsuppdráttar fyrir sveitarfélög hlutverk ríkisins og annaðist embætti skipulagsstjóra það. En lögum samkvæmt var skipulagsgerðin frá 1921 til 1998 fyrst og fremst í verkahring rík- isins. Til að annast þetta hlutverk var á vegum embættis skipulags- stjóra teiknistofa sem annaðist skipulagsgerðina undir yfirstjórn Zóphóníasar. Auk framangreinds annaðist embættið yfirstjórn og eftirlit með framkvæmd bygg- ingamála og gerð grunnkorta til að hægt væri að annast skipu- lagsgerðina. En helstu verkefnin voru gerð svæðisskipulags, aðal- skipulags og deiliskipulags- áætlana fyrir sveitarfélögin auk reglulegrar endurskoðunar þess- ara áætlana. Verkefnin voru því ærin og með ólíkindum að emb- ættið hafi komið öllu þessu í verk. Eins og gefur að skilja voru samskiptin við sveitarfélög mikil og hafði Zóphónías gott lag á að eiga samskipti við fulltrúa þeirra. Hann spurði gjarnan frétta úr þeirra heimasveit, enda þekkti hann vel til manna og málefna víða um land og að loknu al- mennu tali hófst fundur um skipulagsmálin. Þetta var hans aðferð til að skapa gott og óþvingað andrúmsloft, enda fóru flestir sáttir og ánægðir af hans fundi. Hans viðhorf var að að- stoða sveitarfélögin eins og kost- ur var við þá uppbyggingu sem í gangi var hverju sinni og ekki setja skorður nema bráða nauð- syn bæri til. Undirritaður starfaði undir yf- irstjórn Zóphóníasar í um 18 ár og er margs að minnast frá þeim tíma. Zóphónías var með afbrigð- um vinnusamur, góður fagmaður, fljótur að átta sig, og síðast en ekki síst var hann frábær hús- bóndi, vildi sínu fólki vel og gerði ekki mannamun. Hann var léttur í lund, hlýtt til allra og stutt í brosið og hláturinn. Ég minnist þess ekki að hann hafi nokkurn tíma skipt skapi eða talað niður til nokkurs manns. Zóphónías lagði áherslu á að starfsmenn ættu kost á framhaldsmenntun í fræðunum og hvatti okkur til að nýta það og sóttu margir okkar framhaldsnám á vegum embætt- isins til Norðurlandanna. Ég votta aðstandendum sam- úð. Blessuð sé minning Zóphóní- asar Pálssonar. Sigurður Thoroddsen. Elsku Haukur. Minning þín verður ætíð ljós í lífi okkar. Okkur langar til að kveðja þig með þessum ljóðlínum: Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku Didda, Palli Kjartan, Konni, Nikulás og fjölskyldur megi guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Hrönn tengdamamma, Jón, Edda, Eydís, Vala, Marinó og fjölskyldur. Það er sárt að sjá Hauk frænda hrifinn burt svona snemma og auðvitað er það órökrétt og órétt- látt. En við erum varnarlaus gagnvart vef örlagadísanna og ráðum engu um hvaða þráðum þær halda inni eða kippa út. Haukur Nikulásson ✝ Haukur Niku-lásson fæddist í Keflavík 29. nóv- ember 1955. Hann lést á deild 13-E Landspítalanum við Hringbraut 9. maí 2011. Útför Hauks fór fram frá Áskirkju 18. maí 2011. Haukur var mað- ur sem óx í áliti hjá manni með ári hverju. Hann bjó yf- ir góðum gáfum og gat nálgast málefnin frá ferskum sjónar- hornum. Gat hugsað út fyrir kassann, eins og það er stundum kallað. Maður sem lét ekki binda sig í klafa eða festa í for- sniðin mót. Þannig menn þarf Ísland í dag og því er skaðinn stór af hans ótímabæra brotthvarfi. Sár er svo einnig missirinn fyrir nánustu ástvini. Það tók mig nokkurn tíma að læra að meta Hauk, aldursmun- urinn töluverður þegar maður var barn og unglingur en sá munur minnkaði og varð að engu með ár- unum. Með eigin þroska kunni maður betur að meta lund hans, glettni og ferska hugsun. Haukur var frændinn sem kom með músík í stórfjölskylduboðin og sýndi ótrúlegt umburðarlyndi gagnvart lagleysi ættarinnar. Hann gat alltaf gefið börnunum sína athygli og eiga þau góðar minningar frá söng við undirleik Hauks. Það var gaman að rökræða við frænda. Hann gat skotið á mann föstum skeytum en oftast nær með góðri blöndu af glettni. Þetta gat kallað á harðar en skemmti- legar og skeinulausar rökskylm- ingar. Aldrei fann maður fyrir þeirri meinfýsni sem oft einkennir þá sem hafa það eitt að markmiði að kveða annan í kútinn. Það var líka alltaf stutt í hláturinn þó að umræðuefnið væri hátimbrað af alvarleik. Samfélagið okkar væri betra ef við hefðum fleiri menn með eigindir Hauks, þá afstöðu að maður verði að vera gagnrýninn á umhverfið og vera óhræddur við að setja fram hugmyndir að lausnum. Hugmyndir Hauks um breytingar á kosningakerf- inu voru til að mynda stór- merkilegar og fengu alltof litla athygli. Þær gengu útá fjölgilt atkvæði sem gæti útrýmt hvim- leiðum prófkjörum og samþætt að hluta persónukjör og flokks- kjör. Þessi hugmynd fékk ekki nægan hljómgrunn en það er eðli góðra hugmynda að finna sér sinn eigin tíma. Hver veit nema dagur hugmyndarinnar komi og vindurinn blási í það segl. Það var í anda æðruleysis Hauks að hann yppti bara öxl- um þegar ekki viðraði fyrir hug- myndir um pólitískar kerfis- breytingar og hélt sínu striki. Hann bloggaði og var óhræddur við að setja fram skoðanir sem gengu gegn ríkjandi viðhorfum. Þetta æðruleysi birtist mér rétt viku áður en hann kvaddi þegar hann, sárkvalinn, gat grínast með eigin lasleika og talað frjálslega um ferðalagið framundan. Við systkinabörn Hauks; Að- albjörg, Arndís og ég, kveðjum hann með söknuði. Mamma veit að Stella systir hennar og móðir Hauks tekur á móti drengnum sínum. Stellu kvöddum við fyrir aðeins nokkrum vikum og hvarflaði þá ekki að neinum að Haukur færi fljótt á eftir. Orð eru svo lítilsgild gagn- vart sorg hinna allra nánustu en hugur okkar er hjá ykkur. Við hérna megin brúar sitj- um eftir með minningu um bros og glettið augnatillit, minningu um merkismann og góðan dreng. Vertu sæll frændi. Kristinn Hrafnsson. Árið er 1964 og ég átta ára að flytja heim með foreldrum mín- um frá Svíþjóð og þekki að sjálf- sögðu engan hér heima eftir margra ára dvöl erlendis. Við fluttum í Álftamýri 56 og meðan við vorum að bera inn búslóðina kom strákur til okkar frá númer 54 og bauðst til að aðstoða okkur. Þar hitti ég Hauk í fyrsta sinn og þar með tókst með okkur vinátta, sem aldrei féll skuggi á þó svo að leiðir okkar hafi skilið síðar, þá hittumst við reglulega á undan- förnum árum á nýjan leik. Það var barnmargt í blokkinni í Álftamýri og munaði Nikulás, föður Hauks, ekki um að smala okkur strákunum saman kl. 8 stundvíslega á sunnudagsmorgn- um og fara með fullan bíl í sund- höllina en þeir sem ekki voru vaknaðir misstu af ferðinni enda Nikulás nákvæmur á klukkuna eins og reyndar í öllu sem hann tók sé fyrir hendur. Allir gengum við strákarnir í Álftamýrarskóla, sem var opnaður í fyrsta sinn haustið 1964 og urðum við Hauk- ur bekkjarfélagar og vorum því samferða til og frá skóla næstu árin. Eftir landspróf skildi leiðir, hann fór í Versló en ég í MH. Þó að Reykjavík sé lítil lágu leiðir okkar ekki saman fyrr en áratugum síðar, þegar við vorum báðir félagar í sama golfklúbbi, GKG. Var gaman að rifja upp gamla daga á meðan við gengum golfvöllinn og var Haukur mikill keppnismaður og skoraði mig ávallt á hólm, enda báðir með svipaða forgjöf og getu, en Hauk- ur hafði miklar meiningar um hvernig spila ætti þennan skemmtilega leik. Var það í anda hans þar sem hann hafði ávallt miklar skoðanir á öllu og var mörgum kunnur sem öflugur bloggari í netheimum. Þar lá hann ekki á skoðunum sínum og þar kom vel fram hin mikla hrein- skilni sem ég hafði alltaf kynnst frá honum. Í fyrra þegar 40 ár voru frá því að við útskrifuðumst frá Álfta- mýrarskóla fékk Haukur ásamt nokkrum öðrum skólasystkinum okkar þá hugmynd að kalla skóla- félagana saman og hittast og halda upp á tímamótin en það hafði aldrei verið gert. Var hann driffjöðrin í undirbúningi hátíð- ardagsins sem hófst með að við hittumst öll í skólanum og end- urtókum bekkjarmyndatökurnar frá því 40 árum fyrr og vorum við, gömlu bekkjarbræðurnir, hlið við hlið á þeim líkt og í gamla daga. Um kvöldið var haldin mikil hátíð og var Haukur þar hrókur alls fagnaðar og taldi ekki eftir sér að spila með skólafélögum okkar fyrir dansi langt fram eftir nóttu. Þessi dagur er öllum, sem þar voru, ógleymanleg stund og veit ég að ég tala fyrir hönd allra skólasystkina okkar að við mun- um alltaf standa í ævarandi þökk fyrir hans frumkvæði og framlag vegna þessa dags og er það hugg- un harmi gegn að hann skilji svona góða minningu eftir í hug- um okkar allra við hans ótíma- bæra fráfall. Ég mun sérstaklega sakna hans núna þegar golfver- tíðin er að hefjast og verð fátæk- ari að hitta hann ekki á golfvell- inum, en ég er þeim mun ríkari að hafa kynnst þeim góða dreng sem Haukur hafði að geyma og kveð ég hann með miklum söknuði en líka þakklæti fyrir góð kynni. Ég votta öllum aðstandendum hans mína dýpstu samúð. Jón Snorri. Fallinn er frá Haukur Niku- lásson. Vinur til margra ára. Stórt skarð er höggið í vina- hópinn með brotthvarfi hans. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að við Haukur vorum mikið saman. Höfðum svipaða lífssýn og höfðum gaman af að spila á hljóðfæri. Við vorum saman í Farstöðvafélagi Reykjavíkur og í hljómsveit sem strákar. Haukur var ljúfur og jafngeðja en hafði sterka réttlætiskennd og strangheiðarlegur. Hann var mikill tölvukall og lifði og hrærð- ist í þeim heimi. Við vorum sífellt saman að spila á böllum eða í skúrnum að æfa lög. Gítarleikur er bara þol- inmæði, sagði Haukur alltaf, enda var tónlistin hans áhugamál og átti hug hans allan ásamt upp- töku og tölvuvinnslu í tónlist. Ár- ið 2001 tók hann upp plötu fyrir mig með lögum sem ég hafði samið og gaf út, hann kunni þetta allt. En svo dró fyrir sólu, Haukur veiktist og á einum mánuði var allt búið. Þegar ég heimsótti hann var hann alltaf jákvæður, sagði, þetta er búin að vera fín ævi. Svona var hann sá bjarta hlið á þessu, það hjálpar ekkert að vera að vorkenna sjálfum sér. En eftir sitja vinir og fjölskylda í forundran hvað hlutirnir geta breyst í einni svipan. En það voru forréttindi að hafa átt þig sem vin öll þessi ár og geta deilt með þér öllum þessum góðu stundum. Farðu í friði, vin- ur minn, við hittumst aftur hinum megin. Fjölskyldu og vinum votta ég samúð mína. Minningin um góð- an dreng lifir. Að lokum vil ég kveðja með lín- um úr eigin ljóði. Minningin um þig Svo mögnuð af sorg Að máttlítill undan ég læt Án tilgangs þú berð þínar raunir á torg Af tómleika hjartans ég græt En vert er að vita það vinurinn minn Er veikindi knýja á gáttir Handan við móðuna er heimurinn þinn Hittumst við sannlega sáttir. Þinn vinur, Gunnar Antonsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.