Morgunblaðið - 23.05.2011, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.05.2011, Blaðsíða 40
MÁNUDAGUR 23. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Horfði á bólsturinn koma upp 2. Stærsta gos sem Ómar hefur séð 3. „Japönunum er ekki skemmt“ 4. Allt flug fellur niður ... »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Þungarokkssveitirnar Skálmöld, Atrum og Darknote spila á tónleikum á Sódómu laugardaginn 28. maí. Öll böndin hafa verið orðuð við Wacken- hátíðina 2011, en tónleikarnir hefjast klukkan 22. Morgunblaðið/Ómar Stórsveitir spila þungarokk á Sódómu  Djass-blús- hljómsveitin Sál- gæslan kemur fram í fyrsta sinn á tónleikum Múl- ans í Norræna húsinu annað kvöld. Á tónleik- unum, sem hefjast klukkan 21, flytja söngvararnir Stefán Hilmarsson og Andrea Gylfadóttir ný lög saxófón- leikarans Sigurðar Flosasonar, en textar eru ýmist eftir Sigurð eða Að- alstein Ásberg Sigurðsson. Aðrir hljóðfæraleikarar eru Hammond- orgelleikarinn Þórir Baldursson og trommuleikarinn Einar Scheving. Sálgæslan á tón- leikum Múlans  The Tree of Life eftir Terrence Mal- ick fékk Gullpálmann í Cannes í ár. Dardenne-bræðurnir fengu Grand Prix- verðlaunin. Nicholas Winding Refn fékk leik- stjórnarverðlaunin í ár fyrir mynd sína Drive sem Ryan Gosling leikur aðal- hlutverkið í. Besta leikkonan var Kirsten Dunst. The Tree of Life fékk Gullpálmann í Cannes Á þriðjudag Minnkandi norðvestanátt og snjókoma eða él norð- austanlands, en annars skýjað með köflum og þurrt að mestu. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í norðan 10-18 m/s, hvassast með austurströndinni. Hiti 2 til 8 stig sunnanlands en nálægt frost- marki fyrir norðan. Búast má við vægu næturfrosti í flestum lands- hlutum. VEÐUR KR-ingar eru með eins stigs forskot á toppi Pepsi- deildarinnar í knattspyrnu en fimmta umferð deild- arinnar hófst í gær með fimm leikjum. KR gerði jafntefli við Stjörnuna, Val- ur hafði betur gegn Fram, Víkingur og Grindavík skildu jöfn, Blikar skelltu Fylkismönnum og Eyja- menn gerðu góða ferð til Keflavíkur og lögðu heima- menn. »2-7 KR-ingar áfram í toppsætinu Arnór Atlason og Snorri Steinn Guð- jónsson unnu um helgina danska meistaratitilinn þegar lið þeirra AG Köbenhavn vann Bjerringbro/ Silkeborg í tveimur viðureignum. Sú síðari var heldur betur eftirtekt- arverð en spilað var fyrir framan tæplega 37 þúsund áhorfendur á Par- ken. »8 Frábær stemning og heimsmet á Parken Lokaumferðin í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu fór fram í gær. Man- chester United fékk Englandsmeist- arabikarinn afhentan í 19. sinn eftir sigurinn á Blackpool en fallbaráttan var allsráðandi. Það fór svo að lokum að Blackpool og Birmingham urðu að sætta sig við að kveðja deildina og féllu ásamt liði West Ham. »4 Blackpool og Birm- ingham féllu ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Í DAG Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Töluverður fjöldi fólks var fastur á Kirkjubæjarklaustri í gær vegna gríð- arlegs öskufalls á svæðinu. Í fyrstu var vitaskuld ekki ljóst hversu öflugt gosið yrði, og fáir sem gerðu sér í hug- arlund að það yrði jafn stórt og raun ber nú vitni. Á meðal þeirra sem sátu fastir á Kirkjubæjarklaustri í gær var hópur erlendra námsmanna sem stóðst ekki mátið og lagði land undir fót á laug- ardagskvöld til þess að berja ösku- strókinn augum. „Við sváfum í tjaldi í Vík [í fyrrinótt],“ segir Francisco Jose Zapatero, einn ferðalanganna í sam- tali við blaðið. Þau vöknuðu síðan í miklu öskufalli. Forvitnir ferðalangar „Okkur langaði bara að sjá strókinn úr eldfjallinu, en við vissum ekki að hann yxi svona hratt og næði til okk- ar,“ segir Zapatero, sem er spænskur, en auk landa hans voru meðal annars Þjóðverjar, Frakkar og Litháar á Kirkjubæjarklaustri og komust hvorki lönd né strönd. „Skyggnið er nánast ekki neitt, maður sér kannski þrjá metra fram fyrir sig. Það er svo dimmt að það er eins og það sé mið nótt,“ segir Zapatero og bætir því við að enginn hætti sér út fyrir hússins dyr. „Öskumagnið gerir andrúms- loftið mjög hættulegt. Ef þú neyðist til að fara út þarftu að vera með grímu og hlífðargleraugu.“ Þó að segja megi að tjaldbúarnir hafi vitað upp á hár hvaðan á þá stóð veðrið kom hin hraða ösku- myndun þeim í opna skjöldu og þurftu björg- unarsveit- armenn að koma þeim í öruggt skjól. Zapatero segir fólkið áhyggjufullt upp til hópa. „Flestir eru nú orðnir frekar rólegir, af því að björgunar- sveitarmennirnir eru duglegir að upplýsa okkur um stöðu mála og róa fólk niður. Við höfum líka nóg af mat og hér eru dýnur þannig að fólk get- ur hvílt sig ef það vill. Ástandið er þannig bara býsna gott,“ segir hann. Ekkert hægt að fara Þó að ró hafi færst yfir hópinn greip nokkur skelfing um sig þegar í ljós kom að hann væri fastur. „Í augnablikinu er ekkert hægt að fara. Það er óhugsandi að ætla sér að keyra eitthvað,“ segir Zapatero. Hann bætir því við að þau hafi ekki hugmynd um hversu lengi þau verði föst. Nú sé ekki annað í stöðunni en að bíða og sjá. Vöknuðu í miklu öskufalli  Forvitnir ferða- langar urðu inn- lyksa á Klaustri Innlyksa Francisco og félagar brostu út að eyrum þó að ferðalagið hefði þróast á annan veg en lagt var upp með. Skoðunarferð erlendu námsmannanna hefur heldur betur þróast á annan hátt en lagt var upp með. Þeir bjuggust ekki við því að askan næði til þeirra jafn hratt og raunin varð – með þeim afleiðingum að þeir sitja fast- ir á Kirkjubæjarklaustri. En þrátt fyrir hina ófyrirséðu stöðu sem upp er komin segist Franc- isco Jose Zapatero ekki enn hafa haft samband við fjölskyldu og vini í heimalandi sínu, Spáni. Það er ekki vegna þess að það sé ekki tæknilega mögulegt, heldur er það tillitssemin sem ræður þar för. „Ég vil síður hafa samband við fjölskylduna mína, af því að ég reikna með því að hún verði mjög áhyggjufull,“ segir hann. „Ég ætla að bíða þangað til ástandið hefur róast og tala þá við þau.“ Vill ekki valda áhyggjum FASTUR Á KLAUSTRI Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.