Siglfirðingur


Siglfirðingur - 08.05.1967, Síða 1

Siglfirðingur - 08.05.1967, Síða 1
EYJÓLFUR KONRÁÐ JÓNSSON. Málgagn siglfirzkra Sjálfstæðismanna 1. tbl. Mánudaginn 8. maí 1967 40. árg. Fjölsóttur landsfundur Sjálfstœðisflokksins A myndinni sést form. Sjálfstæðisflokksins, dr. Bjarni Benediktsson setja landsfundinn Á sumardaginn fyrsta, 20. apríl sl., var settur í Háskóla bíói í Reykjavík 17. lands- fundur Sjálfstæðisflokksins að viðstöddum yfir eitt þús- und landsfundarfulltrúum og gestum .Landsfundurinn stóð yfir dagana 20.—23. apríl og var fjölmennasta stjórn- máiaþing hérlendis um ára- tuga skeið. Stjórnmáiaályktunar lands fundarins er að nokkru get- ið á bls. 3 í iSiglfirðingi í dag. Dr. Bjarni Renediktsson, forsætisráðherra, var endur- kjörinn formaður Sjálfstæð- isflokksins og Jóhann Haf- stein, dómsmálaráðherra, varaformaður. Þessi fjölsótti landsfundur einkenndist af sóknarkrafti, samstöðu og baráttuvilja sjálfstæðisfólks um land allt, kvenna og karla, yngri sem eldri, fuiltrúa úr öllum starfsstéttum íslenzks þjóð- félags. Tíu milljónir til sjávarútvegs og fiskiðnaðar sl. ár Atvinnumálanefnd Norð- urlands hefur á árinu 1966 staðið að eftirtöldum að- gerðum á grundvelli sam- komulags þess, sem gert var 7. júní 1965 af ríkisstjórn- inni og verkalýðsfélögunum á Norðurlandi mn örvun at- vinnulífs við sjávarútveg og fiskiðnað: I. VETRARVERTH) a) Greiddar voru verðbæt ur á aðfluttan fisk og tog- arafisk kr. 0.50 pr. kg m. v sl. fisk með haus, gegn kr. 0.25 framlagi frá viðkom- andi fiskvinnslustöð. Verð- bætt voru 1963 tonn. b) Greiddar voru verð- uppbætur og lágmarksstyrk- ir til 3ja togbáta, sem gerðir voru út frá Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík. (Verð- bætur voru hinar sömu og á togarafisk, en auk þess var togbátum tryggður lág- marksstyrkur. c) Greiddar voru verðupp- bætur á 'afla heimabáta kr. 0.50 pr. kg af línufiski og kr. 0.40 pr. kg af netafiski gegn kr. 0.20 frá vinnslu- stöð.. Verðbætt voru 3348 tonn af línufiski og 2604 tonn af netafiski. d) Tilraunir til rækju- veiða voru styrktar. e) Efnt var til loðnuleitar. II. SÍLDARVERTÉÐ a) Greiddur var styrkur til veiðiskipa, er fluttu sölt- unar- og frystingarhæfa síld af f jarlægum miðum til Norð urlandshafna. Nam styrkur- inn kr. 30.00 til kr. 40.00 á uppsaltaða tunnu gegn fram- lagi frá söltunarstöðvum og frystihúsum. Greiddur var styrkur á rúml. 40 þús. tunnur, 37.000 í salt og 12.000 í frystingu. b) Greiddur var styrkur á annað aðflutt hráefni svar- andi til 11.000 uppsaltaðra tn. sídar. c) Efnt var til tilraunar til veiða með reknetum. d) Veittur var styrkur til tilrauna með síldarflutninga í plastbelgjum. Framhald á 2. síðu Þörf er átaks í atvinnu- rnálum Siglufjarðar Eðlilegt er 'að hér í Siglu- firði beinist áhugi manna enn meir en annars staðar að atvinnumálunum. Hér er ýmis aðstaða frá gamalli tíð — og raunar líka nýrri — að ýmsu leyti betri og menn- ingarlegri en í sumum þeim kaupstöðum, þar sem þó er meiri atvinna, velmegun og fólksfjölgun. Þeir sem hér dvelja veita þessu e.t.v. ekki athygli, en þeir sem að koma, sjá að Siglufjarðar- lífið stendur á gömlum merg. Eðlilega hefur helzta á- hugamál Siglfirðinga á und- anförnum árum verið gerð Strákavegar, en með tilkomu hans er lokið þeirri opinberu framkvæmd, sem verulega var aðkallandi. Það fer heldur ekki á milli mála í viðræðum við menn hér, að áhuginn beinist fyrst og fremst að uppbyggingu á sviði atvinnulífsins, gagn- stætt því sem sums Staðar annars staðar er, þar sem umsvif eru mikil í atvinnu- lífi, en þar beinist hugurixm meira að opinberum fram- kvæmdum. 'Efhng atvinnulífsins hlýt- ur að vera megin kappsmál Siglfirðinga, og þá að sjálf- sögðu fyrst og fremst hvort unnt reynist að hagnýta þau geysimiklu verðmæti, sem þegar eru bundin hér í þeim atvinnufyrirtækjum, sem á sínum tíma skiluðu þjóðinni einna mestum arði. Óvíða mun Norðurlandsá- ætlunarinnar, sem nú er unnið að af kappi, vera beð- ið með meiri eftirvæntingu en einmitt hér, og er það ekki að ófyrirsynju. Á hitt er þó rétt að leggja mikla á- herzlu á, að menn geri sér ekki þær gyllivonir, að öll forysta í atvinnumálum komi sunnan úr Reykjavík. Þeir sem að Norðurlandsá- ætlun vinna, reyna að meta aðstæður á hverjum stað, skoða þau fyrirtæki sem fyrir eru og meta hugmynd- ir heimamanna um ný at- vinnufyrirtæki, en þeir hrinda verkefnunum ekki í framkvæmd. Þótt síldarverksmiðjur rík isins hafi á sínum tíma risið hér, kannski án þess að Siglfirðingar þyrftu mikið á sig að leggja til að svo yrði, mega menn ekki lifa í þeirri trú, að meiri háttar umbæt- ur verði í atvinnumálum hér, án þess að fyrir því sé bar- izt af hálfu heimamanna sjálfra. Hitt er allt anað mál, að sú barátta þarf e.t.v. ekki að vera eins erfið og menn kynnu að hyggja, því að mikill skilningur er á nauð- syn þess að styrkja atvinnu- lífið hér og þeirri sérstöðu Siglufjarðar að vera nær eingöngu háður dutlungum síldarinnar. ATVINNUJÖFNUNAR- SJÓÐUR Eitt af merkustu verkum núverandi ríkisstjórnar var setning laganna um Atvinnu jöfnunarsjóð, sem stofnaður var með 364 millj. króna stofnfé. Þessi sjóður á sem kunnugt er, að styrkja at- vinnulífið á landsbyggðinni og þá auðvitað fyrst og fremst þar sem þörfin er brýnust. Óskum héðan frá Siglufirði til framkvæmda, sem vel eru grundaðar, verð- ur án efa mætt með fullum skilningi af stjórn Atvinnu- jöfnunarsjóðs, enda fáir staðir á landinu, sem eðli málsins samkvæmt eiga jafn mikinn rétt til fjárframlaga eins og Siglufjörður, og eng- inn meiri að mínu mati. Rótt er að rif ja upp helztu þætti laganna um Atvinnu- jöfnunarsjóð, því að oft vill falla furðu fljótt í gleymsku það sem vel er gert. Eins og áður segir var stofnfé Atvinnujöfnunar- sjóðs 364 millj. króna og er gert ráð fyrir því, að höfuð- stóll þessa mikla sjóðs verði orðinn rúmar 545 millj. kr. að minnsta kosti árið 1975. Meðal tekna Atvinnujöfn- unarsjóðs eru skattgjald ál- bræðslu að % hlutum fyrstu 9 árin en síðan að % hlut- um, en afgangurinn rennur til Hafnarf jarðarbæjar. Þetta skattgjald verður á fyrstu árum 11 milljónir króna á ári, en 1973—1975 verður það 17 milljónir árlega. Ár- in 1876—78 verður skatt- Framhald á 5. síðu.

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.