Siglfirðingur


Siglfirðingur - 08.05.1967, Qupperneq 3

Siglfirðingur - 08.05.1967, Qupperneq 3
Mánudaginn 8. maí 1967 SIGLFIRÐINGUR 3 Tryggjum varanlega velmegun allra þjóðfélagsþegna Úr sjórnmálayfirlýsingu 17. landsfundar Sjálfstæðisflokksins SAUTJÁNDI Landsfundur Sjálfstæðisflokksins leggur áherzlu á eftirfarandi grundvallaratriði Sjálfstæðis- stefnunnar: I. að varðveita og tryggja sjálfstæði off frelsi íslands og standa vörð um tungu, bókmenntir og annan menningararf íslendinga. II. að treysta lýðræði og þingræði, III. að vinna að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og athafnafrelsis, með hagsmuni allra stétta fyrir augum, IV. að beita nútíma þeklungu og tækni, svo að auð- lindir landsins verði hagnýttar í þágu þjóðarinnar, V. að skapa öllum landsmönnum félagslegt öryggi. ------O------ Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið lang fjölmennasti flokkur landsins allt frá stofnun hans árið 1929. Hann hefur oft átt aðild að ríkisstjórn og beitt sér fyrir mörgum mikilvægum framfaramálum. Þjóðinni hefur jafnan vegnað því betur sem fremur hefur verið stjórn- að í anda Sjálfstæðisstefnunnar, en ætíð hefur þurff að leita samninga við aðra um framgang mála og misjafnlega tiltekizt um sumt, svo sem verða vill. Með núverandi stjórnarsamstarfi og efnahagsmála- stefnu þeirri, sem mörkuð var árið 1960, urðu tímamót í íslenzkum stjórnmálum. Horfið var frá stefnu hafta og ríkisafskipta, sem hafði leitt til stöðnunar í hag- vexti, og tekið að beita nýjum hagstjórnaraðferðum, sem stuðluðu að frelsi í framkvæmdum og viðskiptum. Hin nýja frjálsræðisstefna hefur þegar ótvírætt sann- að yfirburði sína. Prelsið hefur leyst úr læðingi fram- tak og þrótt, er hefur leitt til þess, að síðustu sjö árin hafa orðið meiri allsherjar framfarir á Islandi en á nokkru sambærilegu tímabili í sögu þjóðarinnar, og mun hinn heillavænlegi árangur þá koma því betur í ljós, sem þessari sömu stefnu er lengur fylgt. Þjóðarauður hefur á viðreisnartímabilinu í raunveru- legum verðmætum aukizt um 40—50% og verðmætis- aukning í alls konar atvinnutækjum hefur verið yfir 50%. I stað gjaldeyrisskulda erlendis í upphafi þessa tíma- bils var um síðustu áramót fyrir hendi gjaldeyrisvara- sjóður að upphæð rúmar 1.900 millj. kr. Nettóskuldir erlendis námu þá 2.970 millj. kr. og höfðu á tímabilinu aðeins hækkað um 300 millj. króna, enda þótt eigna- myndun í landinu næmi 13.000 millj. króna. Þjóðartekjur hafa aukizt um þriðjung á hvern þjóð- íélagsborgara og leitt til stórbatnandi afkomu almenn- ings í landinu, þvi að launastéttirnar hafa fengið auk- inn hlut í vaxandi þjóðartekjum. Þótt hagstætt verðlag og aflabrögð hafi átt sinn góða þátt i þessari þróun, þá hefði hún ekki orðið nema vegna skynsamlegrar stjórnarstefnu. Án nýrra veiði- tækja hefði aflinn ekki fengizt, og aukið athafnafrelsi hefur ráðið úrslitum um öflun þeirra og hagnýtingu verðmætanna, er sköpuð hafa verið. Önnur veigamikil forsenda framleiðsluaukningarinnar hefur verið það lánstraust erlendis, sem gjaldeyrisvarasjóðurinn, heil- brigð stefna í fjármálum og peningamálum ásamt auknu viðskiptafrelsi hafa endurvakið. Með ákvörðunum um stórvirkjun og stóriðju hefur mikilvægt spor verið stigið til að tryggja atvinnuöryggi þjóðarinnar, stærri átök hafa verið gerð en áður til þess að afla atvinnuvegunum stofnfjár og auka fram- leiðni þeirra og bæta þannig lífskjörin, enda hefur með framkvæmda- og fjáröflunaráætlunum verið leitazt við að beina ráðstöfunarfé lánastofnana að mikilvægustu verkefnum. ------O------ I samræmi við meginstefnu sína telur Sjálfstæðis- flokkurinn að hugkvæmni og athafnaþrá einstakling- anna sé aflgjafi framfara. Ber því að efla einkaframtak til almannaheilla og beita ríkisvaldinu til að auka hagsæld og menningu sérhvers einstaklings, jafnframt því sem hlúð verði að þeim, sem ekki ganga heilir til skógar í lífsbaráttunni. Landsfundurinn ályktar, að hiklaust beri að fram- fylgja áfram í meginefnum þeirri stefnu í efnahags- málum, sem fylgt hefur verið síðustu árin, og verður það bezt tryggt með því að sem flestir kjósendur fylki sér um Sjálfstæðisflokkinn. Sautjándi Landsfundur Sjálfstæðisflokksins vekur at- hygli þjóðarinnar á meginstefnumiðum flokksins og hinum hagstæða árangri af stjórnarforystu hans og leggur jafnframt áherzlu á eftirtalin viðfangsefni: 1. Stefnt verði að víðtæku samkomulagi um verðlag og kaupgjald, er treysti gengi krónunnar og tryggi atvinnuvegunum samkeppnisaðstöðu, en launþegum batnandi lífskjör. 2. Unnið verði að samkomulagi um öflugan verðjöfn- unarsjóð, er jafnað geti verðsveiflur á útflutnings- framleiðslu landsmanna. 3. Leggja ber ríka áherzlu á að tryggja útflutnings- vörum þjóðarinnar sem öruggasta markaði og hag- stæðast verðlag. Á meðal brýnustu verkefna er að vinna að því innan Alþjóða viðskipta- og tolla- nefndarinnar (GATT) og með viðræðum við helztu viðskiptaþjóðir Islendinga að forðast hin alvarlegu áhrif á tollverndarstefnu efnahagsbandalaganna. Verði í því sambandi kannaðir endanlega mögu- leikar Islands til þátttöku í Fríverzlunarbandalag- inu (EFTA) og leitað eftir aðild að því, fáist hún með viðhlítandi kjörum og þau kynnt öllum þeim, sem hagsmuna eiga þar að gæta. Jafnframt verði hraðað kerfisbundinni áætlun um lækkun aðflutn- ingsgjalda og samhliða ráðstöfunum til stuðnings íslenzkum aðnaði til að tryggja samkeppnisaðstöðu hans og stuðla að sem fjölbreyttastri iðnþróun ' landinu. 4. Gerð verði tíu ára áætlun um eflingu íslenzkra at- vinnuvega að því marki ,að þeir geti veitt atvinnu hraðvaxandi fjölda vinnufærra handa. Jafnframt verði lögð sérstök áherzla á að beina vísindalegum rannsóknum og tilraunum að því að auka og tryggja gróðurríki landsins. 5. Með samvinnu við sveitarfélög og einkaaðila verði unnið að sem víðtækustu framkvæmdaáætlunum i þeim tilgangi að stuðla að sem hagkvæmastri notk- un framkvæmdafjár. Sýslu- og sveitarfélög verði jafnframt efld með því að fela þeim stjórn þeirra mála, sem þau geta betur af hendi leyst en ríkis- valdið, enda sé þeim séð fyrir tekjustofnum til að greiða kostnaðinn af aukinni starfsemi. Ennfremur verði úfram unnið að samningu byggðaáætlana fyrir landsfjórðungana. 6. Flokkurinn telur enn sem fyrr að efla beri samtök hinna Sameinuðu þjóða og norræna samvinnu, og verði einnig stefnt að aukinn þátttöku Islands í að- stoðinni við þróunarlöndin. 7. Unnið verði markvisst á alþjóðavettvangi að viður- kenningu á einkarétti Islendinga til fiskveiða á landgrunninu og að öðru leyti að nauðsynlegri fiskirækt og friðun fiskistofna við landið til að forðast ofveiði. 8. Sjálfstæðisflokkurinn telur með öllu óhjákvæmilegt, að hér á landi sem annars staðar sé viðbúnaður til varna, ef á landið yrði ráðizt. Vörnunum ber að sjálfsögðu að haga á hverjum tima með hliðsjón af hagsmunum þjóðarinnar og friðarhorfum í heim- inum. Flokkurinn er þeirrar skoðunar, að varnii’ landsins verði ekki tryggðar á næstunni nema með samvinnu við Atlantshafsbandalagið svo sem verið hefur. 9. Minnugir þess að lítil þjóð á öðrum fremur meira undir manngildi og menntun hvers einstaklings en hinar fjölmennari, vill Sjálfstæðisflokkurinn nú sem fyrr leggja sérstaka áherzlu á hugðarefni unga fólksins og aðild æskunnar að stjórn landsins. Því er hann eindregið fylgjandi því, að kosningaaldur sé færður niður í 20 ár. Almannavaldið styðji i auknum mæli starfsemi þeirra félagssamtaka, sem vinna að uppeldi hraustrar og tápmikillar æsku, svo sem íþrótta- skáta- og ungmennafélaga, bind- indishreyfingarinnar og kristilegra æskulýðsfélaga. 10. Haldið verði áfram að bæta námsaðstöðu í landinu og ráðstafanir gerðar í þá átt undirbúnar með skólarannsóknum og áætlanagerðum. Að því skal stefnt jöfnum höndum, að menntunin búi einstakl- ingana undir að mæta siðferðilegum vandamálum daglegs nútímalífs og efli hlutgengi þeirra í at- vinnulífi vaxandi tækniþjóðfélags. Brýna nauðsyn ber til þess að auka fræðslu i skólum landsins varðandi höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar og í undir- stöðuatriðum félagslegs þjóðmegunarfræði. Meðal tímabærra ráðstEifana í skólamálum telur fundur- inn vera að koma á styrkjum til framhaldsnáms kennara og veita fleiri skólum rétt til að braut- skrá stúdenta, svo sem Kvennaskólanum í Reykja- vík. Vísindaleg þekking verði hagnýtt til hins itr- asta í framfarasókn þjóðarinnar og vísindastofn- anir efldar í því skyni. Haldið verði áfram að bæta aðstöðu Háskóla Islands og félagsstofnun stúdenta komið á fót. 11. Aukinn verði stuðningur við listir og bókmenntir i iandinu með kynningu þeirra innan lands og utan og við að koma þeim sem viðast á framfæri. Rækt. verði lögð við aukna listsköpun og listtúlkun, m.a. með náms- og ferðastyrkjum og fjárhagsstuðningi við sjálfstæð félagssamtök og stofnanir á sviði bók- mennta, lista og vísinda. 12. Áfram verði unnið að bættri heilbrigðisþjónustu um land allt og áætlanir gerðar til langs tíma um heilsuverndarstöðvar, sjúkrahúsabyggingar og aðr- ar framkvæmdir á sviði heilbrigðismála. Studd verði starfsemi þeirra sjálfstæðu félagssamtaka, sem vinna að heilsuvernd og i þágu öryrkja. Lögð verði áherzla á mikilvægi heilsuverndar og hjúkr- unarmála aldraðra. 13. Raunhæfar rannsóknir verði gerðar á því, hvernig lækka megi byggingarkostnað, m.a. með hagnýtum tækninýjungum, bættu skipulagi á sviði byggingar- iðnaðarins og öflugru lánsfjárkerfi, sem stuðli að því, að sérhver fjölskylda geti eignast eigið húg- næði með viðráðanlegum kjörum. 14. Áfram verði haldið að bæta samgöngur um land allt. Undirbúið verði stórfellt átak í gerð varan- legra vega á næstu árum og framkvæmdir þessar boðnar út og aflað til þeirra lánsfjár, ef með þarf. Gerð góðra flugvalla verði sömuleiðis hraðað og samgöngur á sjó tryggðar með nægilegum farkosti og bættum hafnarmannvirkjum. 15. Haldið verði áfram virkjun fallvatna og rafvæð- ingu alls landsins lokið á tilætluðum tíma. 16. Sjálfstæðisflokkurinn vill, að lýðræði sé tryggt í öll- um almennum og opnum félagssamtökum borgar- anna. 17. Sjálfstæðisflokkurinn telur æskilegt, að stofnað sé til lífeyrissjóðs fyrir alla landsmenn, og heitir þvi máli fullum stuðningi. ------O------ Sjáifstæðisflokkurinn byggir á þjóðlegri og kristilegri lífsskoðun og er flokkur allra stétta og þjóðmálastarf hans markast af því sjónarmiði, að því aðeins vegni heildinni vel, að einstaklingarnir fái notið afraksturs vinnu sinnar og hæfileika og búi við sem beztan hag. Það er skoðun Sjálfstæðisflokksins, að vandamáiin verði yfirleitt ekki leyst með valdboðum og ríkisforsjá, heldur með ábyrgri og góðviljaðri samvinnu frjálsra samtaka einstaklinganna undir forustu frjálslyndrar ríkisstjórnar. Landsfundurinn heitir á þjóðina að fylkja sér um frelsi og framfarastefnu Sjálfstæðisflokksins, sem síð- ustu árin hefur leitt þjóðina tii örari alhliða framfara og meiri velmegunar en hún hefur nokkru sinni áðuv búið við. Sautjándi Landsfundur Sjáifstæðisfolkksins áréttar að lokum höfuðmarkmið sitt í landsmálabaráttunni, sem er og verður að tryggja varanlega velmegun allra þjóð- félagsþegna. Treystir hann á stuðning landsmanna, hvar í stétt sem þeir standa, í baráttu sinni fyrir fé- lagsumbótum, öryggi landsins og hagsæld þjóðarinnar. . 1 Gúmmístígvél hálf-há, nýkomin. Sama lága verðið. Kuldaskór komnir aftur — ódýrir Reminigton-haglabyssur einhleyptar R i f f 1 a r 1 sskápur—Elektrolux til sölu með tækifærisverði. Verzlun Sig. Fanndal

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.