Siglfirðingur - 08.05.1967, Side 6
Sigifirðingur
Bæjarmálafréttir í stuttu máli
ÚTGERÐ OG FISKVINNSLA
1 kjölfar bættra samgangna og
fyrir tilstuðlan Framkvæmda-
áætlunar Norðurlands má gera
ráð fyrir fjölhæfingu siglfirzkra
atvinnuvega, m. a. á sviði iðnað-
ar, en ljóst er þó öUum, sem
staðháttum eru kunnugir, að út-
gerð og fiskvinnsla verður áfram
meginkjarni atvinnuUfsins á
staðnum.
Góð hafnarskUyrði, aukin út-
gerð og nýting sjávarafla verður
því að vera höfuðmarkmið þeirr-
ar atvinnuuppbyggingar, sem
koma hlýtur. Hér eru tU staðar
frystihús og fiskvinnsluhús, sem
skortir hráefni og nýta mætti
með tilkomu frekari útgerðar
héðan. I»eir aðUar, sem forystu
hafa á þessu sviði, útgerðarfélög
og atvinnurekendur ýmsir, ættu
því að hugleiða þá möguleika og
þá fyrirgreiðslu, sem Fram-
kvæmdaáætlun Norðurlands býð-
upp á því framtaki hér heima
fyrir, sem framkvæmd vildi hafa
á þessu sviði atvinnuUfsins.
TUNNUVERKSMIÐJA RlKISINS
í Tunnuverksmiðju ríkisins, sem
hóf störf í desemberbyrjun s. 1.
og ljúka mun störfum um miðjan
þennan mánuð, hafa starfað í
vetur að staðaidri 40—45 manns
og framleiðslumagn verksmiðj-
unnar mim verða þetta tímabil
um 60—65 þúsund tunnur.
SIGLÓ-SlUD
Mikið hefur verið um að vera
hjá Sigló-síld í vetur og atvinna
með mesta móti. Hafa þar unnið
þegar flest hefur verið allt að 100
manns, fiest konur.
Vei þarf að hlúa að þessu
fyrirtæki, því ljóst er, að það er
einn helzti atvinnugjafi bæjarins.
FRYSTIHÚSIÐ
Gæftir hafa verið slæmar í vet-
ur, en afli dágóður þegar gefið
hefur. Hráefni hefur því ekki
verið til stöðugrar vinnslu í frysti
húsinu í vetur, en segja má, að
þar hafi verið stanzlaus vinnsla
frá því fyrir páska. Þar hafa
unnið milli 60—70 manns.
SN J ÓRUÐNIN GUR
er hafinn á Sigiufjarðarskarði,
en þar er óvenju mlkill snjór og
má gera ráð fyrir að ekki taki
skemmri tíma en 2 vikur að
vinna það verk.
FLUGFÉLAGIÐ ÞYTUR
Reykjavík hefur ákveðið að
hefja farþega- og leigufiug til
Siglufjarðar og frá Sigiufirði til
annarra staða eftir þörfum og
aðstæðum. Kaupfélag Slglfirðinga
mun annast afgreiðslu.
Dýpkun hafnarinnar
Ráðgert er að hefja senn
dýpkunarframkvæmdir í
Siglufjarðarhöfn. Hefur tek-
izt að tryggja kr. 1.000.000
lánsfé til þeirra framkv.
Sumarkoma
Vetur hríðar og hreggs er
að baki, vetur ógæfta og
erfiðs tíðarfars — en þrátt
fyrir allt- vetur sæmilegrar
atvinnu og 'afkomu bæjar-
búa, miðað við aðstæður alb
ar. Nú þegar sól hækkar á
iofti og dag lengir, vorar
jafnframit í hugum Siglfirð-
inga, á næstu grösum eru
stórbættar aðstæður í sam-
göngumálum bæjarins á
landi og í lofti, er skapa ný
viðhorf og tækifæri, sem
vonandi skipa Siglufirði á
ný þann sess í þjóðarbúinu,
er hann fyrrum sat með
sæmd.
Síldarflutningar
Haförninn, hið nýja flutn-
ingaskip SiR, gaf þá raun á
sl. sumri, að búast má við
stórauknum síldarflutning-
um til bræðslu hér á sumri
komanda. Vaxin er úr grasi
öflug hreyfing síldarsalt-
enda o.fl., um kaup á skipi
til flutninga á síld til söit-
unar. Verðuppbætur á síld
er veiðiskip flytja af fjar-
lægum miðum á Norðurlands
hafnir lofa og góðu, a.m.k.
hvað snertir hin stærri síld-
veiðiskip. Kaup á Gylfanum,
sem verður stærsta síldveiði-
skip íslenzka síldveiðiflotans
er einnig spor í rétta átt í
þessu sambandi.
Byggingaáætlun
ríkisstjórnarinnar
Bæjarráð og bæjarstjórn
hafa samþykkt að óska að-
ildar Siglufjarðar og bygg-
ingaáætlun ríkisStjómarinn-
ar. 23 einstaklingar, þar af
22 fjölskyldufeður, hafa ósk-
að þátttöku í fyrirhuguðum
raðhúsabyggingum í suður-
bænum, ef þessi aðild fæst.
Skipulagsteikning að þessu
íbúðasvæði hefur verið send
skipulagsstjóra til staðfest-
ingar, en ráðgert er að
framlengja Hafnartún til
suðurs og byggja skágötu
(Norðurtún) milli Hafnar-
túns og Laugarvegar. Áætl-
að er að raðhúsin verði stað-
sett vestan Hafnartúns og
norðan Norðurtúns, en ein-
býlishúsalóðir verði sunnan
Norðurtúns.
4 einstakhngum hefur
verið veitt byggingarheimild
fyrir jafn mörgum einbýlis-
húsum við Hólaveg og hefst
bygging þeirra væntanlega
nú í vor.
„Gólfið“ í
sundhöllina
iGólfið yfir sundlaugar-
þróna er nú komið á staðinn.
Ætlunin er að nota á þenn-
an hátt sundhöllina sem
íþróttahús, þann tíma árs,
sem hún er ekki notuð sem
sundlaug. Verður þá á hag-
kvæman hátt leyst úr brýnni
þörf á íþróttahúsi hér. Gólf
þetta kostar um 1.4 milljón
krónur.. iÞví miður urðu ein-
hverjar skemmdir á gólfinu
í flutningi, sem betur fer þó
ekki alvarlegar, sem vænt-
anlega fást bættar af við-
komandi tryggingarfélagi.
Áætluð framlög til
æskulýðs- og
menningarmála
Samkvæmt fárhagsáætlun
bæjarsjóðs er áætlað til
þessara mála sem hér segir:
Rekstur Gagnfræðaskóla kr.
655.000, rekstur iBarnaskóla
kr. 985.000, framlag til í-
þróttafélaga á staðnum kr.
200.000, rekstur sundlaugar
kr. 535.000, framlag til
Æskulýðsheimihsins 150.000,
framlag til Barnadagheimilis
175.000, framlag til tónhst-
arskóla 100.000, til Iðnskóla
• .
45.000, rekstur bókasafns
547.000, o.fl. mætti ttil tína.
Gæzluvöllur verður rekinn
í sumar á Barnaskólabalan-
um og leikvöllur (án gæzlu)
sunnan Sundhallar.
Sjúkrahúsið nýja
Hið nýja og glæsilega
sjúkrahús bæjarins, sem
kostaði yfir 20 millj. kr.,
hefur nú starfað í nokkra
mánuði. iRekstraryfirlit
fyrsta ársfjórðungsins bend-
ir til þess, iað rekstrargrund
völlur þess verði nokkru
btítri en gamla hússins, en
óvarlegt er þó að reikna
með öðru en verulegum
rekstrarhalla þess. Siamkv.
fjárhagsáætlun þessa árs er
,hann áætlaður kr. 800 þús.
V atnsveituf r am-
kvæmdir
Ráðgert er að vinna nú í
sumar að verulegum endur-
bótum og nýlögnum á vegum
Vatnsveitu iSiglufjarðar. Hef
ur verið sótt um lánsfé í
þessu skyni til Lánasjóðs
sveitarfélaga og standa von-
ir til, að þar fáist einhver
úrlausn í þessu efni.
Göturnar
Götur bæjarins hafa um
langt árabil verið hryggðar-
efni. Eftir liðinn snjóavetur
verða þær af eðlilegum á-
stæðum verri en oftast áður.
Yfir stendur nú við-
gerð á grjótkvörn bæjar-
ins, hinni umtöluðu Búkollu,
sem nýtur sérstakra vin-
sælda í dálkum Mjölnis, og
standa vonir til að hún hef ji
mölun á næsitunni. Vonandi
gerir hún bæjarbúum það til
geðs, og einkavini sínum,
Mjölni til angurs, að skila
frá sér ofaníburði í götur
bæjarins er nægi til ein-
hverra bóta.
V erkef naröðun
Unnið er nú að verkefna-
röðim — nokkurs konar
framkvæmdaáætlun bæjar-
jns í sumar — til að auð-
velda bæjarráði og bæjar-
stjórn að taka ákvarðanir
um hver verk skuli sitja í fyr
irrúmi og ,hver bíða betri
tíma, en slíkt er nauðsynlegt
bæði vegna takmarkaðs
framkvæmdatíma og fjár-
magns.
Afmælisnefnd
Eins og kunnugt er á
Siglufjörður 50 ára kaup-
staðarafmæk og 150 ára
verzlunarafmæli á næsta ári
— 1968. Af þessu tilefni
hefur bæjarstjórn kjörið
sérstaka afmæhsnefnd, sem
nú þegar hefur hafið störf.
Vonandi er að bæjarbúar
allir sameinist um að halda
hátt á lofti merki Sigluf jarð-
ar af þessu tilefni, af reisn
og virðuleik, en án bruðls
pg óþarfa. — Allar hug-
myndir og ábendingar frá
bæjarbúum, varðandi kaup-
staðarafmælið, eru áreiðan-
lega vel þegnar af hátíðar-
nefndinni.
Frá KvenféL Von
Aðalfundur Kvenfélagsins VON
var haldinn miðvikudaginn 8.
marz sl. 1 stjórn voru kjörnar:
Formaður Guðný Fanndal, rit-
ari Margrét Ólafsdóttir, gjaldkeri
Kristín Rögnvaldsdóttir. 1 vara-
stjórn: Þorfinna Sigfúsdóttir,
Hildur Eiríksdóttir og Anna
Snorradóttir. — Endurskoðendur:
Dagmar Fanndal og Hrefna Her-
mannsdóttir.
Kvenfélagið rak barnadagheim-
ilið Leikskála frá 20. júní til 31.
ágúst, og dvöldu þar alls 87 börn.
9. júní sl. gaf félagið minning-
argjöf um frú Sigurbjörgu Hólm,
kr. 125.000.00, sem átti að ganga
til eins herbergis í ellideild nýja
sjúkrahússins, sama dag lagði fé-
lagið fram kr. 50.000.00 úr elli-
heimilissjóði til nýbyggingarinnar
og er nú framlag kvenfélagsins
til ellideildar sjúkrahússins orðið
samtals kr. 510.000.00.
Félagið gaf einnig gardínur
fyrir ellideildina og gólfteppi á
dagstofu.
Skemmtun fyrir eldra fólk hélt
félagið að vanda, í janúar, og var
hún fjölsótt. Þakkar félagið marg
víslega hjálp, stuðning og gjafir
fólks í sambandi við skemmtun-
ina.
Félagið þakkar einnig öllum
velunnurum sínum gjafir, áheit
og allan annan stuðning við starf
semi þess á árinu.
Minningarspjöld elliheimilissjóðs
Kvenfélagsins eru seld í Bóka-
verzlun Hannesar Jónassonar, hjá
Magðalenu Hallsdóttur, Margréti
Ólafsdóttur og Guðnýju Fanndal.
Framboðslisti
Sjálfstæðisflokksins í Norður
landskjördæmi vestra
1. Séra Gunnar Gíslason, alþ.maður
2. Pálmi Jónsson, bóndi, Akri
3. Eyjólfur Konráð JónsSon, Iritstjóri
4. Öskar Levý, bóndi, Ösum
5. Þorfinnur Bjarnason, sveitarstjóri
6. Björn Daníelsson, skólastjóri
7. Jóhannes Guðmundsson, bóndi,
Auðunnarstöðum
8. Andrés Hafliðason, framkv.stjóri
9. Valgarð Björnsson, læknir
10. Bjarni Halldórsson, bóndi,
Uppsölum