Siglfirðingur


Siglfirðingur - 08.05.1967, Blaðsíða 2

Siglfirðingur - 08.05.1967, Blaðsíða 2
2 SIGLFIRÐINGUR Mánudaginn 8. maí 1967 Hvað er bezt fyrir kjördæmið? Senn líður að alþingiskosningum, þegar þjóðin í almennum leynilegum kosningum markar þá stefnu, sem móta á þróunina í þjóðfélagsmálum komandi kjörtímabil og afstöðu íslands í utanrík- ismálum sama tíma. Kosningarétturinn, samfara hugsana- .skoðana- og tjáningarfrelsi einstaklings- ins, er hans dýrmætasta eign. En þessum rétti fylgir sú ábyrgð að nota hann að yfirveguðu máli, til að hafa áhrif til góðs, til uppbyggingar réttláts þjóðfélags og velferðar þjóðfélagsþegnanna bæði sem einstaklinga og heildar. Komandi kosningar verða fyrst og fremst val fólksins milli samhentrar ríkisstjórnar, sem fylgt hefur jákvæðri uppbyggingarstefnu, og sundrað- ar stjórnarandstöðu, sem ekki einungis skiptist í hart deilandi stjórnmálaflokka, heldur jafnframt í innbyrðis stríðandi stjórnmálaflokka, er lítt virð- ast vaxnir til forystu eða sóknar í málefnum þjóð- arinnar. Lögin um atvinnujöfnunarsjóð og framkvæmda- áætlun Norðurlands móta stefnu núverandi stjórn- arfl. í málefnum Norðlendingafjórðungs. Stjómar- andstaðan hefur hins vegar ekki komið sér saman um mótaða stefnu í málefnum Norðurlands — og er yfirleitt ekki sammála um neitt annað en það, að vera á móti öllu, sem ríkisstjórnin hefur fram að færa. — Val ábyrgs og hugsandi fólks ætti því að vera auðvelt, svo fremi sem annarleg sjónar- mið spilla ekki heilbrigðu mati þess. Reynsla síðustu alþingiskosniniga ..Norðurlandskjördæmi vestra á rétt á 5 kjör- dæmakosnum þingmönnum. I síðustu kosningum hlaut kjördæmið og tvo uppbótarþingmenn og ekki munaði nema ÖRFÁUM ATKVÆÐUM að við bættist þriðji uppbótarþingmaðurinn, sá er skip- aði 3ja sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins. Hefði Sjálfstæðisflokkurinn fengið 10 til 20 at- kvæðum meira í síðustu alþingiskosningum, hefði Norðurlandskjördæmi vestra hlotið 8 þingmenn kjörna í stað 7, þrjá uppbótarþingmenn í stað 2ja. Þennan viðbótarþingmann geta kjósendur í Norðurlandskjördæmi vestra TRYGGT SÉR NO, með öflugum stuðningi við framboðslista Sjálf- stæðisflokksins, D-listann. Þetta er hægt, án þess að rýra í nokkru þingmannatölu annarra flokka í 'kjördæminu, og tryggja jafnframt kjör þess fram- bjóðandans, Eyjólfs Konráðs Jónssonar, ritstjóra, sem kjósendur almennt, án tillits til þess hvar þeir í flokki standa, viðurkenna að ÆSKILEGT OG NAUÐSYNLEGT er að fá sem fulltrúa kjördæm- isins á Alþingi. Allir þeir, sem ekki eru blindaðir pólitískum fordómum, ættu að íhuga þessa auð- sæju staðreynd, sem hér er á bent, um leið og þeir ganga að kjörborðinu. Frambjóðendur æskunnar Öll framboð stjórnmálaflokkanna hafa nú verið kunngjörð þjóðinni. Enginn framboðslisti á land- inu öllu býður upp á yngri frambjóðendur í efstu sætum en íramboðslisti Sjálfstæðisflokksins í þessu kjördæmi. Þeir Pálmi Jónsson, bóndi á Akri, og Eyjólfur Konráð Jónsson, ritstjóri, eru dæmi- gerðir fulltrúar æskunnar í landinu í hópi þeirra, er nú bjóða sig fram til þings. Þeir eru því lík- legri en frambjóðendur annarra flokka til að koma með þau ýnju viðhorf í málefnum kjördæmisins, þann þrótt æskunnar og kjark, sem svo miklu skiptir að sé með í verki við uppbyggingu byggð- anna í þessu. kjördæmi. Það er unga fólksins I kjördæminu, kvenna og karla, að tryggja þeim aðstöðu og áhrif til að fylgja fram málefnum þess á löggjafarþingi þjóði- arinnar. Það er æskunnar að tryggja kjör sinna eigin fulltrúa við alþingiskosningarnar í júní n.k. Tíu milljónir til sjávarútvegs Framhald af 1. síðu IH. HAUSTVEKTfÐ a) Greiddar voru verð- bætur á afla heimabáta, alls 1747 tonn. b) Greiddar voru verð- bætur á afla togara, alls 509 tonn. Til framangr. aðgerða hef- ur verið varið fé sem hér segir: Vegna vetrarvertíðar kr. 5.279.392.10. Vegna síldar- vertíðar kr. 3.010.390.17. Vegna haustvertíðar (ekki að fullu uppgert) kr. 1.710.217.13, eða alls um kr. 10 millj. á árinu 1966. Á vetrarvertíð á þessu ári eru styrkir greiddir með sama hætti og á fyrra ári. Frá Vestfirðinga- félaginu IFjársöfnun þeirri, sem fé- lagið ibeitti sér fyrir vegna sjóslyssins frá Hnífsdal í des. sl., er nú loikið. Á meðan sú fjársöfnun stóð yfir, fórst m.b. Freyja frá Súðavík, og með henni fjölskyldufeður og fyrir- vinnur. Fjársöfnunarnefndin hef- ur ákveðið að fé því, sem safnaðist, skuli varið til styrktar aðstandendum þeirra manna, sem fórust með m.b. iSvan og m.b. Freyju og hefur upphæðin, sem safnaðist verið send til sr. Sigurðar Kristjánssonar, sóknarprests ,ísafirði, og honum falið að ráðstafa henni. Samtals söfnuðust krónur 51.440.00 og færir söfnunar- nefnd Vestfirðingafélagsins Siglfirðingum alúðarþakkir fyrir ahnenn og góð fram- lög í söfnun þessari. Vestfirðingfélagið Siglufirði Landshappdrætti Sjálfstflokksins Sjálfstæðisfólk í Siglufirði sem liefur fengið senda happdrættismiða í lands- happdrætti Sjálfstæðisflokks ins, er vinsamlega beðið að gjöra skil hið fyrsta til Níls Isakssonar. Framlögum í kosningasjóð er góðfúslega veitt viðtaka á kosningaskrifstofu flokks- ins í Sjálfstæðishúsinu. Sjálfstæðisflokkurinn Ábyrgðarmaður: STEFÁN FRIÐBJARNARSON Sigluf jarðarprentsmiðja h. f. TILKYNNING U M AÐSTÖÐUGJALD Ákveðið er að innheimta í iSiglufirði aðstöðugjald á árinu 1967 samkvæmt heimild III. kafla laga nr. 51/1964 um tekjustofna sveitarfélaga og reglugerð nr. 81/1962 um aðstöðugjöld. Hefur bæjarstjóm Siglufjarðar ákveðið efitirfarandi gjaldskrá: 0,5% Mjólkurbú, hænsnabú, þorsk- og síldveiðar, svínabú, mjólkursala, 0,7% Frystihús, beitusíldarsala. 1 % Bifreiðaakstur, malar- og sandnám, bygg- ingavinna, timbur, sement, járn, kol, síldar- söltim, síldarsala, saltfiskverkun, fiskiðnað- ur, leiga á fiskiskipum. 1,5% Isfisksala, heildsala, kjötbúðir, fisksala, brauðgerðarhús, brauðsala, skóvinnustofur, blandaðar verzlanir, veiðarfæraverzlanir, byggingavöruverzlanir, byggingafélög, véla- verkstæði, netagerðir, húsgagnasala- og smíði útvarpsviðgerðir, prentsmiðjur og bókband, rafvirkjun og raftækjasala, trésm.meistarar, efnagerðir, málarar, múrarar, ljósmynda- stofur, klæðskerar, veitingahús, sælgætis- gerðir, trésmíðaverkstæði, efnalaugar, vefn- , aðarvöru- og skóverzlanir, bóksalar, rakarar, hárgreiðslustofur. 2 % Skipaafgreiðsla, lyfjaverzlun, sælgætisverzl- im, íssala frá frystihúsum, skipamiðlun, um- boðslaun, kvikmyndahús, leiga á síldarsölt- unarstöðvum og frystihúsum. 2 % Jarðgangnagerð. Með skírskotun til framangreindra laga og reglu- gerðar er ennfremur vakin athygli á eftirfarandi: 1. Þeir, sem ekiki eru framtalsskyldir til tekju- og eignarskatts ,en eru aðstöðugjaldsskyldir, þurfa að senda skattstjóra sérstakt framtal til að- stöðugjalds fyrir 25. apríl n. k., sbr. 14. gr. reglugerðarinnar. 2. Þeir, sem framtalsskyldir eru í Siglufirði, en hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starf- semi í öðrum sveitarfélögum, þurfa að senda skattstjóranum í Siglufirði sundurliðim, er sýni, hvað af útgjöldum þeirra er bundið þeirri starf- semi, sbr. 8. gr. reglugerðarinnar. 3. Þeir, sem framtalsskyldir eru utan Siglufjarð- ar, en hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda starfsemi í Siglufirði, þurfa að skila til skatt- stjórans í því umdæmi, sem þeir eru heimilis- fastir, yfirliti um útgjöld sín vegna starfsem- innar í^Siglufirði. 4. Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að útgjöld þeirra teljast til fleiri en eins gjald- flokks, samkv. ofangreindri gjaldskrá, þurfa að senda fullnægjandi greinargerð um hvað af út- gjöldunum tilheyri hverjum einstökum gjaldfl., sbr. 7. gr. reglugerðarinnar. Framangreind gögn ber að senda til skattstjóra fyrir 25. apríl n. k., að öðrum kosti verður að- stöðugjaldið, svo og skipting í gjaldflokka, áætlað, eða aðilum gert að greiða aðstöðugjald af öllum útgjöldum skv. þeim gjaldflokki, sem hæstur er. Tekið skal fram, að hafi gjaldandi fengið sér- stakan frest fram yfir 25. apríl til að skila fram- tali til tekju- og eignarskatts, gildir sá frestur einnig um skil á framangreindum gögnum varðandi aðstöðugjald. Siglufirði, 5. apríl 1967. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.