Pétur er minn maður - 01.06.1996, Page 2
73
Menntaskólaárin
4-B. Pétur er annar frá vinstri í öftustu röö. Greinarhöfundur, Guðbjörn Björnsson nú yfirlæknir á Vogi, er annar
frá hægri í fremstu röð. Meðai bekkjarfélaganna eru Birgir Björn Sigurjónsson, Eiríkur Örn Arnarson, Þórarinn
Eldjárn, Jón Gröndal og Óskar Arnbjarnarson.
með Pétri
Guðbjörn Björnsson rifjar upp
gömlu góðu tímana í MR
I bekknum var harðsnúinn kjarni
úr vesturbænum, en austurbæingar
eins og Pétur voru fljótir að komast
inn í hópinn og úr varð sterk bekkj-
arheild. Við stóðum alltaf saman
sem ein heild og
studdum hver annan.
6-B var áberandi í
félags- og skemmt-
analífi skólans og
við vorum mjög
stoltir af bekknum
okkar og þóttumst
góðir.
Pétur tók þátt f
öllum sameiginleg-
um aðgerðum en
hann kunni sér hóf
og þekkti sín mörk
sem við hinir skynj-
uðum ekki alltaf. Ef
of langt var gengið dró Pétur sig til
hliðar en greip ekki inn í málin
nema honum þætti rík ástæða til. Þá
gátu komið skarpar athugasemdir
sem áttu fullan rétt á sér.
Eitt aðal „númer“ bekkjarins var
söngfélagið Harpan, sem aðeins var
skipað bekkjarbræðrunum. Ekki
veit ég hversu mikið öðrum skóla-
félögum þótti til okkar koma en við
skemmtum okkur konunglega, -
fannst við vera frábærir - vorum
með söngæfingar og fengum aðstoð
söngkennara skólans, fyrst Hjartar
Halldórssonar og seinna Atla
Heimis Sveinssonar. Við sungum á
öllum árshátíðum og skemmtunum
skólans lengi vel, sungum í útvarp-
ið og reyndar alls staðar þar sem
við gátum komið okkur að. Eg held
að margir í MR hafi verið orðnir
hálf þreyttir á okkur í lokin.
Pétur var mikill áhugamaður um
söng og var einn aðaldrifkrafturinn
í þessum sönghóp. Hann var ekki
mjög lagviss en víst er að hann hef-
ur farið betur með söngtextana en
margur annar því Pétur talaði, þeg-
ar í menntaskóla,
betri og skýrari ís-
lensku en flestir.
Pétur var mjög
góður námsmaður og
ritgerðir á móðurmál-
inu voru yfirleitt óað-
finnanlegar. Pétur
var í miklu uppáhaldi
hjá íslenskukennur-
um skólans sem
bentu okkur hinum
gjarnan á að taka
málfar Péturs okkur
til fyrirmyndar.
Pétur var í eðli
sínu mikil félagsvera og hafði gam-
an að skemmta sér með bekkjarfé-
lögunum og var oft glatt á hjalla
eins og verða vill á þessum árum.
Pétur vissi þó alltaf sín mörk og
virti þau.
Okkur fannst Pétur hafa til að
bera meðfædda háttvísi og prúð-
mennsku og hann var grandvar og
heiðarlegur svo af bar, Eg minnist
þess ekki að Pétur hafi nokkurn
tímann hallað orði á nokkurn mann.
Á þessum árum var ýmislegt látið
fjúka og menn höfðu skoðanir á
öllu. Andstæðingum var yfirleitt
ekki hlíft. Pétur hafði mjög ákveðn-
ar skoðanir á ýmsum málefnum en
hann sýndi alltaf öðrum virðingu og
virti skoðanir annarra.
I þessari kosningabaráttu er talað
um heiðarleika og vammleysi Pét-
urs en okkur skólabræðrum hans
var það vel Ijóst fyrir tvítugt að
Pétur Hafstein eins og hann var teiknaður í Faunu.
þannig mundi allur hans ferill
verða. Pétur klúðrar ekki því sem
honum er falið.
Þegar í menntaskóla var Pétur
mikill ræðumaður og ræðuskörung-
ur og var gott og gaman að hlusta á
hann því hann hafði meira vald á
þeirri list en flestir jafnaldrar hans.
Við vorum líka nokkuð vissir um
að hann væri að yrkja í laumi og þá
væri það örugglega kveðskapur í
anda Einars Ben. og annarra höfuð-
skálda þjóðarinnar.
Við þóttumst nokkuð vissir hvert
Pétur stefndi í lífínu og okkur þótti
öllum eðlilegt þegar fréttist að hann
væri ungur orðinn sýslumaður og
síðar hæstaréttardómari. Reyndar
hittist bekkurinn okkar kvöldstund
I. desember síðast liðinn og við átt-
um fjörugar stundir saman. Þar
kom reyndar til tals að meðal okkar
væri efni í forseta. Pétur Hafstein
hefði allt það til að bera sem þarf til
að sinna slíku embætti. Menn veltu
vöngum og umræður náðu ekki
lengra en við félagarnir urðum ekki
mjög hissa þegar fréttir bárust þess
efnis að verið væri að hvetja Pétur
til framboðs.
„í þessari kosningabaráttu er talað
um heiðarleika og vammleysi Pét-
urs en okkur skólabræðrum hans
var það vel Ijóst fyrir tvítugt að
þannig mundi allur hans ferill
verða. Pétur klúðrar ekki því sem
honum er falið."
fxsdi
l
To establish
oneself ín the worio,
one does all one can
to seem established
there already.
V
íiÆlWl
Arfur andans, moöurmal,
margra alda lyfta_.
Lands og lýða bótabal,
baráttu lán og vift».
Guösgjöf og sigursál,
sæmd og gifta.^
Eilff eign er sálarstal,
sem ei tekst að svipta,
- Sigurjón Sigurðssou
(Bláljós bls 108)
/^o
noé&nr um.
frðte* einBt2Júi
fnóijm*0töék
Tlie world of politics
is always twenty years
behind the wotld
of thought.
- Chapmaxi