Pétur er minn maður - 01.06.1996, Side 8

Pétur er minn maður - 01.06.1996, Side 8
AEG Vampyr árgerö 1996 Öko Vampyr 8251 • Sexföld ryksíun • Stillanlegur sogkraftur • Stillanlegt Sogrör • Fylgihlutageymsla • þrír auka sogstútar • Inndraganleg snúra • Rykpoki 5,5 lítrar • 900vött ( Nýr Öko-mótór skilar sama sogkrafti og 1500 vatta mótor) Vampyr 6400 Sexföld ryksiun* Ultra- filter (Skilar útblósturs- • lofti 99,97% hreinu) Stillanlegur sogkraftur • Stillanlegt Sogrör • Fylgihlutageymsla • Tveir auka sogstútar • Inndraganleg snúra • Rykpoki 4 lítrar • 1400 vött • Þyngd 7 kg • Vampyr 6100 • Fjórföld ryksíun • Stillanlegur sogkraftur • Fylgihlutageymsla • Tveir auka sogstútar • Inndraganleg snúra • Rykpoki 4 lítrar • 1300 vött • Þyngd 7 kg Vampyr 5010 Fjórföld ryksíun • Stillanlegur sogkraftur • Tveir auka sogstútar • Inndraganleg snúra • Rykpoki 4 lítrar • 1300 vött • Þyngd 6 kg • B RÆÐU R N I R Lágmúla 8, Sími 553 8820 Umbobsmenn um allt land Reykjavík: Byggt og Búið Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Guðni E.Hallgrímsson, Grundarfiröi. Vestflrölr:.Rafverk, Bolungarvík.Straumur.ísafirði. Noröurland: Kf. Steingrímsfjaröar. Hólmavík. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð.Sauðárkróki. KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhðfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstóðum. Stál, Seyöisfiröi. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúösfiröi.KASK, Höfn Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergsson, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. Pétur Hafstein -traustsins verður Við þörfnumst greinilega þessarar landsföður/móður myndar. En því fylgir að einstaklingurinn sem við kjósum til þessa embættis verður að fórna sínu persónulega lífi. Hann verður að afklæðast persónuleikanum og íklæð- ast möttli þjóðhöfðingjans og þarmeð gangast undir ákveðin lögmál, skráð og óskráð. Manneskjan á forseta- stólnum verður þá ekki lengur ein af okkur, hún verður samnefnari okkar, æðra sjálf okkar, tákn. Þess vegna þörfnumst við forseta Friðrik Erlingsson veltir vöngum „íslendingar einskis meta alla, sem þeir geta,“ segir Hrærekur konungur á Kálfsskinni í kvæði Davíðs Stefáns- sonar. Sjaldan virðast þessi orð eiga betur við og þegar landsmenn fara að vega og meta mannkosti þeirra einstaklinga er bjóða sig fram til embættis forseta Islands. Þá kemur upp í okkur þessi fjóspúki ofurminnimáttar- kenndarinnar sem, eðli sínu samkvæmt, snýst upp í andhverfu sína; mannfyrirlitn- inguna. Að sönnu er það athyglisvert að jafn fá- menn þjóð skuli eiga svo marga velgerða einstaklinga sem telja sig eiga erindi á for- setastól. Það er umhugsunarvert. En hitt vekur ekki minni furðu hversu margir tjúka upp með rætni, róg, last, skop og háð og reyna þannig að lítillækka viðkomandi frambjóðanda. Og áður en maður veit af eru háværar raddir uppi um að leggja beri embættið niður. Við höfum ekki efni á þessu, segja menn. Við höfum ekki þörf fyrir svona vitleysu og pjatt, segja aðr- ir. Og hver þykist hann eða hún vera og hvað hefur hann eða hún gert svo merkilegt að hann eða hún telji sig eiga er- indi á forsetastól? Semsagt; við þolum illa að eitthvert okk- ar skuli sýna embættinu áhuga og þarmeð löngun, sjálfs- traust og vilja til að gnæfa yfir okkur hin. A Islandi má nefnilega enginn vera öðrum fremri, öðrum ofar, öðrum betri. En í sömu mund erum við að gliðna af stolti yfir Iöndum okkar sem hafa skarað framúr í sinni grein - er- lendis. Heima fyrir verða hinsvegar allir að vera jafnbestir. Að vera fremstur meðal jafningja er orðatiltæki sem oft- ast er notað í minningagreinum og hátíðarræðum þegar ein- hver lætur af störfum. Það segir svolítið merkilega sögu. Það segir að við getum fyrst viðurkennt yfirburðamenn eft- ir að þeir eru horfnir af vettvangi eða komnir undir græna torfu. Semsagt; þegar þeir eru ekki lengur fyrir okkur hin- um og skyggja ekki á okkur. Þeir sem fram að þessu hafa gegnt embætti forseta hafa undantekningarlaust verið óumdeildir - eftir kosningar. Það er athyglisvert. Þá hafa allar öfundar- og óánægjuraddir hljóðnað, kjaftasögur gufað upp, baknag, illmælgi og rógur horfið einsog dögg fyrir sólu. Það er líka eins og viðkom- andi persóna hafi allt að því verið tekin í guðatölu. Líkt og hún lifi á mörkum draums og veru og sitji þar ígrundað málþing með huldufólki, landvættum og fjallkonu, rýni í sálardjúp þjóðarinnar og dragi þar upp glataða gimsteina visku og fegurðar sem hún færir þjóð sinni á silfurfati í ræðum og riti og göfgi umhverfið með tiginni nærveru sinni. Já, líkt og persónan hafi stigið upp til himna. Svo eru menn að segja að embættið sé valdalaust! En hvemig stendur á því að eitt okkar geti, með því að setjast á forsetastól, stigið svo afgerandi útfyrir og uppfyrir okkur hin, stigið svo fullkomlega inníyrir þau vébönd sem hvorki rógur, last né illmælgi fær rofið og öðlast þá virð- ingu sem raun ber vitni, einsog viðkomandi búi nú hjá álf- um eða eigi að minnsta kosti innhlaup hjá guðum? Sú manneskja sem valin er af þjóðinni sjálfri til embætt- is forseta verður kannski, þegar grannt er skoðað, ekki lengur ein af okkur hinum. Embættið gerir kröfur um sér- stakan lífstíl, framkomu, atgervi og siðferðilega eiginleika sem eiga sér enga hliðstæðu annarsstaðar í þjóðfélaginu. Til hvers höfum við þá forseta? Getur verið að embættinu haft aðeins verið komið á til að milda höggið þegar við misstum kónginn í einu vettvangi? Eða hefur embættið ein- hveija gilda merkingu? Forsetinn á að endurspegla það besta í okkur sjálfum, segja sumir. Forsetinn á að brýna þjóðina til góðra verka og vera henni styrkur á erfiðum tím- um, segja aðrir. Forsetinn á að vera andlit okkar út á'við og koma landi og þjóð á framfæri úti í hinum stóra heimi, er líka sagt. Forsetinn á að vera rödd fólksins í landinu og málsvari þess gagnvart stjómvöldum, er enn ein skoðunin. Af þessum væntingum og kröfum sem fólk gerir til embættisins hlýtur maður að álykta sem svo að án forseta getum við ekki verið. Annars hefðum við engan spegil á okkur sjálf, eng- an til að brýna okkur til góðra verka eða styrkja okkur á erfiðum tímum, engan til að tala okkar máli úti í hinum stóra heimi og enga sameiginlega rödd gegn yfirgangi stjómvalda. Við þörfnumst greinilega þessarar lands- föður/móður myndar. En því fylgir að ein- staklingurinn sem við kjósum til þessa emb- ættis verður að fóma sínu persónulega lffi. Hann verður að afklæðast persónuleikanum og íklæðast möttli þjóðhöfðingjans og þarmeð gangast undir ákveðin lögmál, skráð og óskráð. Manneskjan á forsetastóln- um verður þá ekki lengur ein af okkur, hún verður sam- nefnari okkar, æðra sjálf okkar, tákn. Forsetinn, fáninn og skjaldarmerkið er hin heilaga þrenning okkar jarðneska ríkis. Án forseta verða hin táknin tvö marklaus og einskis virði. Fóm manneskjunnar sem á stólnum situr gefur hinum táknunum tveimur gildi og merkingu sem ristir dýpra en okkur grunar. Það er nefnt æðsta embætti þjóðarinnar, ekki vegna þess að forsetinn ráði yfir öllum í landinu heldur vegna þess að manneskjan í forsetastólnum hefur „gefið líf sitt svo við megum Iifa“. Frá öndverðu hafa konungar verið taldir hafa þegið vald sitt beint og milliliðalaust frá guði, verið fulltrúar hans á jörðu og jafnvel átt í daglegum orðræðum við hann um landsins gagn og nauðsynjar. Forsetaembætti lýðræðisríkja er næsta skref þróunarinnar á eftir konungdæmum fyrri alda. Við skulum því ekki ímynda okkur eitt augnablik að embætti forseta íslands sé þarflaust og valdalaust embætti. Sögulegar og trúarlegar undirstöður þess ná mun lengra og dýpra en aftur til 1944. Það mun engu breyta hvað sagt er í kosningabaráttunni þessa dagana um þá sem nú eru í framboði. Þegar einstak- lingur hefur verið kjörinn mun þjóðin sameinast um sinn forseta. Við munum fagna um leið og hann hverfur úr okk- ar röðum á vit þeirra vætta er varðveita íjöregg þjóðarinnar. Orrahríð daganna, metingurinn og skopið, hræsnin, fyr- irlitningin og hrokinn sem þyrlast upp og er beint að þeim einstaklingum sem gefa nú kost á sér virðist kannski sýna að „íslendingar einskis meta alla, sem þeir geta.“ En hitt er þó sönnu nær, svo mótsagnakennt sem það hljómar, að það sýni hversu annt okkur er í raun og sannleika um það há- sæti, sem er utan og ofan við amstur daganna, en stendur samtímis traustum grunni djúpt í innsta kjama þjóðarhjart- ans. -traustsiris verður

x

Pétur er minn maður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pétur er minn maður
https://timarit.is/publication/809

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.