Forsetakynning - 17.05.1968, Blaðsíða 4

Forsetakynning - 17.05.1968, Blaðsíða 4
4 F, ORSETAKYNNING Föstudagur 17. maí 1968 Mímir skrifar: Hversvegna styðja hinir 300 Gunnar Thoroddsen Stuðningsmenn dr. Gunnars Thoroddsen, sendiherra, til forsetakjörs hafa birt í blöðum ávarp til þjóðarinnar, undirritað af 300 Islendingum, körlum og konum úr öllum stjómmálaflokkum. Þrjúhimdruðmenningarnir lýsa yfir því í ávarpinu að þeir hafi ákveðio að veita Gunnari Thoroddsen brautargengi í kosningunum 30. júní næstkomandi og skora „á alþjóð að fylkja sér um hann á kjördegi.“ Gerð listans Listi stuðningsmanna dr. Gunn- ars er kænlega saman settur. Þar eru ýmsir menn, sem ekki var búizt við að styddu frambjóðandann, og er sá flokkur einkum fjölmennur úr röðum Framsóknarmanna, en þar eru ekki margir af hörðustu fylgismönnum hans, sem hvað mest hafa beitt sér fyrir kjöri hans og skipulagt starfsemi stuðningsmann- anna. Aberandi er, hversu yfir- gnæfandi fjöldi á listanum er úr röðum Sjálfstæðismanna, og síðan Framsóknarmanna, einkum SÍS manna, en aftur á móti kynleg fæð Alþýðuflokksmanna og mjög fáir Sósíalistar. Fjærvera Alþýðuflokks- manna stafar ekki af áhugaleysi áhrifamanna þess flokks heldur er þetta skynsamlega hugsað ráð, sem fundið var upp í innsta hring flokksins. Þrir íslenzkir ráðherrar eru meðal stuðningsmanna á list- anum. Ber þar fyrst að nefna dr. Bjama Benediktsson, forsætisráð- herra. Nafn hans á þessum lista er í rauninni einskonar óopinber yfir- lýsing um að Sjálfstæðisflokkurinn styðji framboðið. Það getur vel verið, að dr. Bjarni sé ekki sem stendur vinsælasti stjórnmálamaður fslendinga, en hann er líklega einn sá virtasti, þrátt fyrir allt. And- stæðingar finna honum margt til foráttu, en draga ekki í efa heiðar- leika hans og festu. Þetta er reyndar dálítið líkt því og einu sinni var með Eystein Jónsson, þótt það til- heyri nú sögunni. Mikill meirihluti Sjálfstæðismanna mun, þegar á reynir fara eftir vilja helztu for- ystumanna sinna, þótt mikið hafi þess gætt, einkum framan af, að kosning forseta eigi að vera ópóli- tísk. Sjálfstæðismenn vilja, þegar á hólminn er komið, fremur kjósa mann, sem þeir vita fylgja stefnu þess flokks, heldur en þann, sem ekki hefur verið starfandi í þjóð- málum og er að heita má ópóli- tískur. Auk þess er áróðursvél stuðningsmanna dr. Gunnars stjórn- að af úrvali þeirra manna, sem fyrir 16 árum studdu herra Ásgeir Ásgeirsson til forseta og flest tann- hjól kosningamaskínu Sjálfstæðis- flokksins munu einnig snúast í sömu átt. Því má telja, að dr. Gunn- ari sé mikill fengur að nafni dr. Bjarna á listanum, þótt miður góð- viljaðir andstæðingar brosi í kamp- inn og segi, að verri grikk hafi for- sætisráðherrann ekki getað gert sínum gamla kunningja, en vera meðal yfirlýstra stuðningsmanna hans. Annar ráðherra, sem styður framboð dr. Gunnars er Ingólfur á Hellu. Sá maður er ótrúlega vin- sæll meðal mikils hluta bændastétt- arinnar og ná persónuáhrif hans langt út fyrir raðir Sjálfstæðis- flokksins. Sá af ráðherrum Alþýðu- flokksins, sem vottar dr. Gunnari hollustu, er yngsti og vinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar, Eggert G. Þorstcinsson, félagsmálaráðherra. Störf þessa unga manns í rfkis- stjórninni hafa vakið undrun and- stæðinga hans og furðu litla öfund samherja, enda maðurinn allur þannig, sem margir íslendingar vilja gjarna hafa stjórnendur sína: að hann gæti, ef svo bæri undir, alveg hugsað sér að fara úr rönd- óttu ráðherrabuxunum og skrýðast múraragallanum á ný, án þess að fella mörg tár. Því má fullyrða, að ef þessir þrír ráðherrar beita sér mjög fyrir þeim málstað, sem þeir hafa vottað stuðn- ing að þessu sinni, getur það haft furðu mikið að segja á kjördegi. Þótt ríkisstjórnin í heild sé ekki sérlega vinsæl meðal almennings þessa stundina, eru áhrif einstakra ráðherra hennar mikil, ef þeim er beitt af þeirri lagni, sem við þarf að hafa á stundum sem þessum. Sjólfstœðismenn. Á stuðningsmannalista dr. Gunn- ars er að finna marga helztu for- ystumenn Sjálfstæðisflokksins. Sá þeirra, sem líklega yrði fengsælast- ur veiðimaður á höfuðborgarsvæð- inu er Geir Hallgrímsson borgar- stjóri. Nafn hans beinir mörgum óráðnum kjósandanum að réttum dálki á kjördegi. Þrátt fyrir hita-* veituna og holumar í malbikinu nýtur þessi gjörvilegi leiðtogi ungra Sjálfstæðismanna trausts allra sem til hans þekkja. Gísli Halldórsson, arkitekt, for- seti ÍSÍ er fremur nafn en númer, Margir íslendingar virðast hafa óljósar hugmyndir um embættis- skyldur forsetans og hvcr raun- veruleg völd hans eru. Þykir því rétt að birta hér þrjátíu fyrstu greinar stjómarskrárinnar, en í þeim er fjallað um stjómarform lýðveldisins. I. 1. gr. ísland er lýðveldi með þingbund- inni stjórn. 2. gr. Alþingi og forseti fslands fara saman með löggjafarvaldið. Forseti og önnur stjórnarvöld samkvæmt stjórnarskrá þessari og öðmm lands- lögum fara með framkvæmdar- valdið. Dómendur fara með dóms- valdið. þó getur verið að fremur sé til hagsbóta að hafa hann meðal yfir- lýstra stuðningsmanna. Ungt fólk mun hinsvegar taka eftir nafni Ólafs B. Thors, sem segja má að sé einskonar „Kennedy“ tmgra Sjálfstæðismanna. Er það ekki að- eins fyrir hæfileika og gáfur, held- ur ekki síður vegna nafns síns og viðkunnanlegra fj ölskyldutengsla hér og þar. Er trúlegt, að það komi dr. Gunnari allmikið til tekna að hafa bróðurson Ólafs heitins Thors meðal meðmælenda sinna. Aðrir Sjálfstæðismenn, sem vega verulega á stuðningsmannalistan- um eru t. d. Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Verzlunarbankans, sem er í senn virtur og dálítið „myst- ískur“; einn af fáum fagurkerum Sjálfstæðisflokksins og hefur stjórn- að banka verzlunar- og kaupmanna af skörungsskap. Höskuldur er bankastjóri og það eru 10 aðrir af hinum 300, auk þess er skipulags- stjóri stuðningsmannanna banka- stjóri og viða kunnugur. Guðmundur H. Garðarsson, við- skiptafræðingur, er fulltrúi „raun- særra“ Sjálfstæðismanna í þessum hópi. Þetta er ötull ungur maður, sem leynir á sér og hefur víða nokk- ur ítök, einkum meðal verzlunar- manna. Birgir fsl. Gunnarsson, lögfræð- ingur, er viðfelldin persóna og all- irtikið lið að honum, enda þótt telja megi hann meðal „atvinnupólitík- usa“, sem oftast eru litnir hom- auga, nema í Alþýðuflokknum. Góðir stofnar standa að Birgi og hann hefur ýmis sambönd, sem verða að liði. Sveinn útgerðarmaður Benedikts- son er atgervismaður til sálar og líkama, þótt hann kunni ekki að meta Framsóknarmenn sem skyldi. Með honum eru á þessum lista 7 kunnir útgerðarmenn, m. a. Guð- finnur Einarsson frá Bolungarvík, II. 3. gr. Forseti íslands skal vera þjóð- kjörinn. 4. gr. Kjörgengur til forseta er hver 35 ára gamall maður, sem fullnægir skilyrðum til kosningarréttar til Alþingis, að fráskildu búsetuskil- yrðinu 5. gr. Forseti skal kjörinn beinum, leynilegum kosningum af þeim, er kosningarrétt hafa til Alþingis. For- setaefni skal hafa meðmæli minnst 1500 kosningarbærra manna og mest 3000. Sá, sem flest fær at- kvæði, ef fleiri en einn eru í kjöri, er rétt kjörinn forseti. Ef aðeins einn maður er í kjöri, þá er hann rétt kjörinn án atkvæðagreiðslu. Að öðru leyti skal ákveða með sem er mikill heiðursmaður eins og hann á kyn til. Sveinn er vís til að drífa nokkuð hð á vettvang, þó ekki allan ættmennahópinn, en það er önnur saga. Sveinn hefur aldrei verið vinsæll, en alltaf verið fal- inn trúnaður, því hann er ham- hleypa til starfa og næstgreindast- ur þeirra bræðra. Allir vita, að Sigurður Ágúslsson, útvegsmaður og fyrrv. alþingismað- ur, er vænsti maður, þótt útgerð hafi ekki gengið átakalaust frá Stykkishólmi síðustu ár. Hann hef- ur um sig traustan kjarna aðdáenda, auk þess sem dr. Gunnar nýtur frá fyrri tíð vinsælda í hinu gamla kjördæmi Sigurðar. Ólafur Jónsson frá Sandgerði er meðal vitrustu útgerðarmanna sam- tíðarinnar. Hann hefur ekki fiktað verulega við stjórnmál, enda erfitt að koma við hann beizli. Starfs- menn hans kunna hinsvegar að meta dugnað hans og kjark og margir Suðurnesjamenn munu taka tillit til þess á kjördegi. Margir aðrir Sjálfstæðismenn eru kallaðir til leiks. Árni Snævarr verkfræðingur er landsþekktur sómamaður, ekki sér- lega líklegur til atkvæðaveiða, en þó áhrifamaður á sínu sviði. Baldvin Tryggvason stjómar Al- menna bókafélaginu af einkenni- legu sambandi af fésýslu og góðum smekk, samvizkusamur heimsborg- ari, sem er viss sjarmi að hafa með- al stuðningsmanna. Þótt Guðjón í Iðju sé nú búinn að stjórna sínu fólki vel og lengi, er ekki víst, að það fylgi honum allt að þessu sinni og mun hann bera það með karlmennsku, eins og hans er vandi. Pétur kaupmaður Sigurðsson er fulltrúi samtaka kaupmanna, auk Sigurðar Magnússonar. Þessir tveir menn eru báðir hörkuduglegir ræð- arar, en getur brugðið til beggja lögum um framboð og kjör for- seta, og má þar ákveða, að tiltekin tala meðmælenda skuli vera úr landsfjórðungi hverjum í hlutfalli við kjósendatölu þar. 6. gr. Kjörtímabil forseta hefst 1. ágúst og endar 31. júlí að 4 árum liðn- um. Forsetakjör fer fram í júní eða júlímánuði það ár, er kjör- tímabil endar. 7. gr. Nú deyr forseti eða lætur af störfum, áður en kjörtíma hans er lokið, og skal þá kjósa nýjan for- seta til 31. júlí á fjórða ári frá kosn- ingu. 8. gr. Nú verður sæti forseta laust eða hann getur ekki gegnt störfum um sinn vegna dvalar erlendis, sjúk- leika eða af öðrum ástæðum, og vona um árangurinn af starfi þeirra. Vinsælir eru meðal alþýðu bæði Bjöm flugmaður Pálsson, sem oft hefur verið getið í blöðum hin síð- ari ár að öllu maklegu, og Birgir handknattlciksmaður Bjömsson, sem nýtur mikilla vinsælda meðal íþróttamanna. Þá eru þeir Þórður liappdrættis- forstjóri Benediktsson og Grímur Bjarnason, pípulagningamcistari, ágæt kjölfesta fyrir roskið fólk, sem er í vafa við þetta tækifæri. Jón Sólnes bankastjóri er hins- vegar hin ákjósanlegasta jarðýta fyrir óákveðna Sjálfstæðismenn á Norðurlandi, enda er hann vís til að skófla þeim í viðkomandi kassa. Alþýðuflokksmenn eru tiltölulega miklu færri í þess- um hópi. Áður var getið Eggerts G. Þorsteinssonar, en auk hans er Oskar rafvirkjameistari Ilallgríms- son stuðningsmaður dr. Gunnars. Er það tvíeggja vopn. Adolf bankafulltrúi Björnsson hefur hins vegar frá gamalli tíð ýmis sambönd, sem geta orðið að liði og hefur hann mikinn áhuga á að dr. Gunnar nái kjöri. Vigfús oddviti Jónsson á Eyrar- bakka, er valinkunnur sómakarl, sem mun fylkja þéttu liði austan- manna. Þá er ekki hægt að komast hjá að nefna Unnar viðskiptafræðing Stcf- ánsson, sem er með ötulustu ung- um jafnaðarmönnum og flest vel gefið. Framsóknarmenn senda frítt lið til þessarar keppni og til ýmissa hluta nytsamlegt mál- staðnum. Líklega er Sigurjón forstjóri Guð- mundsson, sem jafnan er kenndur við Freyju, langötulastur starfs- maður meðal Framsóknarmanna. Hann hefur unnið linnulaust að því síðustu vikurnar að smala byggðir landsins, er víða heima í þjóðmál- um og hefur haft mikil áhrif bak við tjöldin í Framsóknarflokknum. Nú hefur hann sagt af sér trúnaði þar og hefur því getað helgað sig að mestu framgangi þessa máls. Undarlega margir Sambandsmenn eru meðal stuðningsmanna dr. Gunnars. Þar er hinn skörulegi Ásgeir tryggingaforstjóri Magnús- son, sem mun fremur styðja dr. Gunnar af tryggð við herra Ásgeir Ásgeirsson en af innri hvötum. Ás- geir er áhrifamaður, en ekki beint á opinberum vettvangi, heldur í baksölum. Amþór Þorsteinsson á Akureyri skulu þá forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti hæsta- réttar fara með forsetavald. For- seti sameinaðs Alþingis stýrir fund- um þeirra. Ef ágreiningur er þeirra í milli, ræður meiri hluti. 9. gr. Forseti lýðveldisins má ekki vera alþingismaður né hafa með hönd- um launuð störf í þágu opinberra stofnana eða einkaatvinnufyrir- tækja. Ákveða skal með lögum greiðsl- ur af ríkisfé til forseta og þeirra, sem fara með forsetavald. Óheim- ilt skal að lækka greiðslur þessar til forseta kjörtímabil hans. 10. gr. Forseti vinnur eið eða drengskap- arheit að stjórnarskránni, er hann tekur við störfum. Af eiðstaf þess- Hvert er valdsvið forset- ans samkvæmt lögum? er öflugur maður í sinni sveit og líklegur til nokkurra afreka þótt starfsfólki hans hafi fækkað. Grétar mjólkurbúsforstjóri Sím- onarson á Selfossi kann að skipa fyrir verkum, en ekki mun hann njóta lýðhylli austur þar. Hinsveg- ar er Hjalti forstjóri Pálsson lík- lega sá Framsóknarmaður, sem rær með beztum árangri á kjósenda- miðin, ef hann hefur sig í frammi. Hjalti er landsþekktur dugnaðar- maður, bezti drengur og hefur eng- inn af honum neitt misjafnt að segja. Er það fremur fátítt. Jón áfengisverzlunarforstjóri Kjartansson er gegn maður og með allra ópólitískustu mönnum. Hann nýtur vinsælda á Siglufirði og víð- ar, vegna persónu sinnar og þægi- legra eiginleika, sem munu verða liollvini hans til framdráttar. Sigtryggur seðlabankastjóri Klem- cnzson er óskiljanlegur maður á þessum lista. Líklega er sú skýr- ing réttust, þótt alþýðleg sé, að honum líki betur við dr. Gunnar en Eystein Jónsson, sem hann met- ur þó umfram flesta menn, enda hafa þeir starfað saman um ára- tugi. Svanbjörn bankastjóri Frímanns- son styður dr. Gunnar, það gerir líka bróðir hans Jakob kaupfélags- stjóri KEA. Annar þeirra bræðra aflar nokkurs fylgis. Sómamaður er enn einn banka- stjórinn, Þórhallur Tryggvason í Búnaðarbankanum. Honum er reyndar málið skylt. Engu að síður er mikill fengur að stuðningi hans fyrir hð dr. Gunnars, því alls stað- ar hefur sá maður orðið til heilla, þar sem hann hefur nálægt komið. Rétt er að skýra frá því, að Bcmharð Stefánsson, fyrrv. alþing- ismaður, styður dr. Gunnar. Þótt Bernharð sé hættur afskiptum af stjórnmálum og sitji nú á friðar- stóh við flesta menn, hefur hann ýmis sambönd, sem koma munu að haldi við þetta tækifæri. Sósíalistar eru ekki margir á lista stuðnings- mannanna. Sá, sem helzt er þar atkvæðamaður, er Jón Ingimars- son á Akureyri, sem hefur um sig traustan kjarna nyrðra og er í alla staði merkur maður og gegn. Nafn Bolla Thoroddsen mun frem- ur vera vísbending um einhverja aðra, en að það laði vinstri menn til fylgis við frambjóðandann. Frekar væri það Skúli augnlækn- ir Thoroddscn sem er vinsæll meðal alþýðu vegna lækninga og kona hans, Drífa Viðar, áhrifakona í um eða heiti skal gera tvö sam- hljóða frumrit. Geymir Alþingi annað, en þjóðskjalasafnið hitt. 11. gr. Forseti lýðveldisins er ábyrgðar- laus á stjórnarathöfnum. Svo er og um þá, er störfum hans gegna . Forseti verður ekki sóttur til refsingar nema með samþykki Al- þingis. Forseti verður leystur frá em- bætti, áður en kjörtíma hans er lokið, ef það er samþykkt með meiri hluta atkvæða við þjóðar- atkvæðagreiðslu, sem til er stofnað að kröfu Alþingis, enda hafi hún hlotið fylgi % hluta þingmanna í sameinuðu þingi. Þjóðaratkvæða- greiðslan skal þá fara fram innan tveggja mánaða, frá því að krafan um hana var samþykkt á Alþingi, og gegnir forseti eigi störfum, frá því að Alþingi gerir samþykkt sína, þar til úrslit þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar er kunn. Nú hlýtur krafa Alþingis eigi samþykki við þjóðaratkvæðagreiðsl- una, og skal þá Alþingi þegar í stað rofið og efnt til nýrra kosninga. 12. gr. Forseti lýðveldisins hefur aðset- ur í Reykjavík eða nágrenni. 13. gr. Forsetinn lætur ráðherra fram- kvæma vald sitt.

x

Forsetakynning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forsetakynning
https://timarit.is/publication/813

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.