Forsetakynning - 17.05.1968, Blaðsíða 5

Forsetakynning - 17.05.1968, Blaðsíða 5
Föstudagur 17. maí 1968 HORSETAKYNN!NG 5 hafa unnið gott starf að æskulýðs- málum, heimsótt snauða án aug- lýsingastarfsemi og rétt mörgum hjálparhönd án þess að fá skilding að launum. Er óhætt að segja þá báða vera öfluga liðsmenn dr. Gunn- •s. Þá er sr. Þorstcinn Bjömsson, Fríkirkjuprestur, betri en enginn liðsmaður. Þetta litla samfélag, sem á hverjum sunnudegi kemur saman við Tjömina, mun vísast fylkja liði með presti sínum og em þar ýmsir öflugir menn, þótt Sigurliði kaup- maður muni þeirra stöndugastur. Aðrir klerkar, sem talsverð áhrif hafa eru Andrés Ólafsson, prófast- ur á Hólmavik, sanntrúaður Sjálf- stæðismaður, sr. Þorsteinn Lútcr Jónsson í Vcstinannaeyjum, sr. Bragi Friðriksson, Garðahreppi og sr. Sigurður Ilaukdal. Læknar eru í þessu liði 12 tals- ins og er það fjölmenni, miðað við flestar aðrar stéttir. Helgi á Vífilsstöðum er ýkjulaust einn vinsælasti læknir þeirra, sem nú eru starfandi og hefur hann þó dregið sig að nokkru í hlé. Þessi húðvæni, samvizkusami læknir hef- ur ótrúlega margt gott á samvizk- unni og geta varla aðrir stuðnings- menn dr. Gunnars vænzt þess að beina fleirum í sína slóð en hann. Það væri þá helzt Oddur Ólafs- son á Reykjalundi, en hann hefur ótrúleg persónuáhrif, sem leysa upp í svip alla pólitík, ef hann mundi beita sér að einhverju ráði. Hætt er við, að lagt verði að þessum sóma- mönnum báðum að hafa sig nokkuð í frammi og mun það hafa mikið að segja. Páll Gíslason, sjúkrahúslæknir á Akrancsi er afburða læknir og gegn maður, sem líka hefur mikil áhrif vegna stöðu sinnar og persónu. Öðru máli gegnir um Jóhann hér- aðslækni Þorkclsson á Akureyri. Það er ekki afkastamaður í smölun, nokkuð fullorðinn fyrir aldur fram og einkar hægfara í öllum athöfn- um. Þeir augnlæknarnir Úlfar Þórðar- son og Skúli Thoroddsen eru báðir athafnasamir fyrir dr. Gunnar. Úlfar mun þó hafa breiðari grundvöll en Skúli. Sigurður Sigurðsson landlæknir er stuðningsmaður dr. Gunnars og þótt þetta sé valinkunnur maður og ágætur vísindamaður hefur hann sáralítil persónuáhrif, nema e. t. v. innan stéttar sinnar og þá eingöngu meðal eldri lækna. Konur Reykjavíkursvæðisins munu í stórum hópum fylgjast að þangað, sem leið Jónasar Bjarna- sonar í Hafnarfirði liggur. Aðrir læknar eru dr. Gunnlaug- ur Snædal, Kjartan Jóhannsson í Kópavogi, valmenni, sem alls staðar hefur glúrin álirif, Ólafur Bjarna- son, prófcssor, vinsæll maður og virtur og Snorri Ólafsson, yfir- læknir á Kristneshæli. Einn þekktur stúkumaður er meðal hinna yfirlýstu stuðnings- manna dr. Gunnars; er það herra Einar Björnsson, fulltrúi, Alþýðu- flokksmaður, íþróttasinnaður góð- borgari, sem varla fælir neinn frá, en vafamál að nokkrum snúist hug- ur vegna afstöðu hans. Fi'amihald á niæstu sáðu. MAR6IR KALLABIR TVtlR ÚTVALDIR samtökum vinstrikverma í landinu. Aðrir sósíalistar eru aðeins Tcitur Þorleifsson og Kristinn Ág. Eiríks- son og eru það örugg tvö atkvæði. Stéttaskipting hinna 300: Útgerðarmenn ................. 7 Verkamenn .................... 13 Húsfreyjur ................... 30 Verzlunarmenn og framkv.stj. 57 Nemendur ..................... 7 Kexmarar og skólastjórar.... 7 Bændur ....................... 15 Iðnaðarmenn ................. 14 Opinberir starfsmenn ......... 47 Æðstu opinberir starfsm....... 13 Verkfræðingar og tæknifr.... 4 Bankastjórar ................. 11 Listamenn .................... 13 Sjómenn og skipstjórar ....... 13 Prestar ...................... 10 Læknar ....................... 12 Ýmsir ........................ 27 Meðal hinna 300 stuðningsmanna dr. Gunnars Thoroddsens er fólk úr nær öllum stéttum þjóðfélagsins. Þar eru sýslumenn og prestar, bæjarstjórar og fasteignasalar, lista- menn og kaupfélagsstjórar. Hér koma til önnur sjónarmið en hin pólitísku, þótt þau séu einnig nokkurs ráðandi. Til dæmis eru bæjarstjórar miklir áhrifamenn í héraði og beiti þeir sér að marki getur það haft mikið að segja. Stuðningsmenn dr. Gunnars með- al bæjarstjóra eru 7. Þar er Sjálf- stæðispilturinn Magnús Magnússon í Vestmannaeyjum, vinsæll meðal innfæddra, sem þó vita jafnan kost og löst á náunga sínum. Vestmanna- eyjar eru meðal einkennilegustu fyrirbæra íslenzks þjóðfélags. Heimamenn líta á sig sem sjálf- stæða þjóð, allmikið æðri öðrum landsmönnum, enda er hlutur þeirra í framleiðslunni allstór miðað við höfðatölu. Þó leita nú til lands ýmsir leiðtogar þeirra í andlegum og veraldlegum efnum. Baldur bankastjóri er fluttur í Garðahreppinn og Asi í Bæ til Reykjavíkur. Enn eru þó ýmsir stólpagripir Eyjanna í fullu fjöri og varla munu þeir vinirnir Björn Guðmundsson og Helgi Benedikts- son hyggja á flutninga að sinni. Jóhaiui Einvarðsson bæjarstjóri á Isafirði er ungur Framsóknar- krati. Hann starfaði lengi í Fjár- málaráðuneytinu, m. a. undir stjórn dr. Gunnars. Frændur hans eru ekki margir meðal ísfirðinga, held- ur sunnar í landinu, en hann þykir hafa leyst störf sín þokkalega af hendi á þeim stutta tíma, sem hann hefur verið á ísafirði. Þó er ekki líklegt að stuðningur hans hafi veruleg áhrif, þar koma annarra ráð til. Björn bæjarstjóri á Húsavik Frið- finnsson er vel ættaður, enda greindastur þeirra starfsbræðra, sem enn hafa verið taldir. Frið- finnur í Háskólabíói, faðir hans, er þekktur gáfumaður og húmor- isti, smekkmaður hinn mesti og merkilega heilsteypt persóna, þrátt fyrir ýmsar kollsteypur um dag- ana. Móðir Bjöms mun þó ekki síðri til höfuðsins, enda ættuð úr Grímsey af sómafólki. Auk þessara ungu manna í áhrifastöðum styðja dr. Gunnar þeir Ásgrímur Ilartmannsson, bæj- arstjóri á Ólafsfirði, Stefán Frið- bjarnarson, Siglufirði og Guðfinn- ur Magnússon, Iinífsdal. Má full- yrða, að mikið lið sé að fulltingi þeirra allra, einkum Stefáns, sem er þaulvanur áróðursmeistari. Fógetar cru 4, sem ganga fram fyrir skjöldu á þessari örlagastundu. Einar Oddsson, sýslumaður í Vík er Sjálfstæðismaður; rólyndismað- ur, sem allir virða sem kyrrlált yfirvald, en röggsemin hefur ekki verið tiltakanleg, enda þeir Skaft- fellingar ekki vanir því að hlýða lögunum í einu og öllu nú fremur en endranær. Þó má fullyrða, að Einar sýslumaður dragi með sér nokkurt lið á vettvang. Jón Isberg, yfirvald Ilúnvetninga, er ekki vinsæl persóna af alþýðu manna. Spurning er, hvort sýslu- menn þurfi að vera vinsælir. Hann er mjög samvizkusamur embættis- maður og kunna Húnvetningar mis- jafnlega að meta, hve mjög eru nú hin síðari ár tekin ökuleyfi af mönnum, sem aka bifreiðum sín- um ölvaðir. Ovíst er að það hafi verulega mikið að segja, að ísberg styður dr. Gunnar, þó er hann at- orkumaður, ef hann beitir sér. Þungt verður undir árum fyrir Sigurð Guðjónsson, fógeta Ólafs- firðinga, að vinna dr. Gunnari al- mennt fylgi þar í plássi, því öfl- ugir menn eru þar starfandi, sem vinna mjög fyrir dr. Kristján Eld- jám, ganga í hvert hús og boða erindi sitt. Friðjón Skarpliéðinsson, sem ný- lega fékk yfirborgarfógetaembættið í Reykjavík, styður eins og eðlilegt er tengdason herra Ásgeirs Ás- geirssonar. Eru þar mörg tengsl ekki sjáanleg, en þar á mikinn þátt í félagsskapur sá, sem þeir herra Ásgeir og Friðjón eru saman um. Friðjón er af kunnugum talinn með allra beztu mönnum, sem komið hafa nærri stjómmálum síð- ustu áratugi, enda sá hann sig fljótt um liönd. Embætti hans er næst- bezta embætti á landinu hvað tekj- ur snertir og horfur á að ekki dragi úr því í náinni framtíð. Friðjón er skáldlega sinnaður sveimhugi, þeg- ar hann getur komið því við fyrir hinum 1200 uppboðsbeiðnum, sem nú liggja fyrir embætti hans. Nafn hans á lista stuðningsmanna mun ekki hafa veruleg áhrif í Reykja- vík, heldur á Akureyri, þar sem hann nýtur trausts og virðingar samherja jafnt sem andstæðinga. Prestar em hlutfallslega fjöl- mennari á lista dr. Gunnars en allar aðrar stéttir þjóðfélagsins. Vera má, að prestar almennt hafi meiri áhuga en aðrir á forseta- kosningum, aðrir segja að dr. Gunnar hafi reynzt kirkjunni vel, þegar hann var ráðherra og er það líklegt. Allir vita, að áhrif presta- stéttarinnar hafa aldrei verið minni meðal þjóðarinnar. Er það að von- um, þar sem bæði koma til hinar miklu þjóðfélagsbreytingar og stéttin sjálf hefur líklega aldrei verið bágbornari og sjálfri sér sund- urþykkari en nú. Meðal stuðnings- manna dr. Gunnars er á hinn bóg- inn margt hinna jákvæðari klerka; menn sem gert hafa tih-aunir til að starfa raunhæft í hinu marg- brotna þjóðfélagi, en ekki aðeins í prédikunarstólnum, þótt þeir hafi hlotið fremur ómakleg málagjöld sumir hverjir. Séra Árelíus er líkast til næst- frægasti prestur landsins á eftir séra Jakobi Jónssyni, dr. theol. Um hann hafa staðið miklar deilur og sjálfur hefur hann ekki hikað við að hætta sér fram á yztu nafir til að huga að þeim, sem þurfandi væru. Séra Árelíus er undarlegt sambland af Framsóknarmanni og spámanni. Fjöldi fólks tekur hverju orði, sem fram gengur af munni hans sem heilögum staf — aðrir reyta hár sitt og hrópa ókvæðisorð. Allt bendir þetta til þess að maður- inn sé merkari en ræður hans og greinar gefa til kynna. Því mun óhætt að fullyrða að sr. Árelíus bæði dragi að dr. Gunnari og dr. Ki-istjáni, með nærveru sinni. Séra Eiríkur J. Eiríksson, þjóð- garðsvörður er ekki tiltakanlegur áhrifamaður, þótt hann sé forseti Ungmennafélags Islands. Söfnuður hans er með hinum minni hér sunn- anlands og fræðigrúsk hans og aðr- ar hneigðir gera hann vart að öfl- ugum stuðningsmanni. Því er öfugt farið með sr. Ólaf Skúlason og sr. Sigurð Ilauk Guð- jónsson, en þeir eru báðir geysi starfssamir í stórum prestaköllum, Dagblöðin hafa verið stikkfrí í kosningabaráttunni af skiljanlegum ástæðum, þar sem aðstandendur blaðanna eru mjög skiptir í af- stöðu sinni til frambjóðendanna tveggja. Ekkert blaðanna, utan Þjóðviljinn um stundarsakir, hafa birt úrslit í prófkosningum, sem hafa farið fram víða á vinnustöð- um, af ótta við að þær fréttir kynnu að verka neikvætt fyrir annan hvorn aðilann. Aftur á móti birti Alþýðublaðið þriðjudaginn 9. janúar forsíðufrétt með fyrirsögninni: Hver v.erður næsti forscti íslands? en þá hafði sem kunnugt er ekki komið fram neitt framboð. Gefum Alþýðublað- inu orðið: „Langt er síðan helztu stuðnings- menn Gunnars tóku að undirbúa framboð hans. Þótti hann sem stjórnmálamaður líklegt forsetaefni og hefir aukið hróður sinn að þessu leyti sem sendiherra í Kaupmanna- höfn. Augljóst er þó, að veruleg and- staða er gegn Gunnari. Stafar hún sumpart af pólitískum rótum, én sumpart af því, að Gunnar er tengdasonur núverandi forseta, þótt eiginkonan sé honum til mikils sóma. Enda þótt margt hafi verið skegg- rætt um þessi mál á bak við tjöld stjórnmálanna, hefur ekki svo vit- að sé orðið samkomulag um neinn frambjóðanda á móti Gunnari. Þessa daga er helzt talað um Hanni- bal Valdimarsson alþingismann og forseta Alþýðusambands Islands, en þó óljóst hverjir mundu standa að framboði hans. Hér verða á eftir taldir í staf- rófsröð nokkrir þeirra manna, sem nefndir hafa verið forsetaefni manna á meðal meira eða minna. Rétt er að taka fram, að ýmsum þeim er sleppt, sem eru á svipuð- um aldri og núverandi forseti, svo sem fyrrverandi ambassadorunum Stefáni Jóh. Stefánssyni, dr. Kristni Guðmundssyni og Haraldi Guð- mundssyni, Vilhjálmi Þ. Gíslasyni og Hermanni Jónassyni. Agnar Klemenz Jónsson ráðu- neytisstjóri, víðreyndur og víðreist- ur diplómat og fræðimaður, sem kann allra manna bezt það, sem kunna þarf til starfans. Einar Olafur Sveinsson, prófessor og norrænn fræðimaður, sem nýt- ur viðurkenningar víða um lönd. Ymsir hallast að fræði- og lista- mönnum í forsemaembættið. Einar Olgeirsson, svipmikill bar- áttumaður og leiðtogi íslenzkra kommúnista, sem hefur nú dregið sig frá þingstörfum. Emil Jónsson, einn reyndasti og traustasti stjómmálamaður þjóðar- innar síðustu 40 ár, fyrrverandi for- sætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis o. fl. o. fl. Halldór Laxness, Nóbelhöfundur, frægastur íslenzkra listamanna nú- tímans, mikill heimsborgari. Hinrik Sv. Björnsson, ambassa- dor og þrautreyndur diplómat, en sonur fyrrverandi forseta, Sveins Bjömssonar. Kristján Eldjárn, fornminjavörð- ur, viðurkenndur fræðimaður, al- þýðlegur en virðulegur ræðumaður, sbr. sjónvarpsþætti. Jónatan Ilallvarðsson, forseti hæstaréttar, viðurkenndur laga- maður úr æðstu stofnun þess arms ríkisvaldsins. Pétur Thorsteinsson, ambassador á ótal höfuðbólum frá Moskvu til Washington og hinn færasti dipló- mat Þessum mönnum er það sam- eiginlegt, að þeir hafa verið oft nefndir í tah um forsetaefni. Vitað er um marga þeirra, að þeir taka sjálfir ekki í mál að verða við þetta riðnir á nokkum hátt. Hafa nöfn sumra verið minna nefnd en ella sökum þess, að vitað er um slíka afstöðu þeirra. ,Forseta- kynning' er stuðningsblað kjós- enda í forsetakosning- unum 30. júní 1968, en algjörlega óháð fram- bjóðendum. Blaðið flyt- ur allar upplýsingar og fróðleik um forsetakjör- ið, sem það hefur aðgang að og orðið gætu kjós- endum að gagni. Blaðið kemur út svo oft sem kaupendum þóknast og útgefendum þykir á- stæða til. Blaðið kostar kr. 15 í lausasölu, en tekur af skiljanlegum á- stæðum ekki við áskrif- endum. Ráðuneytið hefur aðsetur 1 Reykjavík. 14. gr. Ráðherrar bera ábyrgð á stjórn- arframkvæmdum öllum. Ráðherra- ábyrgð er ákveðin með lögum. Al- þingi getur kært ráðherra fyrir em- bættisrekstur þeirra. Landsdómur dæmir þau mál. 15. gr. Forseti skipar ráðherra og veitir þeim lausn. Hann ákveður tölu þeirra og skiptir störfum með þeim. 16. gr. Forseti lýðveldisins og ráðherrar skipa ríkisráð, og hefur forseti þar forsæti. Lög og mikilvægar stjórnarráð- stafanir skal bera upp fyrir for- seta í ríkisráði. 17. gr. Ráðherrafund skal halda um ný- mæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Svo skal og ráð- herrafund halda, ef einhver ráð- herra óskar að bera þar upp mál. Fundunum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis, og nefnist hann forsætis- ráðherra. 18. gr. Sá ráðherra, sem mál hefur und- irritað, ber það að jafnaði upp fyrir forseta. 19. gr. Undii'skrift forseta lýðveldisins undir löggjafarmál eða stjórnarer- indi veitir þeim gildi, er ráðherra ritar undir þau með honum. 20. gr. Forseti lýðveldisins veitir þau embætti, er lög mæla. Engan má skipa embættismann, nema hann hafi íslenzkan ríkis- borgararétt. Embættismaður hver skal vinna eið eða drengskaparheit að stjórnarskránni. Forseti getur vikið þeim frá em- bætti, er hann hefur veitt það. Forseti getur flutt embættismenn úr einu embætti í annað, enda missi þeir einskis í af embættistekjum sínum, og sé þeim veittur kostur á að kjósa um embættaskiptin eða lausn frá embætti með lögmæltum eftirlaxmum eða lögmæltum elli- styrk. Með lögum má undanskilja ákveðna embættismannaflokka auk embættismanna þeirra, sem taldir eru í 61. gr. 21. gr. Forseti lýðveldisins gerir samn- inga við önnur ríki. Þó getur hann enga slíka samninga gert, ef þeir hafa í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef þeir horfa til breytinga á stjórnarhögum , ríkisins, nema samþykki Alþingis I komi tiL 22. gr. Forsetinn stefnir saman Alþingi ár hvert og ákveður, hvenær því skuli slitið. Þingi má eigi slíta fyrr en fjárlög eru samþykkt. Forseti lýðveldisins kveður Alþingi til aukafunda, þegar nauðsyn er til. 23. gr. Forseti lýðveldisins getur frestað íundum Alþingis tiltekinn tíma, þó ekki lengur en tvær vikur og ekki nema einu sinni á ári. Alþingi get- ur þó veitt forseta samþykki til afbrigða frá þessum ákvæðum. 24. gr. Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, áður en 2 mánuðir séu liðnir, frá því er það var rofið, enda komi Alþingi saman eigi síðar en 8 mánuðum eftir, að það var rofið. 25. gr. Foi'seti lýðveldisins getur látið leggja fyrir Alþingi frumvörp til laga og annarra samþykkta. 26. gr. Ef Alþingi hefur samþykkt laga- frumvai'p, skal það lagt fyi'ir for- seta lýðveldisins til staðfestingar eigi siðar en tveim vikum eftir að það var samþykkt, og veitir stað- festingin því lagagildi. Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður laga- gildi, en leggja skal það þá svo I fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra manna í land- inu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu. 27. gr. Birta skal lög. Um birtingarháttu og framkvæmd laga fer að lands- lögum. 28. gr. Þegar brýna nauðsyn ber til, get- ur forsetinn gefið út bráðabirgða- lög milli þinga. Ekki mega þau þó ríða í bág við stjórnarskrána. Ætíð skulu þau lögð fyrir næsta Alþingi á eftir. Nú samþykkir Alþingi ekki bráða- birgðalög, og falla þau þá úr gildi. Bráðabirgðafjárlög má ekki gefa út, ef Alþingi hefur samþykkt fjár lög fyrir fjárhagstímabilið. 29. gr. Forsetinn getur ákveðið, að sak- sókn fyrir afbrot skuli niður falla, ef ríkar ástæður eru til. Hann náð- ar menn og veitir almenna uppgjöf saka. Ráðherra getur hann þó eigi leyst undan saksókn né refsingu, sem landsdómur hefur dæmt, nema með samþykki Alþingis. 30. gr. Forsetinn veitir, annaðhvort sjálf- ur eða með því að fela það öðrum stjórnvöldum, undanþágur frá lög- um samkvæmt reglum, sem farið hefur verið eftir hingað til.

x

Forsetakynning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forsetakynning
https://timarit.is/publication/813

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.