Austurland - 22.06.1956, Blaðsíða 1
Málgagn sósfalista á Anstnrlandi
6. árgangur. Neskaupstað, 22. júní 1956. 21. tölublað.
Sjálfra okkar vegna
kjósum við Lúðvík á þing
Eins og marg oft hefur verið
bent á hér í blaðinu, stendur bar-
attan í þessum kosningum í Suður-
Múlasýslu um það eitt, hvort Lúð-
vík Jósepsson á að halda uppbóta-
sæti sínu áfram, eða ekki. Fram-
sóknarflokkurinn sýnist alveg viss
Kieö að fá báða sína menn endur-
kjörna og engum heilvita manni
kemur til hugar, að nokkur fram-
^jóoandi í kjördæminu annar en
Lúðvík Jósepsson, hafi nokkra
^iöguleika til að liljóta uppbóta-
sæti. Öðrum þræði snúast því kosn-
úigarnar um það, hvort Suður-
Wúlasýsla á að fá þrjá þingmenn,
eða aðeins tvo.
Það er einkum þrennt, sem mun
hvctja kjósendur til að tryggja
Lúðvíki áframhaldandi setu á Al-
þingi.
I fyrsta lagi er Lúðvík viður-
kenndur af öllum almenningi sem
sérstaklega ötull taismaður Aust-
firðinga innan þings og utan. Hann
hefur sérlega staðgóða og yfir-
gripsmikla þekkingu á öllu því, er
lítur að atvinnumálum fjórðungs-
ins og raunar þjóðarinnar allrar,
einkum á sviði útvegsmála. Það er
líka viðurkennt, að hann er sam-
vinnuþýður með afbrigðum og
sýnt um að vinna málum sínum
fylgi, þrátt fyrir tómlæti og sinnu-
leysi æðstu ráðamanna.
Austfirðingar munu hugsa sig
um tvisvar áður en þeir skaða
sjálfa sig með því að afþakka
þjónustu þessa dugmikla og þraut-
reynda baráttumanns. Það fylgi,
sem Lúðvík hefur fengið og fær
er ekki nema að nokkru leyti
flokkslegt fylgi. Að verulegu leyti
samanstendur kjósendahópurinn
af mönnum með aðrar stjórn-
málaskoðanir. En þeir eru ekki
það einstrengingslegir í skoðunum,
að þeir ekki viðurkenni dugnað og
starfhæfni Lúðvíks, eða gildi þess
fyrir kjördæmið, að hann verði
áfram á þingi.
Að þessu sinni munu menn með
aðrar stjórnmálaskoðanir en Lúð-
vík, kjósa hann í enn ríkari mæli
en nokkru sinni áður, því nú er
þeim það Ijóst, að mjög getur
brugðið til beggja vona um.þing-
setu hans.
I öðru lagi er mönnum það ljóst,
að Lúðvík Jósepsson er einn af
helztn talsmönmim náins vinstra
samstarfs á breiðum grundvelli.
Fall Lúðvíks mundi verða mikið á-
fall fyrir þessa hreyfingu. Nú er
það svo, að öllum þorra vinstri
manna er ljós þýðing þess og
nauðsyn, að raunverulegt vinstra
samstarf skapist og það sem allra
fyrst. Þetta fólk þráir ekkert
heitar en einingu alþýðunnar. End-
urkjör Lúðvíks er sigur einingar-
aflanna, en fall hans mjög tilfinn-
anlegur ósigur. Þessvegna verður
því ekki trúað, að einingarsinnar
tryggi ekki þessum ósérplægna
talsmanni vinstra samstarfs end-i
urkosningu og veiti honum þann-
ig aðstöðu til að halda þessari
baráttu áfram, jafnvel þótt stjórn-
málaskoðanir þeirra falli ekki að
öllu leyti saman við skoðanir
Lúðvíks.
1 þriðja lagi viðurkenna kjós-
endur almennt, að það hefur þýð-i
ingu fyrir kjördæmið, að þaðan
séu á þingi menn með ólík sjónar-
mið. Slíkt skapar nokkra sam-
keppni í störfum fyrir kjördæmið,
en henni er ekki til að dreifa, ef
þingmenn héðan eru af sama
sauðarhúsi.
Fari svo, sem ekki er talið alveg
Framhald á 5. síðu.
Frambjóðendur Alþýðubandalagsins í S-Múlasýslu
Þetta eru
Liiðvík Jósepsson.
ykkar merni, þeim getið þið
Helgi Seljan.
Sigurjður Blöndal.
Ásbjörn Karlsson.
treyst. XG
Tryggjum Lúðvíki þingsœti X G