Morgunblaðið - 22.08.2011, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 22.08.2011, Qupperneq 7
ENGLAND Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Manchester City og Wolves eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. City hafði betur gegn Grétari Rafni Steinssyni og fé- lögum hans í Bolton í markaleik, 3:2, og Úlfarnir unnu góðan sigur á Ful- ham, 2:0. Manchester United getur komist upp að hlið City og Wolves í kvöld takist liðinu að leggja Totten- ham að velli á Old Trafford. „Ég var mjög ánægður með leik liðsins. Mér fannst það spila afar vel á móti góðu liði Bolton. Sigurinn var verðskuldaður að mínu mati,“ sagði Roberto Mancini knattspyrnustjóri City eftir leikinn. David Silva, Ga- reth Barry og Edin Dzeko gerðu mörk Manchester-liðsins en Ivan Klasnic og Kevin Davies gerðu mörk Bolton. Grétar Rafn Steinsson lék allan tímann í vörn Bolton. Wenger undir pressu Það gustar mjög um Arsene Wen- ger knattspyrnustjóra Arsenal og í fyrsta skipti frá því hann tók við Lundúnaliðinu fyrir 15 árum er pressa á Frakkanum. Arsenal tapaði á heimavelli fyrir Liverpool, 2:0, og þar með hrósaði Liverpool sigri á Emirates Stadium í fyrsta skipti. Fyrra markið var sjálfsmark frá Aaron Ramsey og það síðara skoraði Úrúgvæinn Luis Suarez en hann kom inná sem varamaður í seinni hálfleik. Mörkin kom skömmu eftir að Arsenal hafði misst Emmanuel Frimpong af velli með rautt spjald á 70. mínútu leiksins. „Ég ætla ekki að stökkva frá borði. Það eru ákveðnir erfiðleikar hjá okk- ur þessa stundina en tímabilið er rétt að byrja. Við vorum án átta leik- manna en mér fannst frammistaða liðsins samt góð. Við erum svekktir með að hafa tapað leiknum en það er mikið eftir. Það var reynsluleysi sem varð til þess að Frimpong var rekinn útaf en það var rangstöðulykt af báð- um mörkum Liverpool,“ sagði Wen- ger eftir leikinn. Samir Nasri lék með Arsenal- liðinu en Frakkinn hefur sterklega verið orðaður við Manchester City og líklegt er að hann fari til þess áður en félagaskiptaglugganum verður lokað um mánaðamótin. „Ég hef alltaf sagt að ég vilji reyna að halda Nasri og þess vegna tefldi ég honum fram í leiknum. Á þessari stundu er ég ánægður að hann sé enn hjá okkur,“ sagði Wenger en stuðningsmenn Arsenal krefjast þess að Wenger taki upp veskið og kaupi þrjá til fjóra sterka leikmenn til félagsins. „Mér fannst við verðskulda þessi mörk og mér fannst við eiga sigurinn skilinn. Lið okkar er betra en í fyrra. Hópurinn er stærri og sterkari og samkeppnin um stöður í liðinu er hörð. Arsenal er frábært fótboltalið og Wenger hefur gert ótrúlega hluti með það þau ár sem hann hefur verið við stjórnvölinn. Auðvitað hafa verið betri tímar hjá Arsenal heldur en í dag,“ sagði Kenny Dalglish knatt- spyrnustjóri Liverpool. WBA stóð í Chelsea Frakkarnir Nicolas Anelka og Florent Malouda sáu um að tryggja Chelsea öll stigin á móti WBA sem lengi stóð í Lundúnaliðinu á Stam- ford Bridge. Shane Long kom WBA yfir snemma leiks. Anelka jafnaði metin í byrjun seinni hálfleiks og Malouda skoraði sigurmarkið 10 mínútum fyrir leikslok. „Það var eins væri einhver kvíði í leikmönnum mínum í fyrri hálfleik eftir að við fengum á okkur markið en við ræddum málin í leikhléinu og leikur okkar var allt annar og betri í seinni hálfleik,“ sagði Andre Villas- Boas knattspyrnustjóri Chelsea eftir sigurinn. „Við viljum verða meistarar á ný og það vilja stuðningsmennirnir líka. Við hlustum á þeirra kröfur,“ sagði Portúgalinn. City gerði góða ferð á Reebok Reuters Fögnuður Bosníumaðurinn Edin Dzeko fagnar marki sínu gegn Bolton á Reebok-vellinum í Bolton í gær.  Manchester City og Wolves eru efst  Fyrsti sigur Liverpool á Emirates ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2011 KORTIÐ GILDIR TIL 30.09.2011 – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR MOGGAKLÚBBURINN Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn Fyrstu 50 áskrifendur fá 2 miða á leik Grindavíkur ogVíkings Mættu á völlinn og framvísaðu Moggaklúbbskortinu við innganginn til að fá miða BÝÐUR ÁSKRIFENDUM ÁVÖLLINN GRINDAVÍK -VÍKINGUR 22. ágúst kl. 18:00 á Grindavíkurvelli FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1122 Brasilíumenn hömpuðu heims- meistaratitlinum á HM 20 ára landsliða í knatt- spyrnu sem lauk í Kólumbíu um helgina. Brass- arnir lögðu Portúgali í fram- lengdum úrslita- leik, 3:2. Oscar var hetja Brasilíumanna í leiknum en hann gerði öll mörk þeirra. Hann kom Brasilíu yfir snemma leiks og hann reyndist síð- an hetja þeirra. Oscar jafnaði metin í 2:2 tólf mínútum fyrir leikslok og skoraði svo sigurmarkið á 111. mín- útu leiksins þegar hann vippaði lag- lega yfir markvörð Portúgala. Þetta voru einu mark Oscars í keppninni en hann leikur með liði Internacional í heimalandi sínu. Fimmti heimsmeistaratitill Brasilíumanna Þetta var fimmti heimsmeist- aratitill Brasilíumanna í þessum aldursflokki en þeir höfðu áður unnið hann 1983, 1985, 1993 og 2003. Það eru hins vegar Argent- ínumenn sem hafa hampað heims- meistaratitlinum oftar, eða sex sinnum. Henrique, leikmaður Sao Paulo í Brasilíu, var útnefndur besti leik- maður mótsins en hann sýndi frá- bæra takta í leikjum Brasilíumanna á mótinu. Mexíkóar unnu til brons- verðlauna á mótinu með því að leggja Frakka, 3:1, í leik um þriðja sætið. gummih@mbl.is Brassarnir urðu heimsmeistarar  Oscar skoraði þrjú í úrslitaleiknum Oscar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.