Austurland


Austurland - 23.12.1974, Page 21

Austurland - 23.12.1974, Page 21
Jólin 1974. AUSTURLAND 21 ráðsins og Gæsluverndarráðs ins. Eru það fratoúrskarandi fögur húsa’kynni, sem voru hönnuð af norðmanni (Or- yggisráðið), svía (Eínahags- og félagsmálaráðið) og dana (Gæsiuverndarráðið). í þess- ari byggingu eru þrír veit- ingasalir hússins, mismim- andi að stærð og tilhögun eftir því, hve dýran máls- <yerð menn veita sér. Og síð- ast en ekki síst eru þama saiarkynni þeirrar nefndar alls'herjarþingsins. sem ýms- ir telja hina mikilvægustu, S. nefndar, en svo nefna mann barinn í daglegu gamni sín á milii. í kjabara þessara tveggja síóasttöldu bygginga eru svo funaarsal- ir fyrir nefndastörf og ótölu- leg herbergi starisiics, minja gripaveisiun og bókabúð. Lamgangur miili aliia þess- aia heroergja er svo gieiður, ac undrJm sætir i jáfrstóru húsi. 4. Dag Hammarskjöid-bók isafn ið, sem ekki var .e)st fyrr en eftir 1930 fyrir gjöf Ford- stofnunarinnar. Bókasafnið er ætlað til afnota fyrir þing fulltrúa og starfshð og á þegar yfir 250.000 bindi bóka á ýmsum tungumálum varð- andi efni, sem þarna má að gagni koma. Þarna eru þegar um 60.000 landabréf og í tímaritaherberginu liggia frammi nokkur þúsund blöð ag tímarit f:á ölium hei'ms- hlutuni. Listasafn Srnám saman hafa S. Þ. eign- ast fjölmörg listaverk. sem ýms- ar aðildarþjóðir hafa gefið. Hanga þau uppi og skreyta fag- urlega veggi aðalstöðvanna eða sianda með þeim. Það er eínkennandi. hve vegg teppi, oíin myndvefnaði, skipa öndvegi og draga að sér mesta athygli. Þannig er á vegg yfir 'Stiganum í anddyri þingfulltrúa •stærsta veggteppi, sem nokkru sinni hefur verið ofið, gjöf frá Belgíu. En l'engst dvöldumst við þó við sitt dýrlegt veggteppi, geysistórt er hangir í hvíldar- herbergi yfir aðalanddyri. Það er gjöf frá Senegal í Vestur-Afríku. Ý'msir þekktustu myndlistar- menn samtímans eiga þarna verk en 'líka má sjá þarna verk liðinna kynslóða. Þannig veitt- um við því athygli, að skammt frá Senegalteppinu fagra hékk lítið veggteppi, sem Perú hafði gefið. Einhver vakti athygli mína á því, að yfir engu öðru listaverki væri glerplata. Við nánari athugun kom upp úr dúrnum, að það var gert um 500 árum fyrjr Kristsburð. Garðurinn Kringum húsin hefur verið gerður hinn fegursti garður, sem hæfir stofnuninni. Ekki fe.r ég dult 'með það að það gladdi fag- mannsauga að skoða hann. Og var margt að iæra við þá skoð- un. En kannski var mest gaman að sjá að karlamir, sem gengu þarna um daginn út og daginn inn að snyrta limgerðin og slá grasflatirnar, notuðu sams kon- ar limgerðisklippur og við hér heima. Dagur í lífi þingfulltrúa íslenska sendinefndin á alls- herjarþinginu 1973 var vistuð á 26 hæða hóteli, sem er vart meira en 500 m frá aðalstöðvum S. Þ. Og sendiráð íslands hjá S. Þ. var aðeins einni blokk frá, en blokk kallast þarna þau hús, sem eru milli gatna. Það var því innan við 10 ’mínútna gangur frá hótelinu til sendi- ráðsins og þaðan svo svipuð vegalengd til allsherjarþings- byggingarinnar. Starfsdagurinn hófst kl. 10 árdegis með fundi í sendinefnd- inni. Hana skipuðu að þessu sinni þrír fulltrúar utanríkis- þjónustunnar: Fastafulltrúi hjá S. Þ., sem jafnframt er ambassa- dor þar, varafastafulltrúi og ræðismaður íslands í New York. Og auk þess fimm fulltrúar frá þingfiiökkunum á Alþingi. Ambassadorinn. sem jafn- I framt var formaður sendinefnd- arinnar, stjórnaði fundinum. Var farið fyrst yfir þau mál, sem rædd voru og/eða afgreidd í hinu'm ýmsu starfsnefndum þingsins eða fullskipuðu alls- herjarþingi daginn áður, en síð- an skoðuð dagskrá yfirstand- andi dags, rædd afstaða til mála og ákvörðun tekin um hverniig greiða skyldi atkvæði, ef at- kvæðagreiðsla skyldi vera í vændum. Ennfremur var rætt um hugmyndir að ályktunartil- lögum ef einhverjar væru, hvort Island skyldi stanida að tillögufiutnmgi með einhverjum cðnum þjóðum, en þarna standa gjarnan-margar þjóðir að flutn- ingi tillagna. Venjulegast tók fundurinn í sendinefndinni ekki nema hálf- tíma. Kl. 10.30 hófust reglulegir fundir í nefndum eða fullskip- uðu állsherjarþingi. en raunar viðgengst sá einlkennilegi siður á allsherjarþinginu, að setning fundar dregst oftast í 15—20 mínútur frá auglýstum fundai'- tírna. Starfsnefndir aHsherjarþings- ins eru sjö og hefur hver þeirra sérstaka málaflokka. Þar eru öll mál liögð fram fyrst og afgreidd til fullskipaðs allsherjarþings. Fulitrúum í sendinefndinni er fengið það verkefni að sitja í tilteknum nefndum og fyigjast með gangi mála þar, en er þó frjálst að sitja fundj annarra nefnda, ef þar eru rædd mál, sem þeir telja sérstaklega áhuga verð. í 4. nefnd nýlendumálanefnd- inni, sem mér var skipað í, voru það þrjú mál sem yfirskyggðu allt: Suður-Rhodesia, nýlendur Poitúgala í Afríku og kynþátta- aðsliilnaður Suður-Afríkustjórn- ar. Um nýlendur Portúgala voru lagðar fram mjög ítarlegar skýrslur, sem höfðu að geyma mikinn og óvæntan fróðleik. Þannig kom fram að Angóla er eitt auðugasta land Afríku og hin fjölþjóðlegu auðfólög Vest- urlanda hafa náð þar öflugri fótfestu. Margir tugir fulltrúa voru á mælendaskrá og ekki er því að leyna, að margar báru ræðum- ar með sér, að þær voru fyrst og fremst fluttar fyrir fjölmiðla í heimalandi ræðumannsins eða fyrir sagnfræðinga framtíðar- innar. Langoftast voru þær skrif aðar og oft var handriti dreift fyrirfram meðal sendinefnd- anna. Það reyndi því lítt á mælskulist, auk þess sem fram- burður ýmissa ræðu'manna sem töluðu t. d, á ensku, var svo slæmur, að erfitt var að fylgjast með máli þeirra. Hinsvegar kom stu-ndum fyr- ir að ýmsar sendinefndir fyrir frelsishreyfingar í Afríku fen-gu að flytja mál fyrir nefndinni í tengslum við umræður og var það harla fróðlegt og átakanlegt, sem þær höfðu fram að færa. — Þannig gætum við hugsað ökk- ur, að ef Jón Sigurðsson hefði Jamil M. Baroody, varafasta- fulltrúi Saudi-Arabíu. — Mynd: S. Þ. Sendinefnd íslands á 28. allsherjarþinginu. Frá vinstrv Baldvin Jónsson, hrl. (Alþýðuflokkur), Ingvi S. Ingvarsson, fastafulltrúi íslands; formaður nefndarinnar, Þorsteinn Jónatansson, ritstjóri (SFV), dr. Gunnar G. Schram, varafastafulltrúi, Sigurður Blöndal^ skógarvörður (Alþýðubandalag), Magn- ús Jónsson, alþm. (Sjálfstæðisflokkur), Hannes Pálsson, bankastjóri (Framsóknarfl.). — Mynd: S. Þ. „FóstbrœðuFJ Samar Sen, fastafulltrúi Indlands, og Lazar Mojsov, fastafulltrúi Júgóslafíu. — Mynd: S. Þ.

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.