Birtingur - 24.12.1953, Síða 11

Birtingur - 24.12.1953, Síða 11
Bókmenntastörf ungra höfunda 1953 Á þessu ári hafa komið út óvenju inargar bækur eftir unga höfunda. Jón Jóhannesson er að vísu ekki ungur í hold- inu lengur — á aldur við Stein og Snorra — en fyrsta ljóðabók hans, / fölu grasi, sem út koin í vor, er í fleiru en einu tilliti eins og þroskað æskuverk og gefur mikil fyrirheit. Jón Óshar gaf út fyrstu hók sína í vor, smá- sagnasafnið Mitt andlit og þitt. Núna á dögun- um sendir hann frá sér fyrstu ljóðabók sína: Skrifað' í vindinn. Bjarni Benediktsson frá Hofteigi gaf á s. 1. vori út fyrstu bók sína, Sú kemur tíð ..., safn af blaðagreinum, ritgerðum og erinduin um ýmis efni, einkum bókmenntir. Einar Bragi gaf út aðra ljóðabók sína, Gesta- boð um nótt, í vor leið. Áður höfðu komið út eftir hann ljóðabókin, Svanur á báru, og Eitt kvöld í júní — óbundnar impressjónir. Sveinbjörn Benteinsson gaf í haust út aðra hók sína, Bragfrœði. Áður liafði hann gefið út rímnasafn, Gömlu lögin. Agnar Þórðarson var fulltrúi ungu skálda- kynslóðarinnar í öðrum bókaflokki Máls og menningar. Ef sverð þitt er stutt.. . er önnur skáldsaga hans, en sú fyrri nefndist Haninn gal- ar tvisvar. Þá hefur hann skrifað Þeir koma í haust, leikrit. Björn Þorsteinsson, sagnfræðingur, gaf í haust út fyrstu bók sína, íslenzka þjóðveldið — einnig í bókaflokki Máls og menningar. Kristján frá Djúpalœk gaf út íinnntu ljóða- Sýningu Þorvalds Skúla- sonar í Listvinasalnum er nú fyrir nokkru lokið. Var hún mjög vel sótt, og margar myndir seldust. Dómar dagblaðanna um sýninguna voru einróma lofsamlegir. — Myndin hér við hliðina er af einu þeirra málverka, sein á sýningunni voru. BJRTINGUR 11

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/822

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.