Austurland - 15.03.1984, Qupperneq 1
Austurland
Alþýðubandalagið
Neskaupstað:
Félagsvist
í Egilsbúð kl. 845 í kvöld
34. árgangur. Neskaupstað, 15. mars 1984. 11. tölublað.
Bœjarstjórn Neskaupstaðar:
Mótmælir ákvörðun
samgönguráðherra
Stangast veitingin á við lög?
Vegna veitingar sérleyfisins Neskaupstaður - Eskifjörður
- Reyðarfjörður - Egilsstaðir ályktar bæjarstjórn Neskaup-
staðar eftirfarandi:
„Bæjarstjórn mótmælir harðlega þeirri ákvörðun samgöngu-
ráðherra að endurveita ekki Benna og Svenna hf. sérleyfi til
fólksflutninga á leiðinni Neskaupstaður - Egilsstaðir. Benni
og Svenni hafa sinnt þessu sérleyfi á þann veg í heilan áratug
að þeir njóta óskoraðs trausts viðskiptavina sinna og alls al-
mennings.
í fundargerð Skipulagsnefndar fólksflutninga frá 11.01.84
segir, að „veitingarvaldið væri bundið af lögunum að veita
fyrri sérleyfishöfunt leiðina ef þeim þóknaðist að sækja . .
og í fundargerð sömu nefndar frá 01.02.84 er bókað að „menn
(voru) sammála um að svo virtist, sem Benni og Svenni nytu
trausts sem duglegir og traustir ferðamenn.“ Pað er svo í
hæsta máta aðfinnsluvert að meiri hluti nefndarinnar mistúlk-
ar beinlínis yfirlýsta stefnu heimamanna um að sameina sér-
leyfin tvö í eitt sérleyfi og notar hana sem rök til að komast
að niðurstöðu sem gengur þvert á fyrri yfirlýsingar. Því telur
bæjarstjórn að afgreiðsla Skipulagsnefndarinnar og ákvörðun
samgönguráðherra stangist á við ákvæði um endurveitingu í
6. gr. laga nr. 29/1983 og 2. gr. reglugerðar nr. 641/1983.
Bæjarstjórn Neskaupstaðar lýsir furðu sinni á því að meiri-
hluti Skipulagsnefndar og samgönguráðherra skuli virða svo
lítils vilja heimamanna með því að hafa að engu eindregna
áskorun bæjarstjórnarinnar. Bæjarstjórn beinir því til þing-
manna Austurlandskjördæmis að þeir beiti sér fyrir breytingum
á lögum nr. 29/1983 um sérleyfisakstur, þannig að áhrif heima-
manna verði tryggð í þessu stóra hagsmunamáli, t. d. með því
að landshlutasamtök sveita'rfélaganna fái aðild að nefndinni."
Flutningsmenn voru allir bæjarfulltrúar Alþýðubandalags
og Sjálfstæðisflokks en tillagan var samþykkt samhljóða með
atvkæðum allra bæjarfulltrúa.
Launakönnun hjá Verslunarmannafélagi Austurlands:
Launataxtar óhagstæðari
fyrir landsbyggðarfólk
Konur flestar í Iægstu flokkunum
/ kjölfar þeirra launakannana, sem fram hafa farið á höfuðborgarsvœðinu og
birtar hafa verið, gekkst Verslunarmannafélag Austurlands fyrir launkönnun meðal
félagsmanna.
Niðurstaða kannana hjá V. F. A. eru birtar hér á eftir og er miðað við janúarlaun sl.
Upplýsingar bárust frá 11
þéttbýliskjörnum á félagssvæð-
inu. Fram kom, að 88 félags-
menn höfðu laun innan við
13.000,- á mán., í þeim hópi
voru konur 94.32%. Þá höfðu
76 félagsmenn laun á bilinu 13
- 15 þúsund á mán., en úr þeim
hópi voru 75% konur. 35 félags-
menn voru á bilinu 15 - 17
þúsund, en þar af voru konur
48.37%. 24 félagsmenn voru á
bilinu 17 - 19 þúsund, þar af
voru konur 33.33%. Mikils mis-
ræmis virðist gæta meðal birtra
kannana. I ljósi þess, má sjá, að
launataxtar eru okkur lands-
byggðarfólki mjög óhagstæðir
og má túlka launa- og kjarataxta
óraunhæfa. Þyrftu þeir trúlega
endurskoðunar og lagfæringar
við, til þess að gera taxtana not-
hæfa. Misjafna aðstöðu til launa
og kjara þarf að uppræta.
s
A öskudag
í blíðviðrinu á öskudaginn
safnaðist hópur grímuklæddra
barna og unglinga og jafnvel
foreldra saman í skrúðgarðinum
í Neskaupstað og sló köttinn úr
tunnunni við mikla kátínu. Á
eftir hélt hópurinn niður í Egils-
búð þar sem dansað var af miklu
fjöri fram undir kvöld.
Myndina hér til hliðar tók
Logi Kristjánsson og einnig
myndasyrpuna á bls. 3.
Fyrsta alþjóðlega skákmótið
í Neskaupstað sett á sunnudag
Þrír stórmeistarar og fímm alþjóðlegir meistarar tefla
Ljóst er nú hverjir verða þátt-
takendur í alþjóðlega skákmót-
inu í Neskaupstað dagana 19.
mars - 1. apríl nk.
Þeir verða:
Stig
William Lombardy USA. SM 2505
Jón L. Árnason ÍSL, AM . 2500
Guðm. Sigurjónss. ÍSL, SM . 2470
Vincent McCambr. USA. AM 2465
Margeir Péturss. ÍSL, AM . 2465
Milorad Knezevic JUG, SM 2450
Helgi Ólafsson ÍSL, AM . . 2445
H. Schussler SVI, AM ... 2445
Jóhann Hjartarson ÍSL . . . 2415
Benóný Benediktsson ÍSL . 2355
Elvar Guðmundsson ÍSL . . 2330
Dan Hansson SVI ......... 2320
Allir tefla við alla og umferðir
verða því ellefu. Samtals stiga-
tala keppenda er 29.265 og mót-
ið er því í áttunda styrkleika-
flokki FIDE og geta keppendur
því náð áfanga til stórmeistara-
titils með 8 vinningum og til titils
alþjóðameistara með 6 vinning-
um. Meðaltal stiga er 2430.42
stig.
Teflt verður í fundarsal Egils-
búðar en skýringar verða í
aðalsal. Skákskýrendur verða
fleiri en einn m. a. Ingvar Ás-
mundsson. Mótsstjóri verður
Jóhann Þórir Jónsson, yfirdóm-
arar: Guðmundur Arnlaugsson
og Jóhann Þórir Jónsson.
Skákstjórar verða: Einar Már
Sigurðarson og Eiríkur
Karlsson.
Mótsstjórn skipa: Jóhann
Þórir Jónsson, Eiríkur
Karlsson, Einar Már Sigurðar-
son, Logi Kristjánsson, Elma
Guðmudnsdóttir. Páll Baldurs-
son og Björn Magnússon.
Dagskrá mótsins verður sem hér segir:
Mánudagur 19. mars kl. 17 .
Þriðjudagur 20. mars kl. 17
Miövikudagur 21. mars kl. 17
Fimmtudagur 22. mars . . .
Föstudagur 23. mars kl. 17 .
Laugardagur 24. mars kl. 13'"
Sunnudagur 25. mars kl. 14
Mánudagur 26. niars kl. 1(1 .
Mánudagur 26. mars kl. 17 .
Þriðjudagur 27. mars kl. 17
Miövikudagur 28. mars kl. 17
Fimmtudagur 29. mars kl. 14
Föstudagur 30. mars kl. 17 .
Laugardagur 31. nrars kl. 14
Sunnudagur 1. apríl kl. 10 .
Sunnudagur 1. apríl kl. 16
Sunnudagur 1. apríl kl. 19
1. umferö
2. umferö
3. umferð
Kvnning bæjarins og biðskákir
4. umferð
5. umferö
6. umferö
Biðskákir
7. umferð
8. umferð
9. umferð
Biðskákir
10. umferð
Biðskákir
11. umferð
Biðskákir
Lokahóf og mótsslit