Austurland - 15.03.1984, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR, 15. MARS 1984.
----------Austurland--------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Gudmundsdóttir, Guðmundur Bjamason,
Kristinn V. Jóhannsson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Ólöf Þorvaldsdóttir S7374.
Auglysingar og dreifing: Áshildur Sigurðardóttir
©7629 — Pósthólf 31 — 740 Neskaupstað.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
©7571.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Tryggt verði fé til
jarðgangarannsókna
Sl. 5 ár hafa austfirskir sveitarstjórnarmenn vakið
athygli Vegagerðar ríkisins á þýðingu jarðgangagerð-
ar á Austurlandi.
Þeir hafa bent á að hringtenging þéttbýlisstaðanna
á Mið-Austurlandi og betri tenging endabyggðanna
við miðsvæðið myndi efla samstöðu og styrkja fram-
tíðaruppbyggingu landshlutans. Samtengingin gerði
íbúum og fyrirtækjum kleift að ráðast í verkefni á
sviði framleiðslu, þjónustu og menningarstarfs, sem
þau gætu ekki ráðist í hvert fyrir sig. Þjónustusvæði
einstakra stofnana myndi stækka og auðveldara væri
að koma á verkaskiptingu milli staða. Þá hafa sveit-
arstjórnarmenn bent á, að flytja mætti rafmagns- og
símalínu frá veðrasömum fjallatoppum í skjólrík
göng og að með hringtengingu fengist aukið öryggi
í flutningslínum. Og það grjót úr göngunum sem
ekki yrði notað til vegagerðar í tengslum við ganga-
gerðina mætti nota í varnargarða eða til steinsteypu,
því víða er skortur á byggingarefni og sprengdu grjóti
á Austurlandi.
Þessi skýru og augljósu rök virðast ekki hafa fengið
náð fyrir eyrum þingmanna Austurlands og má það
furðu sæta. Áætlunardeild Byggðasjóðs hefur gerst
dyggur baráttuaðili í þessu máli og er það vel. Vega-
gerðin virðist aðeins vera að ranka við sér því að á
sl. ári voru gerðar á Vestfjörðum og á Austurlandi
jarðfræðirannsóknir á hennar vegum vegna jarð-
ganga. Jarðfræðiskýrsla um þessar rannsóknir liggur
ekki fyrir ennþá, en fyrstu niðurstöður benda til þess
að göng milli fjarða hér Austanlands séu álíka hag-
kvæm og í Færeyjum þar sem km kostar 40 - 50
millj. Miðað við afköst Færeyinga gæti 18 manna
vinnuflokkur með bortæki fyrir rúmar 20 millj. grafið
2-3 km á ári. Um aldamót væri slíkur flokkur búinn
að grafa 30 - 40 km af göngum, væri hafist handa
strax. Til samanburðar má benda á, að Vestfirðingar
ræða um 12 km göng alls og Austfirðingar ca. 20 km.
Framangreind rök ásamt marg ítrekuðum áskorun-
um sveitarstjórna og ótvíræð þýðing Oddsskarðs-
ganga fyrir nærliggjandi byggðir, hljóta að fara að
ýta við þingmönnum Austurlands. Hér meðer skorað
á þá, að tryggja afgreiðslu vegaáætlunar á þessum
vetri, fé til nauðsynlegra rannsókna og áætlunargerð-
ar, svo hægt verði að hefja framkvæmdir við næstu
jarðgöng á Austurlandi á þessum áratug.
Við mat á hagkvæmni gangagerðar er eðlilegt að
ekki verði aðeins tekið tilit til atriða eins og sparnaðar
í viðhaldi bifreiða, vegagerð og snjómoksturs heldur
einnig varðandi síma- og raflagnir auk orkusparnaðar
og þeirra jákvæðu áhrifa, sem samtenging byggða
hefur á allt atvinnu- og félagslíf. L. K.
FRÁ ALÞINGI
Fj ármálahneyksli
ríkisstj órnarinnar
Fjármálaráðherra íhaldsins telur
sig sitja á tvö þúsund milljóna gati
Þaö hefur nú komið í ljós,
að fjárlagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar sem afgreitt var
sem lög á Alþingi fyrir jól var
byggt á stórfelldum blekking-
um. Albert fjármálaráðherra
hefur reynt að klóra í bakkann
með því að gefa Alþingi
skýrslu um stöðuna þar sem í
ljós kemur, að áætlaður rekstr-
arhalli ríkissjóðs hækkar úr
389 milljónum í 1977 milljónir
kr. á þessu ári.
Ymsir gruna raunar ráð-
herrann um að draga þetta mál
fram nú til að nota það sem
keyri á opinbera starfsmenn,
sem greiða munu atkvæði um
kjarasamninga 19. - 20. mars
en meðal margra þeirra gætir
mikillar óánægju ekki síst í
röðum kennara.
Við umræður um stóra gatið
fjármálaráðherrans á Alþingi
í síðustu viku ræddi Geir
Gunnarsson, sem sæti á í fjár-
veitinganefnd fyrir Alþýðu-
bandalagið, meðal annars yfir-
lýsingar Alberts úr umræðum
um fjárlagafrumvarpið, þar
sem ráðherrann tók sérstak-
lega fram, að: „Út fyrir þann
ramma, sem útgjöldum ríkis-
ins hefur verið settur í fjárlaga-
frumvarpi fyrir 1984 verður
ekki farið."
Stjórnarandstaðan benti
hins vegar rækilega á það fyrir
afgreiðslu fjárlaga, að engin
grein væri gerð fyrir ýmsum út-
gjaldaliðum eða þeir vantald-
ir. í áliti minnihluta fjárveit-
inganefndar sagði m. a.: „Þeg-
ar allt þetta er metið er Ijóst
að hafin er á ný sú skuldasöfn-
unarstefna sem einkenndi
ríkisfjármálin þegar þau voru
undir stjórn Sjálfstæðisflokks-
ins á árunum 1974 - 1978.“
Geir Gunnarsson minnti á
orð talsmanna ríkisstjórnar-
innar fyrir jól þar sem þeir
héldu því fram að hér væri á
ferðinni „raunhæfust fjárlög",
sem Alþingi hafi nokkurn tíma
samþykkt, nánast fullkomin
vísindaleg smíð. Nú væri hins
vegar kominn í Ijós viðbótar-
rekstrarhalli, sem nemur
hvorki meira né minna en um
90% af öllum áætluðum tekju-
skatti einstaklinga á þessu ári
eða nær 7 þúsund krónum á
hvert mannsbarn í landinu.
Heildarútgjöld ríkissjóðs án
aðgerða eru nú áætluð 31.9%
af áætlaðri vergri þjóðarfram-
leiðslu á þessu ári en það væri
hæsta hlutfall ríkisútgjalda svo
langt aftur sem hann hefði
skýrslur um. Benti Geir á, að
ráðherra þyrfti að gera tals-
verðar ráðstafanir til að létta
útgjöldum af ríkissjóði ef hann
ætli ekki að gerast methafi í
ríkisumsvifum samtímis því
sem hann boðaði sem eitt af
meginmarkmiðum sínum í
ríkisfjármálum að minnka um-
svif ríkisins sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu. Ráðherra
hafi einnig margítrekað að
ekki komi til mála að leggja
nýjar álögur á landsmenn.
Geir varpaði einnig þeirri
spurningu fram. hvort fjár-
málaráðherra ætlaði þrátt fyrir
upplýsingarnar um stöðu ríkis-
sjóðs, að auka enn á vanda
hans með því að halda fast við
þau áform stjórnarflokkanna
að létta sköttum af eigna-
mönnum og fyrirtækjum.
Rækjuvinnslur
Athugið, að við útvegum með stuttum fyrirvara okkar þekktu rækjukassa, í
stærðunum 35 og 55 Itr. — auk annarra plastkassa, í ýmsum stæröum. — Hægt er
að fá kassana áprentaða, ef óskað er.
Hafið samband við okkur, B. Sigurðsson sf.
í tíma, ef þið hyggið á kaup. Nýbýlavegi 8 — Kópavogi.
Sími 4 62 16
NYTT EFNIIHVERRIVKU
OPIÐ ALLA DAGA 1 - 9