Austurland - 17.11.1988, Blaðsíða 1
Austurland
Tölvupappír
//•
'NESPRENT
® 71189 & 71135
Stöðvarfjörður
íbúðir aldraðra
áteikniborðinu
Hönnun á fjögurra íbúða húsi
fyrir aldraða á Stöðvarfirði er
nú langt komin en það er Björn
Kristleifsson arkitekt á Egils-
stöðum sem vinnur það verk.
Að sögn Björns Hafþórs Guð-
mundssonar, sveitarstjóra, er
útlit hússins fullmótað en menn
eru að velta fyrir sér innra skipu-
lagi hússins.
Björn Hafþór sagði að nú
væri búið að sækja um graftar-
leyfi til byggingarnefndar og
reiknað væri með að hefjast
handa við grunn hússins þegar
það leyfi iiggur fyrir. Húsið
verður um 320 m2 og auk fjög-
urra leiguíbúða verður sameig-
inlegt þjónusturými með eld-
húsi og setustofu. Hreppsnefnd
hefur nú sótt um fyrirgreiðslu til
Byggingarsjóðs aldraðra og
framkvæmdasjóðs aldraðra og
eru menn bjartsýnir á jákvæð
svör. Að sögn Björns Hafþórs
er stefnt að því að skipta um
jarðveg í grunni í haust þannig
að hægt verði að steypa grunn
strax næsta vor.
Á Stöðvarfirði er til sjóður
með um hálfri milljón króna til
framkvæmdanna. Þar er um að
ræða minningarsjóð um Einar
Benediktsson frá Ekru og hefur
sá sjóður haft tekjur af sölu
minningarkorta og eins hefur
kvenfélagið á staðnum lagt hon-
um lið með fjáröflunum. hb
Benedikt Sigurjónsson bœjarverkstjóri í Neskaupstad er stoltur þar sem hann stendur á
miðjum Bakkaveginum. í fyrradag luku bœjarstarfsmenn við að skipta um jarðveg í hluta
götunnar og kœtist án efa margur vegfarandinn eftir það, því umrœddur Bakkavegur hefur verið
illur yfirferðar frá upphafi. Mynd hb
Neskaupstaður
Opið hús hjá Rannsóknastofnun
Ómar Skarphéðinsson, Krislinn ívarsson og Stefán Pálmason við
troðarann nýja. Mynd hb
Neskaupstaður
Nýr snjótroðari
í síðustu viku kom til Nes-
kaupstaðar nýr snjótroðari í
eigu Skíðamiðstöðvarinnar í
Oddsskarði. Troðarinn er af
Kásbohrer gerð og er keyptur
notaður frá Þýskalandi. Hann er
árgerð 1984 og hefur verið not-
aður í 3300 tíma. Snjótroðarar
þessarar gerðar eru m. a. notað-
ir í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli og
hafa reynst vel þar.
Togarinn Birtingur flutti snjó-
troðarann endurgjaldslaust frá
Þýskalandi. Kristinn ívarsson og
Stefán Pálmason stjórnarmenn í
Skíðamiðstöðinni báðu AUST-
URLAND að koma á framfæri
þakklæti til Síldarvinnslunnar hf.
og áhafnar Birtings, sem þeir
sögðu að hefði gætt troðarans
eins og sjáaldurs auga síns á sigl-
ingunni. hb
í tilefni af Norrænu tækniári
verður útibú Rannsóknarstofn-
unar fiskiðnaðarins í Nes-
kaupstað með opið hús sunnu-
daginn 20. nóvember nk. á milli
kl. 13 og 17.
Útibúið tók til starfa í byrjun
árs 1977 og var tilgangurinn með
stofnun þess að auka þjónustu
við fiskiðnaðinn á Austurlandi
á svæðinu frá Vopnafirði til
Hornafjarðar. Starfsemi útibús-
Starfsmenn RF í Neskaupstað,
Porsteinn lngvarsson og Lilja
Hulda Auðunsdóttir. Myndlib
ins hefur í gegnurn árin verið
fólgin í ýmiskonar þjónustu-
rannsóknum við hin fjölmörgu
fiskvinnslufyrirtæki í fjórðungn-
um og þá einkum fiskimjöls-
verksmiðjur og söltunarstöðv-
ar.
Á síðastliðnu vori var tekin í
notkun gerlaræktunaraðstaða
hjá útibúinu og hefur sá liður
starfseminnar veirð mjög mikið
notaður af frystihúsum.
Þessa dagana snýst starfsemi
Rannsóknarstofnunar fiskiðn-
aðarins að mestu um mælingar
og rannsóknir á síld auk þess
sem loðnan er venjulega fyrir-
ferðarntikil á þessum árstíma þó
svo að lítið hafi verið um hana
undanfarið. hb
Hornafjörður
Ánægja með slitlagið
„Við erunt að vona að vel hafi
tekist til nteð þetta slitlag og það
hafa engar óánægjuraddir kom-
ið fram um það enn", sagði Ing-
ólfur Arnarson umdæmisstjóri
Flugmálastjórnar þegar AUST-
URLAND forvitnaðist um
hvernig til hefði tekist með lagn-
ingu slitlags á flugvöllinn við
Hornafjörð.
Hann sagði að ennþá væri
margt óvisst í framhaldi af lagn-
ingu slitlagsins, til dæmis, hefði
tíðarfar verið nokkuð gott síðan
og ekkert reynt á snjóruðning
eða hálkueyðingu. Þó sagði Ing-
ólfur ljóst að slitlagið hefði nú
þegar sannað gildi sitt því flug-
vallarstarfsmenn á Hornafirði
hefði talið víst að völlurinn
hefði lokast í síðustu viku vegna
aurbleytu ef ekki hefði verið
komið slitlag. hb
Munið Víkurbitann
Opið frá kl. 11 til 20
NEÖVÍDEÓ S 71780
-y Hrærivélar (Multi Practie)
BRflUIl
Rakvélar
Gufustraujárn